Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 12

Morgunblaðið - 08.01.1998, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Til leigu (efiri haeð) Á besta stað á Akureyri er til leigu 260 m2 í Kaupvangsstræti 4. Upplýsingar í símum 462 7466 - 892 7766 (Pétur) - 462 5400 (Jón) Akuryrkja Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið. TIÐARFARIÐ gerir það ekki endasleppt við eyfirska bændur. Jarðvinnsla er ekki algeng í jan- úarmánuði en Benedikt Hjaltason á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit notaði sér þessa mildu tíð og tók til við að plægja byggakur sinn í gærdag. Gekk það verk ljómandi vel þrátt fyrir örlitia, eða um 5 sentímetra frostskel í jörðu. Bene- dikt var með fjögurra skera vendi- plóg aftan í öflugri dráttarvél. Benedikt sagði að hann væri að flýta vorverkunum, en hugmyndin væri að sá grasfræi í landið, sem hann er nýlega búinn að selja Eyjafjarðarsveit. -----♦ ♦ ♦---- Söngskemmt- un Karlakórs Eyjafjarðar KARLAKÓR Eyjafjarðar heldur söngskemmtun í félagsheimilinu Laugaborg í Eyjafjarðarsveit næst- komandi laugardag, 10. janúar og hefst hún kl. 21. Á efnisskrá eru lög úr ýmsum áttum, en flestir textarnir eftir ey- firska höfunda. Karlakórinn er nú á öðru starfsári sínu og eru félagar um 40 talsins og koma þeir víða að úr Eyjafirði. Einsöngvarar úr röðum kórfélaga eru þeir Jóhannes Gíslason og Stefán Birgisson en undirleik annast Birgir Karlsson, Eiríkur Bóasson og Guðjón Pálsson. Stjórn- andi kórsins er Atli Guðlaugsson. Jeppa-, vélsleða- og útilífs- sýning FÉLAG vélsleðamanna í Eyjafirði hefur um árabil staðið fyrir veg- legri útilífssýningu um miðjan jan- úar og svo verður einnig nú. Sýn- ingin Vetrarsport ’98 verður haldin í Iþróttahöllinni á Akureyri dagana 10.-11. janúar nk. og verður mikið um dýrðir að venju. Markmið sýningarinnar er ekki síst að opna augu fólks fyrir þeim fjölmörgu möguleikum sem það hefur til að njóta íslenska vetrarins í stað þess að hírast inni og bíða eftir sumrinu. Á sýningunni má á einum stað sjá allt sem viðkemur vélsleða- mennsku, jeppasporti og almennri útivist að vetrarlagi. Auk ökutækj- anna verður þar allt það nýjasta í fatnaði, fjarskiptabúnaði, siglinga- tækjum, öyggisbúnaði og fleira. Þetta er ein af fáum árlegum fag- sýningum á Akureyri og dregur hún fjölda fólks til bæjarins. Öll vélsleðaumboð landsins verða á meðal sýnenda og flest jeppaum- boð. Þetta er annað árið í röð sem jepparnir eru með á sýningunni. Þá má geta þess að ferðaþjónustuaðilar í Eyjafirði koma nú að sýningunni. íþróttahöllin á Akureyri er stærsta sýningarhús bæjarins og er aðstaða fyrir sýnendur og gesti eins og best verður á kosið. Á úti- svæði verður markaður með notaða vélsleða og þar má búast við að verði handagangur í öskjunni að vanda. Mikil vinna liggur að baki sýningu sem þessari og er hún að stærstum hluta sjálfboðavinna vél- sleðafólks. Einnig leggja fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki lóð sín á vogarskálarnar til að sýningin verði að veruleika. Sýningin er opin frá kl. 10-17 laugardaginn 10. janúar og kl. 13-17 á sunnudag. Árshátíð norð- lenskra vélsleðamanna verður í Sjallanum á laugardagskvöldið kl. 20 og er öllum heimill aðgangur. Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Gísli Bragi Hjartarson úr bæjarstjórn eftir 12 ára starf Vel tekist til með margt GlSLI Bragi Hjartarson, sem verið hefur bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í bæjarstjórn Akureyrar síðustu 12 ár, hyggst hætta afskiptum af stjóm- málum þegar kjörtímabilinu lýkur í vor. Hann settist fyrst í bæjarstjórn eftir kosningar vorið 1986, en hafði áður „verið að stússast í ýmsum nefndum og ráðum á vegum flokks- ins frá því árið 1961 eða 2,“ eins og hann orðaði það. „Þetta var ekki erfið ákvörðun, það er eðlilegt að endurnýjun eigi sér stað í bæjarmálapólitíkinni, ef maður er of lengi í þessu er hætta á að maður verði hluti af því kerfi sem maður á að stjórna. Það er held- ur engum hollt að vera of lengi í svona starfi," sagði Gísli Bragi. Hann starfar nú hjá Trygginga- miðstöðinni, tók við af syni sínum, Alfreð Gíslasyni, þegar hann hélt í fyrrasumar út til Þýskalands þar sem hann sem hann starfar við þjálfun. „Ég geri ráð fyrir að þegar þessu lýkur í vor muni ég sinna áhugamál- um mínum af meiri krafti en tóm hefur gefist til fram til þessa og þá gefst líka meiri tími til að vera með fjölskylunni en verið hefur,“ sagði Gísli Bragi, en áhugamálin liggja m.a. á sviði íþróttanna. „Ég segi kannski ekki að ég ætli að gerast atvinnumaður í golfi en hlakka til að geta stundað það meira en á síð- ustu árum.