Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 27
Aukin tengsl menn-
ingar og atvinnulífs
Verslunarráð efndi í gærmorgun til fundar
um hlutverk atvinnulífsins í menningu og
listum. Orri Páll Ormarsson sat fundinn
og hermir það helsta sem fram kom.
MORGUNVERÐARFUNDUR
Verslunarráðs íslands í Sunnusal
Hótels Sögu var prýðilega sóttur.
Engu að síður sáu nokkrir fundar-
menn ástæðu til að lýsa vonbrigðum
sínum með hlutföllin - yfirgnæfandi
meirihluti viðstaddra kom úr listalíf-
inu. „Þeir sem eiga peningana sitja
heima,“ heyrðist sagt og þótti mörg-
um það dæmigert fyrir þá staðreynd
að íslensk fyrirtæki hafa til þessa
ekki verið þekkt fyrir að styðja við
bakið á menningar- og liststarfsemi
- að minnsta kosti ekki af miklum
þunga. Á máli framsögumanna og
þátttakenda í pallborðsumræðum
var þó að skilja að þetta gæti verið
að breytast.
„Maðurinn lifir ekki á brauði einu
saman,“ sagði Sigurður Gísli Pálma-
son, framkvæmdastjóri Hofs sf.,
annar framsögumanna á fundinum í
upphafi máls síns. Út frá þessari
skoðun talaði hann.
Að áliti Sigurðar eru gildi þjóðar
metin á grundvelli menningar og
lista sem ná að þrífast á hverjum
tíma. Það hljóti því að vera markmið
þeirra sem stuðla vilja að öflugu at-
vinnulífi, yfirvalda og einkaaðila, að
hlúa að menningunni.
Engu að síður hafa íslendingar
lengst af ekki haft af miklu að státa í
þessu tilliti - tengsl menningar og
atvinnulífs hafa verið veik í gegnum
aldirnar. Sagði Sigurður hluta skýr-
ingarinnar liggja í því að hefðin hefði
einfaldlega ekki náð að festa rætur.
Tók hann myndlistina sem dæmi.
Lengi fram eftir öldinni hafi verið
erfitt fyrh’ myndlistarmenn að finna
sér markað. Jóhannes Kjarval sló til
að mynda ekki í gegn fyrr en hann
var orðinn fimmtugur, framan af
ferli saug hann sultarhramminn.
Að dómi Sigurðar hafa íslensk fyr-
irtæki í heild ekki staðið sig sem
skyldi, þegar stuðningur við menn-
ingu og listir eru annars vegar, þótt
einstaka fyrirtæki og einstaklingar
hafi haft djörfung til að styðja við
bakið á listamönnum í gegnum tíð-
ina. „Og sagan hefur sýnt að þessir
aðilar höfðu oftar en ekki rétt fyrir
sér. Gallinn er bara sá að þeir eru,
því miður, sjaldgæf undantekning.“
Sigurður sagði það jafnframt
merkilegt hve oft djarfir athafna-
menn breytist í afturhaldssama
sporgöngumenn þegar kemur að
kaupum á listaverkum. Forráða-
menn fyrirtækja virðist hræddir við
samtímalist og ef þeir á annað borð
sýni áhuga á því að festa kaup á
listaverkum vilja þeir helst verk eft-
ir viðurkennda meistara - helst
látna!
Að mati Sigurðar kemur þetta við-
horf ekki síst til af þekkingarleysi.
íslendingar hafi ekki nógu mikla
þjálfun í að njóta listarinnar. I þessu
tilliti hafi skólakerfið brugðist - upp-
eldisþátturinn sé ekki í lagi.
