Morgunblaðið - 05.04.1998, Page 32

Morgunblaðið - 05.04.1998, Page 32
32 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ Á LANDSPÍTAL- INN ENGA VINI? í BYRJUN tíunda áratugarins var ástand ríkisfjármála slæmt vegna langvarandi áherslu stjórn- málamanna á útgjöld úr banka- og sjóðakerfinu til óarðbærra „at- k vinnuskapandi“ verkefna. Er þá ? ekki átt við heilbrigðis- eða menntamál. Vegna skuldastöðu ríkissjóðs var hafinn niðurskurður á starfsemi Landspítalans og ann- arra sérhæfðra sjúkrastofnana með uppsögnum starfsfólks og öðr- um tilfæringum sem hugsaðar voru til spamaðar og hagræðingar. Endalaust talað um kostnað en lítið um tekjur eða ávinning af starf- semi sjúkrahússins. Síðan hafa fjárveitingar ekki staðið undir kostnaði við rekstur Landspítal- ans, og „fortíðarskuld" og vextir hafa hrannast upp. Á sama tíma eru milljarðaskuldir afskrifaðar í banka- og sjóðakerfinu og birtir eru ársreikningar sem virðast sýna hagnað. Bakari er hengdur fyrir smið. Niðurskurður (kallaður „sparnaður") heldur áfram hvert einasta ár á Landspítala. Á Land- spítalanum fæst ekkert afskrifað hjá stjómmálamönnunum, sem stundum tala um byggingu bama- spítala, þótt ekki úthluti þeir fé til þess að sinna bráðveiku fólki sem skyldi í því húsnæði sem fyrir er eða til þess að standa við gerða kjarasamninga. Vegna skorts á rekstrarfé er starfsfólki fækkað og ekki opnuð legudeildarrými fýrir bráðveika. Þess vegna liggja margir sjúkling- ar í rúmum á göngum sjúkrahúss- ins og nýlegt dæmi er um það að sjúklingur hafi dáið undir þeim kringumstæðum, hvort tveggja er til skammar og minnir á stríðstíma. Lýsandi dæmi á ástandinu er, að gömul kona spurði um daginn hvort hún mætti fá að vera degi lengur ef hún borðaði ekki neitt. Og þrátt fyrir ófullnægjandi að- stöðu nú í byrjun árs 1998, stendur enn einu sinni til að „spara“ í sam- ræmi við nýsamþykkt fjárlög. Landspítalanum er af fjárveitinga- valdinu gert að skera niður kostn- að um 5-6% eða um u.þ.b. 500 millj- ónir króna á ársgrundvelli. Þing- skipuð stjómarnefnd Landspítal- ans hefur í framhaldi af fyrirmæl- um þingsins sett fram tillögur um „sparnað" á öllum sviðum, því fjár- veitingamar standa ekki undir nú- verandi þjónustu. Framkvæmda- stjórn sjúkrahússins er sett í vonlausa stöðu, en neyðist til þess að gera tillögur: Fækka verður kransæðamyndatök- um, en þær em gerðar á fólki sem læknar telja vera hætt við kransæðastíflu. Fresta verður að opna líknar- deild fyrir dauðvona krabbameinssjúka Is- lendinga, sem búa við óþolandi aðstæður á Landspítalanum (jafn- vel fjórir á sömu sjúkrastofu). Ein- göngu verða gerðar bráðaaðgerðir á föstudögum og svo mætti lengi telja. Niðurskurðurinn hefur slæm áhrif á móral starfs- fólksins. Sumir hugsa sér til hreyf- ings af því að nú bjóðast önnur tækifæri fyrir erlent áhættufé hjá óskabarni sem nefnist Islensk erfðagreining hf. og hefur engan læknað enn sem komið er. Það sérkennilega við áframhald- andi niðurskurð er, að lýst hefur verið yfir góðæri opinberlega af æðstu mönnum fyrir rúmlega ári. Staða ríkissjóðs hefur batnað stór- lega