Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Akvörðun samkeppnisráðs vegna kvörtunar
Innkalla verður upplýsingar
sem mismuna fyrirtækjum
SAMKEPPNISRAÐ hefur beint
þeim tilmælum til Rannsóknastofn-
unar byggingariðnaðarins að inn-
kalla fyrir 1. maí næstkomandi allar
efnislýsingar, verklýsingar, for-
skriftir og hvers konar upplýsingar
sem stofnunin hefur geflð út vegna
viðgerða á steinsteypu þar sem til-
tekin eru vörumerki í dæmaskyni
eða bent á tilgreind fyrirtæki til við-
skipta.
Jafnframt beinir samkeppnisráð
þeim tilmælum til Rannsóknastofn-
unar byggingariðnaðarins að þess
skuli vandlega gætt að leiðbeining-
ar frá stofnuninni séu þannig úr
garði gerðar að þær mismuni ekki
þeim fyrirtækjum sem á markaðn-
um starfa eða þeim efnum sem á
markaðnum eru.
Samkeppnisstofnun barst í nóv-
ember síðastliðnum kvörtun frá
Steinprýði ehf., sem starfar við þró-
un, framleiðslu og sölu á sements-
efnum til frágangs á steinsteypu og
viðgerða á steypuskemmdum, yfir
því að vísað sé að þarflausu til tiltek-
innar framleiðslu í útboðum og út-
boðsgögnum opinberra aðila. Benti
Steinprýði á að í verklýsingum
Rannsóknastofhunar byggingariðn-
aðarins fyrir múrviðgerðir, sem
meginþorri allra verk- og útboðslýs-
inga sé byggður á, sé eingöngu fram-
leiðslu eins aðila haldið fram, og hafi
þetta skaðleg áhrif á samkeppnis-
stöðu fyrirtækisins á markaðnum.
í ákvörðun samkeppnisráðs kem-
ur m.a. fram að Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins sé að lögum
ætlað að vera hlutlaus rannsókna-
stofnun sem vinni með aðilum bygg-
ingariðnaðarins að framfaramálum.
Því verði að gera þá kröfu til stofn-
unarinnar að aðgerðir hennar gagn-
ist eftir föngum jafnt þeim fyrir-
tækjum sem tengjast byggingariðn-
aði, og að keppinautum sé ekki mis-
munað.
Skaðleg áhrif á samkeppni
Vegna þess trausts sem stofnunin
nýtur sem hlutlaus aðili geti það
haft verulega skaðleg áhrif á sam-
keppni ef hún gæti ekki í aðgerðum
sínum jafnræðis milli keppinauta. í
ljósi þessa sé það mat samkeppnis-
ráðs að ábending um tilgreint vöru-
merki í verklýsingum frá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins
og ábendingar sem fram komi um
þjónustu tiltekinnar verkfræðistofu
hafi skaðleg áhrif á samkeppni á
markaðnum í skilningi 17. greinar
samkeppnislaga.
Fram kemur í ákvörðun sam-
keppnisráðs að í bréfi til Sam-
keppnisstofnunar hafi Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins lýst
því yfir að endurskoðaðar verklýs-
ingar verði sendar til áskrifenda
verklýsingabanka stofnunarinnar
fyrir múrviðgerðir þannig að ekki
verði vísað til vörumerkja í þeim.
Telur samkeppnisráð engu að síður
að með hliðsjón af eðli þessa máls
og til að tryggja jöfn samkeppnis-
skilyrði sé nauðsynlegt að taka
bindandi ákvörðun vegna erindis
Steinprýði ehf.
Morgunblaðið/RAX
Afastrákar á sjó
Kársnesskóli
Hætt við
sameiningu
Á FJÖLMENNUM fundi sem for-
eldrar bama í Kársnesskóla í Kópa-
vogi boðuðu til í gærkvöld vegna að-
stöðuleysis, þrengsla og fjölda nem-
enda í bekk tilkynnti Gunnar Birg-
isson, forseti bæjarstjórnar Kópa-
vogs, að ákveðið hefði verið að leita
útboða fyrir þrjár lausar kennslu-
stofur í stað tveggja fyrir næsta
skólaár.
Ráðgert hafði verið að sameina
þrjár bekkjardeildir í tvær, þannig
að næsta haust yrðu tveir þriðju
bekkir, með um 30 börn i hvorum,
en nú hefur verið horfið frá því. Að
mati fundargesta leysir hin nýja
ákvörðun bæjarstjórnar um þrjár
kennslustofur í stað tveggja úr
brýnustu þörfinni en ennþá skortir
þó aðstöðu fyrir kennara, tón-
mennta- og eðlisfræðikennslu.
---------------
Bygging í
samræmi við
skipulag
BORGARRÁÐ hefm- samþykkt um-
sögn Borgarskipulags um kæru
vegna fyrirhugaðra byggingafi'am-
kvæmda við Laugaveg 53B en þar er
komist að þeirri niðurstöðu að tillaga
að uppbyggingu á lóðinni sé í sam-
ræmi við Aðalskipulag Reykjavíkm-
1996-2016.
í umsögninni kemur fram að gerð-
ar hafi verið breytingar á tillögunni
frá því hún var kynnt opinberlega og
í framhaldi af athugasemdum ná-
granna. Tekið er fram að hafin er
vinna við gerð deiliskipulags fyrir
reitinn.
BIRGIR Mar og Sigurður Guð-
finnssynir voru að koma úr
róðri í Grindavík með afa sín-
um, Birgi Jónssyni á Stakkavík
GK 61. Aflinn var vænn og hef-
ur víða fengist mikið af þorski
síðustu daga. Ekki spillir fisk-
verðið heldur þessa dagana, en
það hefur verið með allra
hæsta móti vegna sjómanna-
deilunnar og njóta trillukarl-
arnir þess.
