Morgunblaðið - 01.02.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 27
Lókufjall
Hvalfjarðarvegur
Hnausar
Norðan fjarðar
við Hólabrú
Sunnan fjarðar
við Saurbæ
sjávamiál
— -50 m
------100
------150
-----200
8,1% halli, svipaður halli og
upp Bankastrætið i Reykjavik
Hallinn upp að sunnanverðu er heldur
minni en hallinn upp Kambana i Hellisheiði
JARÐGÖNGIN verða um 5.484 m löng og liggja dýpst 165 m undir yfirborði sjávar. Þrjár akreinar verða á veginum i göngunum að norðanverðu, en tværað sunnanverðu.
sunnudaga
6.-00
14.-00-16.-i
TM - HUSGOGN
SrSumúla 30 -Simi 568 6822
„Verkið átta að standa í 39 mán-
uði, en ljóst er orðið að því lýkur
langt á undan áætlun og munar þar
níu mánuðum. I raun og veru veld-
ur það okkur nokkrum óþægind-
um, en þó ekki alvarlegum. Oþæg-
indum; þá á ég við að áætlanir okk-
ar, m.a. endurgreiðsluútreikning-
ar, miðuðust við að verkið tæki 39
mánuði. Þetta var möguleiki sem
við vissum að yrði fyrir hendi og
því þarf að framreikna allt dæmið.
Þetta er að hluta okkar eigin
sök. Verktakar juku vinnuhraðann,
við lofuðum að borga flýtibónus og
þeir bættu við vöktum. Einnig má
þess geta, að náttúran hefur reynst
okkur afar hliðholl. Þannig er
bergið á einum stað svo heitt að
það ýtir undir náttúrulega loft-
ræstingu og svo hefur vatnsleki
verið til mikilla muna minni en bú-
ast mátti við. Það er alltaf einhver
leki í svona göngum, en menn eru
fremur hissa hve lítið lekur í Hval-
firðinum. Þessu öllu fylgir tölu-
verður spamaður.“
Er þá komin dagsetning á opnun
ganganna?
„Nei, ekki er það nú í höfn, en ég
get sagt að þau verða opnuð um
mitt sumarið.“
Framkvæmdastjórinn
Hvað bíður þín svo fyrstu mán-
uðina í starfi?
„Það verður mikið að gera.
Fyrstu mánuðina og trúlega allan
næsta vetur verð ég í hinum ýmsu
verkefnum, svo sem samningamál-
um, uppgjörsmálum, endurfjár-
mögnun, það þarf að brjóta upp
vaxtasamninga og vinna ýmsar og
ýtarlegar skýrslur til að uppfylla
upplýsingaskyldu fyrirtækisins
gagnvart lánveitendunum. Þá
blasa við mannaráðningar, útboð á
tryggingum og margt fleira. Það
verður enginn verkefnaskortur hjá
mér, þvert á móti,“ segir Stefán.
Hver verður yfirbygging þessa
fyrirtækis?
„Hún verður lítil og sérstaklega
þegar ársvelta þess er skoðuð. Eg
reikna ekki með því að starfsmenn
nái tveggja stafa tölu og þeir
starfsmenn sem verða beinlínis
ráðnir verða aðallega á vöktum að
selja inn í göngin. Viðhald verður í
höndum Jámblendifélagsins sem
hefur til slíks bæði tækni, tæki og
mannskap."
Verður síðan selt í gegnum
göngin um aldur og ævi, eða á að
hætta því þegar verkið er fullgreitt
eins og til stóð á Reykjanesbraut-
inni á sínum tíma?
„Samingur hefur verið gerður
við samgönguráðuneytið um að það
taki við rekstri ganganna þegar
þau hafa verið að fullu greidd. Ég á
von á því að þá verði lag að fella
niður gjaldtöku. Miðað við áætlanir
átti það að taka 20-30 ár, en seinni
árin hefur komið í Ijós að það
markmið ætti að nást fyrr þótt ég
geti ekkert tjáð mig nánar um það.
Aukinn umferðarþungi mun að
sjálfsögðu skila sér í göngunum og
greiða fyrir því að borga upp lánin
fyrr en ella.
„Og hvað verður þá um þig?
„Um mig? Það er nú kannski
ekki tímabært að hugsa um það,
enda um nóg annað að hugsa í bili.
Ætli það komi ekki bara í ljós?“
Sýningar allar helgar frá kl. 14-17
Terrano II S 3 dyra
Nýtt verð kr. 2.179.000.-
Staðalbúnaður:
/ Vél 2,7 I.
/ Turbo/millikælir 125 hestöfl
/ Rafstýrð topplúga
/ Fiskaaugu kastarar
/ Þjófavörn m/högg- og
hreyfiskynjara
/ Fjarstýring
/ Stigbretti
/ Viðarklæðning
/ Álfelgur
#) Q ffl
úhvist
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000
Aukabúnaður:
35“dekk
Brettakantar
Lækkuð drifhiutföll
Skíðabogar
Vindskeið
Terrano II SE 5 dyra
Nýtt verð kr. 2.589.000.-
Terrano II SR 5 dyra
Nýtt verð kr. 2.419.000.-
TSB
Með hverjum Nissan Terrano II fylgir jeppaferð að eigin vali með jeppadeild Útivistar.