Morgunblaðið - 01.02.1998, Blaðsíða 6
T' BHftt 'rV k WV4 rr^-'rí í- 'cj'r V* l £ ^ 'ýrY/\
6 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998
9íS&j3íSlð3öí«3
MÓRGUNBLAÐÍÐ
ERLENT
SONJA Gandhi, ekkja Rajivs
Gandhi, fyrrum forsætisráð-
herra Indlands, hefur rofið
þögn sína og gengið til hðs
við kosningavél Congress-flokksins,
sem var pólitískur vettvangur þessa
mikla ættarveldis um 40 ára skeið.
Þessi ákvörðun Sonju Gandhi kemur
nokkuð á óvart því hún hefur ítrekað
hafnað því á liðnum árum að gerast
virkur þátttakandi i stjórnmálum
Indlands þrátt fyrir að hafa sætt
umtalsverðum þrýstingi. Tilgangur
ekkjunnar virðist nokkuð ljós. Hún
hyggst aðstoða Congress- flokkinn
sem á nú undir högg að sækja íyrir
þingkosningarnar er verða í þessum
mánuði og hinum næsta. Úm leið
hyggst hún freista þess að endur-
vekja reisn og skriðþunga Gandhi-
ættarveldisins, sem mótað hefur svo
mjög Indland nútímans en heyrir nú
að mestu sögunni til.
Sonja Gandhi hóf pólitísk afskipti
sín 11. janúar á kosningafundi í
bænum Sriperumbador í suðurhluta
Indlands en þar var eiginmaður
hennar myrtur í sjálfsmorðsárás ár-
ið 1991. í ræðu sinni, sem um 15.000
manns hlýddu á, sagði hún að blóð
éiginmanns hennar hefði gert stað
þennan helgan og reyndi ekki að
leyna því að það væri henni erfitt að
koma fram fyrir alþjóð með þessum
hætti. „Þótt tíminn hafi liðið er jafn-
erfitt og áður að koma hingað,"
sagði frú Gandhi. „Eiginmaður minn
var miðpunktur lífs míns og tilveru,"
bætti hún við.
Áður en ekkjan rauf sjö ára þögn
sína hélt hún á staðinn þar sem
kvenmaður vopnaður sprengju
myrti mann hennar á kosningafundi
27. maí 1991. Þar er nú minningar-
reitur um Rajiv Gandhi hvar eilífur
eldur logar undir mynd af forsætis-
ráðherranum íyrrverandi. Með í för
var Priyanka, 26 ára gömul dóttir
þeirra hjóna. Þetta var þaulskipu-
lögð athöfn sem markaði upphaf
kosningabaráttu Congress-flokks-
ins. Frá því þetta gerðist hefur frú
Gandhi komið fram við nokkur vel
valinn tækifæri en þunginn í kosn-
ingabaráttu hennar verður aukinn
til mikilla muna nú í febrúar og er
gert ráð fyrir að hún flytji óvarp á
fjórum til fimm kosningafundum á
degi hverjum.
Ekki í framboði
I ávarpi sínu tók Sonja Gandhi
skýrt fram að hún væri ekki í fram-
boði enda sæktist hún ekki eftir veg-
tyllum eða embættum. Miklu frem-
ur hefði skyldan við minningu eigin-
manns hennar orðið til þess að hún
hefði fallist á að taka þátt í kosn-
ingabaráttu Congress-flokksins.
Rajiv Gandhi hefði ávallt barist íyrir
stöðugleika og framförum en nú
væri þeirri arfleifð hans ógnað. Con-
gress-flokkurinn væri eina stjórn-
málaflið sem komið gæti í veg fyrir
að Indland liðaðist í sundur og yrði
gjaldþrota. Misvitrir stjómmála-
menn hefðu á hinn bóginn kosið að
misnota trúna til hrifsa til sín völdin
og var þeim orðum sýnilega beint að
Bharatiya Janata-flokknum, sem er
flokkur hreintrúaðra hindúa og spáð
er fylgisaukningu í kosningunum.
Er hún ræddi stjórnmálaástandið
gætti Sonja Gandhi þess vandlega
að nefna oft á nafn þau Jawaharlal
Nehru, íyrsta forsætisráðherra Ind-
lands eftir að landið hlaut sjálfstæði
og dóttur hans Indiru ____________________
Gandhi, móður Rajivs Congress-
Gandhi-veldið
endurvakið?
Sonja Gandhi, ekkja
Rajivs Gandhi, fyrrum
forsætisráðherra Ind-
lands, hefur nú fallist á
að taka virkan þátt í
kosningabaráttu Con-
gress-flokksins og
margir halda því fram
að fyrir henni vaki að
endurreisa ættarveldið í
indverskum stjórnmál-
------z----------------
um. Asgeir Sverrisson
segir frá frú Gandhi og
veltir fyrir sér mögu-
leikum hennar.
Reuters
SONJA Gandhi (t.h) ásamt dóttur sinni, Priyanka, á kosningafundi
Congress-flokksins í borginni Chandigarh á Norður-Indlandi í liðinni
viku. Ýmsir telja að Priyanka verði næsti fulltrúi Gandhi-veldisins í
indverskum stjórnmálum.