Hornsteinn siðmenningarinnar
Sigurður lýsti þeirri skoðun sinni
að eðlilegt væri að fyrirtæki leituðu
ráða um kaup á listaverkum, eins og
í öðrum viðskiptum. Á sviði mynd-
listar hefur undanfarin ár verið
starfræktur sjóður, Listasjóður at-
vinnulífsins, sem er eins konar
bandalag fyrirtækja sem skuldbinda
sig til að kaupa listaverk með vissu
millibili. Bar Sigurður lof á sjóð
þennan, framtakið væri vh’ðingar-
vert, en gildi hans fælist ekki síður í
því að hann veitir „leiðsögn um lend-
ur samtímalistarinnar". Sjóðurinn er
með öðrum orðum til þess fallinn að
vega upp á móti hinu almenna þekk-
ingarleysi á list.
Stefán Baldursson Þjóðleikhús-
stjóri, hinn framsögumaðurinn á
fundinum, sagði það sannfæringu
sína að atvinnulífið hefði hlutverki
að gegna í menningunni og öfugt,
enda „er menningin hornsteinn sið-
menningar í þjóðfélaginu“.
Að áliti Stefáns ber ríkinu að
skapa listinni ákveðinn grundvöll,
þannig að allir geti notið hennar, án
tillits til efnahags. „Það er lífsnauð-
synlegt að ríkið bjóði þegnum sínum
aðgang að leikhúsum, listasöfnum,
bókasöfnum o.s.frv. í mínum huga
er leikhús nefnilega jafn nauðsyn-
legt og sjúkrahús eða háskóli."
Stefán lagði aftur á móti áherslu
á, að framlög ríkis og sveitarfélaga
væru hvergi nærri nóg til að halda
úti metnaðarfullri liststarfsemi.
Listamenn hafi því löngum orðið að
leita á önnur mið eftir fjármagni.
Sagði Þjóðleikhússtjóri hlut fyrir-
tækja hafa aukist á síðustu misser-
um enda væru augu manna smám
saman að opnast fyrir því að kostun
listviðburða gæti verið góð auglýs-
ing. Benti hann meðal annars á, að
stærstu og auðugustu fyrirtæki
Bretlands legðu sífellt meira upp úr
þvi að tengjast menningu og listum.
„Kostun listviðburða er orðin viður-
kennd aðferð.“
Stefán viðurkenndi að listamönn-
um hafi lengi staðið stuggur af kost-
un - fundist þeir vera að selja sál
sína. Kvaðst hann halda að sá ótti
væri ástæðulaus, að minnsta kosti ef
gæði listamannanna og fyrirtækj-
anna era mikil. „Lykilorðið er gæði.
Að tengja gæði á einu sviði gæðum á
öðru sviði hefur gagnkvæm áhrif til
álitsauka!"
Stefán tók þó fram að hann væri
ekki þeirrar skoðunar að kostun
gæti alfarið komið í stað opinberra
styrkja, allra síst í eins litlu samfé-
lagi og við búum í. Við þau skilyrði
yrði kostnaðurinn alltof hár fyrir
þau fáu fyrirtæki sem eru aflögufær
sem einhverju nemui’.
Frumvarp um skattaívilnanir
Ágúst Einarsson alþingismaður
tók þátt í pallborðsumræðum að
framsögu lokinni. Gerði hann hlut-
verk atvinnulífsins í menningu þjóð-
arinnar einnig að umtalsefni og
greindi fundinum meðal annars frá
frumvarpi sem liggur nú fyrir Al-
þingi. Gengur það út á skattaívilnan-
fr fyrir fyrirtæki sem leggja fé til
lista, vísindastarfsemi eða kvik-
myndagerðar, sem skilgreind er sér-
staklega vegna mikilla sóknarfæra á
því sviði. Ivilnanh’ þessar fela í sér
tvöfaldan frádrátt frá skatti sem
þýðir í reynd að fyrirtæki sem gefur
100.000 krónur til lista, vísindastarf-
semi eða kvikmyndagerðar má
draga 200.000 krónur frá sínum
skattbæru tekjum. Sagðist þingmað-
urinn sannfærður um að þetta
ákvæði gæti skilað umtalsverðum
fjármunum inn í listumhverfið.
