Morgunblaðið - 08.01.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 1 9
Reuters
ATVINNULAUSIR efndu til mótmælaaðgerða fyrir utan skrifstofur
UNEDIC í París í gær. Á spjaldinu, sem konan heldur á, stendur:
„Þetta þjóðfélag getur ekki verið svona áfram. Atvinna, húsaskjól, það
er réttur okkar.“
Höfuð litlu hafmeyjunnar ófundið
Lögregla telur konu
hafa verið að verki
Kaupmannahöfn. Reuters.
FAAR vísbendingar hafa borist um
hver hafi sagað höfuðið af styttunni
af litlu hafineyjunni í Kaupmanna-
höfn. Höfuðið hefur ekki fundist
þrátt fyrir umfangsmikla leit í sjón-
um við Löngulínu og hafa ferðamála-
yfirvöld af því nokkrar áhyggjur að
höfuðlaus hafmeyjan muni skaða
ferðaþjónustuna, því hverri borg sé
nauðsynlegt að eiga táknmynd og
hafmeyjan hafi verið tákn Kaup-
mannahafnar.
Málarinn Jorgen Nash, sem lýsti
því yfir í ævisögu sinni að hann hefði
sagað höfuðið af hafmeyjunni árið
1964, neitar því að hafa komið nálægt
styttunni nú. Fullyrðingar Nash hafa
hins vegar aldrei fengist staðfestar,
höfuðið fannst aldrei og margir aðrir
lýstu ábyrgðinni á hendur sér. Svo er
hins vegar ekki nú.
Lögreglan telur hins vegar að sá
hinn sami og sagaði höfuðið af stafn-
líkneski í höfninni í Kaupmannahöfn
skömmu fyrir jól kunni að hafa verið
að verki. Það höfuð fannst á
kvennasalemi stórverslunar í borg-
inni sama dag og litla hafmeyjan var
gerð höfðinu styttri og telur lögregl-
an að sökudólgurinn kunni að vera
kona sem eigi við geðræn vandamál
að stríða.
KRAFTGANGA I OSKJUHLIÐ
• Frískt loft eykur ferskleika
• Útivera eykur þol
Alhliða líkamsþjálfun jafnt fyrir
byrjendur sem lengra komna
Boðið verður uppá þrenns konar tíma:
A — tími fyrir byrjendur og iítt þjálfaða.
B — tími fýrir þá sem komnir eru af stað í þjálfun.
C — tími fyrir þá sem vanir eru líkamsþjálfun.
Leiðbeinandi Ámý Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og
íþróttaþjálfari.
Skráning og upplýsingar í síma 899 8199 á morgun,
föstudaginn 9. janúarfrá kl. 9-12 og laugardaginn
10. janúar frá kl. 12-14.
Þeir sem hafa verið áður, mæti laugardaginn 10. janúar kl. 10.00
(B-C tími) - kl. 11.00 (A-B tími).
Atvinnulausir
hópast til Parísar
París, Reuters.
RÍKISSTJÓRN Frakklands hefur
undanfarið sætt miklum þrýstingi
frá samtökum atvinnulausra í land-
inu og í gær sagði fulltrúi stjóm-
valda að í dag yrði brugðist við
kröfum sístækkandi hreyfingar at-
vinnulausra. Jean-Pierre Cheven-
ment, innanríkisráðherra, sagði að
forsætisráðherrann, Lionel Jospin,
hefði í gær ráðgast við samráð-
herra sína en fjöldi atvinnulausra
úr öllum landshomum var á leið til
Parísar til fjölmennra mótmælaað-
gerða.
Francois Hollande, formaður
Sósíalistaflokksins, sem heldur um
stjómartaumana í Frakklandi, gaf
í gær vísbendingu um hver við-
brögð stjómvalda kunna að verða
er hann atyrti launþegasamtökin
CNPF fyrir að hafa neitað að sam-
þykkja breytingar á atvinnuleysis-
bótakerfmu.
Vilja hækka
Iágmarksbætur
„Það er helber hræsni af hálfu
CNPF að neita þessu,“ sagði
Hollande við fréttamenn, og bætti
því við að flokkurinn vildi að tafar-
lausar ráðstafanir yrðu gerðar til
þess að hækka lágmarksbætur og
aðstoða þá, er verið hefðu atvinnu-
lausir lengi, við að finna vinnu.
I gær, daginn sem bandaríska
kvikmyndin Titanic var frumsýnd í
París, var teikning í blaðinu Le
Tveir ráðherrar
taka undir með
atvinnulausum
Monde er sýndi ríkisstjómina sem
skipið Titanic stefna beint á ísjaka
þéttskipaðan atvinnuleysingjum að
mótmæla. Tveir ráðherrar hafa
lýst stuðningi við aðgerðir atvinnu-
lausra og sagst óánægðir með var-
fæmisleg viðbrögð stjómvalda.
Það era Dominique Voynet, um-
hverfisráðherra og þingmaður
Græningja, og Marie-George Buff-
et, ungmenna- og íþróttamálaráð-
herra og þingmaður kommúnista,
sem hafa tekið afstöðu með at-
vinnulausum.
Mótmælendur létu til sín taka í
París síðdegis í gær fyrir utan að-
alstöðvar atvinnuleysissjóðs ríkis-
ins, UNEDIC, þar sem fulltrúar
stéttarfélaga og launþega er stýra
sjóðnum hittust á fundi. Cheven-
ment sagðist í gær hlynntur tillög-
um kommúnista um að efnt yrði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um breyt-
ingar vegna aðildar Frakka að
Evrópusambandinu (ESB).
Gera þarf breytingar á stjómar-
skrá Frakklands til þess að hægt
verði að staðfesta Amsterdamsátt-
mála ESB í Frakklandi. Bæði
Jospin og Jacques Chirac, forseti,
vilja að þingið samþykki nauðsyn-
legar breytingar fremur en að
fengið verði samþykki við þeim
með óútreiknanlegri atkvæða-
greiðslu.
Erfiðar umræður
bíða á þingi
Á næstu vikum á Jospin fyrir
höndum erfiðar umræður á þingi
og harkalega andstöðu launþega
vegna áætlana hans um að stytta
vinnuvikuna í 35 klukkustundir.
Chevenment sagði að mótmælend-
ur hefðu nú lagt undir sig 29 fé-
lagsmálaskrifstofur um allt land til
að ítreka kröfur sínar um 3.000
franka (35.000 ísl. kr) ,jólauppbót“
og hærri bótagreiðslur.
Tala atvinnulausra lækkaði í
Frakklandi í nóvember sl., þriðja
mánuðinn í röð, að þvl er atvinnu-
málaráðuneytið greindi frá í síð-
ustu viku og var hlutfall atvinnu-
lausra innan við 12,5 af hundraði,
en lægra hefur það ekki verið síðan
í september 1996. En 3,1 milljón
manna er nú atvinnulaus og hefur
þriðjungur þeirra verið án vinnu í
meira en ár.
Atvinnuleysi hefur aukist stöðugt
í Frakklandi síðan 1975 en bætur til
þeirra er hafa verið atvinnulausir
lengi farið lækkandi, og í septem-
ber sl. voru lagðir niður sérstakir
sjóðir sem hjálpa áttu atvinnulaus-
um að greiða fyrir nauðsynjar á
borð við húsaleigu og rafmagn.
Lokað í dag