STUÐNINGSMENN Congress-flokksins halda á lofti myndum af Rajiv Gandhi, fyrrum forsætisráðherra Ind-
lands, á kosningafundi sem ekkja hans ávarpaði í borginni Bangalore.
móður Rajivs
Gandhi, sem einnig féll
fyrir morðingjahendi árið
1984. Var engu líkara en
hún teldi að ljóminn sem
stafar af nöfnum þessara stjórn-
málaskörunga gæti orðið til þess að
viðstaddir gleymdu því hvemig Con-
gress-flokkurinn er gjörsamlega rú-
inn trausti nú um stundir vegna
þeirrar víðtæku spillingar sem fékk
að þrífast í valdatíð hans og varð
m.a. stjórn eiginmanns hennar að
falli.
Athygli vakti að dótturinni, Pri-
yanka, var mjög haldið í sviðsljósinu
en hún mun stjórna kosningabaráttu
móður sinnar. I eitt skiptið greip
hún hljóðnemann og tilkynnti við-
stöddum að hún hygðist Hkt og móð-
ir hennar berjast af öllum krafti fyr-
ir framgangi málstaðar Congress-
fiokksins. Á Indlandi hafa nú kvikn-
að vangaveltur um að Sonja Gandhi
flokkurinn
rúinn trausti
ætli dóttur sinni að endurvekja ætt-
arveldið en hún mun um nokkurt
skeið hafa sýnt stjómmálum áhuga.
Eldri bróðir hennar, Rahul, býr í
Lundúnum og mun hafa hafnað því
með öllu að snúa aftur
heim til að taka upp merki
ættarinnar. Vera kann því
að Priyanka sé nú ætlað
að feta í fótspor föður síns
og verða fjórða kynslóð
Gandhi-veldisins.
Dæmdur til að bera
ættarmerkið
Þótt Sonja Gandhi hafi fram til
þessa vísað á bug öllu tali um virka
stjómmálaþátttöku hefur hún um-
talsverða pólitíska reynslu. Hana
öðlaðist hún með því að taka virkan
þátt í störfum og kosningabaráttu
eiginmannsins, sem tók við veldis-
sprotanum eftir morðið á Indiru
Gandhi en féll loks vegna spillingar-
mála árið 1989. Hins vegar er vitað
að frú Gandhi var þvert um geð að
opinbera persónu sína á þann veg
sem krafist er í kosningabaráttu.
Rajiv Gandhi var dæmdur til að
taka við merkinu er bróðir hans
Sanjay fórst í flugslysi árið 1980 en
honum hafði verið ætlað það hlut-
verk. Kallið kom er lífverðir Indiru
Gandhi myrtu móður hans árið 1984
og neyddist eiginkonan, hin ítalska
Sonja, til að taka fullan þátt í kosn-
ingabaráttu eiginmannsins, sem ver-
ið hafði flugmaður og ekki hafði nein
áform um að hverfa úr því starfi.
Rajiv Gandhi var kjörinn forsætis-
ráðherra og réði þar mestu samúð
þjóðarinnar sem var með fjölskyld-
unni eftir morðið á móður hans.
Virðuleg þögn
og íjarlægð
Sonja Gandhi, sem fæddist í smá-
þorpi nærri Torino á Italíu fyrir 51
ári, gerðist indverskur ríkisborgari
og var nokkuð áberandi sem eigin-
kona forsætisráðherrans. Alvarleg
spillingarmál sem upp komu í
stjórnartíð Rajivs Gandhi reyndust
Congress-flokknum þungt áfall og
svo fór að lokum að endi var bund-
inn á nærri 40 ára veldi Gandhi-ætt-
arinnar árið 1989 er stjóm hans féll.
Tveimur árum síðar reið ógæfan á
ný yfir þessa merku fjölskyldu er
Rajiv Gandhi var myrtur en þar
voru að öllum líkindum á ferðinni
Tamflar frá Sri Lanka.
Frá því þetta gerðist hefur Sonja
Gandhi að mestu haldið sig í virðu-
legri fjariægð frá þjóðlífinu á Ind-
landi. Hins vegar er sagt
að hún hafi haldið góðum
tengslum við ráðamenn
innan Congress-flokksins
þótt hún hafi ávallt fram
til þessa vísað á bug þeim “““““““
þrýstingi sem hún hefur sætt um að
hefja virka stjórnmálaþátttöku í
nafni þessara samtaka. Strax eftir
morðið tóku að heyrast raddir þess
efnis að hún ætti að bjóða sig fram
til forsætisráðherra.
Þrátt fyrir það spillingarorð sem
farið hefur af Congress-flokknum og
síðustu Gandhi-stjórninni nýtur
Sonja Gandhi enn umtalsverðrar
virðingar á Indlandi. Ættinn á enn
fjarska dygga aðdáendur og margir
fyllast enn lotningu frammi fyrir
Gandhi-nafninu. Á þetta treystir nú
flokkurinn og ef marka má skoðana-
kannanir þarf hann mjög á hjálp
ekkjunnar að halda.
