Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 17
Oðruvísi
heyskeri
LENGST af hafa heyskerar verið
með V-laga skurðarflötum. Nú
hefur Sigurgeir Hólmgeirsson á
Völlum í Stafnshverfi í Reykjadal
smíðað heyskera þar sem skurð-
arfletirnir eru andstæðir því
hefðbundna, þ.e.a.s. V-ið snýr
upp og tveir oddar eru á ytri
brúnum skurðarblaðsins.
Kostir nýja iagsins er að sker-
inn rennur ekki til í skurðarlín-
unni og auðveldara er að skera
frosið fóður, grænfóður eða
blautt rúlluhey. Sigurgeir segir
blaðið smíðað úr mjög hörðu stáli
og bitið haldist betur og lengur.
Hann er af kunnum hagleiks-
mönnum kominn og notar frí-
stundir við smíðar af ýmsu tagi.
Aðalfundur ÚA
Selja eignir
til að lækka
skuldir
ÁHERSLA verður lögð á að selja
þær eignir Útgerðarfélags Akur-
eyringa sem ekki nýtast í daglegum
rekstri og fjármunir sem þannig
fást verða notaðir til að lækka
skuldir félagsins.
Friðrik Jóhannsson stjórnarfor-
maður ÚA sagði í ræðu sinni á aðal-
fundi ÚA að skuldir hefðu aukist
umtalsvert m.a. vegna mikilla fjár-
festinga sem í var ráðist í land-
vinnslunni. Stefnt er að því að
lækka þessar skuldir á árinu.
Nýlega var gengið frá sölu hluta-
bréfa Utgerðarfélags Akureyringa í
Skagstrendingi en þar átti ÚA
18,6% hlut. Sölugengi bréfanna var
6,31 og söluverðmætið var 368 millj-
ónir króna.
Greiða 5% arð
Á aðalfundinum var samþykkt til-
laga stjórnar um að greiddur verði
5% arður til hlutahafa á árinu vegna
síðasta árs. Fram kom í máli Frið-
riks að þrátt fyrir að illa hafi árað
og undanförnu og rekstur félagins
ekki verið með viðunandi hætti væri
það fjárhagslega sterkt. Reksturinn
hefði batnað á síðasta ári og væru
væntingar um að hann myndi halda
áfram að styrkjast á þessu ári, en
kapp yrði lagt á að jafnvægi næðist
í rekstri þess á árinu.
---------------
Erfítt tíðarfar
við Grímsey frá
áramótum
TÍÐARFAR hefur verið sérlega
leiðinlegt við Grímsey frá áramót-
um og einkennst af miklum um-
hleypingum.
Bjarni Magnússon hreppstjóri í
Grímsey sagði að sjaldan hefði verið
jafn umhleypingasamt og nú í vetur
og tíðin frá áramótum hefði verið
sérstaklega leiðinleg fyrir sjómenn.
„Þetta er óskaplega þreytandi fyrir
sjómennina, þetta tíðarfar. Það
fískast alveg þokkalega þegar gefur
á sjó, en þeir þurfa sí og æ að vera
að taka upp netin, þeir hafa engan
frið,“ sagði Bjami.
í fyrradag gerði mikinn byl í
Grímsey, norðanátt og fór frostið
upp í 11 stig í fyrrinótt. í gær var
svo komið ágætis skyggni og suð-
vestan átt. „Það er glansbjart núna
en gerði mikið áhlaup í fyrradag,
svona gengur þetta, það skiptir sí-
fellt um,“ sagði Bjami.
Sjá engan ís
Ekki sást í hafís við Grímsey í
gær, en Bjami sagði að hann væri
fljótur að bráðna þegar svo mikill
vindur væri úr suðri eða suðvestri
og þá væri sjórinn líka um tveimur
gráðum hlýrri en hann hefði verið
undanfarin ár.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
AKSJON
29.25 ► Sjónvarpskringlan
Akureyri.
21.00 ►Úr bæjariífinu
21.00 ► Níubíó - Ekkjuhæð
(Widows Peak) Konumar eiga
tvennt sameiginlegt, þær hafa
allar horft á eftir eiginmanni í
gröfina og slúður er fullt starf
hjá þeim. Skammarleg hegð-
um, stórhættuleg keppni, jafn-
vel morð. Aðalhlutverk: Mia
Farrow, Joan Plowright og
Natasha Richardson.
24.00 ► Stjarnan - KA Önn-
ur viðureign KA í 8 liða úrslit-
um íslandsmeistaramótsins í
handknattleik sem fram fór
fyrr um kvöldið.
TREK 800 SPORT, KVENREIÐHJOL
Ein af fjölmörgum gerðum fjallahjóla fyrir
alla aldurshópa með ævilangri ábyrgð
á stelll og gaffli.
Öll varahluta- og verkstæðisþjónusta,
ALLAR GÖTUR SÍÐAN 1925
SKEIFUNNi 11, SÍMI 588-9890
Helstu útsölustaðir: Örninn Reykjavík, Hjólið v/Eiöistorg Seltjarnarnesi, Músik og Sport Hafnarfirði, Stapafell Keflavík, Pípó Akranesi, Olíufélag útvegsmanna Isafirði, Hegri
Sauðárkróki, Sportver Akureyri, KÞ Húsavík, Króm & Hvítt Höfn, Klakkur Vík, Skeljungsbúöin Vestmannaeyjum, Birgir Oddsteinssson Hveragerði, Hjólabær Selfossi.