Morgunblaðið - 14.06.1998, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
132. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tiittug'u slas-
ast í Noregi
í Noregi, urðu þess vegna að taka á
sig stóran krók.
Launþegasamtök flugumferðar-
stjóranna, AF, sögðu að slysið
myndi engin áhrif hafa á aðgerðir
sínar, og norsk stjórnvöld kváðu
það ekki myndu verða til þess að
þau hlutuðust til um að binda enda
á verkfallið.
Flugfélögin SAS og Braathens,
auk erlendra flugfélaga, reyna að
flytja farþega sína landleiðis milli
Oslóar og Gautaborgar, en ekki
hefur tekist að anna allri eftirspum
og þúsundir orðið fyrir óþægindum
vegna þessa. Meðal þeirra var
Kjell Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, sem í gær varð
að aflýsa fyrirhugaðri för sinni til
Álasunds þar sem hann ætlaði að
vera viðstaddur hátíðahöld í tilefni
af afmæli bæjarins.
Æfíngar flugherja NATO við Kosovo að hefjast
Júgóslavíuher „til-
búinn til varna“
Ósló. Reuters.
TUTTUGU og tveir slösuðust,
enginn alvarlega, þegar tveggja
hæða fólksflutningabíll með 54
norska ferðamenn innanborðs valt
nærri sænsku landamærunum í
gær. Fólkið var á leið til flugvallar-
ins í Gautaborg, þar eð ekki er
flogið frá flugvöllum í suðurhluta
Noregs vegna verkfalls þarlendra
flugumferðarstjóra.
Endanlegur áfangastaður var
Mallorca á Spáni. Slysið varð um
klukkan tvö í fyrrinótt að íslensk-
um tíma og varð af þeim sökum að
loka aðalveginum til Gautaborgar í
nokkrar klukkustundir. Farþegar í
annarri rútu, sem voru líka á leið
til Gautaborgar vegna verkfallsins
Fæðing
sýnd á
netinu
New York. The Daily Telegraph.
MILLJÓNIR manna um víða
veröld geta með aðstoð netsins
væntanlega fylgst með barni
koma í heiminn á þriðjudag.
Er þetta talið vera í fyrsta sinn
sem barnsfæðing verður sýnd
með þessum hætti.
Hin verðandi móðir er fer-
tug og býr í Orlando í Flórída.
Bandaríska Heilsusjónvarpið
fór þess á leit við hana að fá að
sýna myndir af fæðingunni á
vefsíðu sinni. Konan á þrjú
börn fyrir og hafa fæðing-
arnar alltaf gengið hratt og
vel. Eiginmaður hennar, lækn-
ar, hjúkrunarfólk, tveir
myndatökumenn, framleiðandi
og þulur verða viðstödd fæð-
inguna, auk áhorfenda um all-
an heim.
Konan, sem heitir Elizabeth,
sagði að þegar hún hefði fætt
sitt fyrsta bam hefði sér þótt
atburðurinn yfirþyrmandi.
Hún kvaðst ánægð með að fólk
geti fylgst með fæðingunni og
séð að það er ekkert að óttast.
Þeh' sem vilja fylgjast með
fæðingunni geta byrjað á slóð-
inni www.ahn.com og fetað sig
áfram. Er búist við að fæðingin
verði um klukkan tíu á þriðju-
dagsmorgun að íslenskum
tíma.
ÆFINGAR herflugvéla Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, yflr Alb-
aníu og Makedóníu munu hefjast á
morgun, mánudag, að því er banda-
ríska sjónvarpsstöðin CNN hefur
eftir heimildamönnum. Reuters
segir þær hefjast í dag.
Um 30 flugvélar frá Bandaríkjun-
um, Bretlandi, Kanada, Ítalíu og
Frakklandi munu taka þátt í æfíng-
unum, og í viðtali sem þýska blaðið
Bild am Sonntag birtir í dag segir
Volker Ruhe, varnarmálaráðherra
Þýskalands, að sex þýskar Tornado-
on'ustuvélai' muni einnig taka þátt í
æfingunum.
Varnarmálaráðherrar NATO til-
kynntu í vikunni að æfíngar yrðu
hafnar á næstu dögum vegna að-
gerða júgóslavneska hersins gegn
aðskilnaðarsinnum í Kosovohéraði
í júgóslavneska sambandsríkinu
Serbíu. Héraðið á landamæri að
bæði Albaníu og Makedóníu.
