Morgunblaðið - 08.01.1998, Side 14

Morgunblaðið - 08.01.1998, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Verslunin JS í Borgarnesi hættir starfsemi Morgunblaðið/Ingimundur JON og Stefán Haraldssynir ráku Verslunina JS í Borgamesi í 18 ár. Hér eru þeir ásamt eiginkonum sínum. F.v. Jón Haraldsson, Þóra Björgvinsdóttir, Fanney Ólafsdóttir og Stefán Haraldsson. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi N emendur útskrifaðir á haustönn Hagkaup tekur við rekstri Borgarnesi - Um áramótin hætti verslunin JS i Borgarnesi rekstri. Þeir bræður Jón og Stefán Haralds- synir hafa rekið hana ásamt eigin- konum sínum. A þessum tímamótum voru þeir bræður teknir tali. Þeir bræður hófu rekstur „Versl- unar Jóns og Stefáns" 3. janúar 1980, en hún hefur í daglegu tali verið nefnd JS. Jóhann Ingimundar- son og kona hans, Þorbjörg Þórðar- dóttir, ráku verslunina Neskjör á sama stað. Þeir bræður keyptu lag- erinn og breyttu nafni verslunarinn- ar. I fyrstu var einnig í húsinu tísku- verslun og vöruflutningamiðstöð en JS yfirtók það rými. Húsnæðið hef- ur verið leigt allan tímann af Stein- ari Ingimundarsyni. Fyrirtækið stækkaði hægt og bítandi, en Versl- un Jóns og Stefáns hefur fyrst og fremst verið með matvörur en einnig örlítið af sérvörum fyrir skólanemendur. Gott samkomulag Verkaskipting þeirra bræðra var á þann veg, að Jón sá um peningamál- in en Stefán annaðist stjórn verslun- arinnar. Annars hafa þeir gengið 1 þau verk sem þurfti hverju sinni. Ef annar var í fríi gekk hinn í hans verk. Þessi ákveðna verkaskipting er trúlega grunnurinn að því hvað sam- starfið gekk vel. Þeir bræður sögðu að aldrei hefði fallið styggðaryrði milli þeirra. En þó eru þeir hreint ekki þekktir fyrir að vera skaplausir einstaklingar. Hvers vegna er rekstri JS hætt? „Reksturinn hefur verið eifiður og smáþyngst,“ sagði Stefán er hann var spurður að ástæðunni fyrir því að rekstri JS var hætt. „Folk sækir verslanir mikið suður, og við höfum ekki verið samkeppnisfærir um verð við stórverslanir í Reykjavík. Veltu- hraði er þar allt annai- en hér í Borg- arnesi. Þar eru innkaupsverð mun hagstæðari. Verslanir úti á landi eru með mun minni markaðssvæði og þar af leiðandi hærra vöruverð." En rekstri verður ekki hætt. Þar sem Verslun Jóns og Stefáns var til húsa verður Hagkaup með verslun. Tók við rekstrinum 1. janúar sl. Hagkaup keypti lagerinn og mun reka verslunina en leigja húsnæðið af Steinari Ingimundarsyni. Hag- kaup yfirtekur rými sem Geirabak- arí hafði fyrir verslun sína. Geira- bakarí, Sigurgeir Ó. Erlendsson og hans fólk, verður áfram með brauð- gerð í kjallara hússins. Búið er að gera samning við hann um að baka allt brauð og kökur fyrir Hagkaup. Eingöngn starfsmenn úr héraðinu Búið er að ráða fólk til starfa hjá Hagkaupi. Starfsfólk er allt búsett í sveitarfélaginu. Það er því ekki sama hvort heimamenn versla í Hagkaupi í Reykjavík eða í Borgarnesi. Þeir sem versla í Borgarnesi styrkja þar með heimabyggðina. Stefán sagðist vænta þess að fólk úr nágrannabyggðum, vestan af Snæfellsnesi, Dalamenn og íbúar norðan Holtavörðuheiðai’ myndu frekar versla í Borgai-nesi hjá Hag- kaupi heldur en fara suður. Vöruúr- val eykst væntanlega við þessa breytingu. Fólk má búast við lægra vöruverði en JS hefur getað boðið, sögðu þeir bræður. Með því vildu þeir þó ekki segja að verslun þeirra hefði staðið sig illa í því efni. Allar vörur sem framleiddar eru í Borgarnesi verða að sjálfsögðu á boðstólum í Hagkaupi í Borgarnesi. Aðspurðir um framtíðarstörf þeÚTa bræðra kom fram, að Stefán verður verslunarstjóri hjá Hagkaupi og sagðist hlakka til að að takast á við það hlutverk hjá nýju fyrirtæki. Jón hefur verið með umboð fyrir Sjóvá-Almennar í mörg ár. Viðskipt- in hafa stóraukist hjá honum undan- farin ár. Ekki var lengur hægt að hafa það sem hlutastarf. Hann hefur nú þegar opnað skrifstofu á Borgar- braut 61, við hliðina á Búnaðarbank- anum. Þakkir til viðskiptavina „Við höfum átt marga góða við- skiptavini sem hafa verslað við okk- ur frá fyrsta degi. Við þökkum þeim fyrir ánægjuleg viðskipti og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni,“ sögðu þeir bræður að lokum. FJÖLBRAUTASKÓLI Vesturlands á Akranesi brautskráði 48 nem- endur af 17 námsbrautum á haustönn en brautskráning fór fram laugardaginn 20. desember sl. við hátíðlega athöfn. Um 700 nemendur stunduðu nám við skól- ann á önninni en kennsla fer