Morgunblaðið - 05.04.1998, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ
46
t —
SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
HUGVEKJA
I DAG
Kyrravika
VELVAKAM»I
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til fóstudags
Reykingafólk
hagkvæmt fyrir
þjóðfélagið
BÓI hafði samband við
Velvakanda og vildi hann
koma þeirri skoðun sinni
á framfæri að það væri
hagkvæmt fyrir ríkið og
þjóðfélagið að fólk reykti.
Hann segir að reykinga-
fólk lifl það ekki að það
þurfi að borga því elli-
laun, það sé tiltölulega
hraust fram að þeim aldri
að það deyi vegna reyk-
inga og segir hann að t.d.
sé það undantekning að
reykingafólk sem vinni
vaktavinnu nái sjötugs-
aldri.
Tökum til í
kringum okkur
VE LVAKANDA barst
eftirfarandi áskorun:
„Ég vil skora á alla
borgarbúa að hver hreinsi
í kringum sín hýbýli. Ef
allir hreinsa fyrir sínum
dyrum þá búum við í fal-
legri borg. Sérstaklega
skora ég á matvöruversl-
anir og barnaheimili að
taka til hjá sér. Reykja-
víkurborg ætti að byrja
að hreinsa til í borginni,
nú þegar snjórinn er far-
inn, en ekki bíða fram
undir 17. júní. Ég mæli
með því að Morgunblaðið
verði með umfjöllun um
þessi mál.“
Borgarbúi.
Læknar
sleppa alltaf
MAÐUR hafði samband
við Velvakanda og sagðist
hann hafa heyrt í fréttum
sl. fóstudag að Hæstirétt-
ur hefði sýknað lækni af
læknamistökum. En kona
sem hafði farið í
brjóstaminnkun sem mis-
heppnaðist fór í mál við
hann og var henni dæmt í
óhag. Finnst honum með
ólíkindum hvað læknar
sleppi alltaf í svona mál-
um.
Tapað/fundið
Bfllyklar
týndust
BÍLLYKLAR týndust
frá Seðlabankanum að
Hverfisgötu. Lyklarnir
eru á spjaldi merkt Bor-
meuil. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 561
1106.
SÉil »
Á göngu við Gróttu.
Morgunblaðið/Kristinn.
Víkverji skrifar...
í þessari hugvekju
segir sr. Heimir
Steinsson, m.a.:
Til föstudagsins
langa rekur kirkja
Krists hjálpræðis-
vissu sína, sannfær-
inguna um fyrirgefn-
ingu syndanna.
I DAG er pálmasunnudagur.
Vikan, sem heilsaði í morgun,
nefnist „kyrravika“ að kirkjunn-
ar máli ellegar dymbilvika. Hún
geymir dýrustu daga ársins. í
hugskotinu fylgja kristnir menn
frelsara sínum frá því er hann
ríður inn í Jerúsalem á pálma-
sunnudag þar til upprisusólin
skín yfir tóma gröf hans sjö
nóttum síðar. Dýpstu leyndar-
dómar fagnaðarerindisins eru
reiddir fram í kyrruviku.
Pálmasunnudagur
Guðspjall pálmasunnudags
samkvæmt fyrstu textaröð er að
finna hjá guðspjallamanninum
Lúkasi 19. kapítula, versunum
29-40, en hliðstæðu þess getur
að líta hjá Matteusi 21:1-9. Guð-
spjallssálmur dagsins er til vor
kominn um hendur séra Stefáns
Thorarensen. Fyrsta erindið
hljóðar á þessa leið:
0, kom í hátign, Herra minn.
Þér heilsar allur lýðurinn
og klæðum lagða braut þér býr,
með blessun þér á móti snýr.
Sviptingamar í söguþræði
dymbilvikunnar eru átakanleg-
ar. Hinn fyrsta dag heldur Jesús
inn í höfuðborg þjóðar sinnar.
Þá segir frá því, að „fjöldamarg-
ir breiddu klæði sín á veginn, en
aðrir hjuggu lim af trjánum og
stráðu á veginn. Og múgur sá,
sem á undan fór og eftir fylgdi,
hrópaði: „Hósanna syni Davíðs!
Blessaður sé sá sem kemur í
nafni Drottins! Hósanna í hæst-
um hæðum!“„
Fáum dögum síðar er múgur
Jerúsalemborgar enn á kreiki.
En því sinni hrópar mannfjöld-
inn: „Krossfestu, krossfestu
hann.“ Svo skjótt skipast veður í
hugskoti fjölmennis. Þeir sem
seilast eftir almannafylgi upp-
götva oft og einatt, að það sveifl-
ast öfganna á milli á lítilli stundu
og að því er virðist af óvæntu til-
efni. Saga frelsarans í kyrruviku
er skýrt dæmi um þetta.
