Morgunblaðið - 05.04.1998, Side 23
MORGUNB LAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 23
fyrir neytandann, en reynist samt
mörgum auðveldasti hjallinn. Þján-
ing er ekki óyfirstíganleg, en um-
bylting á lífinu virðist sumum um
megn.“
fslendingar velkomnir
Starf eins og í San Patrignano er
ekki bundið við Ítalíu eina. „Við
höfum fengið gesti víða að, sem
hafa dvalið hjá okkur um hríð og
farið svo heim til að koma sams
konar starfsemi á laggirnar þar.
Við erum ávallt reiðubúin til að
hjálpa öllum sem vilja fara sömu
leið og við, eins og heimsókn mín til
Islands ber vitni um. Við_ myndum
svo sannarlega taka við íslending-
um, sem vilja fræðast um starfið.
íslendingar gætu myndað vinnu-
hóp, sem kynnti sér aðferðafræð-
ina sem við störfum eftir, til að
beita henni hér á landi. Það kemur
líka til greina að taka við íslenskum
fíkniefnaneytendum, sem hafa ein-
lægan vilja til að breyta lífi sínu.“
Hér myndi sjálfsagt seint rísa
heilt þorp fíkniefnaneytenda, enda
þeir til allrar hamingju ekki nógu
margir til að slíkt kæmi til greina.
„Stærðin skiptir ekki nokkru
máli,“ segir Andrea. „Þessari að-
ferðafræði er hægt að beita hvar
sem er. Þið gætuð komið upp
svona úrræði fyrir 100 manns og ef
til vill boðið þeim upp á 10 mis-
munandi störf að velja um. Skiln-
ingur virðist vera að aukast á ís-
landi á nauðsyn þess að bjóða upp
á langtímameðferð, en tíminn
skiptir ekki eingöngu máli, heldur
ekki síst hvernig honum er varið.
Ég hef rætt við fjölda íslendinga
og þeir hafa allir áhyggjur af vax-
andi fíkniefnaneyslu. Þess vegna
þurfið þið að koma upp meðferðar-
úrræði, sem skilar varanlegum ár-
angri.“
Tvö þúsund ár í fangelsi
Algengt er að fíkniefnaneytend-
ur sem leita til San Patrignano hafi
hlotið dóma vegna afbrota. Um 450
núverandi íbúar San Patrignano
komu úr fangelsum, þar sem þeir
voru að afplána dóma fyrir afbrot
tengd fíkniefnaneyslunni. Algeng-
ust slíkra afbrota eru þjófnaðir,
rán, verslun með stolna muni og
fíkniefnasala. „Ef við leggjum sam-
an þann árafjölda dóma, sem íbúar
San Patrignano í gegnum tíðina
hafa fengið, þá eru það samanlagt
um tvö þúsund ár,“ segir Andrea.
„Tvö þúsund ár í fangelsi kosta rík-
ið háar fjárhæðir. Þetta er auðvitað
spurning um að eyða peningunum
skynsamlega, til dæmis í meðferð-
arstofnanir sem skila árangri, í
stað þess að loka menn inni þar
sem þeir fá enga endurhæfmgu."
Stundum hafa menn komið úr
fangelsi til San Patrignano, án þess
að ætla sér í raun að taka á vandan-
um. „Ef við leggjum okkur fram, þá
verður fanginn líka að gera það. Ef
ég sé að hann er hjá okkur eingöngu
til losna úr fangelsi, þá sendi ég
hann þangað aftur og hleypi ein-
hveijum öðrum að.“
Vísir að San Patrignano á
Torfastöðum
A meðan á dvöl Andrea hér á
landi stóð kynnti hann sér ýmis
meðferðarúrræði. „Ég hef séð
ýmsar og ólíkar lausnir. A Vogi er
byggt á aðferðum læknisfræðinnar
og þar er í raun um sjúkrahús að
ræða. Ég hef líka séð meðferð, sem
byggist meira á endurmenntum og
mannlegum samböndum. Mér
fannst sérstaklega vænt um að
koma á Torfastaði fyrir utan Sel-
foss, þar sem Drífa Kristjánsdóttir
og Olafur Einarsson reka heimili
fýrir unglinga í vanda. Þau eru hlý,
veita unglingunum ástúð og leggja
gi*einilega áherslu á að þeh* séu
hluti af fjölskyldunni. Á Torfastöð-
um fannst mér eins og ég væri
kominn heim til San Patrignano.
Þar höfum við sýnt fram á, að sama
aðferð gagnast alveg eins vel fyi-ir
fullorðna neytendur. Þetta er bara
spurning um mannleg samskipti.
Áherslurnar eru auðvitað misjafn-
ar eftir aldurshópum, en grunnur-
inn sá sami. Heimili eins og Torfa-
staðir gæti orðið grundvöllur að
litlu San Patrignano á Islandi,"
segir Andrea Muccioli.
Panasonic
KX-T9300NW
Þráöiaus sími
1 línu skjár
Neyðamúmer
10 númera minni
3.5 klst taltími
36 klst biðtími
Draegni 400 m. o.m.fl.
ERICSSON 628
ÞyngcJ:210g
Biötími: 96 klst
Taltími: 5 klst. JjH
Símaskrá
F kntir eftir nöfnum eöa HhhS
l UD-20CX) |.
Sími með
símnúmerabirtí
Fle'ttimöguleikar V
með nafni o.fl.
Frábær sími -fyrir
heimili og smærri Jtm
■fyrirtæki
Pönfunar- og
þjónustunámer fyrir landsbyggðiua
S. 568-8690
Greiðslukjör við allra hæfi
erum
- A N N O 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeöja í Evrópu
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR
1 e - 0 ö ií
1 íiD <S
1 «• (v jSV
T’ & {<>
: ^
Æ -
Hönnun:IPS