Loftheræfingunum er ætlað að
þrýsta á Slobodan Milosevic, for-
seta Júgóslavíu, um að láta af beit-
ingu hervalds í Kosovo. Albanía og
Makedónía eru ekki í NATO, en
hafa veitt leyfi fyrir æfingunum.
Hefur forseti Aibaníu veitt leyfi
til þess að flugvélar bandalagsins
lendi og fari í loftið frá flugvöllum í
landinu. Ekki er ætlunin að æfa
árásir á skotmörk á jörðu niðri, og
sögðu heimildamenn CNN að æf-
ingamar yrðu „lítið annað en yfir-
flug“.
Tvö bandarísk flugmóðurskip eru
til reiðu ef grípa þarf til björgunar-
aðgerða fari svo að einhverri flug-
vélanna hlekkist á. Bandaríkjamenn
hafa fjölda herflugvéla á svæðinu,
m.a. eru 36 F-16-prrustuþotur stað-
settar í Aviano á Italíu.
Vilja ekki lenda í útistöðum
við NATO
Zoran Lilic, einn helsti ráðgjafi
Milosevics, sagði í samtali við As-
sociated Press á föstudag að
júgóslavneski herinn vildi ekki
lenda í útistöðum við hersveitir
NATO, en hlyti að verja land sitt ef
bandalagið léti til skarar skríða í
Kosovo.
Lilic var forseti Júgóslavíu þar til
í fyrra og er nú aðstoðarforsætis-
ráðherra. Hann sagðist ekki líta svo
á að deilumar í Kosovo væru eigin-
legt stríð sem hefði alvarlegar af-
leiðingar í héraðinu, heldur væri
fremur um að ræða átök „milli ör-
yggissveita og hryðjuverkamann-
anna“ í Frelsisher Kosovo. Herinn
var stofnaður 1996 og á sér það
markmið að héraðið verði sjálfstætt
ríki. Um það bil 90% íbúa þar eru af
albönskum uppruna.
„Við vitum að komi til átaka við
NATO - það er reyndar fáránlegt
að svo mikið sem tala um það - eig-
um við enga möguleika," sagði Lilic
við AP. „En það er skylda júgó-
slavneska hersins að vemda landið
fyrir hverjum þeim, sem reynir að
ráðast inn með valdi.“
Lilic sagði að bandarísk stjórn-
völd ættu að fá albönsku skærulið-
ana til að láta af skotárásum og þá
myndu júgóslavnesk yfirvöld hætta
aðgerðum slnum gegn þeim. Rúm-
lega 250 manns hafa fallið frá þvf
lögregla í Serbíu hóf aðgerðir gegn
Frelsishernum í mars sl. Herinn
kveðst nú hafa um 40% af héraðinu
á valdi sínu.
Reuters
Mótmæli
á Austur-
Tímor
STÚDENTAR við háskólann í
höfuðstað Austur-Tímor efndu til
fjölmennra mótmæla þar í gær
og kröfðust þess að stjórnvöld í
Indónesíu efndu til almennrar at-
kvæðagreiðslu um sjálfstjórn
héraðsins og létu lausan Zanana
Gusmao, leiðtoga skæruliða í
héraðinu. Hann hefur setið í
fangelsi í Jakarta í 20 ár.
Indónesía réðst inn í Austur-
Tímor 1975 og innlimaði héraðið
ári síðar. Það var áður portú-
gölsk nýlenda. Sameinuðu þjóð-
irnar hafa aldrei viðurkennt yfír-
ráð Indónesa þar. Þetta var ann-
ar dagurinn í röð sem stúdentar
stóðu að mótmælum. Hrópaði
fólkið „Viva Timor Leste“ (Lifi
Austur-Tímor) og „Viva Xan-
ana“. Um eitt hundrað
indónesískir lögreglumenn voru
á varðbergi skammt frá háskól-
anum en ekki kom til átaka.
Forseti Indónesíu, B.J. Ha-
bibie, segir að til greina komi að
Gusmao verði látinn laus, en úti-
lokað sé að atkvæðagreiðsla fari
fram á Austur-Tímor. Kom þetta
fram í viðtali japönsku fréttastof-
unnar Kyodo við forsetann í gær.
Með íslenskuna
í farangrinum
FRA UPPHAFI
TIL ÁLVERS
MIKIL GROSKA