Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ami Sigfússon: NÆSTA leiðtoga takk . . . Fengu ekki leyfí til bjargsigs í Látrabjargi BJÖRGUNARSVEITIN Blakkur á Patreksfirði, sem vön er að síga í Látrabjarg eftir eggjum á hverju vori og hefur gert svo um áratuga- skeið, fékk ekki að fara í bjargið í ár. Ástæðan er sú að einn landeig- andi við bjargið setti sig upp á móti bjargsiginu og gaf ekki leyfi sitt. Björgunarsveitarmenn harma svar landeigandans enda er eggjatakan í bjarginu bæði liður í starfi sveitar- innar og mikilvæg fjáröflun. Sveitin á 30 ára afmæli í ár. Páll Hauksson, sem situr í stjóm sveitarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að ástæða eggjasigs- ins sé margþætt. „Þetta heldur mannskapnum saman og er góð æf- ing fyrir hann í sigi. Þetta hefur líka verið mikilvæg fjáröflun fyrir sveit- ina í áratugi," sagði Páll. Hann sagði að sveitin hefði alltaf fengið leyfi þar til nú og vegna andstöðu Ólafs Árnasonar, sem er einn land- eigenda. Páll segir að Ólafur beri því með- al annars við að björgunarsveitar- menn fari á of mörgum bflum inn á fjallið. Það segir Páll að sé ekki rétt, aðeins sé farið á einum bfl. „Við merkjum svo götuna og lokum henni niður frá þannig að þeir sem koma á öðrum bfl þurfa að skilja hann þar eftir og labba upp eftir,“ sagði Páll en nauðsynlegt er að fara á bíl að sigstaðnum vegna þess hve sigvaðurinn er þungur, að hans sögn. Hann sagði að björgunar- sveitarmenn hefðu gert ítrekaðar tilraunir til að tala um fyrir landeig- andanum en allt hefði komið fyrir ekki. Að lokum var komið fram yfir tímann sem hægt er að síga í bjarg- ið. Yfirleitt er sigið í bjargið í kring- um 20. maí en nú er orðið of seint að fara til eggja. Morgunblaðið náði ekki tali af Ólafi Árnasyni vegna þessa máls. Litla bókin um lífeyrismál bíður þfn hjá VÍB Kirkjusandi. Hún fæst án endurgjalds á meðan birgðir endast. ALVÍB er eini lífeyrissjóðurinn sem flytur þér Bókin er 96 bls. meö alvörugefnum fyrirheitum um björt og hagsæl eftirlaunaár. Allt sem þú vilt vita um þær breytingar sem nýju lögin hafa í för með sér, viðbótartryggingar sem enginn nema ALVÍB býður, lágmarkstryggingu og hin frábæru Ævisöfn sem eru sniðin að þínum aldri og þeim tímamótum er þú kýst að setjast í helgan stein. Baráttudagur flugfreyja og flugþjóna Flugfreyjur eru fyrst og fremst öryggisverðir Alþjoðasamtök flugfreyja og flug- þjóna voru stofnuð hinn 31. maí árið 1976. Til- gangur samtakanna er sá að sameina stéttarfélög flugfreyja alls staðar í heiminum, sjá þeim fyrir ráðgjöf og aðstoð til þess að koma réttinda- og bar- áttumálum á framfæri, bæði við loftferðayfirvöld og löggjafa. „Félagið heitir „Intemational Cabin Crew Association" og vísar nafn- ið til þess að flugfreyjur eru hluti áhafnar í loftfari. Annað aðalmarkmið sam- takanna er að bæta ímynd flugfreyjustarfsins í huga almennings, flugfélaganna og ekki síst flugfreyjanna sjálfra," segir Anna Dóra Guðmundsdóttir. - Hvað er gert á stofndegi félagsins ár hvert? „Það var ákveðið að stofndagur samtakanna yrði tileinkaður bar- áttumálum flugfreyja. Samtökin leggja mikla áherslu á öryggis- þáttinn því flugfreyjur era fyrst og fremst öryggisverðir um borð í flugvélum. Flugfreyjur og flug- þjónar gangast undir stranga ör- yggisþjálfun í flestum löndum heims, sem fylgt er eftir á hverju ári með námskeiðum til upprifjun- ar á þeim þáttum sem varða ör- yggi farþega og áhafnar um borð. Flugfreyjur og -þjónar bera ábyrgð á velferð farþega í flugi, ekki bara hvað varðar mat og drykk, heldur öryggi þeirra líka ef eitthvað kemur upp á. Það er á þeirra ábyrgð að stuðla að því að farþegamir komist eins heilir frá borði og unnt er miðað við aðstæð- ur ef vél hlekkist á.