Morgunblaðið - 05.04.1998, Side 4
4 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
MORGUNB LAÐIÐ
VIKAN 23/3 - 3/4
►MOKAFLI var við Reykja-
nes síðustu dagana í mars og
hefur afli Grindavíkurbáta
komist i 60 tonn yfir dag-
inn sem þykir með mesta mó
ti. Skólafólk var fengið til
aðstoðar við fiskvinnsluna í
Grindavík svo og verka-
fólk vestan af fjörðum.
►KNUT Vollebæk, utanrík-
isráðherra Noregs, var í op-
inberri heimsókn á íslandi
fyrsta og annan apríl. Hann
ræddi við ráðherra og var m
•a. ákveðið að stefna að þrí-
hliða viðræðum þjóðanna
ásamt Rússum í maí um veið
ar í Barentshafi.
►FINNUR Ingólfsson við-
skiptaráðherra sagði í ávarp
i á ársfundi Seðlabankans að
fslenska bankakerfið væri of
dýrt. Sagði hann að endur-
skipulagning og einkavæð-
ing á fjármagnsmarkaði yrði
að hafa það að leiöarljósi að
minnka vaxtamun og draga
úr kostnaði.
►MIKILL áhugi virðist vera
meðal almennings á þeim 26,
5% hlut ríkisins í íslenska
járnblendifólaginu sem boð-
inn er til sölu dagana 1. til 8.
apríl. Starfsfólki fyrirtækis-
ins og almenningi gefst kost-
ur á að kaupa 60% af þeim 3
74 milljóna króna hluta að
nafnverði sem seldur verður.
Hin 40% hlutabrófanna,
sem eru að nafnvirði 149 mil
ijónir, verða seld með til-
boðsfyrirkomulagi.
►HÉRAÐSDÓMUR Reykja-
víkur dæmdi ríkissjóð til að
greiða sex fyrrverandi starfs
mönnum Lyfjaverslunar
ríkisins biðlaun. Starfsmenn-
irnir höfðuðu mál og er litið
á þau sem prófmál.
Yfir 60% hjúkrunar-
fræðinga segja upp
YFIR 60% hjúkrunarfræðinga á Land-
spítala og Sjúkrahúsi Reykjavíkur
sögðu upp störfum um mánaðamótin.
Óánægja með launakjör er ástæða upp-
sagnanna og óttast Ásta Möller, for-
maður Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, að margir þeirra muni ekki snúa
aftur þótt stofnanasamningar um betri
kjör takist. Forráðamenn spítalanna
segja að starfsemi þeirra lamist hverfi
þessi hópur frá störfum. Þeir draga í
efa að uppsagnarfresturinn verði fram-
lengdur eins og þeir hafa rétt til, telja
síst betra að leysa vandann í október en
júlí þegar uppsagnimar koma til fram-
kvæmda.
Yfír 300 milljónir
í snjóflóðavarnir
GREIÐSLUR úr Ofanflóðasjóði vegna
snjóflóðavamavirkja og annarra fram-
kvæmda verða á bilinu 300-350 milljónir
króna á árinu. Vamamannvirkjum á
Flateyri verður lokið á árinu og næsti
áfangi em vamarvirki á Siglufirði. Gert
er ráð fyrir að þær framkvæmdir taki
tvö ár. I ár eiga líka að hefjast fram-
kvæmdir á Neskaupstað og athuganir í
Bolungarvík. Þá lýkur væntanlega í ár
uppkaupum á húsum á Súðavík.
Einkaréttur á
gagnagrunni?
FRUMVARP um skráningu heiisufars-
upplýsinga í gagnagrunn var kynnt í
ríkisstjóminni í vikubyrjun og sam-
þyKkt að leggja það fyrir Alþingi. For-
ráðamenn heiibrigðisráðuneytisins telja
koma tii greina að veita íslenskri erfða-
greiningu einkarétt til að setja upp og
starfrækja gagnagrunninn en fyrirtæk-
ið hefur sýnt á því áhuga. Heildarkostn-
aður við verkið er áætlaður 12 milljarð-
ar króna og þörf yrði á milli 300 og 400
starfsmanna.