Kvaðst Ágúst ekki óttast tekjutap
fyrir ríkissjóð, næði framvarpið
fram að ganga. Þetta ákvæði myndi
virka sem vítamínsprauta í þetta
umhverfi og efla samstarf aðila á
sviði menningar- og atvinnulífs. Pen-
ingarnir myndu því skila sér til baka
- og vel það.
Ágúst sagðist ekki heldur hrædd-
ur um að ákvæðið yrði misnotað. Al-
menn reglugerð yrði vitaskuld gefin
út og hefðbundið eftirlit innt af
hendi. „I langflestum tilvikum
myndi ákvæðið leiða til framlaga í
hefðbundna list- og menningarstarf-
semi, þó svo einn og einn svartur
sauður eigi eflaust eftir að fara fram
hjá þessari löggjöf eins og öðrum
löggjöfum."
Byggir hann þetta mat ekki síst á
þeirri skoðun sinni að íslenska fyrir-
tækjaumhverfið sé að breytast.
Menn séu farnir að taka hlutverk
sitt gagnvart menningu og listum al-
varlegar en áður. „Þetta eru tveir
heimar sem til þessa hafa ekki náð
almennilega saman. Nú era tengslin
aftur á móti að aukast enda eru við-
skiptamöguleikarnir, ekki síst í kvik-
myndagerð, mjög miklir. Nú þarf
safnaumhverfið bara að komast í
samband við fyrirtækin líka.“
Friðrik Þór Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Islensku kvikmynda-
samsteypunnar, sem einnig átti sæti
við pallborðið, lýsti því yfir að ís-
lensk kvikmyndagerð hefði ekki enn
náð þroska í viðskiptalegu sam-
hengi, einkum vegna þess að aðilar í
atvinnulífinu hafi ekki enn komið
auga á sóknarfærin á þessum vett-
vangi. Að hans mati geta fyrirtæki
haft augljósan hag af því að verja fé
til framleiðslu kvikmynda enda eigi
fáar, ef nokkrar, iðngreinar jafn
mikla útþenslumöguleika og kvik-
myndagerð, auk þess sem hún geti
haft jákvæð áhrif á aðra framleiðslu
í landinu og verið fyrirtaks land-
kynning.
+80 aurar á bensínlitra inn á Safnkortiö
Stórageröi
@
Olíufélagið hf
Morgunblaðið/Árai Sæberg
ÞÁTTTAKENDUR í pallborðsumræðum og framsögumenn á fundin-
um. Friðrik Þór Friðriksson, framkvæmdastjóri íslensku kvikmynda-
samsteypunnar, Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns
Reykjavíkur, Edda Jónsdóttir, framkvæmdasljóri Gallerís Ingólfs-
stræti 8, Ágúst Einarsson alþingismaður, Stefán Baldursson, Þjóðleik-
hússtjóri, og Sigurður Gísli Pálmason, framkvæmdastjóri Hofs sf.
GIMLIGIMLI
FASTEIGNASALA ÞÓRSGÖTU 26, RVÍK, FAX 5520421
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 11-14 SÍMI 5525099 jf
NETFANG WWW.MBL.IS/GIMLI
FANNAFOLD-ENDARAÐHÚS
Vorum að fá í sölu einkar qlæsileat 175 fm
endaraðhús á einni hæð, Allt sérsmíðað.
Arkitekt Vifill Maanússon. Garðurinn hinn
olæsileosti með skjólveaaium. verðndum
OQ heitum potti. Ahv. Byqqsi. rík. 5.6
millj.
í SMÍnVM
BREIÐAVÍK-RAÐHÚS Giæsiieg
vel hönnuð 165 fm raðhús á útsýnisstað.
3-4 svefnherb. 30 fm innb. bílskúr.
Afhendast fullbúin að utan, fokheld
innan eða lengra komin. 5485
BRÚNASTAÐIR V/KORP-
ÚLFSSTAÐI Gllæsileg raðhús 165
fm á einni hæð á frábærum stað, stutt I
falleg útivistarsvæði. 3 svefnherb. 24 fm
bílskúr. AFHENT FULLBÚIN AÐ UTAN
OG TILB. TIL INNR. Verð 10,6-10,8 millj.
