Morgunblaðið - 01.02.1998, Blaðsíða 56
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 1. FEBRUAR 1998
VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
SIF stofnar fyrir-
_ tæki í Brasilíu
Svartsýni ríkir um lausn sj ómannadeilunnar
Vonir brugðust um að
loðnusamkomulag næðist
GENGIÐ hefur verið frá stofnun
saltfisksölufyrirtækis í Brasilíu, sem
er að 70% í eigu Nord Morue, dóttur-
fyrirtækis SÍF í Frakklandi og 30% í
eigu Brasilíumanna. Hlutverk þessa
nýja fyrirtækis er markaðs-, sölu- og
dreifingarstarfsemi í Brasilíu á salt-
fiskafurðum og öðrum skyldum af-
urðum.
Á síðasta ári flutti SÍF út um 435
tonn af þurrkuðum saltfiski til Bras-
ilíu og Nord Morue um 1.000 tonn.
Ætlunin er að auka útflutning á
þurrkuðum saltfiski til Brasilíu, en
dótturfyrirtæki SÍF í Kanada, fram-
leiðir mikið af þurrfiski. Fyrirtækið
er hlutaféiag með eigið fé að upphæð
milljónir króna.
Gunnar Örn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, segir að félagið
telji það vera mikilvægt að færa sig
lengra inn í dreifingu á brasilíska
markaðinum þar sem heildarmarkað-
ur fyrir saltfiskafurðir er um 38.000
tonn, mælt í blautverkuðum saltfiski.
Það gerir þennan markað annan
stærsta markað fyrir saltfisk, ein-
ungis Portúgalsmarkaður er stærri.
Heildarinnflutningsverðmæti á þess-
um markaði er talið vera 16 milljarð-
ar íslenzkra króna.
Fyrirtækið hefur þegar tekið til
starfa og miðast áætlanir við veltu að
upphæð 700 milljónir króna á árinu
1998 og 1.200 milljónir króna árið
1999.
DEILUAÐILAR í sjómannadeilunni
voru mjög svartsýnir í gær á að lausn
finnist áður en boðað verkfall á að
hefjast. Reyna á tál þrautar að ná sam-
komulagi yfir helgina. Skv. heimildum
Morgunblaðsins hafa viðræðumar að
undanfómu eingöngu snúist um verð-
myndun á fiski. Vonir stóðu til þess
um miðja seinustu viku að samkomu-
lag væri að nást í verðlagsmálunum
varðandi loðnuveiðar en þær vonir
urðu að engu og situr allt fast í þeim
málum sem öðmm sem til umræðu
hafa verið.
Um seinustu helgi sigldu umræður
um verðmyndun á botnfiski í strand,
skv. upplýsingum blaðsins. Um miðja
síðustu viku var svo gerð tilraun til að
afmarka viðræðumar við verðmyndun
á loðnu, þar sem ekki er um kvótavið-
skipti að ræða í þeim veiðum sem tor-
velda myndu hugsanlegt samkomulag.
Talið er að rúmiega 60% allrar veiddr-
ar loðnu séu lögð upp hjá óskyldum
aðila og hún því verðlögð að stómm
hluta á markaði. Sjómenn hafa hins
vegar haldið því fram að verksmiðjur
sem taka á móti loðnu af eigin skipum
greiði lægra verð fyrir hráefnið en í
viðskiptum við óskylda aðila.
Fulltrúar útvegsmanna lýstu sig
reiðubúna í viðræðunum í vikunni að
setja ákvæði inn í væntanlegan kjara-
samning um að fyrirtækjum sé óheim-
ilt að miða við lægra verð í uppgjöri
við skipverja á eigin loðnuskipum en
greitt væri fyrir í viðskiptum við að-
komuskip á sama tíma. Töldu útvegs-
menn að þetta myndi leiða til sam-
komulags í deilunni hvað loðnuveið-
arnar snerti sl. miðvikudagskvöld.
Fulltrúar sjómanna höfnuðu þessu og
ítrekuðu kröfur sínar um að ákveða
verði verð fyrir loðnu. Því hafha út-
vegsmenn með öllu.
Sökk í
stafalogni
við hafnar-
c*. bakkann
2.700 TONNA olíutankur sökk í
stafalogni við hafnarbakkann í
Kópavogshöfn aðfaranótt laugar-
dagsins. Tankurinn hafði verið dreg-
inn á floti frá Skerjafirði og til stóð
að setja hann á flutningapramma í
Kópavogi og flytja hann til Þorláks-
hafnar.
Tankurinn var áður í eigu Skelj-
ungs og hafði verið notaður undan-
farið af Slökkviliði Reykjavíkur sem
vatnsforðabúr. Árnes hf. í Þorláks-
höfn hafði keypt tankinn og ætlar að
nota hann undir loðnuúrgang á kom-
andi loðnuvertíð. Verðmæti tanksins
er um þrjár til fjórar milljónir kr.
Ekki er vitað hvort hann hafi
*’3hskemmst.