Sonja Gandhi gerðist ekki félagi í
Congress-flokknum fyrr en í ágúst í
fyrra en margir flokksmenn vonast
til að hún geti orðið til þess að koma
á friði innan samtakanna. Flokkur-
inn beið háðuglegan ósigur í þing-
kosningunum í maí 1996 og frá þeim
tíma hafa innibyrðis deilur sett mjög
mark sitt á flokksstarfið. Með til-
komu Sonju Gandhi gætir nú meiri
bjartsýni en oftast áður innan
flokksins og margir vænta þess að
niðurlægingarskeiðið sé brátt á
enda.
Alþýðuhylli?
Á Indlandi telja stjórnmála-
skýrendur almennt að Sonja Gandhi
geti orðið leiðtogi Congress-flokks-
ins óski hún þess. Núverandi flokks-
formaður, Sitaram Kesri, þykir ht-
laus þótt hann sé sagður séður
stjórnmálamaður. Breska tímaritið
The Economist sagði á dögunum að
Kesri vekti álika hrifningu og ljósa-
staur og nokkuð ljóst virðist að hann
er ekki maður sem megnar að hrífa
með sér fjöldann.
En getur Sonja Gandhi það?
Dyggustu aðdáendur frúarinnar
telja að þátttaka hennar í kosninga-
baráttunni verði til þess að koma í
veg fyrir að ýmsir þekktir og áhrifa-
miklir stuðningsmenn flokksins
svíki lit og gangi til liðs við önnur
stjómmálaöfl. Þeir telja að frú
Gandhi verði tfl þess að efla sam-
stöðu meðal flokksmanna sem aftur
muni auka baráttuþrekið og að lok-
um skila mjög viðunandi úrslitum í
þingkosningunum.
Aðrir flokksmenn efast um að
Sonja Gandhi geti í raun haft slík
áhrif. Þeir benda á að staða hennar í
norðmríkjum Indlands, einkum og
sér í lagi í Uttar Pradesh, sé ekki
sterk og muni tæpast duga til að
tryggja sigurinn þar, sem talinn er
nauðsynleg forsenda þess að flokk-
urinn lifi þessar hremmingar af.
Þessir menn telja ennfremur að
áhrifa frú Gandhi muni lítt gæta í
suðurríkjum Indlands.
Spillingarorðið skaðar
Trúlega er of snemmt að segja til
um nákvæmlega hver áhrif frú
Gandhi verða. En eitt liggur ljóst
fyrir. Sú staðreynd að hún er út-
lendingur mun vinna gegn henni og
víst má heita að andstæðingar Con-
gress-flokksins hyggjast nýta þetta
sóknarfæri. Sjálf hefur frú Gandhi
sagt að enginn geti efast um hug
hennar tfl indversku þjóðarinnar.
„Ég gerðist hluti af Indlandi fyrir 30
árum þegar ég kom inn á heimili
Indiru Gandhi sem eiginkona elsta
sonar hennar,“ hefur hún sagt með
vísun til þess er hún gekk að eiga
Rajiv Gandhi í febrúar 1968 en þau
kynntust er þau voru við nám í
Englandi.
Spillingarmálin kunna að reynast
þyngri í skauti. Fjendur Congress-
flokksins hafa löngum haldið því
fram að Sonja Gandhi hafi sjálf
tengst spillingarmálinu mikla sem
upp kom í tengslum við kaup Ind-
verja á fallbyssum frá sænska Bof-
ors-fyrirtækinu í stjórnartíð eigin-
manns hennar. Það mál er enn í
rannsókn og hefur ekki orðið til þess
að auðvelda ættinni og flokknum að
losna við spillingarstimpilinn. Því er
jafnvel haldið fram að frú Gandhi
hafi nú afráðið að hefja þátttöku í
stjómmálum í þeirri von að henni
auðnist að koma í veg fyrir að ýmis-
___________________ legt varðandi hina spilltu
Verður flokks- . eiginmannsins
verði opmberað. Þessum
ásökunum svaraði hún
kröftuglega á fjölmennum
útifundi í borginni
Ueuters
leiðtogi vilji
hún það
Bangalore á dögunum. Hvatti hún
til þess að allar upplýsingar um Bof-
ors- hneykslið yrðu gerðar opinber-
ar því þannig yrði unnt að hreinsa
nafn eiginmanns hennar og kæfa
óhróðursherferðina, sem blásið hefði
verið til gegn ættinni.
Skoðanakannanir sýna svo tæpast
verður um villst að mikið endur-
reisnarstarf bíður Congress-flokks-
ins. Upplausn hefur ríkt innan
flokksins og nokkrir helstu leiðtogar
hans hafa sagt af sér embættum á
síðustu mánuðum. Nú er horft til
Sonju Gandhi, ýmist í hrifningu eða
örvæntingu. Áðrir munu bíða þess
að þessi sérstaka kona, sem sjálf
hefur sagt að hún kunni illa við sig í
sviðsljósinu, misstígi sig.