Morgunblaðið - 01.02.1998, Side 31
SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 31
H
vj
<
i
' í
€
4
0
I
€
I
4
4
4
4
4
4
d
4
4
4
4
d
4
4
A
MORGUNBLAÐIÐ
sveiflur í gróðursetningu og fram-
leiðslu sem stjórnast af utanað-
komandi aðstæðum s.s. veðurfari,
meindýraplágum og vinnufram-
boði.
Árið 2000 þyrfti slíkur sjóður
að fá framlag sem nemur 372
milljónum króna til að standa und-
ir plöntuframleiðslunni í landinu.
Eins og áður hefur verið bent á
er þetta að öllum líkindum í hærri
kantinum því að viðmiðunarverð á
plöntu er hátt. Allir skógræktend-
ur, bæði smáir og stórir, jafnt
sumarhúsaeigendur sem stórir
skógræktendur eins og Héraðs-
skógar og Suðurlandsskógar,
gætu sótt um styrk til plöntukaupa
að því tilskildu að þeir væru að
rækta skóg á skóglausu og friðuðu
landi og færu eftir leiðbeiningum
um meðferð og gróðursetningu
plantnanna. Að sama skapi og
mengendum er ekki mismunað við
innheimtu mengunarskattsins
verður skógræktendum ekki mis-
munað og allir sem vilja og geta
ræktað skóg hafi jafnan rétt á
styrk. Þetta er sérstaklega mikil-
vægt ef einhver mengandi vill
sjálfur binda sinn koltvísýring.
T.d. er líklegt einkabílseigandinn
sem ætlar að rækta skóg mundi
borga með glöðu geði 30 aura með
hveijum bensínlítra í mengunar-
skatt ef tryggt væri að hann gæti
fengið plönturnar sem hann þarf
á að halda ókeypis.
Að sjálfsögðu þyrfti að hafa
eftirlit með plöntugæðum og
gróðursetningu. Tekið yrði úrtak
á hverju ári og bæði þeir sem fram-
leiða plöntur og þeir sem gróður-
setja þær yrðu heimsóttir og at-
hugað hvort þeir hafi uppfyllt þau
skilyrði sem þeir undirgengust til
að fá styrk.
Einfaldast væri að hver planta
væri styrkt með föstum styrk og
skógræktendur látnir sjálfir greiða
mismuninn. T.d. sá sem vill frekar
kaupa stórar og dýrar plöntur af
því honum liggur svo á skógar-
skjólinu fengi samt sem áður að-
eins skógarplöntustyrk og þyrfti
að greiða verðmismuninn sjálfur.
Ef plönturnar væru ódýrari en sem
nemur styrkupphæð mundi sjóður-
inn njóta þess.
Plöntuframleiðslan í landinu
mundi stýrast af framboði og eftir-
spurn og allar gróðrarstöðvar sem
framleiða góðar en ódýrar plöntur
myndu hagnast á þessu fyrir-
komulagi.
Framlag skógræktar
Nú má ekki misskilja það sem
hér hefur verið fjallað um á þann
hátt að skógræktarmenn vilji ekki
sjá að árangur náist í að minnka
eða takmarka útstreymi gróður-
húsaloftegunda. Við sem hugsum
í áratugum höfum ekki síst
áhyggjur af þeim geigvænlegu
afleiðingum sem gróðurhúsaáhrif-
in geta haft.
En það er hægt er að ráðast á
vandan frá báðum hliðum. Bæði
með því að takmarka útstreymi
gróðurhúslofttegunda og binda
koltvísýring í jarðvegi, gróðri og
skógi. Þetta á ekki síst við hjá
þjóð sem er búinn að eyða nánast
öllum sínum skóglendum í harðri
lífsbaráttu fyrri alda.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd stendur hófsöm aukning í
skógrækt ein og sér á engan hátt
undir þvi að draga úr nettólosun
gróðurhúsalofttegunda frá Islandi.
Sú aukning skilar okkur samt tölu-
verðri bindingu og fram á veginn
í endurheimt skóglenda. Við skóg-
lendi landsins myndu bætast 1.000
ferkílómetrar þannig að þau gætu
orðið árið 2025 um 2.185 ferkm
eða tæp 2,1% af stærð landsins í
stað 1,2 %. Það verður að telja
skógrækt það til tekna að hún
hjálpar til í baráttu okkar gegn
mengun andrúmsloftsins.
Höfundur er skógfræðingur og
vinnur sem sérfræóingur iijá
Rannsóknnstöð Skógræktar
ríkisins á Mógilsá.