Máli Paulu Jones
vísað frá
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,
vann nokkum áfangasigur á miðviku-
dag þegar dómari í Arkansas vísaði frá
málshöfðun Paulu
Jones á hendur hon-
um. Clinton, sem var
að Ijúka 12 daga ferð
um sex Afríkuríki
ásamt konu sinni,
Hillary, sagði aðeins,
að ákvörðun dómar-
ans talaði sínu máli en
talsmenn Jones kváð-
ust miður sín vegna niðurstöðunnar.
Lögfræðingar hennar hafa nú til athug-
unar að áfrýja úrskurðinum. Ekki er
Ijóst hvaða áhrif úrskurðurinn hefur á
málarekstur Kenneths Starrs, óháðs
saksóknara, gegn forsetanum en hann
segist munu halda ótrauður áfram
rannsókn sinni á því hvort Clinton hafi
fengið Monicu Lewinsky til að sveija
rangan eið. Samkvæmt skoðanakönn-
unum í Bandaríkjunum vill mikill meiri-
hluti, að málin gegn forsetanum verði
látin niður falla og taldi hann, að niðm--
staðan í máli Paulu væri „góð fyrir
Bandaríkin“.
Rússneska dúman
fékk vikufrest
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, hef-
ur gefið dúmunni frest fram á fimmtu-
dag í næstu viku til að staðfesta skipan
Sergeis Kíríjenkos í embætti forsætis-
ráðherra. Hefur hann einnig orðið við
kröfum um hringborðsumræður með
fulltrúum þingsins, héraðsstjórna og
verkalýðsfélaga. Er sú tilslökun höfð til
marks um, að Jeltsín viðurkenni sterka
stöðu kommúnista á þingi en ígor
Shabdúrasúlov, talsmaður hans, vísaði
á bug, að forsetinn myndi fallast á sam-
steypustjórn eins og kommúnistar hafa
krafist. ítar-Tass-fréttastofan var með
þá frétt á fimmtudag, að heimsókn
Jeltsíns til Japans 11.-13. þessa mánað-
ar hefði verið frestað en dró hana síðan
til baka án frekari skýringa.
Jones
►ÍSRAELSSTJÓRN hefur
samþykkt að fara að ályktun
öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna frá 1978 og hverfa með
her sinn frá Suður-Líbanon.
Hún setur þó þau skilyrði, að
Líbanonsstjórn láti her sinn
gæta landamæranna til að
koma í veg fyrir árásir
skæruliða Hizbollah-hreyf-
ingarinnar á ísrael. Líbanir
segja hins vegar, að brott-
flutningur sé ekki samnings-
atriði og eigi að vera án allra
skilyrða. Samþykkt ísraels-
sljórnar sé því aðeins blekk-
ingarleikur.
►KOMMÚNISTAR í Úkraínu
fögnuðu sigri í þingkosning-
unum sl. sunnudag, fengu
um fjórðung atkvæða og eru
stærsti flokkurinn á þingi.
Segja má þó, að óflokks-
bundnir frambjóðendur hafi
unnið mesta sigurinn en í
þeirra hlut komu 114 þing-
sæti af þeim 225, sem kosið
er um í einmenningskjör-
dæmum. Hinn helmingurinn
er valinn af flokkslistum. Úr-
slitin komu ekki á óvart enda
er örbirgð mikil í landinu og
fátt, sem bendir til batnandi
tíðar.
►MUHYIDEEN al-Sharif,
einn helsti sprengjusmiður
Hamas-hreyfingarinnar með-
al Palestfnumanna, var ráð-
inn af dögum í sfðustu viku.
Telja Hamas-liðar, að ísrael-
ar hafi verið að verki og hafa
hótað skjótum hefndum.
ísraelssfjórn neitar því, að
hún beri nokkra ábyrgð á
dauða al-Sharifs.
►LEIÐTOGAR Evrópusam-
bandsrfkjanna 15 og 10 Asíu-
ríkja komu saman í Lundún-
um í lok vikunnar til að ræða
aðgerðir til að bregðast við
fjármálakreppunni í Asíu.
