Morgunblaðið - 05.04.1998, Side 60
T|N|T| Express
Worldwide
„580 1010
íslandspóstur hf
Hraðflutningar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Breskri Boeing 767-300 farþegafrotu með 288 manns snúið til Islands
Slökktu eld og nauðlentu
á Keflavíkurflugvelli
BOEING 767-300 farþegaþota frá breska
leiguflugfélaginu Britannia með 288 manns
innanborðs nauðlenti á Keflavíkurflugvelli
klukkan 9.49 í gærmorgun þar sem eldur hafði
komið upp í miðju farþegarýminu. Reykjar-
lykt hafði gosið upp en enginn eldur sást.
Flugfreyjur beittu þó slökkvitækjum á staðinn
þar sem reykjarlykt fannst og 25 mínútum síð-
ar var vélin lent á Keflavíkurflugvelli.
Potan var á leið frá London til Calgary í
Kanada, sem er 9 tíma flug, og hafði verið á
lofti rúmar tvær stundir. Hún var stödd í 35
búsund feta hæð, um 150 mílur suður af Is-
Tandi, eins nálægt og leið hennar átti að liggja
að landinu þegar upp gaus reykjarlykt nálægt
miðju farþegarýminu yfir vængsvæði. „Flug-
stjórinn tilkynnti að eldur hefði komið upp og
að hann hefði verið slökktur og engin hætta á
ferðum en að hann myndi samt sem áður
lenda á Islandi til öryggis," sagði Christopher
Cleare frá Skotlandi, sem var meðal farþega, í
samtali við Morgunblaðið.
„Eg fann reykjarlykt rétt áður en flugstjór-
inn tilkynnti hvað var að gerast og velti fyrir
mér hvaðan hún kæmi. Mér datt þó ekki eldur
í hug heldur frekar að eitthvað skiýtið væri að
gerast í loftræstikerfinu," sagði Helen Ross,
sem einnig er frá Skotlandi. Þau sögðu að
langflestir farþeganna væru á leið á skíði í
Calgary. Þeir voiu alls 281 og áhöfnin sjö
manns.
Rólegt og fumlaust
Pau sögðu að lækkunin hefði verið nokkuð
snögg en flugstjórinn hemlaði snögglega þegar
vélin snerti brautina. Hún staðnæmdist á
brautinni og farþegar næst staðnum þar sem
reykjarlyktin fannst yfirgáfu vélina fyrst en
aðrir í kjölfarið. Þau sögðu það allt hafa gerst í
mestu rólegheitum og að flugþjónustufólkið
hefði unnið af öryggi og fumlaust. „Fólk óttast
frekar sprengjur um borð en eld en fáir vissu
hvað var á seyði og þess vegna greip engin
hræðsla um sig,“ sagði Ross ennfremur. „Eg
sat rétt við svæðið, hafði fundið einhverja lykt
og svo kom flugfreyja með slökkvitækið og
beindi því undir teppið á gólfinu," sagði Dennis
Wyatt frá Englandi. „Pað varð enginn hrædd-
ur og ég held að þeir sem ekki sátu næst svæð-
inu hafi ekki haft hugmynd um hvað var að
gerast fyrr en flugstjórinn tilkynnti það.“
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli var í við-
bragðsstöðu við flugbrautina en þar sem flug-
stjórinn hafði ekki tilkynnt að neyðarástand
væri um borð var ekki þörf frekari viðbúnað-
ar. Slökkviliðsmenn aðstoðuðu farþega sem
fluttir voru í rútum að flugstöðinni. Flug-
mennirnir vildu ekkert segja um málið en
Kelly Radley, upplýsingafulltrúi Britannia,
tjáði Morgunblaðinu að unnið væri að rann-
sókn á málinu og von var á tæknimönnum fé-
lagsins til landsins í gær. Hún lofaði áhöfnina
fyrir að hafa sýnt hárrétt viðbrögð við þessar
aðstæður. Um hádegisbil var vélin dregin upp
að flugstöðinni og farangur losaður. Farþegar
áttu að fara á hótel í Reykjavík og var ráðgert
að þeir héldu ferðinni áfram með vélinni í
morgun.