og hann skilar nú rekstraraf- gangi. Það liggur jafnframt fyrir að heildarkostnaður íslenskrar sjúkraþjónustu hefur lækkað síðan 1988, sem mun vera einstæður ár- angur á Vesturlöndum og kostnað- urinn er ekki hár í vestrænum samanburði. En Landspítalinn er áfram meðhöndlaður eins og oln- bogabarn og ómagi. Er því von að spurt sé hvort Landspítalinn og bráðveikt fólk eigi enga vini í áhrifastöðum? Mikilvægi sérhæfingarinnar Sjúkrahúsin tvö í Reykjavík (og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri að einhverju leyti) hafa sérstöðu í íslenskri læknisfræði. Sérstaðan er fólgin í því að þau eru endastöðvar í leit sjúkra Islendinga að lækn- ingu margra alvarlegra sjúkdóma. Þau byggjast á sífellt flóknari og sérhæfðari þekkingu. Að sjálf- sögðu er eðlilegt að leitast við að hafa umfang sjúkrahúsa sem minnst, m.a. með því að reyna að vinna þau verk sem ekki þarfnast innlagnar á göngudeildum eða á sjálfstæðum stofum eftir eðli sjúk- dómanna og meðferðarinnar. Mikið hagræði er fólgið í sjálfstæðum smáum rekstri án yfirbyggingar þar sem honum verður við komið. En, inni á sjúkrahúsum og á göngudeildum eru og verða sífellt veikari sjúklingar sem þarfnast mjög sérhæfðrar og flókinnar þjónustu (hjartaskurðaðgerðir, nýmaskilun, alvarlegar sýkingar, krabbameinsmeðferð, erfiðar barnsfæðingar o.s.frv.). Þessi þjón- usta er í eðli sínu dýr og byggist á áralangri sérhæfðri þjálfun og samstarfi margra sérgreina. Hún þarf fjárhagslegan stöðugleika. Sérhæfð sjúkrahús eru og verða fyrst og fremst þrjú á Islandi á næstu árum. Önnur starfsemi er miklu einfaldari. Veikleiki Landspítalans í samanburði við önnur sjúkrahús Faglegur samanburður og sam- keppni milli sjúkrahúsanna þriggja er af hinu góða, að áliti undiiritaðs. Samkeppnin flýtir fyrir nýjungum og liðkar fyrir sjúkraþjónustu, sem er landsmönnum í hag. En Land- spítalinn líður fyrir stjómkerfi sitt. Landspítalinn er nefnilega sérstak- lega berskjaldaður fyrir niðurskurði stjómmálamanna umfram aðrar sjúkrastofnanir. Stjómmálamenn eru ágætisfólk upp til hópa, en þeir eru samt sams konar menn og við hin. Stjómmálamenn em kosnir af héraðsbúum eða borgarbúum á þing eða í sveitarstjómir. Til þess að ná endurkjöri verða þeir að vemda hagsmuni kjósenda sinna og þar með héraðstengdar sjúkrastofnanir. Öll sjúkrahús á Islandi nema Land- spítalinn tengjast hér- aðsstjómum eða ákveðnum kjördæmum og njóta því áhrifa kjör- inna fulltrúa, sem gæta fjárhagslegra hagsmuna viðkomandi sjúkrahúsa í ljósi persónulegrar póli- tískrar framtíðar sinnar. Þar sem enginn stjórnmálamaður á at- kvæði sín komin undfr velfarnaði Landspítal- ans er beinlínis við því að búast, að Landspítal- inn fái ekki fjárveiting- ar og geti ekki þróast sem skyldi í þeim stj ómmálavemleika sem við búum við í dag. Enginn þingmaður eða borgarfulltrúi lítur á það sem sérstaka skyldu sína umfram aðra þingmenn að sinna hagsmunum Landspítalans. I stjóm Landspítalans situr sömu- leiðis fólk sem skipað er af Alþingi, en meirihlutinn fær því miður það lítt öfundsverða verkefni að gæta hagsmuna fjármálavaldsins