Morgunblaðið - 28.06.1998, Page 8
8 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞÚ finnur ekki fyrir kuldanum þegar þú verður kominn í föðurlandið, Keikó minn.
Hagstofan segir íbúa Skorradalshrepps færri en 50
Hreppstjórinn lýsir
furðu á vinnubrögðum
NÝJUSTU mannfjöldatölur Hag-
stofu Islands sýna að íbúafjöldi
Skorradalshrepps er 46 manns,
miðað við 1. desember sl. Sam-
kvæmt því mun vera nauðsynlegt
að sameina hreppinn öðru sveitar-
félagi. Davíð Pétursson hreppstjóri
hefur óskað eftir að þessi úrskurð-
ur verði endurskoðaður.
Hreppsnefnd Skorradalshrepps
segir að íbúafjöldi hreppsins hafí
verið 52 hinn 1. desember sl.
Hreppsnefndin, ásamt þem sex
íbúum sem eru undanskildir í taln-
ingunni, hefur sent Hagstofunni
bréf þar sem farið er fram á end-
urskoðun á úrskurðinum, að öðr-
um kosti muni einstaklingarnir sex
leita réttar síns eftir öðrum leið-
um.
„Furðuleg vinnubrögð"
„Mér fannst með ólíkindum
hvemig þeir úrskurðuðu þetta og
við höfum óskað eftir því að þeir
endurskoði þennan úrskurð sinn,“
sagði Davíð Pétursson hreppstjóri
Skorradalshrepps í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Davíð nefndi dæmi eins þeirra
sex sem hefðu talið sig eiga lög-
heimili í Skorradalshreppi hinn 1.
desember sl. Hann hafí flutt í
Bessastaðahrepp í apríl sl., þar
sem hann hafi verið að byggja hús
sem hafi ekki verið tilbúið í desem-
ber sl. Hagstofan hafi hins vegar
skráð hann með lögheimili í fóður-
húsum í Reykjavík frá því í nóvem-
ber sL, jafnvel þótt hann hefði haft
lögheimili í Skorradalshreppi fram
í apríl. „Þetta eru hin furðulegustu
vinnubrögð, mér sýnist þetta bara
gert til að ná íbúatölunni niður fyr-
ir 50,“ sagði Davíð.
I félagsmálaráðuneytinu fengust
þær upplýsingar að málið yrði ekki
tekið fyrir á næstu tveimur til
þremur vikum, önnur mál hefðu
þar forgang.
Brimborg
kynnir
Daihatsu
Sirion
SIRION heitir ný bifreið frá
framleiðandanum Daihatsu sem
kynntur er hjá umboðinu Brim-
borg, nú um helgina. Hér er um að
ræða innan við fjögurra metra
langan smábíl sem boðinn er með
1.000 rúmsentimetra vél, sjálf-
skiptur eða handskiptur.
Eiginþyngd fólksbflsins er frá 830
kg. Bifreiðin kostar innan við eina
milljón króna með handskiptingu.
Daihatsu Sirion verður boðinn í
tveimur gerðum, CL og CX, og
kostar dýrari gerðin 1.148 þúsund
krónur. Meðal staðalbúnaðar hans
má nefna rafknúnar rúður, sam-
læsingu, hemlalæsivörn, tvo líknar-
belgi auk hliðarbelgja og útvarp og
segulband.
Kaffihlaðboi
FRÁ KL. 14-17
UPPSELT í MATARHLAÐBQRÐIÐ
Sunnudagar fyrir fjtílskylduna
Við tíleinkum fjölskyldunni alla sunnudaga í sumar,
með kaffi- og matarhlaðborði. LIFANDI TÚNLIST.
KAFFIHLAÐBORÐ FRÁ KL. 14-17.
UPPSELT í MATARHLAÐBORÐIfl í DAC.
Afmælí á sunnudögum
Kaffihlaðborðið á sunnudögum ;
, er tilvalíð fyrir afmælisveislur.
TILBOÐ FYRIR HÚPA.
leikur á píanó og
harmónikku fyrir gesti.
