Morgunblaðið - 26.03.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 31
H.C.
Andersen
verðlaunin
DÓMNEFND alþjóðlegu IBBY
samtakanna hittist um helgina,
28.-29. mars, í Vín til að ákveða
hverjir hljóti H.C. Andersen verð-
launin árið 1998.
Nefndina skipa tólf fulltrúar
hvaðanæva úr heiminum og mun
val hennar verða tilkynnt á barna-
bókamessunni í Bologna á alþjóð-
lega barnabókadaginn, 2. apríl. Þar
verða einnig verk allra sem til-
nefndir vom til sýnis á sýningar-
bás IBBY samtakanna.
Tilnefndir vom tuttugu og fímm
rithöfundar og jafnmargir mynd-
listarmenn frá tuttugu og sjö lönd-
um. Barnabókaráðið, íslandsdeild
IBBY, tilnefndi Sigi-únu Eldjárn til
hvorra tveggja verðlaunanna.
A listanum yfír tilnefnda eru
ýmis þekkt nöfn svo sem rithöf-
undarnir Mats Wahl, Bent Haller,
Anne Fine og Kathrine Paterson
og myndlistarmennirnir Ilon
Wikland, Tomi Ungerer og Dick
Bmna.
Verðlaunin verða afhent 24.
september á heimsþingi IBBY
samtakanna í Delhi á Indlandi.
--------------
Sýningum
lýkur
Listasafn Kópavogs
FRA og með sunnudeginum 29.
mars lýkur málverkasýningum
Einars Þorlákssonar í Austursal,
Elísabetar B. Halldórsdóttur í
Vestursal og sýningu Mattheu
Jónsdóttur á neðri hæð.
Listasafnið er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 12-18.
Menningarmiðstöðin
Gerðuberg
Sýningunni „Myndskreytingar
úr íslenskum barnabókum" lýkur
nú á sunnudag.
Ráðhús
Reykjavíkur
Sýningu Önnu Þóra Karlsdóttur
og Guðrúnar Gunnarsdóttur á
handgerðum flókamottum í Tjarn-
arsal Ráðhússins lýkur mánudag-
inn 30. mars.
Sýningin er sölusýning og er op-
in virka daga frá kl. 8-19 og um
helgar kl. 12-18.
HILMIR Snær og Þór Tulinius í
hlutverkum.
Sídustu sýning-
ar á Hamlet
Þjóðleikhúsið
SÍÐUSTU sýningar verða
föstudaginn 26. mars og
laugardaginn 4. apríl. Verkið var
frumsýnt annan í jólum í leikstjórn
Baltasar Kormáks. Hilmir Snær
Guðnason fékk Menningai’verðlaun
DV í leiklist 1998 fyrir túlkun sína
á Hamlet Danaprins, einnig fyrir
leik sinn í Listaverkinu.
Við eins manns borð í
Þinghamri á Varmalandi
Borgarnes. Morgunblaðið.
í VETUR eru 20 ár liðin síðan
leikdeild Ungmennafélags Staf-
holtstungna setti upp sína fyrstu
leiksýningu. Síðan hefur leik-
deildin sett upp 12 sjálfstæðar
sýningar og auk þess tekið þátt í
samstarfsverkefnum með öðrum
félögum. Námskeiðahald og leik-
húsferðir hafa einnig verið drjúg-
ur þáttur í starfi deildarinnar
gegnum árin.
Nú æfir leikdeildin breska
gamanleikinn Við eins manns
borð eftir Terence Rattingan í
leiksljórn Þórunnar Magneu
Magnúsdóttir. Að sögn formanns
leikdeildarinnar, Sigríðar Þor-
valdsdóttur, eru leikendur ellefu,
en alls taka rúmlega 20 manns
þátt í uppfærslunni. Leikritið
gerist á litlu hóteli í enskum smá-
bæ. Persónurnar virðast lifa ein-
földu og hversdagslegu Iífí, en
hver á sína sögu og sín leyndar-
mál. Um þetta allt saman er fjall-
að á léttum nótum en þó með
hæfilegri alvöru í bland.
Frumsýning verður í félags-
heimilinu Þinghamri á Varma-
landi föstudaginn 27. mars.
Morgunblaðið/Ingimundur
MYNDIN er tekin á æfíngu á gamanleiknum Við eins manns borð.
*Viðamikil rannsókn sem
gerð var í Bandaríkjunum
sýnir ótvírætt að þú brennir
mest við þjálfun á
hlaupabraut.
Toppur kr. 2.900.
Buxur kr. 4.290.
WESLO
Cadence 925
Rafdrifin göngu/hlaupabraut
Hraði 0-13 km./klst.
Mjúk braut sem gefur öruggt
ástig.
Einfaldur hæðarstillir
Hlaupasvæði: 400x1260 mm
Vandaður tölvumælir sem
sýnir: Hraða, tíma, vegalengd,
kaloríubrennslu.
Statív fyrir vatnsbrúsa og
handklæði.
Hægt að leggja saman og því
mjög hentug fyrir heimili og
vinnustaði.
Komdu þér í toppform fyrir
aðeins kr.
Verið velkomin í stærstu og glæsilegustu
æfingatækjaverslun landsins að Fosshálsi 1.
pr.mán m/v. 36 mán
Staðgr. verð
kr. 99.750.-
sport vöftuíuís
Fosshálsi 1 - S. 577-5858
Heildarverð kr. 105.000.
Ný sending af
æfingafatnaði frá
[GiLDAmarx]
í verslun okkar að
Skeifunni 19