Jökull Ólafsson, verktaki sem hef-
ur tekið að sér flutning tanksins til
Þorlákshafnar, sagði líklegt að
saumar hefðu gefið sig og lekið inn í
tankinn. Til stóð að kafari færi inn í
tankinn, kannaði hvað hefði gerst og
þétti tankinn. Síðan átti að dæla úr
honum vatni og freista þess að lyfta
honum með þeim hætti af hafsbotni.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
OVENJULEG sjón blasti við mönnum í Kópavogshöfn í gær. 2.700 tonna tankur maraði þar í kafi en til stóð að lyfta honum af hafsbotni seinna um daginn.
Bflasala
eykst um
þriðjung
SALA á nýjum bílum jókst um
29,6% í janúar miðað við sama
mánuð í fyrra. AIls seldust 854
bflar í mánuðinum samkvæmt
bráðabirgðatölum frá Bflgreina-
sambandi íslands.
Mikil söluaukning var einnig í
janúar í fyrra. Þá seldust 659 ný-
ir bflar sem var 40% aukning
miðað við söluna í janúar 1996,
þegar 470 nýir bflar seldust.
Fjórar tegundir skera sig úr
hvað varðar markaðshlutdeild í
mánuðinum. Söluhæsta tegundin
í mánuðinum var Toyota, alls
seldust 154 slíkir bflar, sem er
18% markaðshlutdeild, 125 Su-
baru-bílar seldust, sem er 14,6%
markaðshlutdeild, 89 Mitsubishi-
bflar, sem er 10,4% markaðshlut-
deild, og 69 Volkswagen-bflar,
sem er tæplega 8,1% markaðs-
hlutdeild.
íslenzka útvarpsfélagið hf. selur hlut sinn í Frjálsri fjölmiðlun hf.
Forráðamenn DV keyptu
hlutinn á 420-450 milljónir
SVEINN R. Eyjólfsson, stjórnarfor-
maður Frjálsrar fjölmiðlunar hf.,
sem gefur út DV, og Eyjólfur Sveins-
son, framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, hafa keypt 35% hlut Islenzka út-
varpsfélagsins hf. í Frjálsri fjölmiðl-
un hf. Er þar með lokið aðild Stöðvar
2 að útgáfu DV. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins var kaupverð
eignarhluta Islenzka útvarpsfélags-
ins hf. 420-450 milljónir króna. Um
helmingur kaupverðs mun hafa verið
greiddur við undirskrift samnings
fyrir nokkrum dögum en hinn helm-
ingurinn verður greiddur á næstu
mánuðum.
Islenzka útvarpsfélagið hf. eignað-
ist 35% hlut í útgáfufélagi DV fyrir
tæpum þremur árum eða hinn 10.
febrúar 1995. Aðdragandi að þeim
kaupum var sá, að daginn áður hafði
Hörður Einarsson hrl., meðeigandi
Sveins R. Eyjólfssonar að DV, selt
hinum síðamefnda 50% hlut sinn í út-
gáfufélaginu. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins keypti íslenzka út-
varpsfélagið hf. 35% hlutinn í útgáfu-
félagi DV á þeim tíma fyrir 190-200
milljónir króna.
Hugmyndir um margmiðlun
gengu ekki eftir
Morgunblaðið hefur upplýsingar
um, að kaupin nú hafi farið fram að
framkvæði forráðamanna DV. I þeim
samningum, sem gerðir voru fyrir
þremur árum, voru ákveðnar viðmið-
anir, sem gáfu tilefni til viðræðna um
samskipti fyrirtækjanna nú.
Þegar íslenzka útvarpsfélagið
keypti hlutinn í DV fyrir þremur ár-
um var því lýst yfir, að „samstarf fé-
laganna tveggja mundi beinast í ann-
an og nýrri farveg en núverandi fjöl-
miðlun félaganna,“ eins og Sigurður
G. Guðjónsson, þáverandi stjórnar-
formaður IU, komst að orði í samtali
við Morgunblaðið 11. febrúar 1995. I
fréttatilkynningu frá félögunum á
þeim tíma var sagt að stofnað yrði
fyrirtæki á sviði margmiðlunar og
rafrænnar fjölmiðlunar. Skv. heim-
ildum Morgunblaðsins hafa þessi
áform um samstarf ekki gengið eftir.
Gert er ráð fyrir, að einhverjir
stofnanafjárfestar komi við sögu í
þessari endurskipulagningu á eign-
araðild DV og hugmyndir hafa verið
um að opna félagið. Hagnaður af
rekstri Frjálsrar fjölmiðlunar hf.
nam 118 milljónum króna á árinu
1996 skv. því sem fram hefur komið
og hagnaður af rekstri fyrirtækisins
á síðasta ári mun hafa numið um 100
milljónum króna.
Eftir þessi viðskipti er eignaraðild
að Frjálsri fjölmiðlun hf. þannig
háttað, að Dagblaðið hf., sem Sveinn
R. Eyjólfsson er meirihlutaeigandi
að, á 50% í fyrirtækinu, Sveinn R.
Eyjólfsson 25% og Eyjólfur Sveins-
son 25%.