Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Karfan á hvolfi Vog'um - Tveir menn voru í körfu körfubfls sem fór á hvolf við framkvæmdir á Grundar- tanga á föstudagskvöld. Karfan stöðvaðist í 8-9 metra hæð á hvolfi en mennimir sluppu ómeiddir. Þeim var siðan hjálpað niður í körfu á öðm tæki og er myndin tekin í þann mund sem hjálpin barst. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Morgunblaðið/Sig. Fannar. HLUTI starfsmanna og þáttagerðarmanna títvarps Suðurlands, sem næst um allt Suðurland á tíðninni 96,3. Morgunblaðið/Birna Mjöll Atladóttir ÁHUGASAMIR nemendur fylgdust grannt með kennslunni. Frábær fyrirtæki 1. Raftækjaverslun á frábærum stað. 30 ára fyrirtæki. Gott verð. Laus strax. 2. Glæsileg snyrti- og skartgripaverslun til sölu. Er staðsett í versl- unarmiðstöð. Vel þekkt fyrirtæki sem selur góð merki. Laus strax. Gott verð. 3. Blóma- og gjafavöruverslun á þekktum stað í verslunarmiðstöð. Góðar innréttingar. Mikil blómasala. Laus strax. 4. Fiskbúð í íbúðarhverfi. Gömul og rótgróin. Gott verð ef samið er strax. 5. Heildverslun og rekstur sjálfsala. Hægt að reka úr heimahúsi. Ýmsir möguleikar. 6. Einn þekktasti og elsti billjardstaður borgarinnar til sölu. Nýupp- tekin borð. Glæsilegur umbúnaður. Frábært fjölskyldufyrirtaeki. Upplagt fyrir „gamla íþróttahetju og þekkta". 7. Saltfiskverkun á stór-Reykjavikursvæðinu. Nýverksmiðja með öllum tækjum sem til þarf. 600 fm eigið húsnæði á tveimur hæð- um. Er með leyfi frá Fiskistofu fyrir saltfisk og útfl. á ferskum fiski. Bæði starfsemi og hús til sölu eða annað hvort. 8. Til sölu tölvuþjónustufyrirtæki úti á landi, það eina í sínum lands- fjórðungi. Mikil uppbygging á sér stað þar og fer stórlega vax- andi. Höfum trausta kaupendur að eftirtöldum fyrirtækjum: 1. Fyrirtæki tengt sjávarútvegi. 2. Stórum heildverslunum í ýmsum vöruflokkum. 3. Framleiðslufyrirtæki fyrir landsbyggðina. 4. Tæknilegu hugbúnaðarfyrirtæki. 5. Framleiðslufyrirtæki í matvörum o.fl. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. SlfÐURVE R I SfMAR 581 2040 OG 581 4755. REYNIR ÞORGRÍMSSON. Skyndi- hjálp fyrir unglinga Patreksfírði - Námskeið í skyndihjálp fyrir unglingadeild- ir björgunarsveitanna við fjörð- inn var haldið dagana 10. og 11. janúar sl. Tveir krakkar komu frá slysavarnadeild Bræðra- bandsins í fyrrv. Rauðasands- hreppi og fjórtán frá björgun- arsveitinni Blakki frá Patreks- firði ásamt þremur umsjónar- mönnum. Leiðbeinandi á nám- skeiðinu var Dagbjartur Brynjarsson frá Björgunarskdl- anum. Farið var í undirst öðuatriði skyndihjálpar. Einnig voru sett á svið slys sem nemendur voru látnir koma að og sinna þeim slösuðu. Eftir á var siðan rætt við „sjúkraliða“ og þá „slösuðu“ um hvað betur mætti fara. Og gist var í félagsheimilinu Fa- grahvammi í eina nótt. Það var þreyttur en ánægður hópur sem hélt heim um miðjan laugardag eftir vel heppnaða helgi. Sendingar nást nú um allt Suðurland Selfossi - títvarp Suðurland hef- ur verið starfrækt síðastliðna 7 mánuði. títsendingar hafa náðst á Selfossi og næsta nágrenni en með tilkomu nýs sendis nást út- sendingar nú um allt Suðurland, frá Sandskeiði og austur að Ló- magnúpi. Nýi sendirinn er staðsettur á Klifi í Vestmannaeyjum og er út- sendingartíðnin 96,3. Að sögn Svans Gísla Þorkelssonar út- varpsstjóra hefur útvarpið nú lokið allri tilraunastarfsemi. „Móttökur hafa verið frábærar og við erum þessa dagana að kanna rekstrargrundvöllinn til langframa.