Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Elskuleg móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR, Kleppsvegi 62, lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 24. mars. Kristján Tryggvason, Jóna Hafsteinsdóttir, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Halldór Guðmundsson, Anna S. Jóhannsdóttir, Knútur Bruun, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær sonur okkar og bróðir, STEINAR BRAGI LE'MACKS, Asparfelli 12, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 26. mars kl. 15.00. Joseph Lee Le’macks, Vigdís Stefánsdóttir og systkini hins látna. t Ástkær eiginmaður minn, tengdasonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRHALLUR HALLDÓRSSON, Eyrarholti 6, áður Þúfubarði 5, Hafnarfirði, sem lést aðfaranótt laugardagsins 21. mars sl., verður jarðsunginn frá Hafnarfjaröarkirkju föstudaginn 27. mars kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktar- og liknarsjóð oddfellowa. Þorgerður Guðmundsdóttir, Friðrikka Bjarnadóttir, Birna Þórhallsdóttir, Hafsteinn Aðalsteinsson, Ólöf Dóra Þórhallsdóttir, Ari Sigurfinnsson, Þorgerður Hafsteinsdóttir, Björn Þorfinnsson, Hafdís Hafsteinsdóttir, Guðrún Halla Hafsteinsdóttir, Elfa Björg Aradóttir, Ellert Þór Arason, Þórhallur Björnsson, Arnór Björnsson. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, SIGURÐUR HELGASON frá Valshamri, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju föstu- daginn 27. mars kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness eða Dvalarheimili aldr- aðra, Borgarnesi. Sveinfrfður Sigurðardóttir, Helgi Hálfdánarsson, Sigurlín Jóna Sigurðardóttir, Hjörtur Ágúst Magnússon, Ingibjörg Sigurðardóttir, Hallgrímur Þór Hallgrímsson, Guðrún Sigurðardóttir, Danfel Óskarsson, Sigurjón Sigurðsson, Ósk Axelsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Vigdís Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÁLS MAGNÚSSONAR, Hvassafelli, Austur-Eyjafjöllum. Vilborg Sigurjónsdóttir Guðlaug Pálsdóttir, Bergur Pálsson, Elín Pálsdóttir, Rútur Pálsson, Sigurjón Pálsson, Jón Þormar Pálsson, Páll Magnús Pálsson, barnabörn og Sigurður Guðnason, Agnes Antonsdóttir, Guðmundur G. Bjarnason, Guðbjörg Albertsdóttir, Valgerður Hafliðadóttir, Hulda K. Harðardóttir, barnabarnabörn. SVEINN JÓNA TANSSON +Sveinn Jónatans- son fæddist í Vestmannaeyjum 7. júlí 1917. Hann lést á Landspítalanum 15. mars sfðastliðinn. Foreldrar hans voru Jónatan Snorrason og Steinunn Brynjólfs- dóttir frá Breiðholti í Vestmannaeyjum. Systkini hans eru: Guðjón, látinn, Guð- rún Bríet, dó á barns- aldri, Brynjúlfur, býr í Vestmannaeyjum og Sigrún, látin. Árið 1945 kvæntist Sveinn eft- irlifandi konu sinni, Ástu Helga- dóttur frá Ísafírði. Einkadóttir þeirra er Steinunn Jóna Sveins- dóttir meinatæknir, gift Reyni Tómasi Geirssyni prófessor. Börn þeirra eru Ásta Kristín, gift Justin Parker og búsett í Skotlandi og María, við nám í Noregi. Sveinn lauk mótor- vélstjóranámi í Vest- mannaeyjum 1937 og viðbótarnámi í þeirri grein í Reykjavík 1945. Hann lauk sveinsprófi frá Vél- smiðjunni Héðni árið 1956 og hlaut meist- araréttindi árið 1959. Hann var vélstjóri á fiskiskipum og í Hraðfrystistöð