Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
6 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
Kom Islandi á
kortið í Kína
imv ■.
^7 baksvið
Fyrir skömmu lét Hjálmar W. Hannesson
af störfum sem sendiherra Islands í Kína
og tók þá við sem skrifstofustjóri Alþjóða-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins. Eftir-
maður hans í Peking er Olafur Egilsson.
I þessu viðtali við Niels Peter Arskog,
fréttaritara Morgunblaðsins í Kína, segir
Hjálmar frá því, sem á daga hans hefur
drifíð í Miðríkinu sl. þrjú ár.
ÓTT íslendingar séu meðal
fámennustu þjóða í heimi,
eru þeir samt sem áður
komnir á kortið hjá Kín-
verjum, fjölmennustu þjóðinni. Út-
flutningur á íslenskum sjávarafurð-
um til Kína hefur margfaldast á fá-
um árum og íslenskum listamönn-
um hefur verið tekið þar mjög vel.
Hefur þessi þróun aðallega átt sér
stað á síðustu þremur árum eða síð-
an íslenskt sendiráð var opnað í
Peking í janúar 1995. Sendiherra
Islands í þennan tíma hefur verið
Hjálmar W. Hannesson og hann
hefur vissulega ástæðu til að minn-
ast þessara þriggja ára með stolti,
nú þegar hann lætur af sendiherra-
starfínu og hverfur heim til íslands
ásamt konu sinni, Önnu Birgisdótt-
ur. Verður Hjálmar skrifstofustjóri
Alþjóðaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins en eftirmaður hans í Pek-
ing er Ólafur Egilsson og tók hann
við embættinu um síðustu mánaða-
mót.
íslendingar tóku upp stjórnmála-
samband við Alþýðulýðveldið Kína
árið 1971 en sendiráð var ekki opn-
að þar fyrr en næstum aldarfjórð-
ungi síðar. Þá hafði Hjálmar verið
sendiherra Islands í Þýskalandi en
sendiherrastaðan í Peking tók
einnig til Japans, Norður- og Suð-
ur-Kóreu, Víetnams, Tælands og
Indónesíu. Árið 1994 fluttu íslend-
ingar út til Kína fyrir 28 milljónir
króna en á síðasta ári var útflutn-
ingurinn kominn í 526 millj. kr. Fór
þar mest fyrir sjávarafurðum ýmiss
konar en einnig öðrum vörum eins
og tækjabúnaði, skinnum o.fl.
Koma Vigdísar greiddi götuna
„Það var mjög spennandi að
koma hingað í Miðríkið eins og Kín-
verjar kalla landið sitt og þetta hef-
ur verið mjög viðburðaríkur tími.
Það hjálpaði okkur líka mikið, að
Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi
forseti, skyldi koma hingað í heim-
sókn aðeins hálfu ári eftir að sendi-
ráðið var opnað en hún var hæst
sett þeirra, sem sátu kvennaráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í Pek-
ing. Vakti koma hennar mikla at-
hygli á íslandi og íslenskum málefn-
um og þess höfum við notið alla tíð
síðan. Islenskir ráðherrar, utanrík-
is-, fjármála- og heilbrigðisráðherr-
ann, hafa komið hingað og kínversk-
ir ráðherrar hafa farið til íslands, til
dæmis Qian Qichen, aðstoðarfor-
sætis- og utanríkisráðherra, og Li
Lanqing, aðstoðarforsætisráðherra
og varaforseti kínverska þingsins.
Þá er ótalinn fjöldi annarra,
kannski lægi'a settra manna en
mikilvægra þó.
Þessi auknu samskipti hafa átt
mikinn þátt í að auka viðskiptin og
það er alveg ljóst, að kínverski
markaðurinn á eftir að skipta okkur
Islendinga æ meira máli. Sem
stendur hallar mikið á okkur í við-
skiptum landanna því þótt útflutn-
ingur okkar til Kína hafi aukist mik-
ið, þá er hann aðeins þriðjungur
þess, sem við kaupum af þeim.
