Morgunblaðið - 05.04.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 17
Námskeið um Þorlákstíðir
og menningarheim miðalda
orgunblaðið/Ásdís
GRETA Guðnadóttir fiðluleikari og Valgerður Andrésdóttir píanóleikari
flylja íslenskar fiðlutónsmíðar á tónleikum í Norræna húsinu í dag kl. 17.
íslensk fíðlutonlist
ÍSLENSK fiðlutónlist verður í há-
vegum höfð á tónleikum Gretu
Guðnadóttur fiðluleikara og Val-
gerðar Andrésdóttur píanóleikara í
Norræna húsinu í dag, sunnudag-
inn 5. apríl, kl. 17.
Verk á efnisskrá spanna sögu ís-
lenskra fiðlutónverka til ársins
1991. Leikin verða verk eftir Svein-
bjöm Sveinbjörnsson, Sigfus Ein-
arsson, Hallgrím Helgason, Jón
Leifs, Arna Bjömsson og Hafliða
Hallgrímsson. Greta Guðnadóttir
lauk doktorsnámi í fiðluleik frá
Fylkisháskólanum í Flórída árið
1995. Lokaritgerð hennar fjallaði
um íslenskar fiðlutónsmíðar og
þegar Greta fór að kynna sér þess-
ar tónsmíðar ofan í kjölinn rakst
hún á margar perlur sem lítið sem
ekkert hafa verið leikin. „Hluti
lokaprófsins fólst í tónleikum þar
sem ég flutti mörg þessara verka
og ég hef lengi ætlað mér að spila
þau h'ka hér heima,“ segir Greta.
„Mörg þessara verka em afskap-
lega bitastæð og lýsa vel breiddinni
í tónsmíðum hér á landi. Það er
Ellefti fyrir-
lestur „Lax-
nessársins“
ELLEFTI fyrirlesturinn um Hall-
dór Laxness og verk hans á vegum
Laxnessklúbbsins og Vöku-Helga-
fells verður fluttur í Norræna hús-
inu næstkomandi þriðjudag, 7. apr-
íl, og hefst kl. 17.15. Þar ræðir
Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi
um kynni sín af Halldóri Laxness,
orðfæri skáldsins, ritstörf og
vinnubrögð. Samkoman er öllum
opin og aðgangur ókeypis.
I fyrirlestri sínum, sem Ólafur
nefnir „Skrafað við skáld“, mun
hann vitna í samtöl sín við Halldór
Laxness gegnum tíðina og jafn-
framt ýmsar áður óbirtar heimildir
frá ferli skáldsins svo sem „nótis-
subækur“ hans og bréf, sem í leyn-
ast fróðlegar upplýsingar, „upp-
teikningar" bóka hans og kvæði
sem ekki hafa enn komið á prent.
Ólafur Ragnarsson tók við sem
„forleggjari“ Nóbelsskáldsins árið
1985. Auk þess að annast útgáfu
verka skáldsins hjá Vöku-Helga-
felli hefur Ólafur farið með höfund-
arréttarmál Halldórs og samninga-
gerð gagnvart innlendum og er-
lendum aðilum. Þá má geta þess að
Ólafur skrifaði innganga og skýr-
ingar með úrvali greina og ritgerða
Halldórs frá þriðja tugi aldarinnar
í bókinni Af menníngarástandi og
tók saman bókina Lífsmyndir
skálds ásamt Valgerði Benedikts-
dóttur, en þar er fjallað um ævi og
feril Halldórs Laxness.
gaman að fá tækifæri til að láta
þessi verk hljóma og sum hver leik
ég eftir handriti því þau hafa ekki
verið gefin út á nótum þó full
ástæða sé til þess.“
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 7. apríl
nk. hefst á vegum Endui-menntun-
arstofnunar Háskóla Islands og
Listahátíðar 1998 námskeið um
menningu miðalda á íslandi og
Þorlákstíðir. Tilefni námskeiðsins
er að á Listahátíð í vor verða Þor-
lákstíðir fluttar í fyrsta sinn í heild
hér á landi eftir siðaskipti. Þær eru
taldar vera frá fjórtándu öld og
skipuðu veglegan sess í helgihaldi
til vegsömunar Þorláki Þórhalls-
syni (1133-1193) á messudögum
hans.