SÉRBLÖÐ í DAG
Afkoma
fyrirtækja
► Hlutafélögin birta afkomutölur
hvert á fætur öðru og árangurinn
er misjafn. Hagnaður er hjá Sam-
heija og Loðnuvinnslunni hf. en
tap hjá Plastprenti. Einnig er
hagnaður hjá Fiskveiðasjóði,
Sparisjóði Hafnarfjarðar og Sem-
entsverksmiðjunni.
Fastir þættir eins og torgið og
sjónarhom, innlendar og erlendar
fréttir, greinar um Pípugerðina,
íslensku kaupstefnuna í Færeyj-
um og tölvusýninguna CeBIT.
mMM
VIÐSiaPTl MVENNULÍF
'™ Tap af rekstri dóttur- og
sj hlutdeildarfélaga erlendis
SAMHERJÍ hf.
Peninvabréf
JSf" °t örufgávöxtun J
IÞROTTIR
Afmælis
gjöf
► Blaklið Þróttar færði
þjálfara sínum, Leifi Harð-
arsyni, Islandsmeistaratit-
ilinn í afmælisgjöf í gær.
Þróttarar sigruðu þar
með þrefalt þriðja árið í
röð. FH burstaði Hauka
og Fram sigraði ÍBV í úr-
slitakeppninni í handbolta og
KR komst í undanúrslit úrvals
deildarinnar í körfuknattleik.
SÖL kærir
til Eftirlits-
stofnunar
EFTA
STJÓRN samtaka um óspillt land í
Hvalfirði, SÓL, ákvað á fundi sínum
í gær að kæra til Eftirlitsstofnunar
EFTA þá ákvörðun umhverfisráð-
herra að veita íslenska járnblendi-
félaginu heimild til stækkunar verk-
smiðjunnar á Grundartanga án und-
angengins mats á umhverfisáhrif-
um. Auk þess mun SÓL senda
stjórnsýslukæru til umhverfisráðu-
neytisins vegna málsins, segir í
frétt frá samtökunum.
I fréttatilkynningu frá samtökun-
um segir að með þessari ákvörðun
umhverfisráðherra frá 1. desember
1995 hafi hann brotið lög um mat á
umhverfisáhrifum frá árinu 1993.
Akvæði til bráðabirgða eigi ekki við
í þessu sambandi, þar sem í 6. grein
laga nr. 18 frá 1997 sé aðeins gefið
starfsleyfi fyrir tveimur ofnum í
verksmiðjunni. Ákvæði til bráða-
birgða gildi aðeins um þær fram-
kvæmdir sem þegar hafi fengið leyfi
og því sé ákvörðun ráðherrans í
fulh'i andstöðu við lög um mat á um-
hverfisáhrifum.
---------------
Símabilun
í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur
EKKI náðist símasamband við
Sjúkrahús Reykjavíkur í um fimm-
tán mínútur skömmu fyrir hádegi í
gær og er þetta í annað skiptið á
þremur vikum sem símasambands-
laust hefur verið við sjúkrahúsið.
Sigurður Angantýsson, forstöðu-
maður tæknideildar sjúkrahússins,
segir að hægt hafi verið að hringja
út úr sjúkrahúsinu og símkerfið inn-
anhúss hafi sömuleiðis verið í lagi.
Hann segir ekki fullljóst hverjar
skýringar eru á biluninni í gær, en
þegar símasambandslaust var við
sjúkrahúsið í um klukkutíma fyi'ú’
þremur vikum, hafi starfsmenn
Landssímans rakið það til bilunar í
fjölsímatengingum við sjúki-ahúsið.
Hann telji ástæðuna ekki vera að
finna innan veggja spítalans.
„Við teljum að þessi bilun hafi
ekki komið að sök og við vitum ekki
til þess að nokkur hafi þurft nauð-
synlega að ná sambandi við sjúkra-
húsið á þeim tíma sem um ræðir. Þá
eru samtöl á milli t.d. Neyðarlínu og
sjúkrabifreiða SHR beinlínutengd
og fara ekki um það kerfi sem við
teljum að hafi farið úr skorðum,“
segir Sigurður.
Hann segir að málið sé í rannsókn
en eftir að bilunar varð vart fyi'ir
þremur vikum hafi menn talið sig
hafa komist fyrir meinið.
---------------
Heitt vatn af
Mosfellsbæ
HEITT vatn fór af stórum hluta
Mosfellsbæjar um klukkan 18.30 í
gærkvöld þegar vatnslögn fór í
sundur skammt austan við vegamót
Vesturlandsvegar og Reykjavegar.
Búist var við að vatn kæmist aftur á
að nýju um klukkan 22 í gærkvöld.
Um var að ræða óeinangraða
bráðabirgðalögn í tengslum við
vegaframkvæmdir hjá Mosfellsbæ,
að sögn Ai-nórs Einarssonar, svæð-
isstjóra hjá Hitaveitu Reykjavíkur.
„Þetta er ber stálpípa og þegar
mokað var ofan á hana til að reisa
hljóðmön við veginn, gaf hún sig
undan þunganum á samskeytum eft-
ir rafsuðu,“ segir Arnór.
Vinnuhópur frá Hitaveitunni
ásamt verktökum á svæðinu vann að
viðgerðum í gærkvöld og var stefnt
að því að ljúka störfum um mið-
nætti, en vatn átti að komast á um
tveimm' tímum fýrr eins og áður
sagði.