FRÉTTIR
Viljayfírlýsing um stofnun fjölmiðlasambands
Sameiginlegur málsvari
fj ölmiðlastarfsmanna
Morgunblaðið/Júlíus
KALMAN Fontenay, formaður Félags grafískra teiknara, Guðmundur
Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands íslands, Magnús L.
Sveinsson, formaður Verzlunarmannafélags Reylgavíkur, Sæmundur
Árnason, formaður Félags bókagerðarmanna, Lúðvík Geirsson, for-
maður Blaðamannafélags fslands, og Jón Ásgeir Sigurðsson, formaður
Starfsmannasamtaka RÚV, við undirritun viljayfirlýsingarinnar.
STEFNT er að formlegri stofnun
fjölmiðlasambands á komandi
hausti, þar sem aðild eiga allir þeir
sem með einum eða öðrum hætti
starfa við fjölmiðla eða fjölmiðlun.
Viljayfirlýsing þessa efnis var sam-
þykkt og undirrituð á Hótel Borg
s.l. fóstudag af forsvarsmönnum fé-
laganna sex sem að sambandinu
munu standa. Þau eru Blaðamanna-
félag Islands, Félag bókagerðar-
manna, Félag grafískra teiknara,
Rafiðnaðarsamband íslands, Starfs-
mannasamtök Ríkisútvarpsins og
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Hlutverk sambandsins verður að
vinna að sameiginlegum hagsmuna-
málum þeirra sem starfa á þessum
vettvangi. í viljayfirlýsingunni segir
að sérstök áhersla verði lögð á sam-
starf og samráð um kjaramál, fagleg
málefni, réttindamál, vinnuum-
hverfi, starfsmannastefnu, tækni-
mál, orlofsmál, heilbrigði, endur-
menntun og áhrif starfsmanna á
stjóm fjölmiðla.
„Fjölmiðlasambandið mun leitast
við að efla og glæða félagsanda og
samheldni starfsmanna á fjölmiðlum.
Þá mun sambandið koma fram á op-
inberum vettvangi sem sameiginleg-
ur málsvari fjölmiðlastarfsmanna.
Einnig mun fjölmiðlasambandið
samræma sem kostur er þátttöku
fulltrúa starfsmanna á fjölmiðlum í
norrænu og alþjóðlegu samstarfi,"
segir ennfremur í viljayfirlýsing-
unni.
Að sögn Lúðvíks Geirssonar, for-
manns Blaðamannafélags Islands,
er ætlunin að sambandið verði stofn-
að formlega á sérstöku fjölmiðla-
þingi í haust. Hann segir ástæðu
þess að hafist sé handa nú að þegar
liggi fyrir ýmis verkefni sem brýnt
sé að hrinda af stað strax. Ráðstefn-
an verður væntanlega haldin í
tengslum við fjölmiðlaþingið.
Aðildarfélögin sex munu tilnefna
fulltrúa í undirbúningsstjórn sem
mun vinna að samstarfssamningi og
frekari undirbúningi að stofnun fjöl-
miðlasambandsins.
Siðanefnd Blaðamannafélags Islands
Stöð 2 var ekki
talin brotleg
Föstusöfnun
Caritas í dag
ÁRLEG fostusöfhun Caritas, líkn-
arfélags innan kaþólska safnaðar-
ins, fer fram á pálmasunnudag.
Því fé, sem safnast, verður varið
til styrktar hungruðum börnum í
heiminum. Caritas vinnur að þessu
verkefni í samstarfi við systursam-
tökin í öðrum Norðurlöndum. Að
þessu sinni verður peningunum var-
ið til að styrkja grunnskóla í Ví-
etnam.
Tekið verður við fjárframlögum í
öllum kaþólskum kirkjum. Einnig
má greiða inn á gíróreikning 0900-
196002.
--------------
Utandag-
skrárumræða
á morgun
JÓHANNA Sigurðardóttir, þing-
maður þingflokks jafnaðarmanna,
hefur óskað eftir utandagskrárum-
ræðum á Alþingi um kostnað
Landsbankans vegna kaupa á lax-
veiðileyfum.
Gert er ráð fyrir því að umræð-
umar fari fram í upphafi þingfund-
ar á mánudag og verður Finnur
Ingólfsson viðskiptaráðherra til
svara.
