Morgunblaðið - 01.02.1998, Page 36

Morgunblaðið - 01.02.1998, Page 36
36 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR JÓN ÞÓR KRISTJÁNSSON + Jón Þór Kristjánsson fæddist í Hvammi í Dýrafirði 23. ágúst »933. Hann lést á Grensásdeildinni 10. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 16. janúar. Pabbi minn var einstakur mað- ur. Hann var hvorki stór né ríkur en stundum fannst mér hann eiga allan heiminn. Hann var af þeirri kynslóð manna sem trúði á ís- lenska fósturjörð og íslensk gildi. ■yKynslóð sem smám saman er að hverfa. En slíkir menn trúðu að karlmaður væri einungis heill í starfí sínu, án þess væri hann hvorki fugl né fískur. Erfitt er að kenna gömlum hundi að sitja og við þessi viðhorf þurfti pabbi að glíma síðustu árin sem hann lifði. Sjónleysið hafði haft af honum starfið og, síðustu mánuð- ina, húsið. Húsið sem hann byggði nánast með berum höndum. Eins og Bjartur í Sumarhúsum var pabbi aðeins hálfur maður án kots- ins síns og sjálfsbjargarinnar. Eins og þeir vissu báðir eru sjálfstæðir menn ekki háðir öðrum um lífsaf- komu sína heldur vinna þeir hörð- um höndum fyrir sér og sínum. Þessi karlmennska kostaði pabba minn lífið. En allt frá því ég var lítil stelpa hef ég óttast það að pabbi myndi deyja. Eg óttaðist aldrei eins dauða Móðir okkar, + ELÍN BRIEM lést að kvöldi föstudagsins 30. janúar á Hrafnistu í Reykjavík. Katrín, Ólöf og Brynhildur Briem. ....... ... t Elskuleg dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN KJARTANSDÓTTIR, Flúðaseli 12, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þann 30. janúar. Lilja Ólafsdóttir, Guðmundur Ingi Ingason, Þóra Þorvarðardóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Birgir Bjarnason, Rósa Gunnarsdóttir, Erling Hafþórsson, Högni Gunnarsson v og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, KÁRI ÞÓRÐARSON fyrrv. rafveitustjóri, Kirkjuvegi 5, Keflavík, lést í Sjúkrahúsi Keflavikur að kvöldi föstudag- sins 30. janúar. Fyrir mína hönd, barna okkar, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna. Kristín Theodórsdóttir. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HELGA ELÍASAR AÐALGEIRSSONAR, Glæsivöllum 19a, Grindavík. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks og lækna deildar 11-E á Landspítalanum. 1 Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR VALDIMARSDÓTTUR, dvalarheimilinu Hlfð, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalar- heimilisins fyrir hjúkrun og vináttu í hennar garð. Hermann Stefánsson, Kristín Friðbjarnardóttir, Sigrfður Stefánsdóttir, Gunnar Pálmarsson, Bragi Stefánsson, Snæborg Stefánsdóttir, Birgir Stefánsson, Guðrún Leonardsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. mömmu og sennilega er það vegna áhrifa frá myndinni „Titanic" sem ég sá þegar ég var níu ára. Ég sat og horfði með hryllingi á þegar konum og bömum var hleypt í björgunarbátana en karlmennimir, feður lítilla stelpna, stóðu hnar- reistir eftir og fóm með skipinu of- an í djúpin. A þessari stundu áttaði ég mig á því að pabbi væri dauðleg- ur, að sem karlmaður væri hann í stöðugri hættu. Þá um nóttina skreið ég upp í rúm foreldra minna, lagði sinn handlegginn utan um hvort þeirra og reyndi þannig að gæta þeirra fyrir öllum hugsan- legum hættum. Þessi ótti ágerðist þegar pabbi fékk fyrsta hjartaáfall- ið. Þá, eins og núna, var ég á leið- inni heim. Ég hafði verið í sveit um sumarið og kom heim beint í sjúkralegu föður míns. Þá bað ég guð um að láta pabba ekki deyja fyrr en ég væri orðin gömul, svona um það bil tvítug, því erfiðara er fyrir litlar stelpur að missa feður sína en stórar. Og guð stóð við sitt. I dag er ég stór stelpa, tæpra 28 ára gömul, en syrgi pabba minn al- veg jafn mikið og ég ímyndaði mér forðum að litlar stelpur gerðu. Svandís Nína. ÞORLAKUR JÓNSSON + Þorlákur Jón Jónsson rafverk- taki fæddist á Suð- ureyri við Súganda- fjörð 23. desember 1907. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 22. janúar síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Hallgrímskirkju 29. janúar. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Við viljum minnast hans Þorláks, okkar ástkæra afa, fáeinum orðum. Okkar bernsku- og unglingsár bjuggum við á næstu hæð fyrir neðan hann á Grettisgötu 6, og því var samgangur við hann mjög mikill. Fyrst við hann og ömmu, og eftir andlát hennar við hann og Matthildi. Margar voru þær stundir sem við sátum hjá afa og hlustuðum á hann spila á haimoníkuna og var oft beð- ið um óskalög sem hann var óþreyt- andi að bæta við. A endanum vorum við leyst út með konfektmola. Miklir voru fjársjóðimir í vösun- um hjá honum afa, allar skrúfurnar og hin ýmsu verkfæri. Það var sama hvað bilaði hjá okkur, reiðhjól eða annað, þá var afi alltaf með verk- færin á reiðum höndum og alltaf var hann tilbúinn að hjálpa okkur þótt mikið væri að gera. Það gladdi okkur mikið þegar hann kom með rafmagnsrör og bjó til húlahringi sem hann skreytti með einangrunarlímbandi við mik- inn fógnuð okkar og leikfélaganna. Þorlákur var meira en bara afi, hann var okkur mikill félagi, m.a. í veiðiferðum, ferðalögum heima og erlendis. Það var svo gaman að ferðast með honum, hann var alltaf í góðu skapi og kunni góð skil á ferðaleiðum. I veiðiferðunum veiddi hann manna mest þótt hann gæfi FASTEIGNASALAN f f O n FINNBOGI KRISTJANSSON LOGG. FASTEIGNASAU Efnalaug / Atvínnuhúsnæði Um er að ræða fatahreinsun í fullum rekstri með fasta við- skiptavild við stofnanir og einstakiinga. Efnalaugin er stað- sett við mikla viðskipta og umferðagötu hér í borg og hefur þekkt nafn og er í eigin húsnæði 110 fm sem er sérhannað fyrir efnalaug. Öll tæki eru ný. Fastir starfsmenn eru 2 til 3 og hálfur. Allar nánari upplýsingar veitir Finnbogi á skrifstofu hér á Fróni. Finnbogi Kristjánsson, löggiltur fyrirtækja og fasteignasali Hraunbrún 4 — Hafnarfirði Til sölu þetta stórglæsilega 270 fm einbýlishús á Hraunbrún 4, Hafnarfirði. Húsið er byggt 1988, á tveimur hæðum með tvöföld- um bílskúr. Góður garður. Áhvílandi ca 9 millj. langtímalán. Verð 19 millj. Fasteignasala, HB^Strandgötu 25, Hfj. ■ ■ Árni Grétar Finnsson, hrl. Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl. Sími 555 1500, bréfsími 565 2644. sér tíma til að aðstoða okkur og segja til hvað betur mætti fara við veiðamar. Hánn var einnig sérstaklega lið- tækur við okkur syst- urnar í dansinum, og enginn var lagnari og þolinmóðari kennari. Hann fylgdist mjög náið með hverju okkar og því sem á daga okk- ar dreif og hvatti okk- ur áfram í leik og starfi. Hann átti létt með að halda uppi samræð- um sem yfirleitt byggðust á spurn- ingum um hvernig við hefðum það og hvernig okkur gengi við lærdóm, leik og störf. Það var svo auðvelt að segja honum frá því sem var að ger- ast vegna þess hve vel og hvetjandi hann tók undir það sem verið var að ræða. Seinni árin var sambandið einnig mikið og ánægjulegt. Enginn viðburður hjá fjölskyldum okkar var fullkominn nema Þorlákur afi væri mættur. Hann var sannur gleðigjafi og andrúmsloftið varð alltaf léttara þegar hann var nálæg- ur. Hann kunni svo sannarlega að skemmta sér og öðrum og ekki þurfti vímuefnin til. Hann var alltaf vel til hafður og nýrakaður, enda þekktur fyrir mikla notkun á rakspíra sem angaði langar leiðir. Við dáðumst oft að vinsældum hans, enda var hann duglegur að rækta samband sitt við fólk. Það sem okk- ur þótti sérstaklega vænt um var hversu vel hann fylgdist með böm- um okkar, og þau lærðu snemma að meta hans góðu og skemmtilegu framkomu við sig. Þau kveðja hann með miklum söknuði. Langri og farsælli ævi hans er lokið og minningin um góðan mann lifir. Hann lifði lífinu lifandi og naut þess vel á heilbrigðan hátt. Við vilj- um þakka honum afa okkar fyrir allar þær samverustundir sem við fengum að njóta með honum. Kristín, Lilja, Aðalsteinn og María. Skilafrestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á fostudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, fóstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. BlómabuSitv öarðskom v/ Fossvoc)ski»*l<jMga»‘t3 Sími: 554 0500 J Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Útfararstofa Islands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.