eða sitjandi ríkisstjómar. Þannig hefur Landspítalinn, segir Páll Torfí Onundarson, er sérstaklega berskjaldaður fyrir niðurskurði. það verið um langt árabil og núver- andi stjómarnefnd er síst verri en þær fyrri. Vandamálið er, að það hefur engin áhrif á endurkjör þing- skipaðra fulltrúa í stjómarnefnd Landspítalans hvort þeir berjist fyrir fjármögnun og framtíð sjúkrahússins eða ekki. Af ofan- greindum ástæðum er því viðnámið við niðurskurðaráformum fjár- málaráðuneytis og ríkisstjórnar minna í stjórn Landspítalans en í stjómum annarra sjúkrahúsa á ís- landi. Og af sömu ástæðu þróast litlu sjúkrahúsin umfram stað- bundna eftirspurn í héraði eða sér- hæfingarkröfu nútímans, en Land- spítalinn situr eftir, þótt stað- reyndin sé sú, að hann er aðal- sjúkrahús landsbyggðarinnar, skv. skýrslum heilbrigðisráðuneytisins. Tillaga Stjórnamefnd ber ábyrgð á rekstri (tekjum og gjöldum) Land- spítalans eins og stjórn hvers ann- ars fyrirtækis. f ljósi áralangs fjársveltis Landspítalans er orðið tímabært að íhuga breytta sam- setningu stjómamefndar hans; ekki persónumar heldur aðferðina við skipun hennar; þ.e. að rjúfa flokkspólitísk tengsl. Mín tillaga er eftirfarandi: í fyrsta lagi er nauð- synlegt að velunnarar Landspítal- ans stofni félag velunnara Land- spítalans. í stjórn þessa nýja félag- skapar þurfa að sitja áhrifamenn í efnahagslífinu og annað framfærið fólk sem skynjar að það sjálft hef- ur not fyrir sérhæfða læknishjálp fyrr eða síðar. Sem vill lifa vel og deyja við skikkanlegar aðstæður. Fólk sem er tilbúið að beita sér til framfara og kjörið er á opnum vel- unnarafundum sem ekki tengjast stjómmálaflokkum. í öðm lagi er svo nauðsynlegt að fulltrúar úr þessum félagsskap fái sæti í stjóm- amefnd sjúkrahússins þannig að sjónarmið eigenda (velunnara og sjúklinga) og þrýstingur skili sér inn í reksturinn, til fjármálavalds- ins og til heilbrigðisráðuneytisins. Með stofnun slíks félagsskapar og aðild að stjómarnefnd er hugsan- legt að skilningur stjómmála- manna, fjármálaráðuneytis og al- mennings á mikilvægi Landspítal- ans sem sjúkrahúss allra lands- manna og háskólastofnunar aukist. Það myndi leiða til gríðarlegra framfara í íslenskri sjúkraþjón- ustu. Undirritaður skorar því á vel- unnara Landspítalans innan og ut- an Alþingis að beita sér í þessa átt. Höfundur er yfírlæknir blððfræðideildar Landspítalans. taar FRA TOPPITIL TAAR i Námskeið sem hefur veitt ótalmörgum konum frábæran árangur. Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum, sem beijast við aukakílóin. Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar i viku, sjö vikur í senn. Góður matarkúr sem fylgt er eftir daglega með andlegum stuðningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um mataræði og hollar lífsvenjur. Heilsufundir þar sem farið er yfir förðun, klæðnað, hvernig á að bera líkamann og efla sjálfstraustið. FRÁ TOPPITIL TÁAR II - framhald Námskeið fyrir þær sem vilja halda áfram í aðhaldi. Tímar 3x í viku Fundir lx í viku í 7 vikur. Páll Torfi Onundarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.