Við skulum átta okkur á því, að
Kínverjar gætu keypt næstum allar
okkar fiskafurðir en eitt af því, sem
nú er komið inn á kínverska mark-
aðinn og miklar vonir eru bundnar
við, er lýsið eða lýsishylkin. Þá eig-
um við líka mikla möguleika í um-
búðaframleiðslu, vistvænum papp-
írsumbúðum, en í Kína eru plastum-
búðir alls konar orðnar að alvarlegu
umhverfisvandamáli. Það er fyrir-
tækið Silfurtún, sem hefur rutt
brautina að þessu leyti, og það er
fyrsta íslenska fyrirtækið með
skrifstofu í Kína,“ segir Hjálmar.
Möguleikar í jarðhita
Hjálmar segir engan vafa leika á,
að Islendingar geti látið mikið til sín
taka í nýtingu jarðhitans í Kína en
þar eins og á Islandi er hann víða
mikill. Hann hefur hins vegar lítið
verið nýttur fram að þessu. Þá nefn-
ir hann einnig hugbúnað og há-
tækniiðnað.
Samhjálparblaðið
er komið út
Má bjóða þér
áskrift?
Áskriftarsímar
561 1000
561 0477
ERLENT
Morgunblaðið/Kong Qing Yan
MIKILL efnahagslegur uppgangur hefur verið í Kína á síðustu árum. Það lýsir sér meðal annars í því að Kín-
veijar hafa í ríkum mæli skipt úr reiðhjólum yfir í bifreiðar. í Peking hafa til dæmis verið skráðar 1,3 millj-
ónir nýrra bifreiða á síðustu árum.
HJÁLMAR W. Hannesson og Anna Birgisdóttir á svölum embættisbú-
staðarins í Peking. Hjálmar, sem var fyrsti sendiherra íslands í Kína,
er nú kominn heim til starfa í utanríkisráðuneytinu og hefur Ólafur
Egilsson tekið við stöðu hans í Kína.
Ekki fór hjá því, að nokkurn
skugga bæri á samskipti Islendinga
og Kína þegar íslenskir ráðamenn
tóku á móti háttsettum stjórnmála-
manni frá Tævan en þá var Hjálmar
réttur maður á réttum stað við að
útskýra afstöðu íslenskra stjórn-
valda. Kínverjar hafa líka kunnað
að meta þennan einlæga, hlátur-
milda en ákveðna mann og það, sem
hann hefur lagt af mörkum í sam-
skiptum ríkjanna.
„Þessi tími minn í Kína hefur ver-
ið mjög ánægjulegur og ég hefði
ekkert haft á móti því að vera hér
lengur þótt það sé líka gaman að
koma heim eftir níu ára útivist. Nú
skyldi þó enginn halda, að uppbygg-
ingin hér hafi mætt á einum manni,
heldur hafa margir lagt hönd á
plóginn. Konan mín, Anna, hefur
stutt mig á alla lund og þá ekki síð-
ur samstarfsfólkið í sendiráðinu,
sem hefur verið að smáfjölga. Fyrst
fengum við tvo kínverska starfs-
menn en annar þeirra, Song, er
raunar íslenskur ríkisborgari og
skilur íslensku. Síðan kom Baldur
Ragnarsson sendiráðsritari og þá
Petrína Bachmann sendiráðsfull-
trúi. Dóra Ásgeirsdóttir hefur nú
leyst hana af hólmi og auk þess hef-
ur bæst við nýr, kínverskur starfs-
maður.
Eitt af fyrstu verkum nýs sendi-
herra verður að flytja sendiráðið í
rýmra húsnæði en til að byrja með
var það bara á hótelinu þar sem við
bjuggum. Nú er það í einni glæsi-
legustu skrifstofubyggingu í Pek-
ing, Landmark, og aðstæður ágæt-
ar að undaskildum þrengslunum.
Úr því verður bætt með flutningi of-
an af 10. hæð niður á þá áttundu,"
segir Hjálmar.
Ekki fer mikið fyrir Islendingum
í kínverska mannhafínu en þar búa
nú um 20 íslendingar. Yfirleitt eru
fjórir eða fimm Islendingar við nám
í Kína, nokkrir fulltrúar íslenskra
fyrirtækja og síðan makar.
