Morgunblaðið - 20.01.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 20.01.1998, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ 93,7% félagsmanna í LÍÚ samþykktu verkbann Daglegir fundir með sérfræð- ingum ♦ ♦♦ Vetrarríki við Mývatn FLESTIR ferðamenn koma í Mý- vatnssveit að sumarlagi, en ekki er siður fagurt um að litast þar á öðr- um árstímum. Vetrarríkið er mik- ið svo hátt yfír sjávarmáli en birt- an einstök. Kyrrt og fallegt veður var í Mývatnssveit á sunnudag, en býsna kalt, frostið um 21 gráða og beit í kinnamar þegar þessi mynd var tekin við Höfða. Ágreiningur milli sjómanna og útvegs- manna um lögmæti verkbannsins 93,7% félagsmanna í LÍÚ sam- þykktu tillögu um verkbann frá og með 9. febrúar hefðu samningar ekki tekist. Verkbannið nær til sjómanna sem felldu tillögu um verkfall 2. febrúar og vélstjóra á minni skipum, sem ekki hafa boðað verkfall. Þátttaka í atkvæðagreiðslu um verkbannið var 80,3%. Af þeim sem greiddu atkvæði lýstu 4.847 stuðn- ingi við verkbann eða 93,7%, en 311 sögðu nei eða 6%. Agreiningur er milli sjómanna og útgerðarmanna um lögmæti verk- bannsins og hefur Sjómannasam- bandið höfðað mál fyrir félagsdómi vegna þessa. Úrskurðar félagsdóms er ekki að vænta fyrr en í lok vik- unnar. LÍÚ telur verkfall Bylgjunnar ólöglegt LÍÚ fór í gær fram á að Skip- stjóra- og stýrimannafélagið Bylgj- an á Vestfjörðum drægi verkfalls- boðun sína til baka. Jónas Haralds- son, lögfræðingur LIÚ, sagði að fé- lagið hefði 14. janúar sl. lagt fram nýja kröfugerð í 33 liðum. Þorri krafnanna hefðu birst útvegsmönn- um þarna í fyrsta skiptið. Hann sagði að það væri í andstöðu við vinnulöggjöfina að leggja fram kröf- ur eftir að greidd hafa verið at- kvæði um verkfallsboðun. Sam- kvæmt lögunum ættu deiluaðilar að leggja fram kröfugerð, gera ætti til- raun til sátta og reyndust sáttatil- raunir árangurslausar mætti við- komandi stéttarfélag boða verkfall. Jónas sagði að það væri eðlilegast að Bylgjan afboðaði verkfallið svo ekki þyrfti að koma til afskipta fé- lagsdóms. Forysta Farmanna- og fiski- mannasambandsins kom saman til fundar síðdegis í gær til að ræða kröfu LÍÚ. Afstaða til hennar verð- ur kynnt á samningafundi hjá sátta- semjara í dag. FUNDIR hafa verið hvern einasta dag síðustu tvær vikurnar í deilu Tryggingastofnunar ríkisins og sérfræðilækna. Kristján Guðjóns- son, deildarstjóri á sjúkratrygg- ingadeild TR, segir að mál þokist í rétta átt, en enn sé mikil vinna eft- ir. Hann telur ólíklegt að takist að ljúka öllum samningum í þessari viku. Akveðið hefur verið að gera samninga við sérfræðinga í hverri sérgrein, en þær eru 16. Kristján segir tæplega hægt að tala um að samningar séu frágengnir í neinni sérgrein þó mál séu vissulega kom- in lengra í sumum greinum en öðr- um. Hann segir að mál þeirra lækna sem sagt hafa upp samning- um við Tryggingastofnun séu erfið- ust viðureignar. Hugmyndir hafa verið uppi um að skrifa fljótlega undir samninga við sérfræðinga í nokkrum sér- greinum og klára samninga við aðra síðar. Samninganefnd sér- fræðinga hefur verið fremur andvíg þessari leið. Kristján segir þetta mál ekki vera útrætt og segist ekki vilja útiloka að skrifað verði undir einhverja samninga í lok þessarar viku. Þetta ráðist nokkuð af því hvernig viðræður gangi í þessari viku. Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson Sækir um sjón- varpsleyfi ÍSLENZKA fjölmiðlafélagið, sem rekur útvarpsstöðina Matthildi, hef- ur sótt um leyfi til sjónvarpsrekst- urs. Jón Axel Ólafsson, útvarps- stjóri, er bjartsýnn á að leyfið fáist. Jón Axel sagði að félagið hefði óskað eftir leyfi til að senda út um land allt. „Eg vil ekki greina í smá- atriðum frá því hvers konar dag- skrárefni við ætlum að senda út en uppistaðan verður fréttir og kvik- myndir.