5803
KROSSALIND - PARHÚS.
Falleg 171 fm parhús áfrábærum útsýnis-
stað í LINDUM III. Húsin afh. fullb. að utan
og tilb. til málunar. Lóð grófjöfnuð. Að
innan afh. húsin fokheld og einangruð.
Verð 10,2 millj. Teikn á skrifstofu Gimli
5868
VÆI IABORGIR. Glæsilegt og ný
stárlega hannað 189 fm parhús á 2
hæðum. 4 rúmgóð svefnherb. Fallegt út-
sýni. Afhendist fokhelt að innan, fullbúið
að utan og steinað vorið '98. Verð 9,2
millj.
SÉRHÆÐ1R
BORGARHOLTSBRAUT Góð
78,4 fm efri sérhæð I nýi. gegnumteknu
þríbýli. 3 svefnherb. Rúmgóð stofa. Sér-
inngangur. Áhv. byggsj. og lífsj. samtals
kr. 1,4 millj. Verð 6,2 millj.
4RA HERBERGJA
KAPLASKJÓLSVEGUR Vorum
að fá inn mjög góða 4ra herb. 94 fm
endaibúð á 2. hæð rétt við KR- svæðið.
Suðursvalir, mjög gott skipulag. Áhv.
fasteignalán 25 ár 4,3 millj. Verð 7,6
miiij. Ekkert greiðslumat.
BRÆÐRABORGARSTÍGUR
Vorum að fá inn 4ra herb. góða 84 fm
(búð á jarðhæð (lítið niðurgr.) Gott
skipulag, rúmgóð herbergi og góð stofa.
Sérinng. Verð 6,5 millj. Ahv. húsbréf 2,8
millj. 5940
EFSTALAND Glæsileg 4ra herb.
ibúð á 2. hæð (litlu fjölbýli. Stórar suður-
svalir. Parket og flísar. Fallegt útsýni.
Mjög góð sameign. Áhv. 4,5 millj. Verð
7,6 millj. 5838
FIFUSEL Góð 4ra herb. 97 fm enda-
íbúð á 3. hæð í nýstandsettu húsi ásamt
stæði í bílahúsi. Þvottahús í íbúð, gott
skipulag. Verð 7,7 millj.
GRETTISGATA - HÆÐ+RIS
Falleg og töluvert standsett 4ra herb. 89
fm ibúð á 2. hæð ásamt risi. Húsið allt
standsett utan I upphaflegt útlit. Tvennar
svalir, suður og vestur, glæsilegt útsýni.
Áhv. 2,0 millj. byggsj. og 600 þús. Iffs.
Verð 7,8 millj.
MOSGERÐI + BÍLSKÚR 4ra
herb. íbúð 76 fm á miðhæð i þribýli ásamt
26 fm bilskúr. Nýtt eldhús. 2 svefnherb.
Stofa og borðstofa Hús klætt að utan.
SKIPTI Á 2-3JA HERB. IBÚÐ í
FOSSVOGI. Verð 7,6 millj 5852.
.iJA HERB.
ÞORFINNSGATA Vorum að fá f
sölu snyrtilega 3ja herb. 87,5 fm íbúð á 1.
hæð með 18 fm aukaherb. í kjallara.
Endurn. þak, gler og fl. Suðurgarður. Verð
7,3 millj. 5945
EYJABAKKI STÓR Björt og
óvenjustór 3ja herb 97 fm ibúð á 2. hæð.
Stór og rúmgóð herb. Stórt eldhús.
Fataherb. Parket og dúkur. Áhv. 3,2 millj.
byggsj. Verð
FLYÐRUGRANDI Góð 3ja herb.
81 fm ibúð á jarðh. með sérinnoanai á
þessum eftirs. stað. Björt og góð stofa.