Menningarsamskipti
ofarlega á blaði
Eitt af þeim málum, sem Hjálmar
hefur látið sér mjög annt um, er
menningarsamskipti ríkjanna og
aukin, persónuleg kynni milli fólks í
löndunum. Segir hann, að heimsókn
Vigdísar hafi greitt mjög fyrir þess-
um samskiptum og minnir stoltur á
þær góðu viðtökur, sem óperan
„Tunglskinseyjan“ fékk er hún var
frumsýnd í Peking í íslenskri menn-
ingarviku.
„Unga fólkið í Kína kann svo ekki
síður en aðrir að meta hana Björk
en söngskemmtunin hennar í Pek-
ing hefði ekki komist á nema fyrir
það mikla starf, sem unnið var í
sendiráðinu. Hún tókst afburðavel
og það var gaman að vera þar
staddur innan um 10.000 Kínverja
þegar síminn hringdi allt í einu -
það var Reykjavík og ég gat lýst
viðburðinum beint í íslenska útvarp-
inu,“ segir Hjálmar og brosir. Hann
hefur einnig greitt fyrir sýningu
Listasafns Islands á 50 verkum ís-
lenskra listmálara en hún verður
fyrst sett upp í Hong Kong og síðan
í Peking í þessum mánuði. í nóvem-
ber nk. mun síðan jasssveitin j
Tamlasveitin taka þátt í jasshátíð í
Peking. Þau Hjálmar og Anna hafa
drukkið í sig kínverska menningu á
ferðum sínum um landið, frá Dalian
í norðri til Xiamen í suðri og
Urumqi í vestri.
„Kína er fallegt land og afar fjöl-
breytt að náttúrufari. Þar eru mikl-
ar menningarminjar, svæðið með-
fram Yangtze-fljóti, vagga kín-
verskrar menningar, gulu björgin í
Anhui, Kashgar í Xinjiang og keis-
aragi-afirnar í Xian, en þar á sér
líka stað ótrúlega hröð þróun. Okk-
ur Önnu finnst gaman að hjóla um
bæinn og þegar við komum hingað
fyrir þremur árum vorum við innan
um hestvagna, annað hjólreiðafólk
og dálítið af bflum. Nú sjást ekki
hestvagnarnir en bílunum hefur
fjölgað svo mikið, að það er varla
unnt að komast leiðar sinnar," segir
Hjálmar, sem fagnar því hve ís-
lensku ferðafólki í Kína hefur fjölg-
að mikið á síðustu árum.
Kína lætur engan ósnortinn
Hjálmai' segir, að Kínverjar og
ldnversk menning verði honum
ávallt nátengd og hann leggur
áherslu á, að ekkert taki fram per-
sónulegum kynnum við að auka á
skilning og vináttu þjóða í milli.
„Þeir, sem hingað koma með op-
inn huga, fara ekki héðan ósnortnir
og unga fólkið er einlægt og áhuga-
samt. Það mun skila sér i efnahags-
legri og lýðræðislegri uppbyggingu
landsins," segir Hjálmar en þótt þau
Anna hafi komið víða í Kína er þar
margt, sem þau eiga eftir að sjá.
„Við hefðum gjarna viljað koma til
Tíbets en til þess gafst ekki tæki-
færi. Við eigum það kannsld eftir
sem venjulegii' ferðamenn og ég
vona, að beinar flugsamgöngur milli
íslands og Kína komist á innan ekki
allt of langs tíma,“ sagði Hjálmai- að
lokum.
Mótmæla
umbótum
FRANSKUR bóndi hvílir lúin bein
fyrir framan nautgripi sína, sem
hann hafði með sér inn í bæinn
Rodez í S-Frakklandi til að taka
þátt í mótmælum bænda gegn
þeim hugmyndum sem nú eru
uppi um breytingar á styrkjakerfí
landbúnaðarins í Evrópusamband-
inu, ESB. Framkvæmdastjórn
ESB lagði fram í liðinni viku til-
Iögur að uppstokkun á hinni sam-
eiginlegu landbúnaðarstefnu ESB
og á byggðasjóðakerfi sambands-
ins, sem þykir nauðsynleg vegna
fyrirhugaðrar stækkunar ESB til
austurs og vegna þróunar í heims-
viðskiptum.
Reuters