Morgunblaðið - 18.03.1998, Síða 41

Morgunblaðið - 18.03.1998, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 41 FRÉTTIR Sýningin Matur ‘98 hefst á morgun MATVÆLASÝNINGIN Matur ‘98 verður sett fimmtudaginn 19. mars kl. 16 í íþróttahúsinu Smáranum í Kópa- vogi. Að sýningunni standa Atvinnu- málanefnd Kópavogs, Hótel- og mat- vælaskólinn, Ferðamálaskólinn, Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæð- isins og fagfélög í matvælaiðnaði. Matur ‘98 er tviþætt sýning: Opn- unardagurinn 19. mars er fyrir sér- staka boðsgesti og viðskiptavini sýnenda en dagana 20.-22. mars er sýningin opin almenningi. Matm- ‘98 er sölusýning og er sérstaklega ætluð þeim sem á einhvem hátt starfa í tengslum við matvæh og gisti- og ferðaþjónustu. Sýningin verður í Smáranum og Hótel- og matvælaskólanum við Digranesveg. A sýningunni er m.a. að finna ís- lensk og erlend matvæli, allt sem við- kemur kjötiðnaði, fisk, brauð og kök- ur, sælgæti, ávexti og grænmeti, drykkjarvörur, mjólkurvörur, vítamín og bætiefni, vélai' og tæki til matvæla- vinnslu, umbúðir fjrir matvæli, upp- lýsingar um ferðaþjónustu og mennt- un í ferða-, hótel- og matvælagrein- um. Á Mat ‘98 verður í fyrsta sinn á matvælasýningu hérlendis fjallað sér- staklega um mat í tengslum við ferða- þjónustu. Kynnt verður þjónusta við ferðafólk og Ferðamálaskólinn kynnir starfsemi sína. Einnig verður fjallað sérstaklega um vínmenningu á efri hæð Smárans og haldið málþing um gamlar íslenskar matarvenjur. Matvælakeppni fagfélaga verður haldin samhliða sýningunni. Keppt verður um íslandsmeistaratitilinn í kökuskreytingum og titlana Mat- reiðslumaður ársins og Framleiðslu- maður ársins. Keppnir bakaranema og kj öti ðnaðamema verða háðar. Is- lenskir kjötdagar verða einnig á dag- skrá. Málþing um sið- fræði og sam- visku ALÞJÓÐA Sam-Frímúrarareglan Le Droit Humain efnir til opins málþings í þingsöium Hótels Loftleiða laugardag- inn 21. mars um efnið: Siðfræði og samviska. Málþingið hefst kl. 9.30 með ávarpi dr. Njarðar P. Njarðvík, prófessors, og því lýkur með pallborðsumræðum og þingslitum kl. 16.45. Fluttir verða fjórir fyrirlestrar: Þor- steinn Gylfason, prófessor: Siðferði og samviska, Guðrún Agnarsdóttir, lækn- ir: Siðfræði þjóðfélagsins, dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur: Samviska kristins manns, og Vigdís Finnboga- dóttir, forseti Aiþjóðaráðs UNESCO um siðferði í vísindum og tækni: Siðvit- und og aukin þekking. Á eftir hveiju erindi verða fyrirspumir og svör. Ráðstefnustjóri er Kristín Jónsdótt- ir, menntaskólakennari. Málþingið er öllum opið og er þátttökugjaid 1.000 kr. Fyrirlestur um heilsu, næringu ogjóga JÓGAMEISTARINN Shanti Desai flytur opinn fyrirlestur um heilsu og næringu í Yoga Studio Hátúni 6a, fimmtudagskvöldið 19; mars, klukkan 20. Shanti Desai er jógameistari með yfir 45 ára reynslu af ástundun og kennslu jóga, segir í frett frá Yoga Studio. Hann er einnig efnafræðing- ur og næringafræðingur með MSc- gráðu í lífrænni efnafræði. í fyrirlestrinum mun Shanti