Vest- mannaeyja á árunum 1937-52, þegar hann hóf störf hjá Héðni hf. Þar vann Sveinn óslit- ið til starfsloka 1987, lengst af sem verkstjóri á vélaverkstæði og síðar yfirverkstjóri þar. Hann var formaður Mótorvélstjórafélags Is- lands 1953-54 og átti sæti í stjórnskipuðum nefndum sem lögðu grunn að núverandi skipan vélstjóranáms. Utför Sveins fór fram í kyrr- Þey. Sveinn Jónatansson, fyrrverandi yfirverkstjóri í Vélsmiðjunni Héðni, er látinn, áttræður að aldri. Rúmlega 30 ár eru liðin síðan ég kynntist þessum sómamanni, sem varð mér kærari en fiestir aðrir. Störf sumra eru oft þýðingar- meiri og vandaðri en okkur hin grunar, enda þótt þau fari ekki endilega hátt. Sveinn var einn þeirra sem skilaði slíkum verkum. Ævistarf hans var tengt sjónum eins og vænta mátti um mann sem átti bamæsku og unglingsár í Vestmannaeyjum, alinn upp af góðum foreldrum í húsinu Breið- holti, sem faðir hans byggði. Eins og margir ungir menn í Eyjum lað- aðist hann að sjónum. Hann fékk áhuga á vélstjóm og lærði til mót- orvélstjórastarfs. I starfi sínu var hann farsæll. Eftir að hafa unnið á sjónum um árabil, m.a. lengi á því vel þekkta skipi Rifsnesi RE 272 í Bretlandsflutningum eftirstríðsár- anna, fór hann í land árið 1952, þegar hann tók við starfí vélstjóra og síðar yfirverkstjóra hjá véla- verkstæði Héðins. Þar vann hann í 35 ár. Flestir þekktu Svein sem ná- lægt skipavélum komu á þessum tíma. Hvenær sem var sólarhrings- ins var vélaviðgerðum sinnt í skip- um flotans, bæði þegar þau komu að landi og iðulega í löngum sam- tölum á sjó út, þar sem vélar voru skrúfaðar sundur og settar saman aftur þegar Sveinn sagði vélstjór- um til við nauðsynlegar viðgerðir. Hann var vel menntaður á sínu sviði, bæði úr námi hér heima og úr ferðum erlendis, þar sem hann kynnti sér frumsmíðar og viðgerðir vélanna. Forsvarsmenn íyrirtækis- ins treystu honum og hann var vin- sæll af sínum samstarfsmönnum og mörgum lærlingum. Hann lét af starfi hjá Héðni árið 1987 við sjö- tugsaldur, en hélt lengi sambandi við sína gömlu vinnufélaga. I Vestmannaeyjum kynntist hann konu sinni, Ástu Helgadóttur. Þau gifust 1945 og fluttu til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu lengi á Nesvegi og síðustu 36 árin í Karfavogi 50. Þau voru samrýnd og þeim stundum sem gáfust frá vinnu eyddi Sveinn með konu sinni og dóttur. Ferðalög og fjallaferðir voru honum hugfólgin. Seinna urðu dótturdæturnar honum allt. Þegar þær og foreldrar þein-a fluttu til Bretlands um nokkurt árabil, var farið utan í heimsóknir eða þær komu heim til afa. Alltaf var mikið tilhlökkunarefni ef von var á afa. Þar var gagnkvæmt dálæti sem aldrei fölnaði. Sveinn unni bókum um þjóðleg- an fróðleik og sjávarhætti. Enn meir mat hann þó bókmenntir sinna daga og átti gott safn helstu íslenskra rithöfunda. Hver þeirra bóka var marglesin, einkum bæk- ur Halldórs Laxness. Síðustu ævi- árin gátu á stundum verið erfiðari en skyldi. Haustið 1996 veiktist hann af krabbameini. Eftir allgóð- an bata gerði meinið vart við sig sl. haust með vaxandi þunga. Hann bar sig vel og kvartaði sjaldan. Ásta kona hans hlynnti að honum af alúð. Síðustu vikurn- ar hrakaði honum hratt, en hann + ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON lést á Landspítalanum föstudaginn 13. mars. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigríður Benediktsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA MARÍA VALDIMARSDÓTTIR, Landamótsseli, sem lést aðfaranótt miðvikudagsins 18. mars, verður jarðsungin frá Ljósavatnskirkju laugar- daginn 28. mars kl. 14.00. Þórhallur Bragason, Helga Erlingsdóttir, Valdimar Bragason, Rósa Þorgilsdóttir, Benedikt Bragason, Guðrún Sigurðardóttir, Klara Bragadóttir, Guðjón Skarphéðinsson, barnabörn og barnabarnabörn. náði að sofna hægt dýpkandi svefni þar til yfir lauk. Sveinn var vænn maður. Dug- mikill, þróttmikill, úrræðagóður, hjálpsamur og lá aldrei illt orð til neins. Léttlyndur og geðprúður dagfarslega. Alltaf til taks og traustur þegar á hann var kallað. Ásta var honum hjartfólginn lífs- fórunauttir. Fyrir dóttur sína, tengdason og dótturdætur gerði hann allt. Þegar leitað var til hans var hann til reiðu hvenær sem var og með allt sitt. Ekki var hægt að óska sér betri vinar. Reynir Tómas Geirsson. Mig grunaði að þetta yrðu síð- ustu jól og áramót sem við afi myndum fagna saman í Karfavog- inum. Að faðmlagið áður en ég fór út til Noregs yrði síðasta faðmlag- ið. Samt sem áður er svo erfitt að reyna að gera sér grein fyrir því að afi sé farinn og að við munum aldrei fagna jólum eða nýju ári saman aftur. En ég get huggað mig við hlýjar minningar um góðan og elskulegan afa og þær minningar verða aldrei teknar frá mér. Ég man eftir spenningnum sem ríkti hjá okkur systrum þegar við vorum að koma frá Bretlandi í heimsókn til afa og ömmu og þau sóttu okkur út á völl á rauðu bjöll- unni. Þá var glatt á hjalla. Á jólun- um var farið á jólaball hjá Héðni og dansað í kringum jólatréð. Ég gleymi því aldrei hve gaman mér þótti líka að dansa Óla Skans við afa inni í stofu. Það var yndislegt að vera úti í garði á sumrin að hjálpa afa mínum að raka blettinn eða tína rifsber svo að amma gæti lagað sultu. Fylgjast með honum við að smíða úti í bílskúr og monta mig af flotta heimasmíðaða sleðanum mínum á veturna. Koma í heimsókn á laug- ardögum þegar grjónagrautur afa var á boðstólum og borða yfir mig þannig að oftar en ekki þurfti hann að draga mig að landi! Labba út í búð með afa og hlusta á sögumar úr Eyjum frá því hann var sjálfur lítill Eyjapeyi, eða fara í búðarleik með honum og Ástu systur, þar sem ég vildi að allt kostaði 40 pence. Og síðast en ekki síst að spila Olsen Olsen og búa til skuggamyndir af hinum furðuleg- ustu dýrum fyrir framan borð- stofulampann. Elsku afi minn. Það er eifitt að lýsa því í orðum hversu óskaplega vænt mér þykir um þig. Svo góður og traustur maður sem þú varst. Sterkur eins og klettur, sem aðeins völd hins almáttuga gátu að lokum yfirbugað. Þar til við hittumst að nýju mun ég ætíð geyma í hjarta mínu sælar minningar um þær góðu stundir sem við áttum saman. Guð geymi afa minn. María. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suóurhlíð 35 ♦ Simi 581 3300 Altan sólarhringinn. ^nxxTximng K H H H H H H H H H Erfidrykkjur L A N H H H H H H H H H H ^ Sími 562 0200 rxiixiixiixiH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.