Morgunblaðið - 01.02.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.02.1998, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 25/1 - 31/1 K^hbísi ►IÐNAÐARÁÐHERRA seg- ir að íslensk stjórnvöld og fulltrúar Norsk Hydro hafi orðið sammála um að halda áfram viðræðum um hugsan- lega byggingu álvers hér á landi. Ráðist verði í frumat- hugun sem á að vera lokið í byrjun júní nk. ►BÆJARYFIRVÖLD í Reykjanesbæ hafa óskað eft- ir formiegum viðræðum við grunnskólakennara um gerð sórkjarasamnings. Óánægju gætir meðal kennara í mörg- um sveitarfélögum með kjör sín og hafa þær sumstaðar leitt il viðræðna um bætt kjör. Óbreytt staða í sjómannadeilu ENGINN árangur hefur orðið af sáttatilraunum í sjómannadeilunni. Hefst verkfall sjómanna, yfirmanna og vélstjóra á morgun hafi samningar ekki náðst. Reyna átti til þrautar að ná samkomulagi og afstýra verkfalli með sáttafundum yfir helgina. Talið er að yfirvofandi verkfall myndi hafa alvar- legar afleiðingar í efnahagslífinu og sér áhrifa þess nú þegar stað, þar sem ekki hefur verið hægt að ljúka samn- ingum um sölu loðnuafurða til Japana vegna yfirvofandi verkfalls. Utanríkis- ráðherra segir boðað verkfall ógna stöðugleikanum sem ríkt hefur í efna- hagsmálum. ► NÝSTOFNAÐ fyrirtæki fjögurra íslenskra kvikmyn- mdagerðarmanna vinnur nú að fjármögnun viðamikillar heimildarmyndar um landa- fundi Leifs heppna Eiríks- sonar í Vesturheimi. ►INFLÚENSA af A-stofni hefur verið greind á Rann- sóknastofu Landspftalans í veirufræði. Læknar segja in- flúensufaraldur í hámarki þessa dagana og auk henn- ara hefur verið að ganga áberandi streptókokkafar- aldur og RS-vírus hefur einnig verið útbreiddur með- al ungbarna. ►DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur skipað Harald Johann- essen varalögreglustjóra til þess að vera ríkislögreglu- stjóri frá og með 1. febrúar. Gaukur Jörundsson, umboðs- maður Alþingis, hefur verið kjörinn dómari við Mannrétt- indadómstól Evrópu. Um er að ræða nýjan dómstól sem Ieysir núverandi Mannrétt- indadómstól og Mannrétt- indanefnd Evrópu af hólmi. Kaupa 60% hlut í Samlífi SAMNINGAR hafa verið undirritaðir um kaup íslandsbanka, Búnaðarbanka og fimm lífeyrissjóða á samtals 60% hlut í líftryggingafélaginu Samlífi. Fé- lagið var áður að fullu í eigu Sjóvár-Al- mennra, Tryggingamiðstöðvarinnar og aðila þeim tengdum, en með sölunni minnkar eign þeirra í 40%. Samlíf er stærsta líftryggingafélag landsins með tæplega 50% markaðshlutdeild miðað við bókfærð iðgjöld og eru viðskiptavinir félagsins nú rúmlega 30 þúsund talsins. Hætta rekstri lækningastofa UM 40 sérfræðilæknar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hafa tilkynnt stjómend- um spítalans að þeir ætli að helga sig alfarið störfum fyrir spítalann og hætta rekstri eigin lækningastofa. Ekki liggja fyrir tölur á Landspítala um hve margir sérfræðingar ætla að helga sig störfum fyrir spítalann, en reiknað er með að breytingin þar verði minni en á SHR. Hernaðarárás á írak í undirbúningi DEILAN um vopnaeftirlit í írak stefndi áfram í hart í vikunni. Stjóm- völd í Rússlandi og Frakklandi hvöttu til þess að deilumar við íraksstjóm yrðu settar niður með samningum og Frakkar gagnrýndu einnig þau ummæli Richards Butlers, formanns vopnaeftir- litsnefndar Sameinuðu þjóðanna, að írakar ættu nóg af sýklavopnum til að „tortíma öllum íbúum Tel Aviv“. Madel- eine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Bill Richardson, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, héldu af stað í ferðalag milli höfuðborga ýmissa ríkja í Evrópu, Miðausturlönd- um, Afríku og Suður-Ameríku til að afla stuðnings við „öflug viðbrögð" við að- gerðum íraksstjómar gegn vopnaeftir- litsnefnd SÞ. Bill Chnton Bandaríkja- forseti kvaðst staðráðinn í að koma í veg fyrir að írakar gætu beitt gjöreyð- ingarvopnum. Saddam Hussein íraks- forseti sagðist hins