Morgunblaðið - 20.01.1998, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 20.01.1998, Qupperneq 9
MORGUNB LAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 9 FRÉTTIR A-flokk- arnir í Hafnarfírði kanna sam- eiginlegt framboð SAMÞYKKT var slðastliðinn laugardag, annars vegar á full- trúaráðsfundi Alþýðuflokksins í Hafnarflrði og hins vegar hjá fé- lagsfundi Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði, að kanna möguleika á sameiginlegu framboði A-flokk- anna. Verði það kannað á grund- velli hugmynda sem kynntar voru á fundunum. Hvor flokkur um sig hefur sam- þykkt að tilnefna fjóra fulltrúa í kjörnefnd og jafnmarga í bráða- birgðastjórn. Hvor flokkur mun taka endanlega ákvörðun um sameiginlegt framboð á fundum sem haldnir verða sama dag, 8. febrúar næstkomandi. I rammasamkomulagi Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks vegna sameiginlegs framboðs 1998 segir m.a. að vilji til að samfylkja fé- lagshyggjufólki hafi sjaldan verið meiri en um þessar mundir. Sam- starf Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags sé eitt mikilvægasta mál stjórnmálanna í dag og hafi þessi bylgja náð inn á vettvang landsmálanna. „A undanförnum árum hafa við- fangsefni íslenskra stjórnvalda að mörgu leyti þróast á þann veg, að færri ágreiningsmál skilja þessa flokka að en áður. í sveitarstjórn- um eru þau jafnvel enn færri en á sviði landsmála. Þessi þróun er hluti af því ferli, sem getur tæpast endað með öðru en sameiginlegu framboði jafnaðarmanna og fé- lagshyggjufólks úr ýmsum hreyf- ingum um land allt. Innan Alþýðubandalags og Al- þýðuflokks í Hafnarfirði hefur verið nokkur áhugi á sameigin- legu framboði. Ekki er hægt að leyna því að þær sviptingar sem verið hafa í bæjarmálapólitíkinni allt þetta kjörtímabil hafa truflað viðræður um samstarf." Þá segir að þau tímabil sem flokkarnir tveir hafi starfað sam- an að stjórn bæjarins hafi verið glæstustu framfaraskeið í sögu Hafnarfjarðar. Skylda þeirra sem hafi jöfnuð og félagshyggju að leiðarljósi sé að bjóða kjósendum í Hafnarfirði upp á nýtt afl. Einsetning skóla og aukin valddreifing „Við teljum að sameiginlegt framboð flokkanna skuli leggja áherslu á að hraða einsetningu skólanna og stuðla að eðlilegri uppbyggingu þeirra í takt við kröfur nútímans. Framboðið skal einnig leggja áherslu á áfram- haldandi þróun í dagvistarmálum, menningarmálum, íþrótta- og æskulýðsmálum og félagsþjón- ustu. Jafnframt verði lögð höfuðá- hersla á umhverfismál, jafnréttis- mál, skipulags- og atvinnumál og að gerð verði ítarleg fram- kvæmdaáætlun til lengri tíma. Sameiginlegt framboð leggur aukna áherslu á skilvirkni og aukna valddreifingu við stjórn bæjarins, boðleiðir milli aðila í bæjarkerfinu verði styttri og upp- lýsingastreymi betra, auk þess sem bættur vei'ði aðgangur bæj- arbúa að kjörnum fulltrúum." I lok rammasamkomulagsins segir að ekki sé til setunnar boðið, viðræður hefjist nú þegar og skuli núverandi stefnumál flokkanna samræmd í málefnavinnu og verði niðurstaða þeirrar vinnu lögð fram þegar lokaákvörðun skal tekin í hvorum flokki fyrir sig. FOLK Doktorsvörn í svæfinga- lækningum •SVEINN Geir Einarsson svæf- ingalæknir varði doktorsritgerð við Háskólann í Gautaborg í Sví- þjóð þann 14. nóvember s.l. 5b,32m> Rit- gerðin nefnist „Respiration during em- ergence from in- halational anaest- hesia“ og fjallar um áhrif fjögurra mismunandi svæfingagasa (isoflura- ne, sevoflurane desflurane og glað- lofts) á öndun sjúklinga fyrstu 40 mínúturnar undir uppvöknun, þ.e. frá því byrjað er að vekja þar til sjúklingamir eru komnir á upp- vöknunardeildina. Ritgerðin er samantekt á fímm rannsóknum sem gerðar voru á sjúklingum sem gengust undir að- gerð við kvennadeild Sahlgrenska sjúkrahússins í Gautaborg, þar sem Sveinn hefur starfað síðan 1988. Sveinn lauk prófi við læknadeild Háskóla íslands 1985 og fékk sér- fræðiviðurkenningu í „Svæfingum og gjörgæslu“ 1991. Foreldrar Sveins eru þau Emilía Sigurjónsdóttir og Einar Olgeirs- son hótelstjóri á Hótel Esju og Loftleiðum. íslenskar lækninaaiurtir Námskeið verður haldið 25. janúa og 1. febrúar kl. 20.00 - 22.00. Verð kr. 5.500,00 Síðasta námskeið vegna brottfarar af landinu. Anna Rósa Róbertsdóttir MINMH grasalæknir og ilmolíunuddari sími 551-0135 ir ÚTSALA Hverfisgötu 6-101 Reykjavík - sími 562 2862 Hætt að reykjat s I dag Lágmarksverð á nikótínlyfjum frá Nicorette® NICDRETTE Við stöndum meðþér & Kópavogs Apótek Hamraborg 11, Kópavogi Sími 554 0102 Aukaafsláttur á útsölu Opið virka daga frá kl. 9 -18, iaugardaga frá kl. 10 -14. TESS neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Taktu meiraprófið með 20% afmæfisafslætti -núaðeins 110.560-. Sveigjanlegur námstimi (áfangakerfi), próf á rútu, leigubíl,.vörubíl og vörubíl með tengivagni. Reyndir kennarar, góðir bílar, fullkomin aðstaða. TAKMARKAÐUR NEMENDAFJÖLDI - SKRÁNING STENDUR YFIR. /rVS 5KOUNN V4</ I MJODD Kennsla og skrifstofa: Þarabakka 3, Mjóddinni, Rvík, sími 567-0-300 „Þorraveisluna heim á 1.490“ Veisla með nýjum og súrum þorramat, hangikjöti, saltkjöti, ekta nautakjötspottrétti, hrásalati og tilheyrandi meðlæti, kostar aðeins 1.690- á mann (fyrir 4 og fleiri). Færri réttir kosta 1.490-. PANTIÐ TÍMANLEGA. VHSLUSMIÐIAN Veislur og veitingar, Álfheimum 74, Glæsibæ, Rvík. sími 588-7400

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.