A námskeiðinu sem haldið er
einu sinni í viku fram til 19. maí,
verður fjallað um þann framand-
lega menningarheim sem Þorláks-
tíðir eru sprottnar úr.
I fyrirlestri Torfa Tulinius dós-
ents verður spurt hvort kirkjan
hafi verið móðir lista á miðöldum,
en myndlist, tónlist, ritlist og leik-
list þroskuðust mjög á miðöldum,
einkum á 12. öld og síðar. Þessari
þróun verður lýst og hún verður
sett í víðara samhengi þjóðfélags-
þróunai- á þessu skeiði með áherslu
á að sýna og útskýra þátt kirkjunn-
ar í að efla allar þessar listgreinar.
í upphafi fyrirlestra Ásdísar
Egilsdóttur dósents verður gerð
grein fyrir helgum mönnum eða
dýrlingum, helgum dómum og jar-
teinum. Fyrsti íslendingurinn sem
tekinn var í tölu helgra manna var
Þorlákur Þórhallsson Skálholts-
biskup (1133-1193). Dýrkun hans
hafði í för með sér ritun á sögu
hans og jarteinum, bæði á latínu og
á móðurmálinu. Einnig voru ritað-
ar sögur forvera hans á biskups-
stóli og eftirmanns hans. Um þess-
ar sögur verður fjallað og þær út-
skýrðar í ljósi helgisagnahefðar og
kenninga miðalda um persónuleik-
ann.
Þær jarteinasögur sem lesnar
verða gefa innsýn í daglegt líf
manna á miðöldum og samband
dýrlings og manna. Þegar Þorlákur
var tekinn í tölu helgra manna var
leyft að syngja honum tíðir andláts-
dag hans. Ekkert er vitað um þann
tíðasöng en þær Þorlákstíðir sem
nú verða fluttar voru settar saman á
14. öld. Ekki er vitað hver þar hefur
verið að verki en tveir lærdóms-
menn 14. aldar hafa verið taldir lík-
legir, þeir Jón Halldórsson Skál-
holtsbiskup og Amgrímur Brands-
son, ábóti í Þingeyraklaustri. Sagt
verður frá ævi þeirra og verkum, en
þar er um að ræða bæði þýðingar
og frumsamin rit.
Sverrir Guðjónsson og meðlimir
Kanúkaflokksins Voces Thules
munu undirbúa þátttakendur undir
að hlýða á æfingu og loks flutning
Voces Thules á Þorlákstíðum og að
síðustu verður skoðað í sameiningu
handrit þeirra í Árnastofnun.
Skráning og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Endurmenntunar-
stofnunar Háskóla Islands.
Mörkinni 3 • simi 588 0640
E-mail: casa@islandia.is •www.cassina.it
• www.roset.de • www.zanofta.it
• www.artemide.com • www.flos.it
• www.ritzenhoff.de •www.alessi.it
• www.kartell.it • www.fiam.it
• www.fontanaarte.it
Reykj avílairborg
Borgarverkfrœdingur
Styrkir til hljóðeinangrunar
íbúðarhúsa við umferðargötur
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til úrbóta á hljóðeinangrun íbúðarhúsa við umferðargötur í Reykjavík.
Úrbætur miðast fyrst og fremst við endurbætur á gluggum húsahliða sem snúa að götu.
íbúðir, þar sem umferðarhávaði er mestur, hafa forgang.
Umsóknum um styrki til framhvæmda skal skilað til skrifstofu borgarverkfræðingsins í Reykjavík,
Skúlatúni 2, 3. hæð, fyrir 5. maí nk. Þar liggja frammi umsóknareyðublöð og reglur styrkveitingar.
Þeim, sem koma til álita við styrkveitingu, verður veitt ráðgjöf um framkvæmdir.
Þeir sem áður hafa lagt inn umsókn þurfa ekki að sækja um aftur.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
„ V.-
/ ^
V w
V
\ £
%
*;
i;
«*
ÍD
Umferðardeild Borgarverkfræðings
Skúmún 2. Simi S63-2620 Fu 562-4339
Reiknað hljóðstig við húsvegg 1996
■ 71.1-75 dB[A]
■ 68.1-71 dB[A]
■ 65.1-68 dB[A]
62.1-65 dB[A]
I
I
4
UKH