Morgunblaðið - 01.02.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 41
1
4
4
i
}
í
,3
í
i
1
4
4
i
i
BRÉF TIL BLAÐSINS
Að flytja eður ei!
Frá Páli Þór Jónssyni:
HER á Húsavík er hálfgert vand-
ræðaástand. Pólitíkusamir okkai-
em svo uppteknir af því hverjum
þeii' sænga hjá eftir kosningar að
þjóðþrifamál eins og flutningar rík-
isstofnana hafa algerlega farið fram
hjá þeim. Því er nauðsynlegt að
hinn almenni kjósandi taki fram
fyrir hendurnar á þeim svona mitt í
framboðslofgreinunum og taki að
krefjast einhvers réttlætis.
Við emm svo heppin á Islandi að
hafa kosið yfir okkur snilldarþing-
menn sem síðan eiga það til sumir
hverjir að umbreytast í ofurráð-
herra. Ekki veit ég hvar við værum
stödd á taflborði stjómmálanna ef
við ættum ekki svona afburða-
greinda ráðherra með framtíðarsýn
og patentlausnir á hverjum fingri.
Hann Dóri okkar tók sig til fyrir
noklmzm árum og klauf ferðamála-
ráð í herðar niður og sendi smærri
hlutann til Akureyrar. Ferðamála-
ráð hefur aldrei sýnt jafnrosalegan
drifkraft og eftir höggið. Eins og
landsmenn taka eftir, allir sem
einn, hefur ráðið geislað af frum-
krafti og einurð og enginn efar að
stjórinn í ráðinu er allt annar mað-
ur eftirá.
Og ekki efa ég að Landmælingar
verða miklu betri stofnun eftir að
allir starfsmenn em hættir nema
forstjórinn því ég hef fregnað að
skrefamælingamenn á Skaganum
hugsi sér gott til glóðarinnar. Síðan
er hægt að fylla upp í með kvóta-
lausum trilluköllum til að ná höfða-
tölu á skrifstofunni. Mikið er nota-
leg vellíðan sem um mann streymir.
Okkur sárvantar fleiri pólitískar
ákvarðanir sem þessa.
Og ekki eru þingmenn af verri
sortinni. Egill á Seljavöllum hefur
ákveðið með góðu eða illu, rétt eins
og hinir, að setja hana Byggða-
stofnun í mortél og strá svo mylsn-
unni (nokkuð) jafnt yfir (austur)
landið til að réttlætinu verði full-
nægt. Hvort stofnun sú verði betri
ellegar verri er erfitt að meta því
ekki hefur enn sannast hvort er
betra eða verra, góð eða slæm verk
Byggðastofnunar.
En hér á Húsavík eigum við
semsé svo slaka forystuhrúta að
ekkert hefur heyrst til þeirra annað
en þetta með hveijum hver sængar.
Eins og okkur hinum sé ekki nokk
sama.
Því er við hæfi að leggja inn
nokkrar beiðnir svona rétt fyrir
kosningar með frómri ósk um að
loforð verði gefin opinberlega, helst
nokkuð áberandi, svo við getum
fyllst bjartsýni og gleði yfir vænt-
anlegum bústólpa. Fyrst ber að
nefna að samband okkar við fjár-
málaráðuneytið er ekki nógu öflugt
svo við viljum gjaman fá þar sneið.
Til dæmis kaffistofuna. Úr dóms-
kerfinu væri hæfilegt að fá tvo rétt-
sýna hæstarréttardómara með
reynslu af skattamálum. Engin
ástæða er fyrir Reykvíkinga að
eiga tvær Kringlur svo við viljum
einnig fá Kringluna sem hangir á
Alþingishúsinu með stólum innan-
borðs og nokkrum velvöldum þing-
mönnum og einum skrifstofustjóra.
Við þurfum ekkert úr samgöngu-
ráðuneyti. Það er lífsnauðsynlegt
að fá eitt hátæknisjúkrahús sem
við breytum snarlega í lágtækni-
sjúkrahús til að spara. Svo þætti
okkur smart að fá einn góðan
bankastjóra, helst þennan nýja
með sléttgreidda hárið og símann.
En heimtufrekjan má ekki verða
til þess að trúverðugleiki okkai’
hljóti hnjóð af. Því viljum við gjam-
an senda stór-Reykjavíkursvæðinu
eitthvað til baka. Eðlilegt er að
Skaginn sendi sementsverksmiðj-
una og Krókurinn steinullina.
Skagfirðingar hafa hvort eð er ekk-
ert með hana að gera eftir næsta
afrek í olíuverkun. Landsbyggðin
er líka í dauðans vandræðum með
alla umfram oddvitana sem nú era
til á lager, reyndir og tilkeyrðir, en
starfalitlir. Frá Húsavík gætum við
kannski séð af eins og einum tann-
lækni. Svo væri tilvalið að láta eina
stórvirkjun fylgja með og koma
henni fyrir til dæmis í Tjöminni.
Þeir þurfa ekki lengur Geysi en
svolítið eldgos og skriðjökull sjatt-
eraði vel í Óskjuhlíðinni.
Og nú er bara að bíða, sjá og
vona hvaða afburðamenn stíga
fram og senda starfsmenn stofnana
í notalega gamaldags en umfram-
allt einstaklega þjóðlega hreppa-
flutninga.
PÁLL ÞÓR JÓNSSON
hótelstjóri á Húsavík.
Manudaas
á CftOlg°® .
: BteiðUoUi
i hverfinu
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins auk frambjóðenda sjálfstæðismanna í
borgarstjórnarkosningunum verða
með viðtalstíma í hverfúm
borgarinnar næstu mánudaga.
Á morgun verða
Sólveig G. Pétursdóttir
alþingismaður
°g
Guðrún Zoéga
borgarfiilltrúi
í Álfabakka I4a, Mjódd kl. 17-19.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla Reykvíkinga til
að ræða málin og skiptast á skoðunum við
fúlltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Hafðu áhrif og láttu þínar skoðanir heyrast.
VÖRÐUR - FULLTRÚARÁÐ
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA í REYKJAVÍK.
i
\
i
4
4
4
Listplakot
Grafík
Silkiþrykk
Styttur
lcon myndir
Fínar glerwörur
Innlendir og erlendir í miklu
úrwali
Innlendir og erlendir í miklu úrwali
Engjateigi 17 ■ 19 ■ 105 Reykjauik
^ m
: >-í; ■- SP^****
',. ■ "■'
/QL
4
4