“ Islenzka fjölmiðlafélagið hóf rekstur útvarpsstöðvarinnar Matt- hildar í lok síðasta árs. Jón Axel sagði að félagið hygðist gefa út nýtt vikublað á næstu misserum. Óánægja meðal pólsks verkafólks sem starfar hjá Jökli á Raufarhöfn Pólverjar látnir greiða 92 þúsund í ferðakostnað Aðsendar prófkjörs- greinar MORGUNBLAÐIÐ mun birta nú, er prófkjör vegna sveitar- stjómarkosninga fara fram, aðsendar greinar undir sér- stökum flokki, „Aðsendar greinar/prófkjör". Prófkjörsgrein má ekki vera lengri en 2.500 slög með orða- bilum. Henni skal fylgja mynd og kynning á höfundi og sé greinin skrifuð á tölvu, er höf- undur vinsamlegast beðinn að afhenda hana á tölvudisklingi og í útprentun. Að öðru leyti gilda sömu reglur um þessar greinar sem aðrar. ÓÁNÆGJA er meðal verkafólks frá Póllandi, sem starfar hjá Jökli hf. á Raufarhöfn, með að þurfa að greiða ferðakostnað til Islands frá Pól- landi. Fólkinu er gert að greiða um 92 þúsund krónur í ferðakostnað. Jóhann Ólafsson, framkvæmda- stjóri Jökuls, sagði að reynt hefði verið að fá ódýrari fargjöld en ekki tekist. Nú hefði ferðakostnaður til Raufarhafnar hins vegar lækkað. Verkafólkið kom til landsins í desember og sagði Jóhann að það hefði verið niðurstaða ráðningarfyr- irtækisins, sem sá um að útvega starfsfólkið, að ódýrast væri að senda Ieiguvél eftir fólkinu. Þegar til átti að taka hefðu þrjár konur ekki skilað sér í vélina og þess vegna hefði kostnaður á mann orðið nokkru hærri en vonast var eftir. Eftir sem áður væri hann lægri en venjulegt fargjald frá Póllandi til Raufarhafnar kostaði á þeim tíma. Jóhann sagði að erlent verkafólk sem starfað hefði á Raufarhöfn hefði greitt ferðakostnað til lands- ins. Hann kvaðst telja að flest sjáv- arútvegsfyrirtæki á landinu, sem væru með erlent verkafólk í vinnu, færu eins að. Búum vel að erlendu starfsfólki Jóhann sagði að Jökull legði áherslu á að búa vel að erlendum starfsmönnum sínum. I vetur hefði verbúðin verið endumýjuð, m.a. hefði verið sett parket á gólf, keypt ný húsgögn, skipt um glugga, hrein- lætisaðstaða endurnýjuð o.fl. A meðan verið var að klára þessar framkvæmdir hefðu starfsmennirn- ir verið á Hótel Norðurljós og hefði Jökull greitt bæði íyrir húsnæði og fæði. Jökull léti fólkið heldur ekki greiða leigu í verbúðinni. Þá útveg- aði fyrirtækið allan vinnufatnað fyr- ir fólkið. Jóhann sagði að Jökull hefði lagt út fyrir ferðakostnaðinum, en hann væri síðan dreginn af kaupi fólks- ins. Starfsmennimir greiddu 7.000 kr. á viku. Þegar eingöngu væri unnið í bolfiski væra þessar greiðsl- ur nokkuð hátt hlutfall af launum. Meðan unnið var í loðnu hefði vikan gert sig á yfir 70 þúsund krónur og fólk hefði verið ánægt með sinn hlut. Hann sagði að Jökull hefði boðist til að dreifa greiðslunum á lengra tímabil. Ekki brot á samningum Kristján Snædal, formaður Verkalýðsfélags Raufai’hafnar, staðfesti að mikil óánægja væri meðal Pólverjanna með þessar greiðslur enda væru þær nokkuð háar. Hann sagði að fundur hefði verið boðaður í stjóm félagsins til að fara yfir þetta mál. Hann sagðist ekki hafa fengið allar tölur í málinu staðfestar og vildi því ekki tjá sig mikið um það á þessu stigi. Aðalsteinn Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar VMSÍ, sagði að það væri ekkert í kjarasamningum sem þvingaði atvinnurekendur til að taka þátt í ferðakostnaði verkafólks. Fyrirtækjum væri því í sjálfsvald sett hvernig farið væri með svona mál. Félagsmálaráðuneytið setti það hins vegar sem skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfa til útlendinga, að þeir fengju vinnu í eitt ár. Ef at- vinnurekandi gæti ekki útvegað fólkinu vinnu í eitt ár ætti hann að bera kostnað af ferð þess til heima- landsins. Aðalsteinn sagði að verkalýðs- hreyfingin hefði ekki viljað fara þá leið að setja sérstök ákvæði í kjara- samninga um réttindi erlends verkafólks því menn hefðu ekki vilj- að flokka fólk. Hins vegar hefði ver- ið gerður sérstakur samningur í desember þar sem m.a. erlendu verkafólki væri tryggður lengri uppsagnarfrestur og betri kaup- trygging.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.