Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 23 LISTIR Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir MIKILL fjöldi tónleikagesta fór á tónleika Karlakórsins Heimis, bæði í Borgarfirði og í Landsveit. Á þessari mynd eru þeir á Laugalandi í Holta- og Landsveit í Rangárvallasýslu. Húsfyllir á tónleika karlakórsins Heimis Reykholt. Morgunblaðið. KARLAKORINN Heimir úr Skagafirði hélt tónleika í Reyk- holtskirkju fimmtudaginn 12. mars sl. Kórinn flutti íslensk og erlend lög undir stjórn Stefáns R. Gíslasonar. Undirleikari á píanó var Thomas Higgerson og á harmonikku Jón S. Gíslason. Ein- söngvarar voru Einar Halldórsson og Sigfús, Gísli, Óskar og Pétur Péturssynir. Kynnir á tónleikun- um var Þorvaldur G. Óskarsson, sem einnig er formaður Heimis. f kórnum eru 65 félagar en kórinn verður 70 ára á þessu ári. Húsfyllir var á tónleikunum, eða um 300 gestir. Allir stólar í Reykholti voru dregnir fram og einhveijir sátu á líkkistustólun- um. Tónleikagestir komu langt að, frá Akranesi og Borgarnesi og víða. Þorvaldur Óskarsson, for- maður kórsins, sagð að tónleikum loknum að það væru fá hús þar sem svona stór kór rúmaðist auð- veldlega, hljómburður væri hreint frábær og gott að syngja í hinni nýju kirkju í Reykholti. Og það sannaðist hér að ekki var vanþörf á svo stórri kirkju til að hægt væri að halda slíkar samkomur. Þorvaldur vildi koma á fram- færi þakklæti til allra sem komu á tónleikana. Undirtektir gesta hefðu verið alveg frábærar, enda varð kórinn að syngja fímm auka- lög og allir einsöngvarar voru klappaðir upp. Að tónleikum loknum bauð karlakórinn Söng- bræður Heimisfélögum í kaffi og meðlæti. Á föstudagskvöldið 13. mars söng kórinn á Laugalandi í Holta- og Landsveit í Rangárvallasýslu. Sex til sjö hundruð manns komu víða að af Suðurlandi til að hlýða á kórinn, m.a. full rúta frá Kirkju- bæjarklaustri. Undirtektir áheyr- enda voru ákaflega góðar og kór- inn klappaður upp hvað ofan í annað. Nýjung í bóka- útgáfu og sölu Á FIMMTUDAGINN, 19. mars, kemur fyrsta bókin í nýjum bóka- flokki út í Svíþjóð. Hér er um að ræða nýjung í bókaútgáfu, sam- vinnu milli ABF-sambandsins og bókaútgáfunnar Högmans. Fyrsta bókin verður sjálfsævisöguleg bók eftir Jan Myrdal: Ást. Bók vikunnar Bók vikunnar nefnist þetta fram- tak. Margir kunnir sænskir rithöf- undar taka þátt í því og leggur hver og einn fram splunkunýtt handrit. Vikulega, alltaf á fimmtudögum, kemur út stutt skáldsaga, 60 blað- síður og mun kosta 40 sænskar krónur. Upplagið er stórt og verð miðast við að allir hafi efni á að kaupa sér bók. Bækumar verða m.a. til sölu í Konsum-verslunum, á pósthúsum og bensínstöðvum og í flugvélum SAS. Hugmyndin er sú að jafneðli- legt sé að kaupa nýja bók vikulega og tímarit eða dagblað. Bókaútgefandinn Lennart Hög- man átti hugmyndina, en bók- menntalegur ráðgjafi er rithöfund- urinn Kurt Salomonsson. Rithöf- undar hafa tekið vel í þessa nýjung. Samkvæmd heimildum Morgun- blaðsins eru ritlaun 40.000 sænskar krónur. Ekki verður um venjulega dreif- ingu í bókabúðir að ræða. FyiT- nefnd fyrirtæki kaupa ákveðinn fjölda eintaka af Högmans-forlag- inu og sjá alfarið um söluna. Það er von útgefanda að Bók vik- unnar muni afsanna það að bókaút- gáfa og bóklestur séu í kreppu, bækur útgáfunnar stuðli að alþýðu- menntun og upplýsingu og verði til þess að auka lestur. Ekkert lausnargjald LEIKLIST Fjölbraut Vesturlands NFFA GÍSL Eftir Brendan Behan. Þýð.: Jónas Árnason. Leikstjóri: Jakob Þór Ein- arsson. Leikendur: Óli Örn Atlason, Jónína Margrét Sigmundsdóttir, Viggó Ingimar Jónasson, Andrea