“ - Hefnr starfíð breyst mikið? „Sívaxandi samkeppni hefur leitt til þess að farþegar veita þjónustuþætti starfsins aðallega athygli. Þeirri skoðun vex sífellt fylgi að ekki eigi að minna farþega á þær hættur sem fylgja því að ferðast loftleiðis og talið vænlegra í samkeppninni að leggja áherslu á góða þjónustu, stundvísi og gæði flugvélaflotans. Annars varð einni erlendri starfssystur minni eitt sinn að orði um þessa breytingu á starfinu að flugfreyjur hefðu byrj- að sem hjúkranarkonur, síðan orð- ið að gengilbeinum, þá kyntáknum og nú að lögregluþjónum sem gefa kaffi!“ - Hvert er baráttumál ársins 1998? ,Á- hverju ári er tekið fyrir við- fangsefni sem samtökin telja að ógni öryggi farþega og flugfreyja í flugi og bregðast verður við. Við- fangsefni samtakanna í ár er óvið- ráðanlegir farþegar því ofbeldi far- þega gagnvart flugfreyjum hefur farið vaxandi hin síðustu ár. Líta samtökin svo á að ekki verði leng- ur unað við ástandið. ---------- Skemmst er að minnast farþega í Flugleiðavél á leið til Bandaríkjanna sem réðst á flugfreyjur þegar honum var mein- aður aðgangur að flug- ——“ stjórnarklefanum. Allir sjá í hendi sér hversu alvarlegar afleiðingar það getur haft ef farþegi í annar- legu andlegu ástandi nær að trufla flugmenn í starfi. í sumar verður haldið málþing í Stokkhólmi þar sem sérfræðingar vérða fengnir til þess að varpa ljósi á hvers vegna þessi aukning hefur orðið og hvað sé til ráða.“ - Hvað með drykkju farþega? „íslenskar flugfreyjur geta nefnt fleiri dæmi máli sínu til stuðnings Anna Dóra Guðmundsdóttir ► Anna Dóra Guðmundsdóttir lauk stúdentsprófi frá öldunga- deild Verslunarskóla íslands árið 1989, prófi í iðnrekstrar- fræði frá Tækniskóla fslands árið 1992 og BS-prófi í útflutn- ingsmarkaðsfræði frá sama skóla árið 1993. Hún var bankaritari í Iðnaðarbanka Is- lands 1969-1974, flugfreyja hjá Flugleiðum 1974-1989 og sölu- maður á skrifstofu Flugleiða í New York í þijá mánuði árið 1993. Anna Dóra vann að markaðssetningu gagnagrunns á alnetinu hjá Auglýsingastofu Reykjavíkur í þrjá mánuði árið 1995 og var markaðsstjóri Bláa lónsins frá 1995-1996. Hún hef- ur verið í hálfu starfi sem flug- freyja hjá Flugleiðum frá því í mars árið 1994 og var í stjórn og samninganefnd Flugfreyju- félags íslands 1984-1987. Anna Dóra er nýkjörinn formaður fé- lagsins. Eiginmaður hennar er Sigurður Arsælsson rafvirkja- meistari og eiga þau tvö börn. Hjúkkur, geng- ilbeinur, kyn- tákn, lögreglu- þjónar um fólk sem hegðar sér þannig um borð í flugvélum að það ógnar ör- yggi annarra flugfarþega. Ekki er til ein skýring á því hvers vegna sumir farþegar verða óviðráðanleg- ir í flugi. Ein skýring er þó augljós, eða áfengisdrykkja um borð. Flug- félögin hafa þá reglu almennt að veita einungis tvo drykki í flugi. Henni er hins vegar eifltt að fylgja eftir. Sem kunnugt er þola sumir áfengi betur en aðrir og hegðun flestra breytist h'tið við tvo drykki. Þess vegna hefur þessum reglum ekki verið fylgt nákvæmlega eftir. Vandinn felst hins vegar í því að finna út hverjir þoli áfengi svo illa að hætta stafi af. Flugfreyjur hafa ósjaldan lent í útistöðum við fólk sem ekki sættir sig við bann við frekari áfengisveitingum." - Glíma áhafnir við fleiri vanda- _________ mál um borðívélunum? ,Annað baráttumál samtakanna er hætta sem getur skapast af handfarangri. Of mikill handfarangur er stórt 1vandamál sem flug- málayfirvöld, flugfélög og stéttar- félög hafa áhyggjur af. Handfar- angur er ekki vigtaður og því þarf að áætla viðbótarþyngd vélanna. Burðargeta farangurshilla er tak- markað og þær hafa gefið sig ef flugvél hlekkist á. Handfarangur hefur bæði slasað farþega og teppt útgönguleiðir og skráð óhöpp í flugi era að minnsta kosti 4.500 á ári. Þá er verið að tala um slys sem verða af völdum handfarangurs ef vél hlekkist á.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.