Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hertar aðgerðir
gegn hraðakstri
LÖGREGLAN í Reykjavík hefiir
tekið upp hertar aðgerðir vegna
umferðarlagabrota. Aðgerðimar
lúta m.a. að því að ná niður
hraðakstri, ekki síst innan borgar-
markanna. Ný reglugerð um sektir
við umferðarlagabrotum, sem tók
gildi 14. mai sl., þyngir verulega
ákveðnar refsingar, t.d. eru viður-
lögin við því að aka á 61-65 km
hraða á götu þar sem leyfilegur há-
markshraði er 30 km ökuleyfis-
svipting í einn mánuð auk 20.000
króna sektar, sem fer stighækk-
andi eftir því sem hraðar er ekið.
Karl Steinar Valsson aðstoðaryf-
irlögregluþjónn segir að hingað til
hafi ekki verið gert nægilega mikið
að því að sinna stífu eftirliti þar
sem hámarkshraði er 30 km, t.d. í
íbúðarhverfum og við skóla en nú
sé þar orðin breyting á. Síðan 14.
maí hafa tæplega 250 ökumenn
verið stöðvaðir fyrir hraðakstur í
borginni. Ennfremur er nú tekið
harðar á þeim sem aka án þess að
hafa til þess réttindi. Sektin er nú
50 þúsund kr. í fyrsta skipti og 100
þúsund í annað skipti.
í liðinni viku var svo tekið í notk-
un hjá lögreglunni öndunarsýna-
tæki, sem mælir áfengismagn öku-
manns án þess að þurfi að taka
blóðsýni. Þá eru ölvaðir ökumenn
sviptir ökuleyfi á staðnum, svo ferl-
ið styttist til muna. Karl Steinar
getur þess einnig að sá sem neiti að
gefa öndunarsýni sé sviptur öku-
leyfi í eitt ár og síðan færður í blóð-
sýnistöku.
Auk þess sem löggæsla hefur
verið hert verulega í umferðarmál-
um segir Karl Steinar að hafið sé
samvinnuverkefni milli lögreglu-
stjóraembættisins og Reykjavikur-
borgar til þess að berjast gegn
veggjakroti. „Það eru nú þegar
nokkur slík mál til rannsóknar og í
ákæruferli, en við þessu eru þung-
ar refsingar," segir hann og bætir
við að þeim málum verði fylgt fast
eftir.
Þá hefur lögreglan einnig skorið
upp herör gegn því sem Karl
Steinar kallar „ótímabært þvaglát
manna víðsvegar um borgina," en
viðurlögin við því eru 5-10 þúsund
króna sekt.
Komust á topp
McKinley-fj alls
TVEIR íslenskir fjallgöngu-
menn, Matthías Sigurðarson og
Styrmir Steingrímsson, komust
á topp McKinley-fjalls í Alaska
26. maí sl. ásamt hópi Kanada-
manna. íslendingarnir voru alls
fimm í leiðangrinum en þrír
þeirra urðu að snúa til baka
vegna óveðurs og veikinda.
Tveir menn, Kanadamaður og
þjóðgarðsvörður í Dengali-
þjóðgarðinum, sem voru í fjall-
inu á sama tíma og fslendingarn-
ir, hröpuðu til bana í hh'ðum
fjallsins.
í tölvupósti frá Herði Sigurð-
arsyni, einum leiðangursmanna,
til föður síns, Sigurðar Konráðs-
sonar, segir að Matthías Sigurð-
arson, 27 ára, og Styrmir Stein-
grfmsson, 20 ára, hafi náð toppi
McKinley-QaUs klukkan 17.17
hinn 26. maf.
Hörður og Haukur Gronli, 25
ára, veiktust og ákváðu að snúa
niður af fjallinu í 17.200 feta
hæð og fara niður í 14.300 feta
hæð. Upphaflega ætluðu þeir að
vera samferða fjórum erlendum
fjallamönnum. Þeir töldu sig
ekki komast hjálparlaust niður
fjallshrygg þar sem leið þeirra lá
og ákváðu að fara þess í stað
niður svokallað Rescue Gulley.
Þar fréttu þeir að tveir Kanada-
mannanna hefðu fokið fram af
hryggnum og seinna að þeir
hefðu látist.
Styrmir, Matthfas og Atli Þór
Þorgeirsson, 24 ára, voru í
17.200 fetum ásamt fimm öðrum
fjallgöngumönnum þegar Hörð-
ur og Haukur voru á niðurleið.
Ákváðu þeir að reyna að komast
á toppinn. Þrír mannanna sneru
við í 18.200 feta hæð, þar með
talinn Atli Þór, sem var orðinn
máttfarinn vegna hæðarveiki og
hafði hann litla tilfinningu í tám.
Á leiðinni upp á toppinn var
skyggnið lítið og vindur yfir 12
vindstigum. Það tók Qallgöngu-
mennina um ellefú klukkustund-
ir að komast á toppinn. Styrmir
og Matthías komust síðan niður
af Ijallinu tveimur dögum seinna
með smávægileg kalsár í kinnum
og á nefi.