Des- ai fjalla um mataræði, heilsu og næringarfræði frá sjónarhóli jóga. Kynnt verður notkun fæðubótarefna og leiðir til að hreinsa líkamann, auka mótstöðuafl líkamans og losa hann við ýmis eiturefni sem tekin eru inn með fæðunni. Einnig gefst tækifæri til að koma á framfæri fyrirspumum. Aðgangs- eyrir er kr. 1800. Mömmu- morgnar 10 ára MÆÐUR og börn þeirra hittast í fé- lagsmiðstöðinni Vitanum í Hafnar- firði á miðvikudögum milli kl. 10-12. Mæðurnar spjalla saman og hlusta á fræðsluerindi meðan börnin föndra eða leika sér með aðstoð leiðbein- anda. Mömmumorgnar Vitans eru þeir fyrstu hér á landi og hafa verið starfræktir í 10 ár líkt og Vitinn. „Þegar til stóð að opna Vitann birtist grein Svanhvítar Aðalsteins- dóttur um kosti þess að bjóða heima- vinnandi mæðram upp á samveru- stund í nýrri félagsmiðstöð bæjar- búa. Margrét Sverrisdóttir, for- stöðumaður Vitans, stóð með Svan- hvíti ásamt hópi kvenna að því að gera þessa hugmynd að veruleika. í dag, 10 árum síðar, hefur mömmumorgnahugmyndin orðið að raunveruleika um land allt, segir í frétt frá Vitanum. I tilefni af afmælinu verður sér- stakur afmælismorgunn miðviku- daginn 10. mars milli kl. 10 og 12 og verður boðið upp á afmælisköku frá Kökumeistaranum og afmælisdag- skrá. Öllum Vitamömmum fyrr og síðar er boðið að mæta og eiga ánægjulega samverustund. Myndakvöld frá Færeyjum og Skotlandi FERÐAFÉLAG íslands efnir í kvöld, miðvikudagskvöldið 18. mars, til myndakvölds í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6. Fyrir hlé sýnir Kristján M. Bald- ursson myndir frá fyrstu Færeyja- ferð Ferðafélagsins er fai-in var á síðastliðnu sumri. Þetta var fjöl- breytt ferð þar sem var ekið, gengið og siglt og verður ný ferð þangað í sumar. Eftir hlé mun Ingi Sigurðsson sýna myndir frá Skotlandi og kynna ferð þangað 7.-17. ágúst. Báðar þessar ferðir era í samstarfi við Vestfjarðaleið. Myndakvöldið er öllum opið, fé- lögum sem öðrum. Kaffiveitingar í hléi. Erindi um drottningar og skjaldmeyjar FÉLAG íslenskra fræða boðar til fundar með Agnetu Ney, sagn- fræðingi, miðvikudaginn 18. mars kl. 20.30 í Skólabæ, Suðurgötu 26. Agneta heldur erindi sem hún kall- ar: Drottningar og skjaldmeyjar: athugun á frásögnum af konum á þjóðflutningatímanum í goðsögn- um og sögulegum heimildum. Agneta Ney er lektor við Há- skólann í Gávle í Svíþjóð, en hefur yerið gistifræðimaður við Háskóla íslands í vetur. í erindinu fjallar hún um frásagnir af konum sem brjóta gegn hefðum samfélagsins og ganga í hlutverk karlmanna. At- hugun hennar á norrænum og frönskum miðaldaheimildum af- hjúpar afstöðu karla og kvenna í eldri samfélögum. Samanburður á konum í goðsögnum og sögulegum heimildum verður rakinn með dæmum, t.d. af konum sem klæðast karlmannsfötum, samræðu karla og kvenna og konum sem bera vopn. Þessi dæmi eru vísbendingar um brot gegn einu af grundvallar- lögmálum miðaldasamfélagins sem var að viðhalda skýrum greinar- muni milli kynjanna. