Morgunblaðið - 28.06.1998, Page 4

Morgunblaðið - 28.06.1998, Page 4
4 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 21/6 - 27/6 ► SÉRA Helga Soffía Konráðsdóttir, sdknarprestur í Háteigssókn, var kjörin formaður Prestafélags íslands á aðalfundi þess á mánudag. Þetta er í fyrsta sinn sem kona gegnir embætti formanns Prestafélagsins. ►NÝIR eigendur hafa tekið við Hótel Húsavík. Það er eignarhaldsfélag í eigu þrennra hjóna en þau keyptu hlut Páls Þórs Jónssonar núverandi hótelsljdra. ►TVÍSÝNAR horfur eru í vatnsbúskap Landsvirkjunar í haust. Vegna þurrka eru minnkandi líkur taldar á að fyrirtækinu takist að fylla miðlunarlón si'n og gæti komið til skerðingar á afgangs- og ótryggðri orku. ►Hrossaútflutningur er hafinn og fóru fyrstu hrossin til Immingham á Englandi. Ekkert hafði verið flutt út af hrossum síðan bann var sett á útflutning hrossa fyrr á árinu í kjölfar hitasóttar. ►HÉRAÐSDÓMUR Reykja- víkur sýknaði Framkvæmda- sjóð íslands og Framsóknar- flokkinn af kröfum Vífílfells ehf. um endurgreiðslu tæpra 100 milljóna króna vegna kaupa fyrirtækisins á hluta- bréfum í Gamla-Álafossi hf. og Fargi hf. í niðurstöðum dómsins kom m.a. fram að helsti tilgangur samnings- gerðarinnar hafí verið að nýta uppsafnað tap fyrir- tækjanna til lækkunar skatta en þó sé ljóst að málsaðilar hafi hins vegar allir gert sér grein fyrir að brugðið gæti til beggja vona um hvort tapsfrádrátturinn nýttist. Deilan við hjúkntnar- fræðinga óleyst DEILA hjúkrunarfræðinga og spítal- anna er enn óleyst, en uppsagnir stórs hluta hjúkrunarfræðinga taka gildi um mánaðamót. Uppsagnirnar munu hafa víðtæk áhrif á rekstur Sjúkrahúss Reykjavíkur og Ríkisspítalanna og hafa ýmsir sagt að neyðarástand blasi við. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra sagði í vikunni að reynt yrði að ná saman næstu daga, en skipuð hefur ver- ið nefnd ráðuneytisstjóra til að leita lausna. Þá hafa fimm fagstéttir á Ríkis- spítölum ákveðið að segja upp störfum, alls um 150 manns. Þetta eru læknarit- arar, lyfjatæknar, matarfræðingar, matartæknar og vélfræðingar. Forsetafrúin til lækninga í Seattle GUÐRÚN Katrín Þorbergsdóttir, for- setafrú, hélt til Seattle í Bandankjun- um til lækninga á miðvikudag. í reglu- bundinni rannsókn lækna nýlega kom í ljós að hvítblæðið sem Guðrún greindist með í fyrra hafði tekið sig upp á ný. Var það mat þeirra að hún færi strax til Seattle í beinmergsflutning. Guðjón Þórðarson fær þrjár milljónir GUÐJÓN Þórðarson landsliðsþjálfari hefur fengið dæmdar 3 milljónir lö-óna í bætur auk málskostnaðar en gerðar- dómur komst að því að riftun verktaka- samnings Knatt- spymufélags ÍA við Guðjón í desember 1996 hefði verið ólög- mætur. í niðurstöðu dómsins kom fram að Guðjón hefði ekki brotið neitt af sér sem réttlætti brott- rekstur en stjóm ÍA rak hann fyrir að hafa vanrækt starfsskyldur sínar við fé- lagið. Niðurstaða gerðardómsins er endanleg. Clinton í Kína HANDTAKA þriggja kínverskra and- ófsmanna varpaði skugga á upphaf umdeildrar heimsóknar Bills Clintons Bandaríkjaforseta til Kína sem hófst á fimmtudag. Bandarísk stjórnvöld mótmæltu handtökunum en Clinton, sem hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að láta viðskiptahagsmuni koma niður á baráttunni fyrir mannréttind- um, sagði að þær myndu þó ekki grafa undan þeirri stefnu hans að bæta sam- skiptin við kínversk stjórnvöld. Kín- verjar vísuðu allri gagnrýni á bug sem afskiptum af innanríkismálum Kín- verja. Yfirgnæfandi stuðn- ingnr við páskasam- komulagið FYLGISMENN páskasamkomulags- ins hlutu yfírgnæfandi stuðning í þing- kosningunum sem fram fóru á Norður- írlandi