vegar ekki óttast hótanir Bandaríkjamanna og ætla að beita öllum herafla sínum geri þeir árás á landið. Stefnuræða beinir athygli frá hneyksli BILL Chnton Bandaríkjaforseti flutti stefnuræðu sína á bandaríska þinginu aðfaranótt miðvikudags að íslenzkum tíma. í henni hvatti forsetinn til þess að væntanlegur afgangur af fjárlögum næsta ára yrði notaður til að efla al- mannatryggingakerfið. Trent Lott, leiðtogi repúbhkana í öldungadeildinni, lagðist gegn þessari hugmynd. Ræðan mæltist vel fyrir hjá almenningi ef marka má skoðanakannanir, en hún gaf Chnton tækifæri til að beina athyghnni frá hneykslismáli sem snýst um meint ástarsamband hans við fyrrverandi starfsstúlku í Hvíta húsinu. Hillary Rodham Clinton, eiginkona forsetans, sagði í spjallþáttum í sjónvarpi í vik- unni að ásakanimar á hendur CUnton væm samsæri hægrimanna. Kenneth Starr, sérskipaður saksóknari, heldur áfram rannsókn sinni á ásökununum. ►ÞEGAR nýjustu umferð viðræðna um frið á N-írlandi lauk í Lundúnum á miðviku- dag sögðu brezkir og írskir rúðherrar að deilendur, sam- bandssinnar og lýðveldis- sinnar, hefðu loksins farið að ræða um raunveruleg ágreiningsefni. Á fimmtudag tilkynnti Tony Blair, forsæt- isráðherra Bretlands, að fara ætti fram ný rannsókn á at- burðum „blóðuga sunnudags- ins“ svonefnda fyrir 26 ár- um, þegar brezkir hermenn í Derry á N-írlandi skutu til bana 14 lýðveldissinna. ►LITLAR líkur eru á því að mati sfjómmálaskýrenda að friðarviðræður fsraela og Palestínumanna fari aftur af stað svo lengi sem Bill Clint- on Bandaríkjaforseti er upp- tekinn vegna kynlífshneyksl- is og deilunnar við íraks- stjóm. Ljóst cr orðið að eng- inn árangur varð af fundum Clintons með Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, og Benjamin Netanyahu, for- sætisráðherra fsraels, í síð- ustu viku. ►ÞRÍR Evrópumenn lögðu á miðvikudag af stað í belgflug frá svissnesku fjallaþorpi og er tilgangurinn að freista þess að verða fyrstir til að fljúga viðstöðulaust um- hverfis jörðina í loftbelg. Miðaði ferð þeirra hægt fyrstu sólarhringana. ►GRO Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráð- herra Norcgs, var skipuð næsti yfirmaður Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar, WHO, á þriðjudag. Hún tekur við af Japananum Hiroshi Naka- jima. FRÉTTIR ---------------------------------; ; i Umhverfísráðherra um Kyoto-bókunina um losun gróður- húsalofttegunda og viðræður við erlend stóriðjufyrirtæki * Þarf að ræða kostnað við kaup losunarkvóta GUÐMUNDUR Bjamason um- hverfisráðherra segir að gera verði erlendum fyrirtækjum, sem hyggi á fjárfestingar í stóriðju hér á landi, grein fyrir hugsanlegum af- leiðingum frekari útfærslu á Kyoto-bókuninni um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda. Til dæmis þurfi að ræða hver eigi að bera hugsanlegan kostnað vegna kaupa á útblásturskvóta vegna byggingar stóriðjuvera hér á landi, en kerfi viðskipta með slíkan kvóta hefur enn ekki verið útfært. Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra sagði í Morgunblaðinu á fimmtudag að íslenzk stjómvöld litu svo á að niðurstaða Kyoto-ráð- stefnunnar byndi ekki hendur ís- lendinga varðandi frekari upp- byggingu stóriðju hér á landi. Sam- kvæmt Kyoto-bókuninni má ísland auka útblástur gróðurhúsaloftteg- unda um 10% frá því, sem gerðist árið 1990. Talið er að aukning út- blásturs vegna t.d. álvers Norsk Hydro eða magnesíumverksmiðju á Suðumesjum yrði meiri en sem þessari heimild nemur. Hefði orðað þetta öðruvísi en iðnaðarráðherrann Guðmundur Bjamason sagði í samtali við Morgunblaðið að ríkis- stjómin vildi gera allt, sem hægt væri, til þess að ísland gæti undir- ritað Kyoto-bókunina. Hins vegar þyrfti meira að koma til en ákvæð- ið um 10% aukningu útblásturs, ættu íslendingar að geta nýtt end- umýjanlegar orkulindir landsins. „Rétt undir lokin fengum við inn bókun í Kyoto um einstakar