Morgunblaðið - 05.04.1998, Side 36
36 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
TOIVLIST
MIMISMENN hrepptu helstu
verðlaun fyrirhljóðfæraleik,
þar á meðal Ómar Guðjóns-
son, sem taldist besti gítar-
leikari tilraunanna.
TVEIR liðsmanna Ovana
Tónabufr
MÚSÍKTILRAUNIR
Úrslit Músíktilrauna Tónabæjar.
Um sigurlaunin kepptu Mad
Mcthods, Mímir, Rennireið, Óvana,
Ambindrylla, Bisund, Jah, Endemi,
Stæner og Equal.
ÞAÐ VAR i nógu að snúast
hjá liðsmönnum Jah.
AMBINDRYLLUR komu
að norðan.
MÚSÍKTILRAUNUM Tóna-
bæjar lauk með tilheyrandi
hamagangi síðastliðið föstudags-
kvöld og eins og svo oft áður bar
rokksveit sigur úr býtum, og enn
hljómsveit úr Hafnarfirði,
rokksveitin Stæner. f öðru sæti
varð önnur rokksveit, Bisund, en
Drum ‘n Bass-sveitin Mad
Methods hreppti þriðja sætið.
Mad Methods hóf leikinn úr-
slitakvöldið á frábæru lagi, hnit-
miðuðu og kraftmiklu. Annað lag
sveitarinnar var og gott, þó sum-
staðar hefði mátt skerpa á
keyrslunni, en það þriðja síst,
full létt, einskonar trommu-
bassatæknisinfónískur forleikur.
Allt önnur tónlist var í boði hjá
Mími, sem kom vel undirbúin til
leiks og enn þéttari en þegar hún
komst í úrslit. Sérstaklega var
þriðja lag þeirra Mímismanna
vel heppnað, uppbygging þess
rökrétt og framvinda skýr og
skemmtileg.
Rennireið vakti einna mesta
athygli í þessum tilraunum, enda
fádæma efnileg sveit á ferð.
Prátt fyrir ýmislega hnöki'a, sem
skrifast á reynsluleysi, mátti
heyra bráðgóð lög, sérstaklega
fyrsta lagið, sem var að auki lip-
urlega útsett.
Óvana setti í fluggír frá fyrstu
tónum, einbeitt gleðipönk var
allsráðandi. Sem fyrr var þriðja
lag sveitarinnar, lagið um Keikó,
best, ekki síst fyrir gott hrynpar
sveitarinnar, en gítarar voru líka
|J leikandi skemmtilegir.
Ambindrylla var eina kvenna-
sveitin að þessu sinni, en tæpast
tilbúin á verðlaunapall, því ýmis-
legt þarf að bæta. Lög sveitar-
innar voru ekki nógu vel mótuð
og söngur féll ekki alltaf að því
sem aðrir liðsmenn sveitarinnar
voru að gera. Eins og heyra
mátti í þriðja lagi Ambindryllu
er sitthvað í hana spunnið og
vonandi að þær stöllur haldi
áfram.
Bisund byrjaði með hama-
gangi í frábæru keyrslulagi þó
hryngítar hafi vantað megnið af
laginu. Annað lag var síðra, en í
þriðja laginu settu þeir Bisund-
EFNILEGASTA hljomsveit Musiktilrauna var
unglingasveitin Rennireið.
BISUND-LIÐAR fagna öðru sætinu
MAD METHODS lenti í þriðja sæti með
Drum ‘n Bass.
HLJOMSVEITIN Endemi komst ekki á
verðlaunapall.
f . Ljösmynct'BjófcjbvcjnsdóttH
STÆNERSMENN tóku við sigurlaunum úr höndum borgarstjóra, Ingibjargar Sótrúnar Gísladóttur.
FJARÐAR
ROKKIÐ
SIGRAÐI
menn aftur í fluggír með góðum
árangri.
Jah var ekki eins grípandi og í
undanúrslitum og náði sér
reyndar aldrei almennilega á
flug. Þó var annað lagið bráðgott
ef frá er talinn sérkennilegur
dynkur í miðju lagi.
Endemi var öllu öruggari í úr-
slitum en undanúrslitum, en á
eftir að vinna nokkuð í lagasmíð-
um og útsetningum. Söngkona
sveitarinnar fór útaf sporinu í
upphafslaginu sem spillti vissu-
lega fyi'ir, en á móti kom að
hljómborð voru markvissari.
Hafnfii'ska rokksveitin Stæner
kom þar næst og hafði greinilega
unnið heimavinnuna. Tónlist
Stæners er grípandi heilsteypt
popp, ekki mjög saltað en bragð-
gott engu að síður. Skemmtileg
kaflaskipti lyftu öðru lagi sveit-
arinnar og það þriðja gekk betur
upp en í undanúrslitunum.
Lokasveit kvöldsins, Equal,
lék evrópskt gleði-techno af
miklum móð og hömuðust Equ-
al-menn sem mest þeir máttu á
sviðinu. Sviðsframkoman vai'
betur skipulögð en á fimmtu-
dagskvöld og keyrslan enn meiri.
Hún var reyndar svo mikil á
köflum að þeir félagar fóru eilítið
út af sporinu, en ekki annars að
vænta en þeir eigi eftir að
styrkjast verulega haldi þeir
áfram.
Úrslit urðu svo þannig að
Stæner sigraði í tilraununum að
þessu sinni, Bisund hreppti ann-
að sætið og Mad Methods varð í
þriðja sæti. Dómnefnd þótti aug-
ljóst að Rennireið væri efnileg-
asta hljómsveitin. Liðsmenn
Botnleðju og Quarashi önnuðust
val á bestu hljóðfæraleikurum og
féllu þau þannig: Besti söngvari
var valinn Magnús Leifur
Sveinsson, söngvari Stæner,
besti gítarleikari Ómar Guðjóns-
son úr Mími, besti bassaleikari
Kristján Orri Sigurleifsson,
einnig úr Mími, og Mímismaður
var einnig kjörinn besti hljóm-
borðsleikari, Hannes Helgason,
besti trymbill var Birkir Viðars-
son úr Bisund, besti forritari
Halldór H. Jónsson úr Mad Met-
hods. Hljóðverið Núlist veitti
hljóðverstíma í tvenn verðlaun
og þau hlutu hljómsveitirnar
Spúnk og Jah.
Borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, afhenti verðlaunin að
þessu sinni, sem verður að telj-
ast vel til fundið.
Arni Matthíasson
■-