“ Gísli Bragi er eini fulltrúi Alþýðu- flokks í bæjarstjórn og situr í meiri- Gísli Bragi Hjartarson. Morgunblaðið/Kristján hluta með Framsóknarflokki, síðasta kjörtímabil var hann í minnihluta en þar áður í meirihluta með Sjálfstæð- isflokki. „Þegar ég lít yfir þessi ár þá finnst mér að ágætlega hafi til tekist á yfirstandandi kjörtímabili, enda höfum við verið í ágætri að- stöðu til að vinna að góðum mál- um,“ sagði hann en á tímabilinu 1986 til 1990 þegar hann sat áður í meirihluta voru aðstæður allt aðr- ar, samdráttur í þjóðfélaginu og lítið svigrúm. Hann sagði margs að minnast og þátttaka í stjórnmálum væri yfirleitt gefandi, menn kynntust mörgu góðu fólki og mæti hann það mikils. „Ég hefði alls ekki viljað missa af þessu en er efst í huga fólkið í mínum flokki sem staðið hefur á bakið við mig gegnum súrt og sætt,“ sagði Gísli Bragi. Forstöðumaður Skíðastaða bjartsýnn þrátt fyrir rigningu EIN góð snjógusa og þá geta Akur- eyringar farið á skíði í Hlíðarfjalli. Það er mat ívars Sigmundssonar, forstöðumanns Skíðastaða í Hlíðar- (jaili, sem er langt í frá svartsýnn á skíðatíðina framundan þótt úr- hellisrigningar hafi einkennt veður- farið í bænum síðustu daga. Það er nokkru kaldara í fjallinu og úr- koman því verið í snjóformi. „Það er enn ekki kominn nægur skíðasnjór í Hlíðarfjalli en það er ekki stórmál, hann kemur,“ sagði ívar. Þegar hefur verið opnuð um eins kílómetra löng göngubraut sem menn hafa nýtt sér, en hún er upplýst. „Við þurfum ekki nema eina góða snjógusu og þá ættum við að geta opnað eina eða tvær lyftur til að byija með. Útlitið hefur oft ver- ið verra en núna,“ sagði ívar, en þónokkur snjór er í fjallinu þegar, Snjórínn kemur ansi blautur samt. Miklar breyting- ar hafa verið gerðar á gjaldskrá, lyftukort lækkað um 36% frá því á síðasta ári. „Lækkunin er fyrst og fremst tilkomin í kjölfar þess að við heyrðum margt fólk tala um að það væri of dýrt að fara á skíði. Með því að lækka gjöldin viljum við freista þess að fá fleira fólk til okkar,“ sagði ívar. Á síðasta ári kostaði dagskort fyrir fullorðna 950 krónur og hálf- ur dagur 750 krónur. Nú verður einungis eitt gjald, 600 krónur. Dagskort fyrir börn kostar nú 300 Morgunblaðið/Kristján krónur. Ókeypis verður fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri í barnalyftuna og ókeypis verður fyrir börn yngri en 6 ára í allar Iyftur. Vetrarkort fyrir fullorðna kostar nú 9.000 krónur og 4.500 fyrir börn en engir hópafslættir verða gefnir nú eins og áður tíðkað- ist. Þá verður sú nýbreytni tekin upp að á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum verður opið til kl. 21. Á mánudögum og föstudög- um er opið frá kl. 13 til 18.45 og um helgar frá kl. 10 til 17. Unnið hefur verið að ýmsum endurbótum í Hlíðarfjalli í sumar, flóðljósum komið upp við göngu- braut og einnig má nefna að bíla- stæði við Skíðahótelið hafa verið stækkuð um helming. Þá verður nýr snjótroðari tekin í notkun um miðjan janúar. Námskeið um meðferð persónuupplýsinga NÁMSKEIÐ um meðferð persónu- upplýsinga í rannsóknum á heil- brigðis- og félagsvísindasviði verður haldið á Akureyri laugardaginn 17. janúar næstkomandi á vegum End- urmenntunarstofnunar Háskóla Is- lands og stendur það frá kl. 9 til 14.30. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu lög og reglur sem varða með- ferð persónuupplýsinga í vísinda- rannsóknum, m.a. ákvæði stjórnar- skrárinnar um friðhelgi einkalífs og tengsl þess við agareglur um skrán- ingu og meðferð persónuupplýsinga, lög um skráningu og meðferð per- sónuupplýsinga, lög um réttindi sjúklinga og reglugerðir settar sam- kvæmt þeim, helstu ákvæði lækna- laga og fyrirhugaðar breytingar á íslenskri löggjöf um skráningu og meðferð persónuupplýsinga í sam- ræmi við tilskipun ESB um gagna- vernd. Fyrirlesarar verða Þorgeir Örlygsson prófessor, formaður tölvunefndar, Sigrún Jóhannesdóttir lögfræðingur, framkvæmdastjóri tölvunefndar, Sigurður Guðmunds- son læknir, formaður vísindaráðs, og Haraldur Briem læknir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.