fram- kvæmdir, sem hafa mikil áhrif á lít- il hagkerfi. Þetta ákvæði er nánast sniðið að okkar óskum, en fékk litla umræðu þannig að útfærslan er eftir. Við munum nota þetta ár til að vinna vel í því að sjá hvað annað kann að felast í samningnum en þessi tíu prósent, sem hafa verið nefnd,“ segir Guðmundur. ,Að því leyti hef ég ekki athugasemdir við að haldið sé áfram að skoða hvaða stóriðjumöguleikar em fyrir hendi, þótt ég hefði kannski orðað þetta aðeins öðravísi en kollegi minn iðn- aðarráðherrann; að stjómvöld telji að bókunin bindi okkur ekki neitt. Við eigum eftir að sjá betur hvað í henni felst áður en við ákveðum að láta hana binda okkur.“ Ýmis atriði Kyoto-bókunarinnar verða útfærð nánar á næstu lofts- lagsráðstefnu, sem haldin verður í Buenos Aires í nóvember á þessu ári. Aðspurður hvort hann telji koma til greina að taka ákvarðanir um nýja stóriðju fyrir ráðstefnuna segist umhverfisráðherra ekki telja að stjómvöld muni standa frammi fyrir slíkum ákvörðunum á árinu. „Það er líka ljóst að við munum ekki undirrita Kyoto-bókunina fyr- ir fundinn í Buenos Aires. Það sama á við um margar aðrar þjóð- ir, sem vilja sjá hvað kemur út úr nánari útfærslu á ýmsum þáttum,“ segir hann. „Ég held líka að það þurfi að gera þessum aðilum, sem hugsan- lega hafa áhuga á að nýta sér orkulindir okkar, grein fyrir því að það kunna að koma til einhver ákvæði, sem varða umhverfismálin með öðram hætti en áður. Þá á ég til dæmis við möguleika á kvóta- viðskiptum. Kvóti kostar auðvitað fjármuni og þá er spurningin hver á að bera þann kostnað. Eg tel að slíku eigi að halda til haga í við- ræðum við aðila, sem era að velta fyrir sér fjárfestingum í stóriðju hér,“ segir Guðmundur. „Kvóta- viðskiptin eru eitt af því, sem við teljum að geti skipt okkur máli, en þá verðum við líka að gera þeim fyrirtækjum, sem í hlut eiga, grein fyrir því að þetta kunni að verða ein leiðin til að geta samþykkt stóriðjuna.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg RUT Ingólfsdóttir konsertmeistari og tónskáldið Arvo Pfirt bera sam- an bækur sfnar á æfingu f gærmorgun. Kammer- sveitin með aðra tónleika VEGNA mikillar eftirspurnar eftir miðum hefur Kammersveit Reykja- víkur ákveðið að endurtaka tón- leika sína í Langholtskirkju í kvöld. Verða seinni tónleikarnir kl. 23 en miðar á fyrri tónleikana, sem verða kl. 20.30, seldust upp fyrir helgi. Á efnisskrá eru fiögur verk eftir eistneska tónskáldið Arvo Pfirt, sem viðstatt verður tónleikana, en meðal gesta Kammersveitarinnar verða Hamrahlíðarkórinn og Kór Menntaskólans við Hamrahlfð undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Sljórnandi Kammersveitarinnar verður Þjóðveijinn Andreas Peer Kfihler sem mikið hefur starfað með Arvo Pfirt. Þórshana fækkar EINUM sjaldgæfasta varpfugli á landinu, þórshana, hefur fækkað veralega á undanfórnum tíu árum, samkvæmt könnun Fuglaverndar- félags íslands. Greint er frá því í fréttabréfi félagsins að við könnun á síðasta ári hafi aðeins fundizt 43-44 fuglar á landinu, en í könnun árið 1987 fundust 73 fuglar. í fynt könnuninni vora allir þekktir þórshanastaðir heimsóttir, en í þeirri síðari aðeins þeir staðir, þar sem fuglar fundust í fym könnuninni. í fréttabréfi Fugla- vemdarfélagsins segir að kannan- imar séu af þessum sökum ekki fyllilega sambærilegar og kunni fuglamir að hafa verið vantaldir síðastliðið sumar. Niðurstöður kannana Fugla- vemdarfélagsins benda til að þórs- hana hafi fækkað í öllum landshlut- um nema á Suðausturlandi. Um tveir þriðju hlutar allra fuglanna, sem fundust síðastliðið sumar, vora á sama staðnum á Suðaustur- landi en hann uppgötvaðist fyrst árið 1986. Þórshani staldrar stutt við á Is- landi, í nokkrar vikur á bilinu 1. júní til 1. ágúst. Hann verpir svo til eingöngu við sjávarsíðuna. | í I I I í l r » i r » » » í » 1“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.