Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 1 5
AUSTURLANDADRAUMUR
Aldrei áður hefur verið jafnódýrt að ferðast til
Austurlanda, vegna hagstœðs verðlags og
gengisþróunar. Farþegar okkar til SA.Asíu í ár
skipta hundruðum, og ánœgja þeirra er slík, að
sumir eru að leggja upp í annað sinn sama
árið. Dvalarkostnaður er aðeins þriðjungur af
því sem gildir í Evrópu, en samt eru gœðin
meiri, frábœr hótel og þjónusta, sem óþekkt er
á Vesturlöndum í dag.
Töfrar 1001 nœtur í Austurlöndum, 1. okt., 3 vikur
Hér velurðu það besta, sem Austurlönd hafa að bjóða og gerir um leið bestu
ferðakaup ársins. Þú sérð þverskurðinn af merkilegri menningu í nútíð og
fortíð og nýtur lífsins á bestu hótelum heimsins, s.s. „Höll Gylltu Hestanna<(,
ferðast um endilangan Malasíuskagann, upplifir seiðmagnaða töfra Vietnam
og fádœma gestrisni og endar ferðina í einum glœsilegasta kaupstað
heimsins, Singapore. Ferðin er undir stjórn Ingólfs, sem gjörþekkir löndin
og menninguna. Lœkkað verð til 10. júní: - aðeins kr. 199.900 með öllum
fargjöldum, lúxusgistingu m. morgunverði og fararstjórn.
Austurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavík,
sími 56 20 400, fax 562 6564
Netfang: prima@heimsklubbur.is
Heimasíða: www.heimsklubbur.is
MUNIÐ HAGSTÆÐU FARGJÖLDIN
OKKAR UM ALLAN HEIM!
Forsjáll ferðamaður velur „BETRI FERÐIRNAR“ -
það besta, sem heimurinn hefur að bjóða.
Ferðir ársins eru uppseldar frá janúar til september.
HAUSTFERÐIR - LÆKKAÐ VERÐ
Vegna hagstœðs gengis - grípið einstakt tœkifœri œvinnar -
aðeins fáein sœti - fyrir aðeins 7/3 almenns verð.
Hnattreisan - 5. nóv. 30 dagar á kostakjörum - til lO.júní.
Fegursta leiðin um Suðurhvel jarðar á fegursta árstíma ,- óblandin lífsnautn: Suður-
Afríka, Ástralía, Nýja Sjáland, Tahiti, Argentína, Iguassu fossar, Rio de Janeiro.
STÓRKOSTLEG NÁTTÚRUUNDUR OG
LITRÍKT MANNLÍF OG MENNING -
ÓGLEYMANLEG UPPUFUN:
Blómaleiðin í S.-Afríku á leið til Cape
Town, Borðfjallið, Góðrarvonarhöfði, Vín-
löndin og garðamir. „Down Under“ með
Sydney, „skemmtilegustu borg heimsins“,
Auckland á Nýja Sjálandi, „Borg
seglanna“ og Rotoma, borg hinna inn-
fœddu Maoria og Kiwi, þjóðhœttirnir,
dansarnir og undurfagurt land. Flogið
sunnan miðbaugs austur fyrir daglínu til
Tahiti með draumkennda fegurð sína og
list, blómskrúð, dansa og fagrar meyjar.
Hápunktur ferðareynslu með dvöl á hinu
nýja, glœsilega „Le Meridien“ hóteli og
landkönnun á slóðum listmálarans
Gauguins og nœrliggjandi eyjum.
Flogið þvert yfir Kyrrahaf til Suður-Ameríku, en lent á sérkennilegri Páskaey.
Stemmningsfull Buenos Aires og Rio de Janeiro eftir viðdvöl á mesta fossasvœði heimsins,
Iguassu, - algjört undur og augnayndi, og er þá fátt talið upp af töfrum þessarar ferðar,
sem er „Toppurinn á tilvemnni.“ Skipulag, umsjón og fararstjóm: Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri.
Riviera Bay Resort Malacca
LOKKANDIKARÍBAHAFIÐ - VIKULEGA
Aldrei hefur úrval siglinganna verið meira, og fólk pantar langt fram í tímann til að geta
valið og notið bestu kjara. Við höfum enn bœtt þjónustu okkar með sérstökum fulltrúa
Heimsklúbbsins í Flórída, frú Sigrúnu Cline, og fer mikið orð af þjónustu hennar, sem
leysir hvern vanda. Siglingar á Karíbahafi em sérgrein okkar, og margir tengja þœr við
viku lúxusdvöl á draumfagurri eynni Dominikana. Prímadonnurnar okkar finna handa þér
besta kostinn, rétta timann, staðinn og verðið. Verð á flugi og vikusiglingu frá kr. 90 þús.
HEIMSJCLÚBBUR
INGOLFS