á fímmtudag. Allt bendir þó til þess að andstæðingar samkoimilagsins hafi hlotið a.m.k. 25 sæti á þinginu en þeir þurfa 30 sæti til að hafa starfsemi þess í hendi sér. Flokkur hófsamra kaþólikka, SDLP, hlaut flest atkvæði í fyrsta sæti í kosningunum en svo virð- ist sem Sambandsflokkur Ulster, UUP, muni þó hljóta flest sæti á þing- inu. Lán IMF til Rússa ekki nógu hátt Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF, hef- ur samþykkt að veita Rússum 670 milljóna dala lán, jafnvirði 47 milljarða íslenskra króna. Sjóðurinn, sem í síð- ustu viku frestaði veitingu lánsins, féllst á lánveitinguna eftir að hafa kynnt sér boðaðar efnahagsaðgerðir rússnesku stjórnarinnar. Lánið er þó ekki talið duga til þess að draga á sannfærandi hátt úr efnahagskrepp- unni í Rússlandi. ►HÆSTIRÉTTUR Banda- ríkjanna felldi í vikunni úr gildi lög sem kveða á um að forsetinn geti beitt neitunar- valdi á einstakar greinar í lögum um útgjöld og skatta án þess að hafna lögunum í heild. Niðurstaðan er sögð draga mjög úr möguleikum forseta á að skera niður út- gjöld. ►OPEC-ríkin hafa komið sér saman um að draga úr fram- leiðslu oli'u um 1,35 milljónir tunna á dag. Þrátt fyrir að yfirlýsing þessa efnis hafi enn ekki nægt til að hækka olíuverð er samkomulagið talið sigur fyrir samtökin. ►FÓTBOLTABULLUR hafa gert mikinn usla í tengslum við heimsmeistarakeppnina / knattspymu. Frakkar hafa tekið málið föstum tökum og á fimmtudag voru þrír Þjóð- verjar dæmdir í ársfangelsi án möguleika á náðun vegna þátttöku í slagsmálum. Þá vorú 100 drukknir Englend- ingar handteknir í Calais í Frakklandi og Ostend í Belg- íu eftir að þeir gengu ber- sersgang á föstudag. ►CARLOS Belo, biskup á Austur-Tímor, átti í vikunni viðræður við B.J. Habibie, forseta Indónesfu, um leiðir til að bæta ástandið á eyj- unni. Að viðræðunum loknum hvatti Belo sljórnvöld í Indónesfu til að auka borg- araréttindi íbúa eyjarinnar og draga úr herliði sínu þar. ►KRISTILEGIR demókratar með Helmut Kohl kanslara Þýskalands í broddi fylking- ar eiga á brattann að sækja í skoðanakönnunum en kosið verður í Þýskalandi eftir fjórar vikur. Breyting RÚV í hlutafélag könnuð í menntamálaráðuneyti BSRB gegn áformum um breytt útvarpslög í menntamálaráðuneytinu er unnið að því að athuga hvernig best verði staðið að því að breyta Ríkis- útvarpinu (RÚV) í hlutafélag í eigu ríkisins. Meðal hugmynda sem fram hafa komið í þeirri vinnu er að út- varpsstjóri verði æðsti stjórnandi RÚV hf. í daglegum rekstn og hann ráði aðra starfsmenn RÚV hf. án umsagnar eða tillagna annarra að- ila, gagnstætt því sem nú er. Þá eru hugmyndir uppi um að leggja niður Menningarsjóð útvarpsstöðva og Framkvæmdasjóð RÚV. Fimm manna starfshópur á veg- um Ríkisútvarpsins, svokallaður St- arfshópur um framtíðarsýn RÚV, hefur fjallað um hugmyndir menntamálaráðuneytisins og telur þær flestar afar jákvæðar. For- mannsfundur Bandalags starfs- manna ríkis og bæja (BSRB) lýsir hins vegar yfir eindreginni and- stöðu við áform Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra um að hluta- félagavæða Ríkisútvarpið (RÚV) og segir að RÚV eigi að vera „al- mannaútvarp sem lýtur almanna- stjóm“. í minnisblaði Harðar Einarsson- ar hrl., sem vinnur að endurskoðun lagaákvæða um RÚV fyrir mennta- málaráðuneytið, segir m.a. að RÚV yrði sveigjanlegra í rekstri yrði því breytt úr ríkisstofnun í hlutafélag. í minnisblaðinu segir einnig að hug- myndir séu uppi um að mennta- málaráðherra fari með hlut ríkisins í félaginu, en í því fælist m.a. að hann skipaði stjórn félagsins, sem hefði yfirumsjón með rekstri hluta- félagsins. í fréttatilkynningu