Áhv. húsbr. 4 millj. Verð 7,2 millj.
HLÍÐARHJALLI Stór og falleg 3ja
herb. 93 fm íbúð ásamt bilskúr. Fallegt
útsýni. Áhv. 5,1 millj. byggsj. Verð 8,8 millj.
GOTT 2JA HÆÐA FJÖLB.
Björt og rúmgóð 3ja herb íbúð á góðum
stað í Hraunbænum. Parket og flisar.
Vestursvalir. Sameign góð. Stutt í alla
þjónustu. Tilvalið fyrir barnafólk. Áhv 3,1
millj. Verð 6,1 millj. 5790
MARÍUBAKKI Mjög snyrtileg og
björt 3ja herb. 81 fm íbúð á 3. hæð (efstu)
i standsettu fjölbýlí. Parket á flestum gólf-
um, suður svalir. Gott hverfi. Áhv.
Byggsj. rík. 1,6 míllj. Verð 6,3 millj. 5879
RÁNARGATA Vorum að fá inn
skemmtilega 3ja herb. 58 fm íbúð á 1.
hæð í steinhúsi. Suðurgarður. Áhv.
húsbréf 2,9 millj. Verð 5,5 millj. 5939
SOGAVEGUR Skemmtileg 2ja-3ja
herb. 61 fm endaíbúð uppi lóð með sér-
bílastæði og sérgarði með verönd í suður.
Skjólgóður staður. Áhv. ca. 3,2 millj.
Verð 5,2 millj. Lvklar á skrifstofu 5067
VÍÐIMELUR f nágrenni við Háskólann
er björt og rúmgóð 2ja herb. 66,3 fm íbúð í
kjallara. Gluggar, gler og rafm nýtt. Pak
yfirfarið. Áhv. 3,2 millj. Verð 5,2 millj. 5961
ÆGISÍÐA - RISÍBÚÐ. Mjög falleg
og sérstök 2ja herb. íbúð ásamt baðstofu-
lofti. Mikil lofthæð, allar innréttingar sér-
smíðaðar f stfl. Endum. allar lagnir, franskir
gluggar og parket á gólfum. Áhv. Byggsj.
rik. 3,0 millj. Verð 7,2 millj.5895
FLÚÐASEL-RÚMGÓÐ. Vorum
að fá í sölu óvenju rúmgóða og mjög
fallega 70 fm íbúð á jarðhæð ásamt stæði I
bílskýli. Parket á gólfum. Húsið veröur allt
nýklætt utan fljótlega. Verð 5,6 millj. 5936
FLYÐRUGRANDl Mjög snyrtileg
2ja herb. 65 fm íbúö á 1. hæð með
sérsuðurgarði afgirtum. Góð geymsla í
íbúð. Áhv. 4,0 millj. Verð 5,9 millj.
HRÍSRIMI - RIS - ÚTSÝNI
Vorum að fá inn sérstaklega skemmtilega
risibúð með vönduðum innréttingum.
Stæði i bilgeymslu fylgir. Glæsilegt útsýni.
EIGN FYRIR UNGA FÓLKIÐ. Áhv. 4,0
millj. húsbr. Verð 6,8 millj. 5897
LANGHOLTSVEGUR Mjög
snyrtileg og rúmgóð 75 fm 2ja herb. ibúð (
kjallara í steinhúsi. Parket á gólfum,
suðurgarður. Áhv. 3,5 millj. húsbréf.
Verð 5,2 millj.5919
STÓRAGERÐI Góð 65 fm ibúð i
kjallara ( enda í góðu fjölb. Baðherbergi
nýtt. Stór og rúmgóð stofa. Verð 5,2 millj.
áhv. 2, 8millj.5914
VINDÁS Falleg og björt 2ja herbergja
59 fm ibúð á 2. hæð ásamt stæði i
bilskýll. Austursvalir. Parket og fllsar.
Sameign mjög góð. Áhv. 2,4 millj. Verð
5,6 millj. 5933