Katrín Guðmundsdóttir, Sigurður Tómas Helgason, Gunnar Ilafsteinn Ólafsson, Hulda Björk Sigurðardótt- ir, Tryggvi Dór Gislason, Knútur Örn Bjarnason, Sigríður Víðis Jónsdóttir, Gerður Yija Olafsdóttir, Ásgeir Ing- ólfsson, Benedikt Sævarsson, Matthí- as Freyr Matthiasson, Ólafur Ágúst Sigurðsson, Helgi Ibsen Heiðarsson. Hljómsv.: Arnþór Snær Guðjónsson, Vilberg Hafsteinn Jónsson, Bjarni Þór Hannesson, Unnur Sigurjóns- dóttir, Rósa Sveinsdóttir, Flosi Ein- arsson. Frumsýnt laugardaginn 14. marz 1998. ÞEGAR írskur strákur drepur lögregluþjón, troða Englendingar honum 1 fangelsi og dæma hann til dauða. Mótleikur IRA er að taka enskan hermann í gíslingu og hóta að drepa hann ef Irinn verður drep- inn og þannig , jafna metin“. Brendan nokkur Behan notar þennan söguþráð í leikrit sitt Gísl og lýsir samskiptum enska gíslsins við aðra á gistiheimilinu þar sem hann er í haldi. Leiklistarklúbbur NFFA, Fjöl- brautaskóla Vesturlands, sýnir verkið um þessar mundir á Akra- nesi, í þýðingu Jónasar Amasonar. Eilítið önnur mynd er dregin upp af átökunum á írlandi í leikritinu en gert er í fréttum af „friðarferlinu". Ef marka má Behan spila írar með af því kynslóðin á undan gerði það og ensku hermennirnir af því þeir fengu ekki skárri vinnu. A.m.k. virt- ist Leslie, enski gíslinn, sér ekkert alltof meðvitandi um hlutverk sitt á Irlandi eða fyrirætlanir gæslu- manna sinna. Viggó Ingimar Jónas- son lék piltinn þann af miklu öryggi; allt frá því komið var fyrst með hann á gistiheimilið, þar til honum fór að skiljast hvað var í raun um að vera, og hvers vegna. Kannski var skilningsleysi hans skiljanlegt því ekki var fólkið á gistiheimilinu að segja honum mikið og þaðan af síð- ur þeir sem tóku hann höndum. Monsjúr (Sigurður Tómas Helga- son) nefnist maðurinn sem rekur gistiheimilið. Þar sem örlítið er far- ið að slá saman í honum sér Pat (Óli Örn Atlason) um það. Þeim tekst vel upp í túlkun á þeim; tveimur körlum sem lifa í fortíðinni, sem í minningu þeirra er kannski ekki al- veg nákvæmlega sú sama og sögu- bókanna. í hlutverki trúðsins, lest- ai-varðar sem dubbaður er upp í búning, fengin byssa og sagt að vera fangavörður, er Matthías Freyr Matthíasson. Hægt er að rekja sögu slíkra ,fífla“ til Shakespeares, og án efa lengra aft- ur. Hlutverk þeirra er ailtaf hið sama; að ausa þegar alvaran er að kaffæra verkið. Það gerði Matthías svo um munaði. Þó Gísl sé aðeins komið til ára sinna er langt því frá að það sé gamalt, og verður varla á allra næstu áratugum. Heimir Viðarsson frULÍ' LttdL!: Nám i málaskóla er glæsileg fermingar- gjöf sem endist allt lífiö. Viö höfum haft milligöngu um skólavist íslenskra ung- menna í vönduðum, erlendum málaskólum um margra ára skeiö. Hægt er aö velja milli 2, 3 eöa 4 vikna námskeiöa. Richard Language College Sérlega góöur skóli í Bournemouth. Frábær aöstaöa er til ýmiss konar íþróttaiökunar og einnig er boöið upp á skoöunarferöir til London. East Sussex School of English Lítill og heimilislegur málaskóli í Brighton og Hove. íþróttir, skoöunarferöir, fjölbreytilegt félagslíf. Verödæmi:* East Sussex School of English Tvær vikur - 64.680 kr. Þrjár vikur - 95.040 kr. Fjórar vikur - 138.960 kr. Aörir skólar sem I boöi eru: St. Giles School of English í Brighton, Eastbourne og London. Eurocentres Schools I Bournemouth, London og Oxford. * Innifaliö: Enskunámskeið, gisting með fullu fæði hjá fjölskyldu, akstur til og frá flugvelli erlendis, skoöunar- ferðir og íþróttir með leið- sögn, kennslugögn og flugvallarskattur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.