Morgunblaðið - 18.03.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 25
LISTIR
Heimsókn frá
Lapplandi
„SJÁLFSMYND“ eftir Rosa Liksom.
MYJVÐLIST
Norræna húsið
SAMSÝNING
NORRÆNT LJÓS OG MYRKUR
Opið alla daga nema mánudaga
frá 14-18. Aðgangur 200 kr.
Til 22. mars.
í NORRÆNA húsinu er farand-
sýning sjö listamanna, sem eiga
uppruna sinn ýmist í finnska eða
sænska hluta Lapplands og tengj-
ast allir menningu Sama með ein-
um eða öðrum hætti. Kannski eru
það fordómar af minni hálfu, en að
fenginni reynslu hef ég tilhneig-
ingu til að taka „norrænum" sýn-
ingum með fyrirvara. Þessi sýning
kom mér hins vegar skemmtilega á
óvart. Hún er lífleg og hressileg,
fjölbreytt en í góðu jafnvægi.
Þarna eru listamenn af ýmsum
aldri og það eru nægilega mörg
verk eftir hvern til að átta sig á
þeim, hverjum fyrir sig.
A síðustu árum hafa tíðkast list-
sýningar þar sem sjónunum er
beint að jaðarsvæðum eða jaðar-
menningu, þ.e.a.s. þeirri list sem
ekki velkist um í meginstraumi al-
þjóðlegra liststefna. Reyndar hefur
áhugi á svokallaðri ,jaðarlist“
alltaf fylgt sögu nútímalistar, og
má nefna sem dæmi áhuga á jap-
anskri list á nítjándu öld og á frum-
stæðri list nýlenduþjóða um alda-
mótin. En nú tengist áhuginn um-
ræðunni um afmiðjun nútímalistar,
þ.e.a.s. að það sem er að gerast á
jaðarsvæðum, svokölluðum, hafi
jafnmikla þýðingu fyrir þróun list-
arinnar og það sem gerist í helstu
höfuðborgum listheimsins.
Sýningin er gott dæmi um þess-
ar áherslur. Hún er ekki sýning á
alþýðulist Sama, eða listamanna
sem búa fjarri heimsins skarkala
og sinna sinni list ósnortnir af
heimslistinni. Mér sýnist hugmynd
sýningarstjórans vera sú að bregða
ljósi á hvernig þjóðleg arfleifð,
hefðir og menning annars vegar,
og alþjóðleg list hins vegar hafa
mæst, rekist á, og frjóvgað list-
sköpun listamanna af sama upp-
runa. Enda, þegar sagan er skoð-
uð, þá hefur list slíkra listamanna
stundum komið eins og ferskur og
skapandi andblær inn í heimslist-
ina og verið á skjön bæði við það
sem er þjóðlegt og alþjóðlegt.
Hin hliðin á málinu er sú að það
er náttúrlega urmull listamanna
frá jaðarsvæðum sem gera einung-
is miðlungi góðar eftirhermur,
hræra einhverju saman og kalla
það þjóðlegt. Þjóðlegur bakgrunn-
ur má aldrei vera afsökun fyrir
ómerkilega list. Sem betur fer
leggst þessi sýning ekki niður á
það plan.
Aldursforsetinn, Bengt Lind-
ström, sem er á áttræðisaldri, ber
greinilega aldurinn vel, því málverk
hans eru kraftmiklar og ólgandi ex-
pressjónískar myndir í anda As-
gers Joms og Cobra-hópsins, með
skerandi litum og svo efnisríku yf-
irborði að það er einna líkast að lit-
urinn sé mótaður eins og leir eða
plægður eins og akur. Allt annar og
ljúfari andi er í fínlegum og dulúð-
ugum verkum Maj-Dori Rimpi, þar
sem þjóðlegt handverk og útsaum-
ur er notaður sem efniviður í afar
ftjálsleg og persónuleg verk. Por-
trettmyndir Erlings Johannsons
reiða sig á pensilskrift frekar en
form og litameðferð til að nálgast
persónur myndanna, og það er
einna líkast því að hann sé að skrifa
sig inn í manna-
myndir sínar.
Rosa Liksom,
sem fædd er í
finnska hluta Lapp-
lands, er með fimm
myndir og eina inn-
setningu sem
sprikla af húmor og
draga dár að allri
upphafningu á
sveitamennsku og
jaðarkúltúr. Sjálfs-
mynd hennar, sem
máluð er á gal-
vaníserað blikk og
hangir úr keðjum,
sýnir okkur bama-
lega teiknimynda-
fígúru í þjóðbún-
ingi, umkringda
galdrarúnum og
vörumerkjum bfl-
tegunda. Skrípa-
mynd þjóðlegrar
sjálfsímyndar.
Ekki veit ég
hvort ég lærði
nokkuð um menn-
ingu Sama eða nátt-
úru Lapplands. En
samt er eins og það
sé einhver ósýnfleg-
ur skyldlefld rteð
listamönnunum,
sem erfitt er að
henda reiður á, því þeir eru svo ólík-
h' innbyrðis. Eru það litirnir, sem
klisjukennd yfirskrift sýningarinn-
ar vísar tfl, „Norrænt Ijós og myrk-
ur“, eða er það bara ímyndun?
Hvað sem því líður, þá hefúr sýn-
ingarstjóranum, Moniku Sarstad,
tekist að gera það sem mörgum hef-
ur orðið hált á, að velja saman hóp
listamanna af öllum aldri en svipuð-
um uppruna, og skapa áhugaverða
og líflega heild, án þess að steyta á
skeri þjóðemisrembings.
Gunnar J. Árnason.
Gallerí Handverk
& Hönnun
Sérhannaðar
peysur og
ullarvörur
NÚ stendur yfir sýning í galleríi
Handverk & Hönnun, Amtmanns-
stíg 1, á sérhönnuðum peysum og
ullarvörum frá Ullarselinu á
Hvanneyri.
í Ullarselinu starfar hópur fólks
sem leggur aðaláherslu á ullar-
vinnu, þ.e. spinnur, þæfir, jurtalitar
og spjaldvefur. Þá laugardaga sem
sýningin stendur verður fólk frá
Ullarselinu á staðnum við vinnu.
Sýningin er opin þriðjudaga til
föstudaga frá kl. 11-17 og laugar-
daga kl. 12-18. Sýningunni lýkur
laugardaginn 28. mars. Aðgangur
er ókeypis.
--------------
Sýning til heið-
urs frönskum
rithöfundum
ALLIANCE frangaise opnar sýn-
inguna Franskir ríthöfundar utan
Frakklands fimmtudaginn 19. mars,
í húsakynnum Alliance frangaise,
Austurstræti 3, kl. 18, en föstudag-
urinn 20. mars er alþjóðlegur dagur
franskrar tungu.
Sýningin er til heiðurs þeim rit-
höfundum sem búið hafa í Ameríku
eða Asíu en kosið að skrifa verk sín
á frönsku. Þeirra þekktastur hér á
landi er líklega Patrick
Chamoiseau, en hann kom hingað
til lands á Bókmenntahátíðina 1995.
Sýningin verður opin á skrifstofu-
tíma frá kl. 15-18 og er á frönsku.
HBH
(SlítPíííiisSi
Komdu og mátaðu!
stærri en þú heldur
Ármúta 13 • Sími 575 1220 • Skiptiborð 575 1200 • Fax 568 3818