Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 11 FRETTIR Næsta endurskoðun barnalaga Réttur karla skoðaður ÁKVEÐIÐ hefur verið í dómsmála- ráðuneytinu að við næstu endur- skoðun barnalaga verði skoðað hvort rétt sé að setja sérstakt ákvæði um málshöfðunarrétt karl: manna sem telja sig feður barna. I Danmörku er nú unnið að frum- varpi í þessa veru eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu í gær. Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að það væru ekki einungis Danir sem nú ræddu þessi mál heldur einnig Norðmenn og þess mætti vænta að Svíar fylgdu í kjölfarið. Hún sagði að hér á landi hefði karlanefnd jafnréttis- ráðs nýverið bent á að eðlilegt væri að karlar á íslandi hefðu rétt til að höfða barnsfaðemismál og í fram- haldi var ákveðið að athuga þetta mál við næstu heildarendurskoðun barnalaga sem væntanlega á sér stað seinna á þessu ári. Óvíst hversu langt er gengið I Danmörku er rætt um að karlar geti jafnvel höfðað mál á hendur giftum konum til að láta skera úr um faðerni barna þeirra og telja ýmsir aðilar þar harla langt gengið. Lögmannaráðið danska bendir t.d. á að afbrýðisamir elskhugar giftra mæðra geti nú dregið þær fyrir dóm til að fá skorið úr um faðerni barns þeirra. I slíkum tilvikum sé ekki öruggt að sannleikurinn sé sagna bestur því ekki er öruggt að það sé í þágu bamsins að fá hið líf- fræðilega faðerni upplýst. Á móti segja menn að barn hljóti að eiga rétt á því að vera rétt feðrað. Drífa sagði alveg óvíst hversu langt verður gengið í þessa átt hér á íslandi ef ákveðið verður að taka upp málshöfðunarrétt karla. Mörg sjónarmið væru í málinu sem taka yrði tillit til. FÉLAG íslenskra leikskólakenn- ara kynnti í gær starfsemi „karlanefndar" félagsins, sem komið var á laggirnar með það að markmiði að fjölga körlum innan stéttarinnar. Félagið kynnti einnig ráðstefnuna „Hefð- ir og hugsjónir" sem fram fer nú um helgina. „Karlanefnd“ félagsins, sem starfað hefur undanfarna mán- uði, hefur gefið út bækling og veggspjald undir yfirskriftinni „Verður þú ímynd karlmennsk- unnar á næstu öld?“ og dreift verður meðal framhaldsskóla- nema. Félagið mun einnig standa fyrir sérstökum kynningarfund- um í framhaldsskólum. Rúmlega 1% leikskóla- kennara karlar Á blaðamannafundinum í gær kom fram að markmið félagsins með starfi nefndarinnar væri að gera ungum körlum grein fyrir því að starf leikskólakennarans Vilja fleiri karlmenn í störf leik- skólakennara væri raunhæfur starfsmöguleiki. Auk þess var bent á að börn á leikskólaaldri hefðu þörf fyrir bæði karlkyns og kvenkyns fyrir- myndir. Fulltrúar félagsins sögðu að mikilvæg félagsmótun ætti sér stað í leikskóla og að nauðsynlegt væri fyrir börn að kynnast uppeldissjónarmiði beggja kynja. Aðeins rúmlega 1% leikskóla- __ kennara hér á landi eru karlar. I samanburði við önnur Norður- lönd er hlutfallið mjög lágt en um 15% leikskólakennara í Nor- egi eru karlar og yfir 20% í Dan- mörku. Víða á Norðurlöndunum hefur þegar verið gripið til ráð- stafana til að fjölga körlum í stétt leikskólakennara. I dreifibréfi frá félaginu kem- ur fram að ýmsir aðilar hafi styrkt félagið vegna verkefnis- ins, m.a. Dagvist barna í Reykja- vík, menntamálaráðuneytið, fé- lagsmálaráðuneytið, jafnréttis- nefnd Reykjavíkur, Kópavogs- kaupstaður og Akureyrarbær. Ráðstefna á vegum FÍL um helgina 540 leikskólakennarar taka þátt í ráðstefnu undir yfírskrift- inni „Hefðir og hugsjónir" sem fram fer á vegum Félags ís- lenskra leikskólakennara á Hótel Sögu um helgina. Á dagskránni eru sextán fyrirlestrar sem haldnir eru af ýmiss konar sér- fræðingum, og má þar nefna lög- fræðing, sálfræðinga, leikskóla- kennara og siðfræðing. Skrán- ingu á ráðstefnuna er lokið og eru aðstandendur hennar mjög ánægðir með góða þátttöku. Morgunblaðið/Arni Sæberg ÓSKAR Ásgeir Ástþórsson leikskólakennari, Þröstur Brynjarsson, varaformaður FIL, og Björg Bjarna- dóttir, formaður FÍL, kynntu starfsemi „karlanefndar" félagsins í gær. vegna deilna um greiðslu skólakostnaðar