Morgunblaðið - 05.04.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. AJPRÍL 1998 11
STEINÞÓR skoðar ætíhvannafræ.
sýklahemjandi efni.
Lögð var áhersla á að rannsaka
efni sem sýna virkni í einföldum,
ódýrum skimprófum. Tegundirnar
sem safnað var og virkniprófaðar
voru bertálkni, brennihvelja, egg-
hylki beitukóngs, hrúðurkarlar,
krossfiskur, marflær og svampur.
Þrjár tegundir af þessum sjö,
svampur, bertálkni, sem er kuð-
ungslaus sæsnigill, og krossfiskur,
sýndu markverða virkni sem er
margfalt hærra hlutfall en sást í
rannsókninni á íslenskum lækn-
ingajurtum, eða 43%.
að halda þessum rannsóknum
áfram næstu þrjú árin. A þeim
tíma ætti vöruþróun að vera kom-
in svo langt á veg að hægt yrði að
setja á markað heilsubótarefni úr
íslenskum lækningajurtum.
Hann segir að haldið verði
áfram að vinna með þær jurtir
sem byrjað var á en áhugi sé á að
skoða fleiri jurtir.
Það vakti athygli blaðamanns
að rannsóknarfólkið talar um ís-
lenskar lækningajurtir og sagði
Sigmundur að þær jurtir sem ver-
ið væri að rannsaka, svo sem æti-
hvönn, geithvönn, litunarmosi og
fleiri, hafa verið notaðar til lækn-
inga hér á landi í gegnum aldim-
ar, sumar allt frá landnámi. A ár-
um áður hafi notkun þeirra verið
hin hefðbundna lækningaraðferð.
Að vísu hefur lúpínan ekki hefð
sem lækningajurt hér á landi.
Ekki hægt að kalla þetta
allt skottulækningar
„Mér er kunnugt um að notkun
þessara jurta í lækninga- eða
heilsubótarskyni hafi verið kölluð
skottulækningar,“ sagði Sigmund-
ur, „og sumir hverjir hafa ekki
verið sérstaklega áfjáðir í að taka
þátt í svona rannsóknum. Engu að
síður er þetta forvitnilegt og svo
vill til að mörg stór lyfjafyrirtæki
eru í leit að slíkum efnum úti um
allan heim, einkum og sér í lagi í
heitari heimshlutum svo sem Suð-
ur-Ameríku, Afríku og víðar, og
hafa samráð við heimamenn sem
nota þau. Það er ekki hægt að
kalla þetta allt skottulækningar
þótt um sé að ræða gamlar aðferð-
ir til að fá meina sinna bót. Menn
em að átta sig á því að náttúran
hefur verið að leysa ýmis vanda-
mál síðustu árþúsundin og að líf-
verarnar hafa háð sína lífsbaráttu
með aðstoð efnavopna sem þær
hafa yfir að ráða.“
Ahugaverðar h'fverur
í sjó og á landi
„Rannsóknirnar á sjávarfangi
era styttra á veg komnar, en þó
vitum við að lífverurnar hér við
land hafa ekki síður yfir að ráða
áhugaverðum efnum en lífverar í
suðlægari höfum,“ sagði Sigmund-
ur. „En fyrst verður aðaláhersla
lögð á jurtimar. Þær er hægt að
rækta og auðveldara er að rann-
saka þær. Þó er ljóst að finna þarf
leiðir til að kanna sjávarlífverar
nánar og jafnvel rækta þær því
enginn vafi leikur á því að bæði á
sjó og landi era áhugaverðar líf-
verur sem hægt er að nýta.“
Orlofskonur
í Gullbringu- og Kjósarsýslu
þ.e. Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi, Reykjanesi o.s.frv.
Áætlaðar ferðir 1998; Vestmannaeyjar 22.-24. maí
Hvanneyri
París
Minneapolis
og London
Bókið ykkur sem fyrst hjá Valgerði Báru síma 565 8596.
13.-19. júní
15.-18. október
12.-16. nóvember
4.-8. desember.
Aðstæður á Islandi
henta vel til rannsókna
Fyrstu skref hafa verið stigin í
einangran virkra efna úr algengri
svampategund hér við land. Nið-
urstöðurnar teljast mjög merki-
legar þar sem svampar á norður-
slóðum hafa hingað til sýnt mjög
litla virkni í prófum ólíkt ættingj-
um í suðurhöfum sem hafa gefið af
sér fjölmörg áhugaverð virk efni.
Sýni unnin úr bertálkna sýndu
talsverða virkni, en erfitt er að
tegundagreina hann og að útvega
nægilegt magn. Framathuganir
vora gerðar á einni skepnu. Rann-
sóknir benda til að fleiri en eitt
virkt efni sé til staðar í bertálkna
og í honum er talið að sé að finna
mjög áhugaverð efni sem vert
væri að rannsaka frekar.
Farið var lengst með einangrun
á virkum efnum úr krossfiski og
fékkst mikil virkni úr tveimur sýn-
um. Gerð var tilraun til að ein-
angra eitt efni og munaði einungis
hársbreidd að það tækist. Rann-
sóknimar á krossfiski era einmitt
taldar gott dæmi um hve íslenskar
aðstæður henta vel fyrir rann-
sóknir sem þessar. Hér við land
fara rannsóknarskip út oft á ári og
koma í land með fjölda tegunda
sem gagnlegt væri að skima í ein-
földu prófi eins og notað var í
rannsóknunum.
Stefnt að markaðs-
setningu eftir þijú ár
Sigmundur Guðbjarnason pró-
fessor segir að nú sé gert ráð fyrir
5 d y r a 2.0 i ______________
12 8 h e s t ö f l
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður
■Ln.nlf.alii...í.v.fi.r.ði.Ml.$.ins.
■S 2.01 4 strokka 16 ventla léttmálmsvél
v' Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
v' Rafdrifnar rúður og speglar
v' ABS bremsukerfi
v' Veghæð: 20,5 cm
v' Fjórhjóladrif
v' 15" dekk
v' Samlæsingar
v' Ryðvörn og skráning
✓ Útvarp og segulband
v' Hjólhaf: 2.62 m
y Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m
Verð á qötuna: 2.285.000 með ABS
Sjálfskipting kostar 80.000,-
(H)
HONDA
Sfml: 520 1100
Munið Skátaskeytin í síma 5621390