Morgunblaðið - 20.01.1998, Page 52

Morgunblaðið - 20.01.1998, Page 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM ► STÓRBOMBAN Anna Nicole Smith, sem náði dálitlum frama í myndinni Beint á ská þar sem Leslie Nielsen fór á kostum í hlut- verki lögreglumannsins Franks Drebins, hefur tilkynnt að hún sé að stíga fram í sviðsljósið á nýjan leik. Ekki nóg með það heldur er hún 42 kilóum léttari en þegar hún hvarf af vettvangi. Ef til vill má segja að Anna Nicóle hafi öðlast meiri frægð er hún gekk að eiga ní- ræðan forríkan olíukóng frá Texas, J. Howard Marshall. Marshall gamli mátti reiða sig á hjólastól til að komast leiðar sinnar og var nánast karlægur er hann gekk að eiga Önnu og þóttu þau kostulegt par. Ekki fór hjá því að Önnu væri Iegið á Anna Nicole snýr við blaðinu SÍÐAN í desember hefur verið fremur hljótt um réttarhöld yfir John Norman, sem handtekinn var nærri heimili þekktrar Hollywoodper- sónu og er sakaður um að áreita viðkomandi og hafa lagt á ráðin um að handjárna hann við rúmstæði og nauðga að svo búnu. I vikunni greindu bæði dómari og saksóknari frá því, að fórnarlamb- ið væri enginn annar en Steven Spielberg og er reiknað með því að hann fari í vitnastúkuna og greini frá því hvernig Norman hefur áreitt hann og fjölskyldu hans. Einnig að hann lýsi nákvæmiega þeirri uppá- komu sem á undan var getið. Að sögn lögreglu var Nonnan handtekinn nærri beimili Spielbergs og fundust í bifreið hans öll nauðsynleg tól og tæki til að gera alvöru úr hót- á vegum umsjónarnefndar fólksbifreiða á höfuðborgarsvæðinu, fyrir umsækjendur um atvinnuleyfi til leiguaksturs. Umsjónanefnd fólksbifreiða á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að halda námskeið fyrir umsækjendur um atvinnuleyfi til leiguaksturs skv. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 61/1995 og 2. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 224/1995 um leigubifreiðar. Nefndin hefur falið Ökuskólanum í Mjódd að annast námskeiðshaldið. Ákveðið hefur verið að fyrsta r.ámskeiðið verði haldið í febrúar nk. og hefst það þriðjudaginn 17. febrúar n.k. Skilyrði fyrir inngöngu á námskeið er að umsækjandi hafi stundað leiguakstur á fólki í a.m.k. eitt ár. Þá verður umsækjandi jafnframt að uppfylla skilyrði framan- greindra laga og reglugerðar til að öðlast atvinnuleyfi, sbr. einkum 3. gr. laganna og 4. gr. reglugerðarinnar. Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 20. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Ökuskólans í Mjódd, Þarabakka 3, Reykjavík, sem er opin virka daga frá kl. 13.00—20.00 nema á föstudögum til kl. 17.00. Umsóknum ásamt fylgigögnum ber að skila til Ökuskólans í Mjódd í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 föstudaginn 30. janúar nk. Á öllum bifreiðastöðvum á starfssvæði nefndarinnar hanga uppi auglýsingar frá nefndinni þar sem fram koma ítarlegar upplýsingar um fyrirkomulag námskeiðanna, námskeiðsreglur, námsefni, inntöku- skilyrði, námskeiðsjald o.fl. Einnig er hægt að nálgast þær upplýsingar hjá Ökuskólanum í Mjódd. Reykjavík, 15. janúar 1998. Umsjónarnefnd fólksbifreiða á höfuðborgarsvæðinu. ANNA Nicole ætlar að vera í fínu formi í rétt- arsalnum. hálsi fyrir að ásælast fúlgur bónda síns. Enda var ekki búist við langlífi hans, eink- um eftir að Anna Nicole skaut upp kollin- um. Það gekk og eftir, en æ síðan hefur stúlkan átt í hatrammri erfðadeilu fyrir dómstólum gegn fjölskyldu Marshalls. Eftir dauða Marshalls átti Anna Nicole afar bágt. Hún lagðist í ofát, ofdrykkju og ofneyslu þunglyndislyfja. Þetta var óhag- stæður kokteiil og stúlkan tapaði áttum. Hún þyngdist ótæpilega, náði mest 110 kíló- um, og varð sér til skammar hvað eftir ann- að á opinberum vettvangi, enda yfirleitt í vímuástandi. „Vandræðin byrjuðu er Mars- hall dó. Hann var eini maðurinn sem nokkru sinni hefur elskað mig og borið virðingu fyrir mér,“ segir hin nýja Anna Nicole. „Það tók mig nokkurn tíma að jafna mig og átta mig á því að aðstæður voru breyttar og að ég yrði að hugsa fyrst og fremst um heilsu mína og sálarheill. Eg tók mig því á og mæti í réttarsalinn í fínu formi,“ bætir Anna Nicole Smith við. OLDUNGURINN J. Howard Marshall og kynbomban Anna Nicole Smith. ÚTSALA - ÚTSALA Enn meiri aFsláttur Jakkar áður kr. 21.800 nú kr. 9.500 Buxur áður kr. 12.400 nú kr. 6.800 Blússur áður kr. 9.800 nú kr. 4.800 Peysur áður kr. 9.800 nú kr. 4.800 Kjólar áður kr. 19.880 nú kr. 9.000 Opið laugard. frá kl. 10-16 Tískuvörurfyrir allan aldur DTrDarion Reykjavíkurvegi 64, 0 220 Hafnarfjörður, sími 565 1147. Brúðkaup á kafí í vatni SUM brúðhjón kvíða því helst að það rigni á brúðkaupsdaginn. Því er ekki þannig farið um Kuan Chee Keong og Benita Tan því þau giftu sig á kafi í vatni. Hér sýna þau vinum sínum hjónavígsluvottorðið í vatnstanki í Neðansjávarsafni í Singapúr 18. janúar. Bæði eru þau áhugasamir kafarar og borguðu um 80 þúsund krónur fyrir að halda brúðkaupið á þessum vinsæla ferðamannastað. Fimmtíu ættingjar og vinir fylgdust með athöfninni sem tók 20 mínútur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.