BRIPS
Umsjón: Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Reykjavíkur
Þriðjudaginn 27. janúar var spil-
aður eins kvölds tölvureiknaður Mitc-
hell-tvímenningur með forgefnum
spilum. 22 pör spiluðu 9 umferðir með
3 spilum á milli para. Meðalskor var
216 og efstu pör voru:
N:
Halldóra Magnúsdóttir - Kristín Torfadóttir 254
Sigrún Steinsdóttir - Haukur Harðarson 237
Reynir Grétarsson - Hákon Stefánsson 236
AV:
Gunnlaug Einarsdóttir - Hrólfur Hjaltason 259
Guðmundur Baldursson - Steinberg Ríkarðsson
244
Bjarni Sigurðsson - Sveinn K. Sveinsson 234
Bryndís Þorsteinsdóttir - Sigfús Örn Ámason 232
Á þriðjudagskvöldum spilar BR eins
kvölds tvímenninga og boðið er upp á
að taka þátt í verðlaunapotti. Spila-
mennska byijar kl. 19:30. Spilarar 20
ára og yngri spila frítt hjá félaginu á
þriðjudögum og föstudögum.
22 sveitir taka þátt í Aðalsveita-
keppni félagsins. Keppnin stendur yfir
6 kvöld og fyrstu 4 kvöldin verða spil-
aðar 12 Monrad-umferðir með 10 spila
leikjum. Þá fara 4 efstu í Úrslita-
keppni á meðan hinar sveitirnar spila
Monrad þar sem stokkað verður upp
að nýju.
Staðan eftir 3 umferðir
Málning 64
ÖrnAmþórsson 62
Gvendur Pjé og pjakkamir 61
Landsferðir 58
Unnur Sveinsdóttir 58
Olís 54
Grandi hf. 54
Roche 54
Bridsfélag Breiðfirðinga og
Bridsfélag Breiðholts
Fimmtudaginn 29. janúar var spil-
aður eins kvölds tölvureiknaður Mitc-
hell-tvímenningur. 18 pör spiluðu 9
umferðir með 3 spilum á milli para.
Meðalskor var 216 og efstu pör voru:
NS: .
Torfi Ásgeirsson - Bemhard Guðmundsson2fi-
8
Gylfi Baldursson - Gísli Hafliðason 258
Guðmundur Skúlason - Friðrik Jónsson 245
AV:
Halldóra Magnúsdóttir - Steinberg
Ríkarðsson 267
Ólína Kjartansdóttir - Guðlaugur
Sveinsson 238
Soffía Daníelsdóttir - Óli Björn
Gunnarsson 235
Efstu pör í hvora átt unnu sér inn
2 rauðvínsflöskur. Þá eru búin 2 kvöld
af 4 í Laugaás-keppni félagsins, en
bronsstigahæsti spilarinn á þessum 4
kvöldum vinnur sér inn kvöldverð fyr-
ir 2 á veitingastaðnum Laugaási. Stað-
an í Laugaás-keppninni er þannig:
Torfi Ásgeirsson 32 bronsstig
Hermann Friðriksson 26 bronsstig
Vilhjálmur Sigurðsson 26 bronsstig
Soffía Daníelsdóttir 25 bronsstig
9 ÓliBjömGunnarsson 25 bronsstig
a. Bemhard Guðmundsson 20 bronsstig
u: Halldóra Magnúsdóttir 20 bronsstig
Steinberg Ríkarðsson 20 bronsstig
Bridsfélög Breiðfirðinga og Breið-
holts spila á fimmtudagskvöldum og
58 er spilaður eins kvölds tvímenningur
15 með forgefnum spilum.
■g Bridsfélag Suðurnesja
NÚ er farið að síga á seinni hlutann
^ í aðaisveitakeppni félagsins og aðeins
einni umferð ólokið. Efstu sveitirnar
™ mættust sl. mánudagskvöld og lauk
’° þeirri viðureign með sigri Garðars
Garðarssonar sem þar með tók foryst-
una í mótinu.
Staða efstu sveita fyrir síðustu
umferðina:
Garðar Garðarsson 164
Guðjón Svavar Jensen 152
SP-íjármögnun 143
Gunnar Siguijónsson 129
Síðasta umferðin verður spiluð nk.
mánudagskvöld í félagsheimilinu við
Sandgerðisveg.
Í 4 Qaq^ctC
7.-21. april
verð á mann á Hotel Gemelos
miðað við 2 fullorðna og 2 böm 2-11 ára
verð á mann á Hotel Gemelos
miðað við2fullorðna
Innifalið: Flug, gisting, ferð til og frá ffugvelli edendis,
íslenskurfararstjóri og allirflugvallaskattar.
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími: 568 2277 • Fax: 568 2274
1 Umbodsmenn Sauðárkrókur. Akurevri: Selfoss:
Plúsferda Skagafriðingabraut 21 Ráðhústorg3 Suðurgarður hf., Austurvegi 22 |
Sími 453 6262 Simi 462 5000 Simi 482 1666
Akranes Gríndavík: Vestmannaeyjar Kefíavík:
Pésinn, Stillholti 18 Flakkarinn, Víkurbraut 27 Eyjabúð, Strandvegi 60 HafnargBtu 15
S: 431 4222/431 2261 Sími 426 8060 Sími 481 1450 Slmi 421 1353