árið, og ég hef grun um að þarna sé einfaldlega undirliggjandi deila um peninga," sagði Bragi. Hægt væri að koma á fót úrskurðarnefnd Hann sagði að þetta mál sýndi glögglega ákveðna glompu sem í Ijós hefði komið eftir að grunnskól- inn fluttist til sveitarfélaganna, en það hefði hreinlega gleymst að gera ráð fyrir þvi að einhver aðili leysti ágreiningsmál af þessu tagi. Sjálfur teldi hann að ýmsar leiðir væri hægt að fara í því, til dæmis þá að koma á úrskurðamefnd á vegum menntamálaráðuneytisins, eða þá að ráðuneytið sjálft úr- skurðaði í svona ágreiningsmálum um greiðslur. Slíkur ágreiningur ætti hins vegar alls ekki að geta hindrað það að börn nytu lögboð- innar skólagöngu. „Það sem gerist hins vegar er að menntamálaráðuneytið vísar þessu tiltekna máli alveg frá sér og bend- ir á að það sé Reykjavíkurborg sem beri ábyrgð á því-að drengur- inn njóti lögbundinnar skólagöngu. Vandinn er hins vegar sá að dreng- urinn getur ekki átt heimili í Reykjavík og heimili hans núna er þarna fyrir austan," sagði Bragi. Aðspurður sagði Bragi að ein leið í þessu máli væri að flytja lög- heimili drengsins, en síðastliðið haust hefði það verið mat manna að það myndi setja málið í stóran hnút. „Þá gerðist það að viðkomandi sveitarfélag þar sem hann býr núna þyrfti ekki einungis að leysa skólamál hans heldur greiða allan þann mikla viðbótarkostnað sem fylgir skólagöngu hans. Það var ekki síst af tillitssemi við þá að Reykjavíkurborg vildi gjarnan axla þá ábyrgð að greiða af þessu kostnaðinn, og mönnum fannst það ekki sanngjamt að vera að breyta lögheimilinu til að koma kostnaðin- um yfir á fámennt sveitarfélag. Þetta er hins vegar heimilt lögum samkvæmt og kannski er málið núna komið í þá stöðu að ekki sé um annað að ræða,“ sagði Bragi. Ráðuneytið treystir sér ekki til að taka á málinu Hann sagði að þegar upp væri staðið væri þarna um að ræða dæmi þar sem barn nyti ekki þeirra mannréttinda að fá að ganga í skóla, og nánast væri verið að brjóta á drengnum öll ákvæði grunnskólalaga, stjórnarskrárinn- ar og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. „Það er í rauninni alveg óþolandi að þessi drengur skuli ekki eiga kost á að fara í skóla. Satt best að segja hélt ég að þetta mál hefði verið leyst um jólin, en við höfðum þá fengið prest á Selfossi til að ganga í þetta mál sem eins konar sáttasemjara því það var komin svo mikil kergja í alla aðila. Honum tókst að fá skólanefndina og sveit- arstjórnirnar inn á ákveðna lausn, sem fólst í því að drengurinn yrði hluta dagsins í skóla, og það virtist allt ætla að smella saman. Það sem gerist þá er að íbúarnir í hreppnum tilkynna að þeir neiti að senda börnin sín í skólann og það hef ég fengið staðfest. Þá fór málið í einn allsherjarhnút á nýjan leik,“ sagði Bragi. Hann sagði að fósturmóðir og faðir drengsins hefðu í kjölfar þessa ritað menntamálaráðherra bréf og leitað ásjár hans, en menntamálaráðuneytið hefði vísað málinu frá sér. „Það sem vekur sérstaka athygli mína er að menntamálaráðuneytið treystir sér ekki til að taka á þessu máli og höggva á hnútinn. Það er minn skilningur á þessum lögum að menntamálaráðuneytið, sem æðsti stjórnandi skólamála, eigi að geta gert það. Það hefur hins vegar tilhneigingu til að segja að vanda- málið sé barnavemdamefndin sem velur baminu heimili á stað þar sem fullnægjandi skólaaðstaða er ekki fyrir hendi fyrir það. Þetta sjónarmið er að mínu viti ekki rétt, því ég held að þegar sveitarfélögin eru búin að taka á sig þessar skyld- ur verði þau að skapa þannig skóla- aðstæður að öll börn í viðkomandi sveitarfélagi geti notið þessa lögvarða réttar síns. Það breytir engu hvort um er að ræða fóstur- barn eða bam sem er fætt og upp- alið í viðkomandi sveitarfélagi. Það geta öll sveitarfélög á landinu átt von á því að einn góðan veðurdag fæðist þar fatlað barn sem þarf á sérkennslu að halda og sérumönn- un, og þá verða þessi sveitarfélög einfaldlega að mæta því. Þá er eng- um öðrum til að dreifa, og í þessu tiltekna dæmi er meira að