Britannia er næststærsta flugfélag Bret-
lands og rekur 30 þotur af gerðunum 757 og
767. Félagið stundar eingöngu leiguflug og
sagði talsmaðurinn áfangastaði félagsins vera
um allan heim.
MEÐAL farþega voru Helen Ross og
Christopher Cleare sem sögðust hafa
fundið reylgarlykt en engan eld séð.
FARÞEGAR biðu í Leifsstöð eftir tilkynn-
ingu frá breska flugfélaginu um áfram-
hald ferðarinnar.
Morgunblaðið/Ásdís
ÞOTA Britannia á flugbrautinni í Keflavík umkringd slökkviliðsbflum eftir lendingu í gærmorgun en henni var snúið til landsins eftir að eldur kom upp í farþegarýminu.
50 ár frá því landgrunnslögin voru sett
„Eins konar
stjórnarskrá
sjávarútveg,sins“
FIMMTIU ár eru í dag liðin frá því
landgrunnslögin voru sett. Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra segir að lagasetningin hafi
markað tímamót í réttindabaráttu
íslendinga.
„Þetta er mjög merk löggjöf og
markaði tímamót í réttindabaráttu
íslendinga. Lögin eru ekki löng, en
því ríkari að efnisinnihaldi. Það má
með vissum hætti segja að þau hafi
verið eins konar stjórnarskrá sjáv-
arútvegsins á íslandi í hálfa öld,“
sagði Þorsteinn.
Hefur varðað veginn
Hann sagði að með lögunum hefði
verið ákveðið að Islendingar myndu
helga sér rétt til fiskveiða á land-
grunninu öllu. Það hefði ekki verið
nákvæmlega skilgreint á þeim tima,
en nægjanlega til þess að vera und-
irstaða undir síðari aðgerðir okkar
varðandi útfærslu landhelginnar.
„Á hinn bóginn var með þessari
löggjöf einnig lagður grundvöllur að
þeirri stefnu að nýta fiskimiðin á
grundvelli vísindalegrar þekkingar.
Þessi löggjöf hefur þannig varðað
veginn fram á við varðandi hinn
formlega rétt til nýtingar auðlind-
anna og til þeirra efnislegu reglna
sem við styðjumst við varðandi nýt-
ingu fiskistofnanna. Það var mikil
framsýni sem þeir menn sýndu sem
beittu sér fyrir þessari löggjöf á sín-
um tíma og það er mikil ástæða á
þessum tímamótum til að minnast
þeirra og þakka það mikla starf,"
sagði Þorsteinn.
■ Fimmtíu ár/Bl-B4
Svartolía
í Hafnar-
fjarðar-
höfn
^ILLI 100 og 200 lítrar af úr-
gangsolíu fóru í Hafnarfjarðarhöfn í
gærmorgun þegar dæla átti henni í
land úr Stuðlafossi. Að sögn Stein-
dórs Ögmundssonar hafnarvarðar
var um mannleg mistök að ræða,
opnað hefði verið fyrir vitlausan
krana. Fór olían milli skips og
bryggju og fyrir framan skipið.
Steindór sagði að þetta hefði ver-
ið svartolía og vel hefði gengið að
hreinsa hana upp. Hreinsunarstarfi
væri þó ekki lokið og yrði haldið
( áfram í dag.
„Góða veðrið hefur bjargað okk-
ur,“ sagði Steindór og bætti við að
það hefði verið lán hvað stillt hefði
verið í sjóinn og að þetta hefði gerst
á flóði.
Hann sagði að hafist hefði verið
handa við að dæla olíunni upp og
^ síðan yrðu notuð efni til að sökkva
jjgÁ sem eftir yrði. Sett hefði verið
Morgunblaðið/Ásdís
SVARTOLÍU dælt úr höfninni í Hafnarfirði í gær.
flotgirðing umhverfis skipið til að
loka olíuna af og koma í veg íyrir að
hún dreifðist um alla höfnina.
Stuðlafoss kom í Hafnarfjarðar-
höfn klukkan sjö í gærmorgun og
verður ekki hægt að ljúka hreinsun
bryggjunnar fyrr en skipið fer á
þriðjudag.