frá BSRB er hins vegar varað við þeirri sam- þjöppun á pólitísku valdi sem fælist í því að fela „menntamálaráðherra einum yfirráð yfir þessari mikil- vægu stofnun,“ eins og segir í fréttatilkynningunni. „BSRB vill sterkt og öflugt Ríkisútvarp, upp- lýsinga- og menningarmiðil sem þjóni landsmönnum öllum, al- mannaútvarp sem lýtur almanna- stjórn," segir ennfremur. Morgunblaðið/Sigurður Fannar Slegið í miðnætursól • • Olvunarakst- ur sannaður á vettvangi SÝNATÖKUBÍLL Ríkislögreglu- stjóra var tekinn í notkun aðfara- nótt laugardagsins og lét lögreglan í Reykjavík nokkra ökumenn blása í öndunarmæli á vettvangi. Mælir- inn gefur niðurstöðu um áfengis- magn í blóði ökumanns á staðnum. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni flýtir þetta mikið fyrir af- greiðslu á málum, þar sem grunur er um ölvunarakstur, þar sem nið- urstaða fæst á vettvangi og ekki þarf lengur að senda menn í blóð- sýni, nema þeir séu of ölvaðir til slíkrar sýnatöku eða þeir streitist á móti. Bíllinn verður staðsettur víða um land á næstu vikum til að kanna ástand ökumanna. HEYSKAPUR er hafinn á Mjósyndi í Villingaholtshreppi í Árnessýslu. Að sögn bóndans á bænum, Bjarka Reynissonar, er það á svipuðum tíma og í fyrra en þó er heldur betri spretta nú en á síðasta ári. Á Mjósyndi er ræktað tún um 45 hektarar og tekur það um tíu daga að hirða túnin ef góður þurrkur næst. Það eru tvö ár síðan Bjarki tók að hirða túnin með rúlluböggum en áður var hann með súðþurrkun. Á Mjósyndi býr Bjarki ásamt konu sinni Vaigerði Gestsdóttur og eiga þau fimm börn. Viljayfirlýsing fímm aðila undirrituð á Isafírði Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson VIÐ undirritun, Bergur Torfason, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Halldór Halldórsson, bæjarsljóri ísaQarðarbæjar, Bjöm Teitsson, skólameistari Framhaldsskóla VestQarða, Páll Skúlason, rektor Há- skóla íslands, og Kristín Jónsdóttir frá Endurmenntunarstofnun HÍ. f C L A ísland - landið hlýja í norðri með Ijósmyndum Sigurgeirs Sigurjónssonarl er langmest selda bókin fyrirj erlenda ferðamenn. Fróðlegur texti eftir Torfa H. Tulinius. {> FORLAGIÐ Fæst á íslensku, ensku, sænskn, norsku, döns itélsku, spænsku Laugavegi 18 • Slmí 615 2500 • Sfðumúla 7 • Sfml 510 2500 Stefnt að rekstri fjar- náms í haust UNDIRRITUÐ var viljayfirlýsing um fjarnám á vegum Háskóla ís- lands á ísafirði á föstudag. Auk Há- skólans standa að yfirlýsingunni Endurmenntunarstofnun Háskólans, Fjórðungssamband Vestfirðinga, bæjarstjórn ísafjarðarbæjar og framhaldsskðli Vestfjarða á ísafirði. Stefnt er að því að tekið verði upp samstarf um rekstur fjarnáms á ísa- firði skólaárið 1998 til 1999 en nú þegar er hafinn undirbúningur að því. Gert er ráð fyrir að kennt verði í byrjun í rekstrar- og viðskiptanámi Endurmenntunarstofnunar Háskól- ans en einnig er í undirbúningi að flytja fyrirlestra og námskeið úr deildum Háskólans með hinu nýja kerfi. Framhaldskóli Vestfjarða á ísa- firði mun hýsa aðstöðu fyrir fjar- skiptabúnað og kennslu í húsnæði sínu að Torfnesi á ísafirði. ---------------- Rólegt í mið- bænum ÓVENJU fámennt var i miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags- ins og fór allt skemmtanahald vel fram að sögn lögreglunnar í Reykja- vík. Áætlað er að um 1.500 manns hafi verið þar á ferli á milli 3 og 5 um nóttina. Hertar aðgerðir lögreglu í mið- bænum eru komnar í framkvæmd og búið er að fjölga lögreglumönnum í bænum, bæði einkennisldæddum sem óeinkennisklæddum. Auk þess notar lögreglan nú færanlegar eftir- litsmyndavélar við löggæslustörf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.