Til Eskifjarðar
NÓTA- og togveiðiskipið Jón Kjartansson SU kom til Eskifjarðar í
gærmorgun frá Póllandi eftir breytingar. Meðal annars var skipt um
brú og allt þar fyrir framan, og voru vistarverur skipverja endumýj-
aðar. Skipið var smíðað í Rendsburg í Þýskalandi árið 1960 og hét
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
eftir breytingar
áður Narfi RE. Skipið hefúr mörg undanfarin ár verið með fengsæl-
ustu Ioðnuskipum í flotanum. Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. gerir
einnig út nóta- og togveiðiskipin Hólmaborg og Guðrúnu Þorkels-
dóttur og togarana Hólmanes og Hólmatind.
Lífróður í Landsbanka
►SverrirHermannsson, fyrrum
Landsbankastjóri, segir frá hvem-
ig gh'mt var við erfið þrotamái, sem
sum hver ógnuðu bæði tilveru
Landsbankans og lánstrausti þjóð-
arinnar á alþjóðavísu. /10
Bjargvættur eða
barnabarn Hitlers?
►Á skömmum tíma hefur Frelsis-
flokkur Jörgs Haiders, sem eryst
á hægri vængnum í austurrískum
stjómmálum, margfaldað fylgi
sitt. /12
Stífian brast
►Þess er nú víða minnst að 30
ár em liðin frá stúdentauppreisn-
inni ’68 og menn velta því fyrir
sér hvað hún hafi raunverulega
skilið eftir. /26
B
► l-20
Sarajevo
►Staldrað við í höfuðborg Bosníu-
Herzegovínu, þar sem endurreisn
er hafin en eyðileggingin blasir
allstaðar við /1&2-6
Konan í Kontrapunkti
►Una Margrét Jónsdóttir, sem
varð óperuunnandi tólf ára gömul,
keppir nú í Kontrapunkti. /10
Hljóðfæraleikari
í nær hálfa öld
►Ámi Scheving þykir einstaklega
fjölhæfur tónlistarmaður og spilar
á fjölda hljóðfæra, en víbrafónninn
verður að teljast hans aðalhljóð-
færi. /14
FERÐALÖG
► 1-4
Hinn eini rétti
ferðamáti
►Félag húsbílaeigenda 15 ára /2
Langþreyttar f lug-
áhafhir
►Alþjóðadagur flugfreyja og flug-
þjóna er í dag. /4
BÍLAR
► 1-4
Engum líkur
►Bjallan nýja er nánast uppseld
á markaði í Bandarílqunum en
hingað er hún komin engu að síð-
ur./2
Reynsluakstur
►Fjölbreyttur fjölnota H-1
Starex./4
EATVINNAf
RAD/SMÁ
Álit rrkisskattstjóra á skattalegri meðferð risnu og hlunninda
Laxveiðiferð
skattskyld ef hún
telst kaupauki
STARFSMANNI, sem þiggur boð
í laxveiðiferð, ber að telja hana
fram til skatts á kostnaðarverði ef
laxveiðiferðin getur talist kaupauki
hjá starfsmanninum. Ef laxveiði-
ferð er hins vegar hluti af starfs-
skyldum manns og í viðskiptaleg-
um tilgangi fyrir launagreiðanda er
hún ekki skattskyld hlunnindi.
Þetta kemur fram I svörum ríkis-
skattstjóra (RSK) við nokkrum
spumingum Morgunblaðsins um
skattalega meðferð á risnu og
hlunnindum.
Blaðið beindi m.a. þeirri spum-
ingu til ríkisskattstjóra hvort ein-
staklingum, sem þiggja laxveiði-
boð, beri að telja þau fram til
skatts sem hlunnindi og hvort fyr-
irtæki mættu draga slíkan kostnað
frá á framtali. Svar ríkisskattstjóra
er svohljóðandi:
„Ef þátttaka í laxveiðiferð er
hluti af starfsskyldum launamanns
og ferðin er farin í viðskiptalegum
tilgangi fyrir launagreiðandann, þá
er ferðin ekki skattskyld hlunnindi
hjá viðkomandi starfsmanni. Ef
laxveiðiferð getur hins vegar talist
vera kaupauki hjá starfsmanni er
um skattskyld hlunnindi að ræða
sem honum ber að telja fram til
tekna á kostnaðarverði. Um þetta
gæti verið að ræða ef engin tengsl
eru á milli ferðarinnar og tekjuöfl-
unar rekstrarins."
Kostnaðurinn þarf að vera í
tengslum við reksturinn
Einnig kemur fram í svari RSK
að gjaldfærsla laxveiðiferða hjá
rekstraraðilum er háð sömu skil-
yrðum og gjaldfærsla risnu al-
mennt. „Frádráttur þessi er bund-
inn sama skilyrði og gildir um
rekstrarkostnað almennt, kostnað-
urinn þarf að vera í tengslum við
reksturinn. Hann þai-f að ganga til
að afla tekna, tryggja þær og halda
þeim við,“ segir í svari RSK.
► l-20 Launakönnun borgarstarfsmanna ►Ríki og önnur sveitarfélög borga hærri laun. /1 FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak fdag 50
Leiftari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjörnuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 34-36 Fólk í fréttum 54
Minningar 38 Útv./sjónv. 52-3,62
Myndasögur 48 Dagbók/veður 63
Bréf til blaðsins 48 Hugvekja 50 Dægurtónl. 16b
INNLENDAR FI 2-4-8-BAK ÉTTIR:
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6