SIÐANEFND Blaðamannafélags
íslands hefur komist að þeirri niður-
stöðu að fréttastofa Stöðvar 2 og
Bylgjunnar hafi ekki brotið siðaregl-
ur félagsins í umfjöllun um kæru
fatafellu vegna meintrar líkamsárás-
ar á veitingastaðnum Vegas í nóvem-
ber og desember 1997.
Segir í áliti nefndarinnar að fag-
lega hafi verið staðið að umfjöllun
fréttastofunnar og það mat að van-
hæfi lögreglunnar í Reykjavík skuli
einkum hafa verið fréttnæmt í þessu
máli sé ekki óeðlilegt.
Haraldur Br. Böðvarsson lögmað-
ur kærði fréttir Stöðvar 2 af því að
fatafella á Vegas hygðist kæra Har-
ald, einn eigenda staðarins, fyrir lík-
amsárás til siðanefndarinnar 19. jan-
úar. Fyrst var greint frá málinu í
fréttatíma Stöðvar 2 24. nóvember og
var síðan fjallað um afdrif kærunnar
í Stöð 2 og á Bylgjunni næstu vikur.
Rauði þráðurinn í umfjölluninni var
umræða um vanhæfi lögreglustjóra-
embættisins í Reykjavík til að fjalla
um málið vegna þess að Haraldur
væri sonur lögreglustjóra.
Taldi Haraldur að fréttin hefði
ekki verið faglega unnin þar sem
málsaðilar hefðu ekki fengið sömu
möguleika til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri. Þá hafi frétta-
stofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar gert
sér óhóflegan mat úr fjölskyldu-
tengslum hans í fréttaflutningi af
málinu.
Ekki gengið á rétt
til andsvara
í umfjöllun siðanefndar er tekið í
veigamiklum atriðum undir sjónar-
mið hinna kærðu. Frásögn kæranda
og kærðu af vinnslu fréttarinnar beri
ekki saman, en ekki sé ágreiningur
um að Þór Jónsson, fréttamaður
Stöðvar 2, hafi náð tali af kærða og
boðið honum að tjá sig um málið.
Kærandi sagði að alltof stuttur frest-
ur hefði verið gefinn til að svara, en
kærðu hefðu gefið fullnægjandi út-
skýringar á því hvers vegna fréttin
hefði verið unnin eftir klukkan 17
umræddan dag. Kemst siðanefndin
að þeirri niðurstöðu að í reynd hafi
ekkert komið fram, sem sýni að Stöð
2 hafi gengið á rétt kæranda til and-
svara.
Haraldur kærði einnig að trúnað-
ur hefði veri rofinn þegar haft var
eftir honum án heimildar. Frétta-
maður Stöðvar 2 þrætir ekki fyrir
það að hafa samþykkt að vitna ekki í
Harald, en telur að það hafi ein-
göngu átt við um fréttaflutning 24.
nóvember. Siðanefndin segir að um-
mælin virðist ekki höfð eftir til að
sverta Harald. Þór hefði kannski átt
að viðhafa meiri gát í þessu efni, en
ekki væri ástæða til að efa að hann
hefði haft ummælin eftir Haraldi í
góðri trú.
Það er einnig niðurstaða siða-
nefndarinnar að ekki sé óeðlilegt að
þess hafi jafnan verið getið að Har-
aldur væri sonur lögreglustjórans í
Reykjavík þar sem vanhæfi embætt-
isins hafi verið ein helsta fréttin í
málinu nánast frá upphafi.
Niðurstaða siðanefndarinnar er að
Haukur Hólm, fréttamaður Stöðvar
2, Páll Magnússon, fréttastjóri
Stöðvar 2, og Þór Jónsson, frétta-
maður Stöðvar 2, hafi ekki brotið
ákvæði siðareglna Blaðamannafélags
íslands.
FERM1NGARTILB0Ð
ð 30% afslætti
4.880 kr.
Fullt verð 6.980 kr.
íslensk orðabók fyrir
skóla og skrifstofur er
1263 blaðsíðurog
nákvæmlega eins og nýjasta
útgáfa af íslenskri orðabók
Menningarsjóðs, en í
minna broti.
i
MállMlog mennlng
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúta 7 • Sími 510 2500