Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 29 Cohr sem ég leigi starfandi snyrti- fræðingum með öllu sem til þarf, tækjum þar á meðal.“ Ekki kveðst Sigurður aðspurður hafa borið hið minnsta skyn á snyrtivörur þegar innflutningurinn hófst. „Sonur minn athugaði hvað væri skynsamlegt að gera í þessum efnum og samstarfið við Mary Cohr varð ofan á. Einnig flytjum við inn breskar snyrtivörur sem heita Simple. Þetta er harður bransi og það krefst áræðis að fara inn á markaðinn með ný merki, en þetta gengur og tíminn mun vinna enn betur með okkur. Bók um íþróttamál fatlaðra Sigurður Magnússon er lands- frægur fyrir starf sitt að íþróttamál- um, hann var m.a. einn af frumkvöðl- um trimmsins. „Hugmyndin um þátttöku almennings í íþróttum sér til heilsubótar fæddist í Noregi og var kynnt á þingi í Ósló árið 1969. Hér á landi var stofnuð Trimmnefnd, á þessum árum þótti undarlegt háttalag að vera hlaupandi á al- mannafæri, en nú er slík sjón orðin harla algeng, svo ekki sé meira sagt, trimmið, íþróttaiðkun og heilsurækt eru orðin sjálfsagður þáttur í lífi margra. Víst þykir Sigurði vænt um þessa ágætu þróun en hitt er honum ekki síður hjartfólgið hve íþróttamál fatlaðra hafa tekið miklum stökk- breytingum til hins betra síðustu ár. „Eg er stundum kallaður faðir íþróttastarfsemi fatlaðra sem hófst fyrir 25 árum og nú erum við að leggja síðustu hönd á handrit að bók sem ég kalla Stærsti sigurinn - íþróttir fatlaðra á íslandi í 25 ár. Það var samþykkt snemma árs í fyrra að gefa þessa bók út í tilefni þessa starfs, sem hófst 1972. Bókin átti að koma út á afmælisárinu en hefur aðeins tafist. Ég var fenginn til að vera ritstjóri þessarar bókar og hef unnið að þessu verkefni með mjög góðu fólki. Bókin verður stór- fróðleg og skemmtileg, á þriðja hundrað blaðsíður, með 150 mynd- um. Þar segir frá því ævintýrastarfi sem fatlaðir hafa unnið í íþróttaiðk- un sinni. Það er mjög mikilvægt fyr- ir fatlað fólk að hafa fengið íþróttir j L T AW'k ; ■' ? 1 SUNDDROTTNINGIN Kristín Rós Hákonardóttir, ólympíu- heims- og Evr- ópumeistari, ásamt Önnu Rún Kristjánsdóttur verðandi sunddrottningu. Ljósmyndari/Jens Einarsson SIGRÚN Erlingsdóttir með son sinn Erling Þór Hafdal á góð- inn í líf sitt á þennan hátt, það skap- ar verkefni til að tala um og hlakka til að vera með í, í stað þess að sitja og bíða þess að tíminn líði fram að næstu máltíð. Endurhæfingarlæknar segja að það sé „toppurinn" á endur- hæfingu að geta verið með í íþrótt- um. I starfi mínu að íþróttamálum fyrir fatlaða finnst mér ég hafa gert mest gagn og það starf hefur gefið mér einna mest um dagana, fátt veit- ir fólki meiri gleði en gera öðrum gott. Segja má að Sigurður sé í fullri vinnu alla daga. „Málið er að ég get ekki heilsu minnar vegna stundað neins konar íþróttir eins og margir jafnaldrar mínir gera gjaman eftir starfslok, ég hef því séð mér þann kost vænstan að halda áfrarn að „Þessari vinnu er nú lokid en hún fólst í því að sameina tvenn lands- samtök hesta- manna í eitt. Hestamennska sem íþrótt er mitt „hugarfóst- ur“ frá upp- hafi,“ segir hann. vinna, það get ég hins vegar vel, þótt ég sé oft illa haldinn af verkjum í stoðkerfi líkamans, vegna fötlunar minnar. Sumir af kunningjum mfn- um hafa haft við orð að ég hijóti al- veg að vera „alveg að fara yfirum", að vera kominn á kaf í alls konar nýja atvinnustarfsemi, maður á mín- um aldri, en mér líkar þetta vel og lætur það vel, þvi ég get stjómað þessu öllu sjálfur. Vinnan er besta lyfjagjöfin, henni fylgir andleg og líkamleg vellíðan, ef viðfangsefnin eru við hæfi. í frístundum sínum dvelur Sigurð- ur gjaman með konu sinni, Sigrúnu Sigurðardóttur, og fjölskyldunni i sumarhúsi þeirra á bökkum Hvitár í Grímsnesi. „Þar byggist allt á að fegra, rækta og hlú að, hvort sem það er utan húss og innan,“ segir hann. „Starfið þar veitir mér líka mikla ánægju, þar eins og í öðra sem ég tek mér fyrir hendur má sín mest viljinn til að gera betur. Ég er einka- framtaksmaður með ríka félags- hyggju.“ Einstakt tilboð til Far- og Gullkortshafa VISA: Verð: 39.600 kr. til Vancouver og Calgary 19. ágúst -1. september Far- og Gullkorthöfum VISA gefst nú frábært tækifæri til að heimsækja nágrannaríki okkar í vestri, Kanada. Með þvf að fljúga til Vancouver á vesturströnd Kanada eóa Calgary í Alberta-fylki nýtur þú óviðjafnanlegrar fegurðar Kanada til hins ýtrasta. Einstæður regnskógur Vancouver-eyju, snævi þaktir tindar Klettafjalla og iðandi mannlíf sérstæðra borga gera ferðalagið ógleymanlegt. Frá og með 22. maí til 23. september fljúgum við tvisvar í viku til Calgary og Vancouver. Fjölbreyttir möguleikar bjóðast á tengiflugi til allra átta. Hafðu samband við sölufólkið hjá Samvinnuferöum-Landsýn sem mun aðstoða við að bóka bílaleigubíl, hótel og tengíflug eftir þfnu höfði. Verð: 52.400kr. Frá 22. maí til 12. júnf Almennt verð: 58.100 Verð: 59.600kr. Frá og með 17. júní Almennt verð: 67.100 Innifalið: Flug, skattar og gjöld. l 1 www.samvinn.is VISA xJJUJUJiJÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.