fram í Snæfellsbæ og Stykkishólmi auk Akraness. Af þeim nemendum sem braut- skráðust voru 25 stúdentar, 8 iðn- aðarmenn og 7 iðnmeistarar, 3 sjúkraliðar, 4 með verslunarpróf og einn nemandi af starfsbraut sérdeildar. Starfsemi skólans á haust önninni var fjölbreytt og tók nokkuð mið af viðburðum er tengdust 20 ára starfsafmæli skól- ans. I máli skólameistara kom fram að fyrirtæki og samtök á Vesturlandi og víðar hafa fært skólanum margvíslegan tækjaút- búnað að gjöf. Starf farskólans gengur vel Birna Gunnlaugsdóttir aðstoðar- skólameistari flutti annál liðinnar annar. I máli hennar kom fram að kvöldskóli hafi verið starfræktur á Akranesi fyrir verðandi iðnmeist- ara og rafsuðumenn. Farskóli Vesturlands, sem Trausti Gylfason stýrir, hélt námskeið víða á Vest- urlandi. Alls sóttu 360 manns þau 26 námskeið sem voru í boði. I undirbúningi er aukið samstarf farskólans og þeirra aðila á Vest- urlandi sem sinna endurmenntun. Á þeim 20 árum sem skólinn hefur starfað hefur nemendaijöldi þre- faldast þrátt fyrir að íbúafjöldi á Vesturlandi hafi staðið í stað. Að- sókn í verknámsdeildir var meiri í haust en undanfarin ár og í sam- ræmi við breyttar aðstæður í at- vinnulífinu. Erlltt reyndist hins vegar að fá nýja kennara þar til starfa. Starfsfræðslu fyrir fatlaða komið á fót Skólinn er að koma á fót starfs- fræðslu fyrir fullorðna einstak- linga á Vesturlandi. Menntamála- ráðuneytið veitti styrk til þessa þróunarverkefnis sem Inga Sig- urðardóttir kennari hefur umsjón með. Það vakti sérstaka athygli þegar skólameistari afhenti nem- endum burtfararskírteinin að fyrst í röðinni var Anna Björk Þorvarð- ardóttir, fjölfötluð stúlka sem stundað hafði nám við sérdeild skólans í tvö og hálft ár og sýnt miklar framfarir. Viðurkenningar fyrir ágætan árangur í námi fengu Ása María Guðjónsdóttir, Davíð Þór Jónsson, Gyða Einársdóttir, Halldóra Jónasdóttir, Ingunn Gunnarsdóttir, Kristin Sigríður Sigurðardóttir, Stefán Ingi Ólafs- son og Unnur Marfa Bergsveins- dóttir sem náði bestum árangri stúdenta að þessu sinni. Framkvæmdir við endurbætur og stækkun á kennsluhúsnæði skólans á Akranesi hefjast um mitt næsta ár. Fram kom í máli Birnu að félagslíf nemenda í skólanum stæði með miklum blóma og menntamálaráðherra hefði veitt nemendum viðurkenningu fyrir gott starf að vímuefnavörnum. I lok athafnarinnar færði skóla- meistari brautskráðum nemendum kveðjur frá starfsmönnum skólans og árnaði þeim heilla. Iþróttamaður ársins Vaðbrekka, Jökuldal - Aðalfundur og árleg uppskeruhátíð Ung- mennafélags Jökuldæla voru hald- in undir áramótin. Aðalmál fund- arins var að ákveða framtíð félags- ins í ljósi breyttra aðstæðna og batnandi samgangna. Aðalfundur- inn samþykkti að leggja til að ung- mennafélögin á Jökuldal í Hlíð og í Tungu yrðu sameinuð í eitt félag og kaus tvo fulltrúa til viðræðna við hin félögin. Þegar þessi tillaga hafði verið samþykkt var aðalfund- inum frestað um ótiltekinn tíma. Hátíðin hófst með að spiluð var félagsvist á sextán borðum, spilað var um vegleg bókarverðlaun. Eft- ir félagsvistina var útnefndur íþróttamaður ársins hjá félaginu. Útnefningu hlaut Aðalsteinn Sig- urðarson fyrir góðan árangur í frjálsum íþróttum á síðasta ári. Einnig hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í yngri flokki Elsa Guðný Björgvinsdóttir. í eldri flokki hlutu viðurkenningar Jón Björgvin Vemharðsson og Sigríð- ur Sigurðardóttir. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson ÞAU hlutu viðurkenningar við útnefningu íþróttamanns ársins hjá Ungmennafélagi Jökuldæla, talin frá vinstri, Aðalsteinn Sig- urðarson íþróttamaður ársins, Elsa Guðný Björgvinsdóttir, Jón Björgvin Vernharðsson og Sigríður Sigurðardóttir. 'V' & Æmmp. , ■ í w~ i jt ' í BBBBB^B [W Æ BKftW Æ HfiyBnrJK \ Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson BRAUTSKRÁÐIR nemendur á haustönn við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi ásamt Þóri Ólafssyni skólameistara og Birnu Gunnlaugsdóttur aðstoðarskólameistara. Duglegir talningar- menn Húsavík - Vetrartalning á fuglum fór fram um jóladagana í hagstæðu veðri í nágrenni Húsavíkur. Talið var á 10 svæðum af 11 mönnum. Það er mikið verk sem áhugamenn inna af hendi við talningu þá sem að framan greinir. Á myndinni era tveir talningarmannanna, þeir Örn Jensson og Guðmundur Óskarsson læknir. Morgunblaðið/Silli I )

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.