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Eftir framsögu Agnetu verða almennar umræður og léttar veitingar í boði. Örlagasaga vesturfaranna kynnt GUÐJÓN Amgrímsson blaðamað- ur mun fjalla um bók sína Nýja ís- land; örlagasaga vesturfaranna í máli og myndum, á vegum Vináttu- félags íslands og Kanada fimmtu- dagskvöldið 19. mars kl. 20.30 í Lögbergi, Háskóla íslands, stofu 102. Síðan mun Reynir Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Þjóðræknisfé- lags Islendinga, kynna starfsemi þess. Fundurinn er öllum opinn og að- gangur ókeypis. Gengið yfir nes á milli fjarða HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferð miðviku- dagskvöldið 18. mars milli Kolla- fjarðar og Skerjafjai’ðar um leið og gengið verður umhverfis Vesturbæ- inn. Farið verður frá Hafnai-húsinu kl. 20 upp Grófina með Tjörninni og um Háskólahverfið suður í Skerjafjörð og strandstígnum fylgt út undir Lambastaði. Síðan yfir gamla Eiðis- grandann og með ströndinni og Röng mynd í umsögn í MYNDLISTARUMSÖGN Braga Ásgeirssonar, Þrír módernistar, í blaðinu í gær, er talað um umskipti við tilkomu pop-listarinnar og síðan hugmyndafræðilegu listarinnar. Þau urðu á sjöunda og áttunda ára- tugnum. í umsögninni birtist einnig röng mynd af verki Elíasar B. Hall- dórssonar og myndatextar víxluð- ust. Rétt er að Einar Þorláksson málaði Kulið svifar, sem er oha á striga. Hér birtist rétt mynd og beðist er velvirðingar á þessari vitleysu. Bamalist í Mjódd í FRÉTT í blaðinu á föstudag, um Barnalist í skiptistöð SVR í Mjódd, hafnarbökkum að Hafnarhúsinu. Litið verður inn í Hampiðjuna, Grandagarði, í leiðinni. Allir eru vel- komnir. í Luxembourg. Sýning á nýjum ullarfatnaði ÍSLANDSKYNNING á vegum Flugleiða var haldin í Luxembourg dagana 4.-8. mars. Þar sýndu Mód- elsamtökin ullarlínuna 1998 frá helstu framleiðendum ullariðnaðar- ins þ.e.a.s. Foldu, Vöku, Saumastof- unni Evu, ALB, M.A. Eiríkssyni, Elvijó, Handprjónasambandinu, Is- landia og einnig voru sýndir loðfeld- ir frá Eggerti feldskera. Miðvikudaginn 18. mars kl. 16 á Hótel Loftleiðum ætla Módelsam- tökin að sýna fatnaðinn sem sýndur var í Luxembourg. Ailir sem hafa áhuga á að sjá þessa sýningu eru velkomnir. láðist að geta þess að sýningin er einnig í göngugötunni í Mjódd. Bömin sem eiga verldn á sýning- unni eru á leikskólunum Amarborg, Bakkaborg og Fálkaborg. Orðavíxl í KVÆÐI Sigurgeirs Þorvaldsson- ar, Til umhugsunar, víxluðust tvö orð í einni ljóðlínunni. Þar með rugluðust stuðlar og höfuðstafir og að beiðni höfundar er kvæðið birt hér aftur, og nú rétt. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. í eiturlyfjum er unglingum hætt við alls konar bölvald að glíma og úr þeirra málum fæst aldrei bætt, því oft skortir peninga’ og tíma. Shanti Desai. Leiðrétt ELÍAS B. Halldórsson: Blámannatrúboðið, akrýl á dúk. HflfllARDORÐUR ÍHætum öll á fund um nýja tkólattefnu neó Birni Bjarnauini menntamálaráðherra t veitin?aftaðnum Skútunni, Hóhhrauni 3, Hafnarfirði ímtudaf (kvöldið 19. mart kl. 20.oo. . uin bein Mm rtttvr - aklur tltifMa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.