Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 44
t£4 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
JMtojgtutlHiifeÍfe
BRÉF
TIL BLAÐSINS
í //i/zið i<om py/etts:
( SJÓNV/)RJ>/Ð?
'X
!*« 06 é<5 ee/NPil
I /9Ð S&L/} þu!!
Grettir
PN þAP EF Or SEINT/VD
N-, HLXSSA OM þAÐ NÚMA
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Fljúgandi drekar
yfír húsþökum
Reykvíking’a
Frá Ragnari Fjalari Lárussyni:
UNDIRRITAÐUR býr í nágrenni
gamla Miklatorgs, í króknum milli
Miklubrautar og Snorrabrautar.
Eins og gefui- að skilja er hávaða-
mengun af völd-
um sívaxandi
bifreiðaumferð-
ar sífellt meiri
og meiri, stöð-
ugur vélardynur
og hávaði dag
og nótt. Svo
rammt kveður
að, að naumast
er hægt að opna
glugga. Þessu
hlýtur að fylgja
talsverð mengun, svo að nálgast
hættumörk, bæði fyrir heym og
lungu. Þetta eitt ætti að nægja til
að kvarta yfír. En svo er aldeilis
ekki. Það versta og líka hættuleg-
asta er umferð fljúgandi dreka yfir
húsþökunum og þar á ég að sjálf-
sögðu við umferð flugvéla um
Reykjavíkurflugvöll. Það vill svo
til að í vestanátt, útsynningi, sem
oft blæo hér, er notuð til lendingar
austur-vestur-braut flugvallarins,
þannig að drekar eins og Fokker-
inn næstum sleikja húsþökin, þar á
meðal mitt, með miklum gný og
hverfa síðan undir slakkann sem
liggur að flugvellinum. Þetta er
óþolandi, þótt ekki sé nema hávað-
ans vegna. En þó er hávaðinn ekki
það versta þegar málið er skoðað í
heild, heldur hættan sem af því
stafar, að hafa flugvöll staðsettan í
miðri borg.
Það mun vera staðreynd, að
flest flugslys verða í flugtaki eða
lendingu og hlýtur það að gilda
jafnt hér og annars staðar. Ein
fjölfamasta gata borgarinnar,
Hringbrautin, liggur við enda flug-
brautarinnar og ekki eru mörg ár
síðan erlend flugvél í ferjuflugi
lenti utan brautar við þann endann
sem næstur er umferðargötunni í
50 metra fjariægð og stóð þar í
ljósum logum, en áhöfn hennar
fórst, og ekki er heldur langt síðan
að Fokkerinn lagðist þvert yfír
Suðurgötuna, en guðs mildi bjarg-
aði því að ekki varð slys á mönnum
þar.
Hvenær verður stóra slysið?
Ég er ekki með hrakspár. Allar
tölfræðilegar upplýsingar og kann-
anir sýna, að flugvélum, eins og
öðrum samgöngutækjum, fylgja
slysfarir og því nær sem menn búa
slíkri umferð því meiri hætta er á
ferð.
Það er því mikil ábyrgð sem
hvílir á ráðamönnum í þessum
máli. Það er mikil fífldirfska og
óskammfeilni að ætla nú að endur-
gera Reykjavíkurflugvöll fyrir
tugþúsundir milljóna króna í stað
þess að leggja hann af og flytja
innanlandsflugið burtu úr Reykja-
vík. Þau stjómvöld sem áforma
endumýjun flugvallarins vita ekki
hvað þau eru að gera.
Burt með flugvöllinn úr hjarta
þessarar fögru borgar.
RAGNAR FJALAR LÁRUSSON,
prestur.
Almenningar sam-
>
f
I
í
i
Smáfólk
IT 5TÁRTED TO RAIM, ANP
EVERYONE RAN H0ME..THEN IT
5T0PPEP RAlNINO.ANDEVERVONE
CAME BACK ..THEN U)E 5TARTED
PLAYIN6 A6AIN ..THEN WE L05T
MAYBE SOMEDAV
TOU'LL 6ET U5ED
TO L05IN6..
Það fór að rigna og allir hlupu Kannski venst
heim ... síðan hætti að rigna og all- það einhvem
ir komu aftur . . . svo fómm við að tímann að tapa
leika á ný ... sfðan töpuðum við.
Jæja,
ekki.
kannski
eign þjóðarinnar
Frá Grími M. Steindórssyni:
ÞESSA dagana leita skotveiði-
menn eftir frjálsum aðgangi að
sameigninni, það er að geta svalað
hvötum sínum, sýnt sig í felulitum
og virðulegum jeppum. Lífið sem
hrærist í kringum þá er bara leik-
völlur, eins og barna í tækjum eða
sandkössum. Við sem eigum þetta
land og viljum njóta dýrðar þess
óspilltrar erum spurðir leyfís, sem
okkur er þvert um geð að veita,
getum ekki veitt:
Náttúra íslands er heilög en
ekki steik á pönnu fyrir þykjustu-
dýrkendur. Hún er heilög. Ráð-
herra hefur ekki vald til að spilla
henni, ekki löggjafinn nema að
litlu leyti. Réttur til lífs og til að
njóta þess er heilagur. Ég vona að
sannir náttúrusinnar láti í sér
heyra og safni liði gegn þessari að-
för. Verði réttur ekki virtur á að
láta dómsvaldið taka á málunum,
það er þó réttur okkar.
Mistök hafa verið hræðileg, inn-
flutningur á minkum, sem átti að
vera hættulaus, var gerður á
ábyrgð vissra aðila; það væri at-
hugandi að láta þá bæta skaðann.
Mesti skaðvaldur í íslenskri nátt-
úru og er ég hræddur um að
byssumenn verði engu betri. Eðlið
segir til sín þegar eitthvað kvikt
sést þá er skotið og ekki spurt.
Lægstu hvatir birtast þegar menn
eru með byssu í hönd. Dæmi er um
skotveiðimann úti á landi sem
skaut fálka af því að hann var í svo
góðu skotfæri. Hann eirði engu.
Fólk þagði, þótt mörgum sviði.
Leyfum íslenskri náttúru að
vera í friði, hún er gjöf frá almætt-
inu, sem skóp hana á löngum tíma
fyrir okkur að njóta hennar.
GRÍMUR M. STEINDÓRSSON,
listamaður.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.