Morgunblaðið - 13.02.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998 29
húsin eru í dag best rekin þegar
deildir eru lokaðar eða þjónustan
lömuð vegna verkfalla! Raunhasfar
fjárveitingar til spítalans ættu að
vera þrenns konar:
1. Fastar fjárhæðir til grunnrekstr-
ar, kennslu og vísindastarfsemi.
2. Breytilegar í samræmi við afköst.
3. Upphæð sem verja mætti til
umbunar og nýsköpunar.
Til að svo megi verða, þarf að
koma verðlagning á öll verk unnin
á spítalanum. Bandaríkjamenn
hafa þróað svonefnt DRG-kerfi
sem notað er til að greiða fyrir
spítalaþjónustu. Par hefur verið
metið hvað kostar að sinna sjúk-
lingum með ákveðna sjúkdóma og
spítalinn fær síðan gi-eitt í sam-
ræmi við það. Kerfíð er að því leyti
gallað að sjúklingar með sömu
sjúkdóma geta verið misveikir og
þar með misdýrir. Sjúkrahúsið
græðir á léttu sjúklingunum en
tapar á þeim erfiðu. Þrátt fyrir
þessa galla hlýtur að vera betra að
miða greiðslur til sjúkrahússins að
hluta til við afköst, heldur en að
búa við núverandi kerfí sem ekki
tekur tillit til afkasta eða nýjunga í
meðferð. Ólafur Örn Arnarson, yf-
irlæknir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur,
hefur nokkrum sinnum vakið at-
hygli á því að greiðslur til sjúkra-
húsa eigi að taka mið af afköstum,
en talað fyrir daufum eyrum. Lára
Margrét Ragnarsdóttir alþingis-
maður, sem sæti á í stjórnarnefnd
Ríkisspítala, hefur hvatt til þess að
DRG-kerfið, sem áður er nefnt,
verði tekið upp hér. Slíkt kerfí er í
raun hluti af nútíma upplýsinga-
tækni og er nauðsynlegt öllum
rekstri sem er í sífelldri endur-
skoðun og leitar hagkvæmustu
leiða. Vonandi tekst í framtíðinni
að fá skilning á því að greiðslur til
sjúkrahúsa eigi að taka mið af af-
köstum. Ekki má þó gleyma því að
einnig þarf að koma fé fyrir
kennslu, vísindastarfsemi, nýjung-
ar og síðast en ekki síst til að geta
umbunað starfsfólki á deiidum sem
standa sig vel.
Lokaorð
Markmiðið með gi-ein þessari er
ekki að vekja ugg vegna fyrirhug-
aðs niðurskurðar, heldur til að
vekja athygli á þeim leiðum sem
verður að fai-a til að leysa þennan
vanda. Úrbætur þurfa að koma til
svo við þurfum ekki í hverjum janú-
armánuði að standa frammi fýrir
slíkum hremmingum eftir að fjárlög
hafa verið samþykkt.
Höfundur er formaður læknaráðs
Landspítalans.
ur er næmu nálægt 500 millj. kr. og
atvinnusköpun yrði um 450 ársverk.
Rétt er að ítreka að slíkir útreikn-
ingar geta einungis gefíð vísbending-
ar um raunveruleg áhrif á þjóðarbú-
skapinn.
Samantekt
íslenskur skipaiðnaður býr ekki við
sömu samkeppnisskilyrði og keppi-
nautar í nágrannalöndum þai- sem
beinir ríkisstyrkir tíðkast, þá þarf
iðnaðurinn að mæta mikilli og mjög
vaxandi samkeppni frá láglaunalönd-
um í Austur-Evrópu og Asíu.
Víðast hvai’ er verkefnum fyrir op-
inbera aðila og þá sérstaklega verk-
efnum fyrir her og strandgæslu
beint til innlendra fyrirtækja og þau
notuð til að styðja við innlendan iðn-
að í viðkomandi landi.
Við Islendingar ætlum nú að láta
smíða skip fyrir 3,5-4 milljarða
króna og því er það áleitin spuming
hvort ekki sé skylda okkar að vinna
þessi verkefni innanlands í þágu al-
mannahags, bæði í ljósi þeirrar at-
vinnusköpunar sem um væri að
ræða, þróunarmöguleika iðnaðarins
og skatttekna ríkissjóðs.
Tækifæri gefst nú til að styðja við
bakið á skipaiðnaðinum með aðferð-
um sem eru viðurkenndar og notað-
ar allt í ki'ingum okkur. Hin leiðin er
að afhenda öðrum þjóðum þessi
verkefni og grafa þannig undan inn-
lendum iðnaði með okkar eigin pen-
ingum.
Tíu heppnir
viðskiptavinir
fá árskort í
kaupbæti!
Þeir sem kaupa
skíðapakka* hjá okkur fyrir
laugardaginn 21. febrúar
nk. eiga möguleika á að fá
árskort að öllum skíða-
svæðunum á höfuðborgar-
svæðinu - í kaupbæti.
Efeinhver tími er rétti
tíminn til að kaupa sér skíði
þá er hann núna!
HE5IR4
S K I G L O V E S
^RRKÍÍÍ
*» O R T -
BLÁFJALLANEFND
*skíði, skó, stafi og bindingar.
-3MWK fWMÚK
Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík
Sími 511 2030 • FaxSII 2031
www.itn.is/skatabudin
Höfundur er hagfræðingur og fram-
kvæmdasijóri Slippstöðvarinnar hf.