“ Svanur segist ánægður með hversu gott starfs- fólk hefur ráðist til starfa, en alls starfa í kringum 30 manns við út- varpið. Svanur segir aðstandendur út- varpsins Ieggja mikið upp úr vandaðri dagskrárgerð. „Við höf- um nokkra sérstöðu í útvarps- flóru landsins. Það er mikil vinna á bak við flesta þættina þó svo að þeir séu allir í beinni útsendingu og fjölbreytileikinn er mikill,“ segir Svanur. Þessu til stuðnings nefnir hann að nú séu þættir á dagskrá sem sinni flestum þjóð- félagshópum. Dagskrárgerðin er fjölbreytt og á fastri dagskrá má finna þætti um viðskipti, land- búnað, andleg málefni og menn- ingu. Einnig er útvarpað beint frá tónleikum og messuhaldi. „títvarp Suðurland er tilraun sem virðist ætla að heppnast vel og vonandi er útvarpið komið til að vera,“ segir Svanur Gísli út- varpsstjóri. Andlát SYEINN KR. GUÐMUNDSSON SVEINN Kr. Guð- mundsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri og bankaútibússtjóri á Akranesi, lést á Sjúkra- húsinu á Akranesi síð- astliðinn laugardag. Hann var 86 ára að aldri. Sveinn fæddist 22. desember 1911 á Búð- um í Fáskrúðsfirði og ólst upp á þeim slóðum. Foreldrar hans voru Guðmundur Stefánsson og Guðrún Jónsdóttir. Hann var við nám í Héraðsskólanum á Laugarvatni 1930-32 og vann alla algenga sjávar- vinnu á Búðum til 1935 er hann hóf verslunarstörf hjá Kaupfélagi Fá- skrúðsfirðinga. Sveinn fluttist til Akraness 1941 og hóf þar störf hjá Kaupfélagi Suður-Borgfirðinga. Hann varð kaupfélagsstjóri 1942 og gegndi því starfi til 1963 en síðast- talda árið varð hann einnig umboðs- maður Samvinnutrygginga. Sveinn varð útibússtjóri Samvinnubankans á Akranesi við stofnun hans 1964 og gegndi því starfi til 1981 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Sveinn gegndi mörgum trúnaðar- störfum á löngum starfsferli. Hann var einn af stofnendum Verkalýðs- félags Fáskrúðsfjarðar og formaður þess 1935-41, sat í hreppsnefnd Búðahrepps og var varaoddviti 1937-41. Hann sat í bæjarstjóm Akraness 1946-50, í yf- irstjórn Vesturlands- kjördæmis 1959-71 og 1978-91, var formaður Fræðsluráðs Akraness 1959-71 og endurskoð- andi Sementverk- smiðju ríkisins 1971-72. Hann var í stjórn Andakílsvirkj- unar 1967-72 og 1978-87, endurskoð- andi Sparisjóðs Akra- ness og sat í stjórn hans um árabil. Hann tók virkan þátt í starfi Alþýðuflokksins og var fulltrúi á landsfundum hans um ára- tugaskeið frá árinu 1938. Hann var í stjórn kjördæmisráðs flokksins á Vesturlandi í 16 ár, lengst af for- maður. Hann var formaður stjórnar Skallagríms hf. 1979-80, í stjórn Byggðasafnsins að Görðum 1973-86, lengst af gjaldkeri, í stjórn Hjartaverndar frá 1978 og í banka- ráði Seðlabankans 1980-85. Sveinn starfaði einnig mikið af málefnum Góðtemplara og Oddfellowregln- anna auk margra smærri félags- starfa. Eiginkona Sveins var Guðrún Örnólfsdóttir, en hún lést í ágúst á síðasta sumri. Þau eignuðust fjögur börn og eru þrjú þeirra á lífi. ) ) I ) ) ) ) ) ) ) ) [ ) ) ) ) ) ) )
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.