Skírdagur
Skfrdagur og fostudagurinn
langi neftiast ýmist „bænadag-
ar“ eða „lághelgar". Þeim dög-
um, eins og kyrruvikunni endi-
langri, hæfir hljóðlát íhugun.
Fyrsta guðspjall skírdagsins
getur að líta hjá Jóhannesi,
13:1-15. Þar greinir frá því, að
Jesús og lærisveinar hans sátu í
síðasta sinni að kvöldmáltíð. Og
Jesús „stóð upp frá máltíðinni,
lagði af sér yfirhöfnina, tók lín-
dúk og batt um sig. Síðan hellti
hann vatni í mundlaug og tók að
þvo fætur lærisveinanna og
þerra með líndúknum, sem hann
hafði um sig“.
Þegar frelsarinn hafði lokið
þessu verki, sagði hann við læri-
sveinana: „Skiljið þér, hvað ég
hef gjört við yður? - Þér kallið
mig meistara og herra, og þér
mælið rétt, þvi það er ég. -
Fyrst ég, sem er herra og meist-
ari, hef nú þvegið yður um fæt-
urna, þá ber yður einnig að þvo
hver annars fætur. Ég hef gefið
yður eftirdæmi, að þér breytið
eins og ég breytti við yður.“
Það sem að öðru leyti gjörðist
á skírdag er m.a. að finna hjá
guðspjallamönnunum Lúkasi
(22:14-20) og Matteusi
(26:17-29). Þar greinir frá inn-
setningu heilagrar kvöldmáltíð-
ar. Af þessu tilefni syngja menn
erindi Guðrúnar Guðmundsdótt-
ur.
Á skírdagskvöld ég kem til þín,
sem kvittað hefur brotin mín,
ég kem sem bam og bíð í trú,
að blessun enn mér veitir þú.
Þú gafst þitt hold, þú gafst þitt blóð,
því geng ég rósum prýdda slóð,
ég þjá þér sannan fógnuð finn
þú frelsari og Drottinn minn.
Föstudagurinn langi
Á fóstudaginn langa urðu
þáttaskil í sögu veraldarinnar.
Föstudagurinn langi er friðþæg-
ingardagur kristinna manna. Á
þeim degi lét frelsarinn líf sitt
„til lausnargjalds fyrir marga",
eins og hann sjálfur komst að
orði (Matt. 20:28 og Mark.
10:45). Til föstudagsins langa
rekur kirkja Krists hjálpræðis-
vísu sína, sannfæringuna um
fyrirgefningu syndanna.
Á föstudaginn langa hafa
menn á öllum öldum hugleitt
Píslarsöguna, þ.e. frásagnir guð-
spjallanna af kvöl Jesú og kross-
dauða. Islendingar hafa um
langa hríð stuðzt við Passíu-
sálma séra Hallgríms Péturs-
sonar af þessu tilefni. Sú bók er
oss vonandi hverju og einu innan
seilingar. Þeir sem ferðafærir
eru koma víða saman í kirkjum
til passíusálmalestrar þennan
dag. Aðrir fá dvalið við söguna
einir heima eða heiman í föru-
neyti hins krossfesta.
Svo flnni eg hæga
hvfld í þér
Eyktimar milli föstudagsins
langa og upprisudagsins eru
kyrrðarstundimar mestu. Frels-
arinn hvílir í gröf sinni og
kristnum manni er boðið að setj-
ast við legstað hans. „Svo finni
eg hæga hvíld í þér, hvíldu,
Jesú, í bijósti mér.“ Þannig yrk-
ir séra Hallgrímur (Pass. 50.17),
og orðin henta vel til íhugunar á
laugardag fyrir páska. Sá dagur
sem aðrir í vikunni helgu er gef-
inn mönnunum, að þeir í lotn-
ingu tilbiðji Drottin einan.
Guð blessi þér vikuna, sem nú
fer f hönd, lesandi minn góður,
og öllum þínum.
NÆSTKOMANDI fimmtudag,
9. apríl, er skírdagur, dagur
hinnar heilögu kvöldmáltíðar, þá
föstudagurinn langi, dagur píslar-
göngu og krossfestingar, og síðan
sjálf upprisuhátíðin, páskamir,
sem hæst ber allra hátíða með
kristnum þjóðum. Víkveiji fer ekki
lengra út í þá sálma að sinni.
