Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 64
f J~3 AS/400 örugg á nýrri ö I d ttrgtmfyfaftifr |T|W|T| Express Worldwide . _ 580 1010 íslandspóstur hf Hraðflutningar MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3M0, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1 SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Hefur orðið Stjórn Islenskrar málnefndar skrifar samgöngunefnd Alþingis Setning verði felld úr lagafrumvarpi STJÓRN íslenskrar málnefndar hefur sent samgöngunefnd Al- þingis bréf þar sem mæist er eindregið til þess að gerð verði breyting á ákvæði í 140. grein frumvarps til Iaga um loftferðir, þar sem fjallað er um birtingu ákvarðana Flugmálastjórnar í flugmálahandbók. Telur stjórn Islenskrar málnefndar nauðsyn- legt að setningin „skulu þær vera á íslensku eða ensku eftir því sem við á“ verði felld brott úr lagatextanum. Stjórn íslenskrar málnefndar fjallaði um þetta mál á fundi 12. maí sl. og voru stjómarmenn sammála um að mjög varhuga- vert væri að lögfesta þennan texta óbreyttan eða án frekari skýringa. „Lögfróðir menn eru sam- mála um að landsréttur sé á ís- lensku og lög beri að birta á ís- lensku. Ef kveðið er á um það í lögum að reglur, sem fylgja á hér á landi, geti verið á ensku skapist því réttaróvissa. Eitt af grundvallaratriðum í sjálf- stæðisbaráttu Islendinga hefur verið að berjast fyrir því að öll lög og opinberar reglur skuli vera á íslensku enda má telja að það sé mannréttindamál að reglur séu á því máli sem talað er í landinu og sem landslýður skilur best. Aukist hlutur erlendra mála eins og ensku í opinberu starfi rýrist hlutur íslensku að sama skapi. En eitt af grundvallar- baráttumálum í íslenskri mál- rækt um þessar mundir er að tryggja það að íslenska verði notuð á sem flestum sviðum og komið verði í veg fyrir að önnur tungumál, einkum enska, leggi undir sig tiltekin svið mannlífs- ins. Réttur íslenskrar tungu þarf því að vera tryggður eftir því sem frekast er unnt,“ segir í bréfi íslenskrar málnefndar til samgöngunefndar. Nefndin sendi Halldóri Blöndal sam- gönguráðherra einnig afrit af bréfinu. af þrjátíu milljónum EIÐUR Smári Guðjohnsen knatt- spymumaður meiddist illa í leik með landsliði 18 ára og yngri fyrir tveimur árum. Hann hefur verið atvinnumað- ur hjá PSV Eindhoven í Hollandi, en sama og ekkert getað leikið síðan hann meiddist. Hann segist, í samtali við Morgunblaðið í dag, hafa orðið af 30 millj. kr. bónusgreiðslum frá félag- inu á þessum tveimur árum vegna þess að hann var ekki tryggður af hálfu Knattspyrnusambandsins í um- ræddum leik. ■ Að geta flogið/24 — Ljósabúnað- ur fyrir 350 milljónir AKVEÐIÐ hefur verið að ráðast í umfangsmikla endurnýjun á ljósabúnaði Keflavíkurflugvallar og er áætlaður kostnaður við verkið fimm milljónir dollara eða rúmlega 350 milljónir íslenskra króna. Forval vegna verkefnisins er auglýst í Morgunblaðinu í dag. Verkið er fjármagnað af . '1 Mannvirkjasjóði Atlantshafs- bandalagsins og er þetta eitt af síðustu stóru verkefnunum sem á dagskrá eru, sem Atlantshafs- bandalagið fjármagnar hér, að sögn Þórðar Ægis Óskarssonar, forstöðumanns varnarmálaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins. Verkið verður boðið út á al- þjóðlegum markaði samkvæmt reglum NATO. Forvalið tekur einungis til íslenskra lögaðila, en stjórnvöld aðildarríkja NATO velja og tilnefna verktaka hvert frá sínu landi. MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út miðvikudaginn 3. júní. Fréttavakt verður á Fréttavef Morgunblaðsins yfir hvítasunnu- helgina; netslóðin er www.mbl.is ^ ^ 0t Morgunblaðið/Golli ______________TILHUGALIF A TJORNINNI_____________________________________________________ Bókanir erlendra ferðamanna á bflaleigubflum hafa aukist mikið á milli ára