Morgunblaðið - 31.05.1998, Page 48
'48 SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Smáfólk
Hvernig líst þér á að kaupa kylf-
una sem Roy Hobbs notaði? Roy
Hobbs var skáldsagnapersóna.
Svo að það væri svindl ef ég
seldi þér hana. „Rétt er það.“
I LL TR*
SOMEBODV
EL5E...
MOU) UiOULP YOU
LIKE TO BUV THE
0ATTHAT U)A5USEP
BY ROY HO0057
^"
Ég ætla að
reyna einhvern
annan ...
Hvernig líst þér á að
kaupa kylfuna sem
Roy Hobbs notaði?
IlforgiitiMjifeifr
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Er þetta það
sem koma skal?
Frá Sigmundi Magnússyni:
SÍÐASTLIÐIÐ sumar ákváðum við
hjónin að heimsækja Hvalvatnsfjörð.
Okkur var í fersku minni lýsing
Omars Ragnarssonar í sjónvarpinu
er hann dásamaði
þetta svæði sem
ásamt Þorgeirs-
firði gengur undir
nafninu ,4 Fjörð-
um“. Við ókum út
Eyjafjörðinn
austanverðan.
Rétt innan við
Grenivík var skilti
við afleggjarinn
út í Hvalvatns-
fjörð. Gangna-
mannaskáli við Gil 19 km. Greiðfær
jeppavegur. Hvalvatnsfjörður 29 km.
Seinfær jeppavegur, stóð á skiltinu.
Hjá Gili blasti við okkur annað skilti.
Mynd af því fylgir greininni.
í gangnamannaskálanum var
vörður sem innkallaði gjaldið.
Hversvegna gjaldið? spurði ég.
„Jú,“ sagði vörðurinn „það var
nefnilega svo komið að niðri á sjáv-
arkambinum var kominn skítur og
skeinipappír undir annan hvern
stein svo að við byggðum hús yfir
klósett, vask og krana við Kaðal-
staði.“ Eg borgaði og ók áfram niður
á sjávarkambinn.
Eg læt mynd af þeirri byggingu
einning fylga greininni. Hún var um
1 km frá sjávarkambinum þar sem
vandann („skit og skeinipappír") var
að finna og um 20 metra frá tærum
bergvatnslæk. Kraninn og vaskurinn
voru því fyrir mig og líklega fleiri
sem um landið ferðast algjör óþarfi,
en því hvort klósettið leysti vandann
niðri á sjávarkambinum verður hver
að svara fyrir sig. „Húsið“, rökin fyr-
ir gjaldtökunni, var sjónmengun í
annars óspilltri náttúrunni. Ég sat
eftir með kvittun en Grýtubakka-
hreppur kr. 600 þó svo að það hafi
ekki verið hinn yfirlýsti tilgangur
með byggingunni. „Er þetta það sem
koma skal?“ varð mér hugsað.
Það kann að vera munur á „rétti“
sveitarfélags til að taka toll af ferða-
mönnum sem fara um eignarland
þess eins og „Fjörður“ eru líklega
Grýtubakkahreppi og óbyggðum
sem hreppurinn hefur eða kann að fá
stjómsýsluvald yfir. En hvemig svo
sem því er varið sýnir þetta atvik
eigi að síður tilgang stjómsýslu
Grýtubakkahrepps. Vísbendingar
um sama tilgang annars staðar komu
fram í glímu Ferðafélags íslands við
Svínavatnshrepp vegna Hveravalla á
síðastliðnum vetri og grein Guðna
Agústssonar, „Vegur á Heklu“, í
Morgunblaðinu 7. maí sl.
Oneitanlega hafa þessi atvik og
umræður undanfarið ýtt undir þá
skoðun að nú eigi með frumvarpi til
sveitarstjómalaga m.a. að lögfesta
þennan „rétt“ sveitarfélaganna, full-
trúa 4% þjóðarinnar, til þess að
„skattleggja“ hin 96% þjóðarinnar.
Hinn „nauðsynlegi" hraði á af-
greiðslu frumvarpsins virðist benda
til þess að stuðningsmenn frum-
varpsins séu hræddir við að frestun
á samþykkt muni leiða til að vilji
þjóðarinnar komi enn skýrar fram
svo að erfitt verði að samþykkja það
í trássi við vilja mikils meirihluta
hennar.
Sagt er að það sé eðli og réttur
lýðræðisins að meirihlutinn ráði.
Minnihlutinn verður að „sætta sig
við það“ eins og einn þingmaður og
ráðhema orðaði það í umræðu um
sveitarstjórnaframvarpið. Um flest.
mál er fjallað á Alþingi og skoðana-
skipti ná yftrleitt ekki út fyrir sali
þess. Hér ræður þvi „réttur lýðræð-
isins“ óumdeilanlega.
Nú hafa hinsvegar komið upp
nokkur skyld mál, þar á meðal
„Framvarp til sveitarstjórnalaga"
sem sérfræðingar og margs konar
áhuga- og hagsmunahópar utan Al-
þingis hafa á margan hátt tjáð vilja
sinn um. Þú þekkir þann vilja. Flest-
ir tilheyra þeim 96% þjóðarinnar
sem ekki fá aðild að stjórnsýslu á
40% landsvæðis þjóðarinnar. Hér er
á ferðinni óumdeilanleg þjóðarvakn-
ing, fólkið vill ekki það sem boðið er
upp á og allir aðrir þingmenn vita
það. Þegar svo háttar til verður það
að teljast mjög vafasamt að „réttur
lýðræðisins“ heimili þingmönnum að
hundsa svo víðtæka þjóðarvakningu
sem hér um ræðir. Að vísu löglegt en
siðlaust að flestra mati og í hæsta
máta óskynsamlegt.
Um stórmál eins og hér eru á ferð-
inni verður að fást þjóðarsátt. Af-
greiðslu þeÚTa þarf því að fresta til
þess að þau fái að gerjast í hugum
þeirra sem um þau vilja fjalla.
SIGMUNDUR MAGNÚSSON,
fyrrv. forstöðulæknir Rannsóknar-
stofu Landspítalans í blóðfræði.
Sigmundur
Magnússon
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.