Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 29
Þá fengum við hingað Þjóð-
verja til að kenna okkur að búa
til gróf brauð. Áður höfðu að-
eins verið til franksbrauð, heil-
hveitibrauð, rúgbrauð og
normalbrauð
„Frá því bakaríið var stofnað
hefur farið þar fram stöðug vöru-
þróun,“ segir Sigþór. „Til að auka
þekkinguna og til að fylgjast með
nýjungum höfum við sótt nám-
skeið erlendis. Við sækjum
stærstu vörusýningarnar sem
bakarar bjóða upp á. Til okkar
koma erlendir bakarar frá ýmsum
löndum eins og Hollandi, Þýska-
landi og Danmörku til að kynna
okkur hvað þeir eru að gera.
Að undanförnu hefur Kassagerð
Reykjavíkur verið að þróa fyrir
okkur umbúðir sem henta vöram
okkar. Þetta era bréfpokar og
pappaöskjur utan um tertur og
sérstakar umbúðir utan um fersk-
metið okkar. Allt eru þetta vist-
vænar umbúðir. Ennþá vill þó fólk
frekar fá brauðin sín í plastpoka
þrátt fyrir að bréfpokarnir haldi
brauðmetinu lengur fersku.
Það er athyglisvert hve starfs-
fólk Bakarameistarans er snyrti-
legt og kurteist. Það býður góðan
daginn og óskar viðskiptavininum
góðrar helgar. „I gegnum árin
höfum við lagt metnað okkar í að
þjálfa vel okkar starfsfólk. Við
leggjum á það áherslu að það sé
snyi-tilegt og kurteist,“ segja þeir.
„Við viljum líka koma til móts við
okkar fólk með því að skapa því
góða aðstöðu. Við vinnum nú að
því að setja upp líkamsræktarað-
stöðu í kjallaranum hjá okkur með
líkamsræktartækjum, sturtu,
gufubaði og ljósabekk. Teljum við
að með þessu verði starfsfólkið
ánægðara og við getum haldið því
lengur í okkar þjónustu.“
„Við styðjumst einnig við
ströngustu reglur um hreinlæti,"
segir Vigfús. „Við fylgjum ná-
kvæmum reglum um hitastig hrá-
efnisins og að geymsluaðferðir séu
fullnægjandi. Einnig höfum við
ákveðnar reglur um klæðnað og
þrifnað starfsfólks.
Samhliða þessari endurskipu-
lagningu höfum við tekið í notkun
fullkomið tölvukerfi sem sam-
anstendur af kassakerfi, birgða-
bókhaldi auk þess sem það heldur
utan um magntölur í framleiðslu
og sölu,“ heldur Vigfús áfram.
„Með þessu nýja tölvukerfi höfum
við miklu betri yfirsýn yfir rekst-
urinn og getum stýrt framleiðsl-
unni betur. Við getum meðal ann-
ars lesið út úr kerfinu hverjar era
álagsstundimar, hvað selst mest
og hvenær og þannig stjórnað
framleiðslunni betur og gert áætl-
anir fram í tímann.“
Allt hefur gengið upp
„Jú, þessar framkvæmdir hafa
verið gífurlega kostnaðarsamar,“
segja þeir aðspurðir, „en á móti
kemur að hagræðing hefur aukist
og afkastagetan margfaldast. Frá
því endurskipulagningin hófst hef-
ur velta fyrirtækisins tvöfaldast.
Þegar við hófum breytingarnar
árið 1994 var velta fyrirtækisins
áttatíu milljónir. I lok síðasta árs
var veltan eitt hundrað fimmtíu og
tvær milljónir og er áætluð þetta
árið eitt hundrað áttatíu og átta
milljónir miðað við fyrstu þrjá
mánuði ársins.“
- Þið eruð vel í sveit settir hérna
við Kringlumýrarbrautina hefur
það ekki líka sitt að segja um vel-
gengnina?
„Það er rétt að við njótum góðs
af staðsetningunni", segir Sigþór.
„Ég held þó að hún skipti ekki
eins miklu máli og við héldum.
Sjáum við það best á því að eftir
að við tókum við bakaríinu í
Mjóddinni margfölduðum við söl-
una á einu ári. Ég vil halda því
fram að þetta sé fyrst og fremst
að þakka góðri vöra. Framstilling
vörunnar hefur einnig sitt að
segja en við gjörbreyttum innvið-
um verslunarinnar til samræmis
við það sem er í Suðurveri og juk-
um fjölbreytnina.“
- Hvernig standið þið ykkur í
verðsamanburði við önnur bakarí?
„Miðað við önnur handverks-
bakarí held ég að verð hjá okkur
sé ósköp svipað og þeirra,“ segir
Sigþór. „Ef tekið er tillit til gæða
og þjónustu ættum við í rauninni
að vera dýrari. Við notum alltaf
bestu hráefnin sem völ er á
hverju sinni. Við notum til dæmis
alltaf ekta súkkulaði, rjóma,
smjör, egg svo dæmi séu tekin.
Hjá okkur þarf viðskiptavinurinn
heldur ekki að afgreiða sig sjálfur
heldur fær þjónustuna við búðar-
borðið."
Sala á afurðum Bakarameistar-
ans fer einkum fram í bakaríun-
um tveim í Suðurveri og Mjódd.
Bakarameistarinn þjónustar
einnig ýmis veitingahús, hótel og
sjúkrahús. Er hér einkum um að
ræða brauð og hraðfrysta smá-
vöru eins og rúnnstykki og sér-
bökuð vínarbrauð sem eru bökuð
hjá kaupendunum. Segir Vigfús
að þetta sé ört vaxandi þáttur inn-
an fyrirtæksins.
Bakarameistarinn er einnig
með veisluþjónustu og geta við-
skiptavinirnir sérpantað tertur af
ýmsum stærðum og gerðum fyrir
afmæli, fermingar eða önnur
tækifæri.
„Daglega bjóðum við upp á fjöl-
breytt úrval af tertum sem fólk
getur keypt fyrirvaralaust án
þess að hafa pantað þær fyrir-
fram,“ segir Vigfús. „Við erum
auk þess með fjölbreytt úi-val af
alls kyns meðlæti eins og vínar-
brauðum, ávaxtakökum og kleinu-
hringjum svo dæmi séu tekin.
Ekki má gleyma konfektstykkj-
unum sem notuð eru við sérstök
tækifæri. Kökugerðarmeistarinn
okkar er sífellt að þróa nýjungar í
kökum og konfekti."
- Hvernig ætli þau sjái framtíð-
ina fyrir sér?
„Endurskipulagning fyrirtæk-
isins hefur farið fram skref fyrir
skref. Fyrirtækið hefur gengið
mjög vel í tuttugu ár og vildum
við ekki flana að neinu. Það gleði-
lega við þetta er að breytingarnar
hafa tekist mjög vel. Þær svín-
virka,“ segir Sigþór sposkur.
„Einnig hafa allar tölulegar áætl-
anir staðist. Við lítum því björtum
augum til framtíðarinnar. Fram-
leiðslugetan er nú mun meiri en
við nýtum og getum við þrefaldað
afköstin. Eins og málum er háttað
nú leggjum við áherslu á að þjón-
usta verslanir okkar áður en við
föram að hugsa um aðra markaði.
Möguleikinn til að bæta við okkur
er fyrir hendi og við erum opin
fyrir góðum hugmyndum."