Ferðast í anknum mæli á eigin vegiim um landið PANTANIR erlendra ferðamanna á bfla- leigubflum hafa aukist mjög á milli ára og segir Garðar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Bflaleig- unnar Geysis, að pantanir á sumum gerðum bfla- leigubfla hafi aukist um 70%, miðað við sama tíma í fyrra. Þórunn Reynisdóttir, sölu- og markaðs- stjóri hjá Flugleiðum-Hertz-bflaleigu, segir líka að bókanir hafí borist töluvert fyn- í ár og fyrir mun lengra tímabil, eða 14 daga og lengur. „Maí 1997 var reyndar lélegur mánuður og bókanir bárust óvenju seint. Árið í heild var hins vegar þokkalegt. Þrátt fyrir það er ljóst að aukn- ingin er mikil og þótt ég geri ekki ráð fyrir því að hún verði 70% í heild má örugglega búast við 20%,“ segir Garðar Vilhjálmsson. Búið var að panta alla húsbfla Geysis til notk- unar á háannatíma í febrúar. „Það er líka mjög óvenjulegt miðað við undanfarin ár, hvað bókanir hafa verið snemma á ferðinni. Fólk er líka að panta dýrari bíla en áður, til dæmis jeppa. Bók- anir á jeppum fóru minnkandi á tímabili en eru nú jafnmiklar hjá mér og var þegar best lét fyrir nokkrum árum,“ segir hann. Helstu viðskiptavinir Geysis eru frá Frakk- landi og Sviss og segir Garðar fjölgun ferðalanga frá Frakklandi mjög áberandi. I sama streng taka Sigurjón Hafsteinsson framkvæmdastjóri Ferðamiðstöðvar Austurlands og Halldór Bjamason, framkvæmdastjóri Safari-ferða. „Það em allir sammála um þá tilhneigingu að fólk sé að færa sig úr rútum yfir í einkabílinn til þess að ferðast á eigin vegum. Við eram því að fá hingað fleiri ferðamenn sem gefa meira í aðra hönd. Þeir sem ferðast um landið á bílaleigubíl eyða meiri peningum en bakpokaferðalangarnir," segir Garðar Vilhjálmsson loks. Þórann Reynisdóttir, sölu- og markaðsstjóri hjá Flugleiðum-Hertz-bílaleigu, segir að bókanir hafi verið gerðar töluvert fyrr í ár en áður. „Við ætlum að reyna að bæta við bflum og hagræða í flokkum til þess að þurfa ekki að loka fyrir bók- anir á mesta annatímanum. Fólk sækir í allar tegundir en aukningin virðist meiri í stærri bíl- unum. Annað sem við tökum eftir er mun lengri leigutími, úr viku upp í 14 daga og fleiri,“ segir hún. Afla upplýsinga á netinu og vilja ráða sér sjálfir Þá segir hún að ferðalangarnir séu greinilega mjög vel undirbúnir og hafi gefið sér tíma til þess að afla upplýsinga um landið á netinu. „Fólk virð- ist vilja hafa ferðina svolítið opna. Nýir mögu- leikar bjóðast nú fyrir fólk til þess að bóka og afla upplýsinga þannig að einstaklingur sem situr heima á orðið mjög auðvelt með að gera sína eig- in ferðaáætlun," segir hún. Þrátt fyrir þessa tilhneigingu virðist jöfn aukn- ing á bókunum í ferðir hjá Ferðaskrifstofu Guð- mundar Jónassonar í sumar, samkvæmt upplýs- ingum frá Mörtu Bjömsdóttur sölumanni í inn- anlandsdeild. Sigurjón Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri Ferðamiðstöðvar Austurlands, segir ennfremur að sumarið líti ágætlega út. „Við erum með flefri ferðamenn frá sumum markaðs- löndum og færri frá öðrum þannig að sumarið ætti að verða þokkalegt þegar á heildina er litið,“ segir hann. Sigurjón bendir hins vegar á að aukning hafi orðið á þátttöku í styttri skoðunarferðum út frá höfuðborginni. „Fólk gistir heldur í Reykjavík í viku og fer í dagsferðir. Sala í lengi-i ferðir út á land, minnkar þá að sama skapi,“ segir hann. Halldór Bjarnason framkvæmdastjóri Safari- ferða segir að 30% aukning hafi orðið á bókunum í gönguferðir og ferðir um suðurhálendið og 50% aukning í sérferðir um landið. „Rekstur ferða- þjónustunnar verður samt sem áður í járnum á þessu ári því við hefðum þurft að hækka verðið um 16%. Markaðurinn þolir hins vegar ekki meira en 4-5% hækkun," segir hann loks.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.