segja kostnaðurinn greiddur af öðm sveitarfélagi. Menn verða því ein- faldlega að leysa svona mál því við svo búið má ekki standa. Ef ekki tekst að finna einhverja leið innan núverandi laga og reglna þá verður einfaldlega að gera þær breytingar á lögum sem fela í sér einhvern þann aðila sem getur úrskurðað í svona málum,“ sagði Bragi. Vinnumálastofnun 3,7% atvinnu- leysi í febrúar- mánuði ATVINNULEYSI á landinu öllu í síðastliðnum mánuði var 3,7% af mannafla á vinnu- markaði samanborið við 4% atvinnuleysi í janúar sl. og 4,4% atvinnuleysi í febrúar á síðasta ári. Fjöldi skráðra atvinnuleys- isdaga í seinasta mánuði jafn- gilda því að 4.883 manns hafi að meðaltali verið á atvinnu- leysisskrá í mánuðinum. Þar af eru 1.969 karlar og 2.914 konur. Þetta kemur fram á yf- irliti Vinnumálastofnunar yfir atvinnuástandið. Atvinnulausum hefur fækk- að í heild að meðaltali um 6,4% frá janúarmánuði en um 14,6% frá febrúar í fyrra. Spáð er 3,6%-4% atvinnu- leysi í mars Undanfarin tíu ár hefur at- vinnuleysi minnkað um 16,8% að meðaltali frá janúar til febrúar en árstíðarsveiflan nú er því talsvert minni en með- altalssveiflan á undanförnum áratug. Sérfræðingar Vinnu- málastofnunar telja helstu skýringuna vera stöðuna í sjávarútveginum í seinasta mánuði, þar sem saman fóru verkföll og lítill fískafli. Spáð er að atvinnuleysi aukist lítið eitt í mars og geti orðið á bilinu 3,6% til 4%. Samkeppnisráð bannar sölu um- búða frá Ispakki SAMKEPPNISRAÐ hefur ákvarð- að að umbúðafyrirtækið íspakk ehf. hafi brotið samkeppnislög með inn- flutningi, dreifingu og sölu á um- búðum merktum þýska fyrirtækinu RESY og viðskiptamannsnúmeri Kassagerðar Reykjavíkur hf. Hefur samkeppnisráð bannað Ispakki ehf. að dreifa þessum umbúðum og selja, en verði banninu ekki fram- fylgt mun samkeppnisráð beita við- urlögum samkeppnislaga. Kassagerð Reykjavíkur hf. er með samning við þýska endur- vinnslufyrirtækið RESY, sem tekur við umbúðum Kassagerðarinnar í Þýskalandi til endurvinnslu, en samningurinn á að tryggja við- skiptavinum Kassagerðarinnar förgun umbúðanna án kostnaðar. í samningnum er kveðið á um að um- búðirnar þurfí að vera auðkenndar með merki þýska fyrirtækisins og viðskiptamannsnúmeri Kassagerð- arinnar, en án merkinganna fengjust vörur í umbúðum frá Kassagerðinni ekki tollafgreiddar í Þýskalandi. Kassagerðin kvartaði til Sam- keppnisstofnunar yfir því að íspakk ehf. hefði látið framleiða umbúðir með þessum merkingum og selt Sjólastöðinni, sem hafði áður keypt samskonar umbúðir hjá Kassagerð- inni. Ispakk lét framleiða umbúð- irnar í Bandaríkjunum þar sem þær voru merktar á framangreindan hátt. I ákvörðun samkeppnisráðs kem- ur fram að íspakki hafi verið ljóst þegar það tók við umbúðunum frá bandaríska framleiðandanum að þau mistök hefðu orðið í framleiðsl- unni að merki RESY og viðskipta- númer Kassagerðarinnar voru prentuð á umbúðirnar, en engu að síður hafi fyrirtækið ákveðið að selja umbúðirnar til Sjólastöðvar- innar. Að mati Samkeppnisstofnun- ar er sú ákvörðun ámælisverð og ekki í samræmi við góða viðskipta- hætti og ósanngjörn gagnvart keppinauti og þar af leiðandi ekki í samræmi við 20. grein samkeppn- islaga. Villandi upplýsingar um eignarrétt Þá segir í ákvörðuninni að í gögn- um málsins hafi komið fram að um- ræddar umbúðir séu að mestu upp- urnar og því haldið fram að þær hafi allar farið til Bandaríkjanna, en engu að síður megi ætla að sá möguleiki sé fyrir hendi að sala og dreifing umbúðanna geti leitt til þess að hluti þeirra endi hjá RESY í Þýskalandi, sem kunni að leiða til þess að fyrirtækið geri fjárkröfur á Kassagerðina fyrir endurvinnslu. Með sölu og dreifingu umbúða með umræddri merkingu telur Samkeppnisstofnun að íspakk hafi gefið villandi upplýsingar um eign- arrétt eða ábyrgð atvinnurekanda og jafnframt þykir ljóst að Ispakk hafi notað auðkenni RESY án heim- ildar. Að mati samkeppnisráðs felur þessi háttsemi í sér brot á 25. grein samkeppnislaga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.