Níundi dagur aprílmánaðar skip-
ar af öðmm ástæðum ákveðinn
sess, raunar sorgarsess, í hugum
Norðurlandaþjóða. Þann dag árið
1940 réðust Þjóðveijar inn í Dan-
mörku og Noreg. Rúmum mánuði
síðar, 10. maí árið 1940, sigldi
brezk flotadeild, tvö beitiskip og
fimm tundurspillar, inn á Reykja-
víkurhöfn. ísland var hemumið.
Reynslunni ríkari gengu Danir,
íslendingar og Norðmenn í Atl-
antshafsbandalagið. íslendingar
gerðu og vamarsamning við
Bandaríkin. Tilgangurinn var að
framfylgja frumskyldu hverrar
fullvalda þjóðar: Að tryggja eigið
öryggi.
XXX
LÉTT lund, kímni, skopskyn,
það að sjá kátlegar hliðar til-
verannar og geta hlegið innilega
era hluti af því að varðveita eigið
heilbrigði og eigin vellíðan. Vestur-
íslendingurinn Kristján N.J. Jóns-
son, öðra nafni Káinn, fæddist 7.
dag aprílmánaður árið 1860. Stök-
ur hans flugu manna á milli beggja
vegna Atlantsála. Þær heyrast enn
í dag þar sem vísnavinir stinga
saman nefjum.
Káinn orti svo um sjálfan sig:
Stundum er ég seinn til svara og seinn
áfæti,
en það eru engin látalæti
að láta fólkið gráta af kæti.
Maður, sem talað hafði miður vel
um hagyrðinginn, fékk þessa
ádrepu:
Einlægt þú talar illa um mig,
aftur ég tala vel um þig.
Enþaðbeztaafölluer,
að enginn trúir þér - né mér.
Á þeim tíma þegar það þótti
djarft að stytta síðpils upp fyrir
ökkla var Káinn spurður hver væri
hæfileg pilslengd. Hann svaraði
[og reyndist forspár]:
Kæru löndur! Hvað veit eg,
karl, um pilsin yðar,
en mér finnst lengdin mátuleg,
milli hnés og kviðar!
XXX
FYRSTU vorboðamir, farfugl-
arnir, era komnir. Það er góðs
viti. Vorlaukar skjóta og þegar upp
kolli þar sem vel fer um þá. Samt
sem áður era u.þ.b. tvær og hálf
vika í sumardaginn fyrsta, fimmtu-
daginn 23. apríl. Þann dag fæddist
rithöfundurinn og skáldið Halldór
Kiljan Laxness árið 1902 (d. 1998).
Það varð bjart í sumarhúsum ís-
lendinga við lestur beztu bóka
hans. Þennan dag byijar og Harpa,
fyrsti vor- eða sumarmánuðurinn
að fomu tímatali, og lýkur 22. dag
maímánaðar. Vonandi verður
Harpa heiðrík og sólrík að þessu
sinni. Skerpla hefst síðan 23. maí
nk. og vísar veg í náttlaust sumar-
ið.
Skammdegið, kuldinn og
myrkrið léku okkur íslendinga
grátt á stundum. Lífsbaráttan var
fyrst og fremst háð veðurfari, enda
viðurværið sótt til moldar og sjáv-
ar. Og vorið var f senn vakning
gróðurkragans umhverfis hálendið
til nýs lífs, lita og angans - og byrj-
andi bjargræðistíð. Þá komu gæftir
til sjávar og grös í haga. Margt
hefur að visu breytzt síðan byggð
var hér reist, en vorið færir sem
fyrr sól í sinni.
Islandsglíma komandi sveitar-
stjómarkosninga gerir vorið sem
framundan er dulítið forvitnilegra
en ella. Vonandi hlú kjósendur að
nytjajurtum á kosningaakrinum en
tína iUgresið burt. Þeirra er
ábyrgðin og þeir súpa líka seyðið af
því hvem veg fer.
Hver og einn þarf og að vinda
sér í eigin ræktun - sinna trjám,
rannum og blómum. Að ekki sé nú
talað um hina innri garðrækt hug-
ar og viðmóts. Söngur þegar kom-
inna farfugla er fyrsta hringing til
gróðurmessu sumarsins 1998.
Megi hún færa okkur gleði og
vellíðan.
Fermingargjafir
Fyrii clörnur
og kerra
Okkar gmlði
Prákœrt verð
1
demanTahusið
NÝJU KRINGLUNNI § SÍMI 588 9944
BÓMULLAR-
NÆRFÖT
FYRIR HERRA
1. HÆÐ
SÍMI533 7355