Skíðaskálinn Hveradölum
Veitingahús og veisluþjónusta frá 1935
Hueradölum, 110 Reykjauík, borðapantanir 567-2020
Um 4% landsmanna virkir blóðgjafar
Skjót viðbrögð
þegar hjálpar-
beiðnin barst
Sveinn Guðmundsson
FYRIR nokkrum
dögum barst blóð-
gjöfum hjálpar-
beiðni frá Blóðbankanum
þar sem þeir voru beðnir
um að bregðast skjótt við
og gefa blóð þar sem
birgðir væru brátt á þrot-
um.
Viðbrögð blóðgjafa
voru með ólíkindum góð
og á tveimur dögum söfn-
uðust rúmlega 300 eining-
ar af blóði en til saman-
burðar má geta þess að á
meðaldegi safnast um 50-
60 einingar.
Sveinn Guðmundsson
er forstöðulæknir Blóð-
bankans.
„Það er ekki einstakt að
sú staða komi upp að
skorti blóð því slík tilfelli
koma upp einu sinni til
þrisvar á ári.“
Hann segir að það sé sérstak-
lega áberandi fyrir stórhátíðir og
á sumrin þegar blóðgjafar eru
famir í sumarfrí. „Það sem gerð-
ist í þessu tilfelli var að við áttum
lítið af blóði á lager og það komu
upp óvænt tilvik, erfiðar aðgerðir
og slys á fólki sem þýddi að
birgðastaðan var dapurleg."
- Var vá fyrir dyrum ?
„Blóðbankinn reynir að eiga
öryggisbirgðir sem hljóða upp á
450-550 blóðeiningar en þegar
bankinn sendi út hjálparkall um
daginn voru birgðimar komnar í
um 200 einingar og vom á niður-
leið.
A hinn bóginn má segja að ör-
yggi var aldrei stefnt í hættu því
bmgðist var skjótt við og blóð-
gjafarnir sýndu einstök við-
brögð við beiðni okkar. Hinsveg-
ar hefði getað stefnt í hættu ef
blóðgjafar hefðu ekki svarað
kalli okkar.“
- Hversu margir komu til að
gefa blóð?
„Það fylltist allt hjá okkur og
sýnir í raun að þegar tilvik sem
þessi koma upp bregðast blóð-
gjafar vel við og skilja alvöm
málsins.
A tímabili var það mikið að
gera að sumir þurftu jafnvel að
bíða meira en klukkustund eða
hverfa frá og koma aftur síðar.
Helmingur af starfsfólki okkar
er í sumarfríi og því reyndi mikið
á kerfið hjá okkur um tíma. Alls
komu um 300 manns til að gefa
blóð á tveimur dögum og ég vil
róma viðbragðsflýti, þolinmæði
og jákvæðni blóðgjaf-
anna.“
Sveinn vill hvetja
blóðgjafa til að muna
eftir Blóðbankanum í
sumar og fara ekki í frí öðmvísi
en að gefa fyrst blóð.
- Nú hefur þingsályktunartil-
laga verið samþykkt sem á að
tryggja öryggi blóðbankaþjón-
ustu viðþjóðarvá?
„Fulltrúar allra stjómmála-
flokka samþykktu hana einróma
á þessu ári og fögnum við áhuga
þingmanna á málefnum Blóð-
bankans. Það þarf að tryggja ör-
yggi blóðbankaþjónustunnar við
þjóðarvá, s.s. jarðskjálfta,
hópslys og flugslys. Á vegum
opinberra aðila era til áætlanir
um viðbrögð við þjóðarvá en
þingsályktunartillagan miðar að
því að skapa aðstæður svo
ta’yggja megi öryggi blóðbanka-
►Sveinn Guðmundsson er fædd-
ur á Sigluflrði árið 1957. Hann
lauk kandidatsprófi í læknis-
fræði frá Háskóla íslands árið
1982.
Sveinn stundaði sérnám í
ónæmisfræði og blóðbankafræð-
um við háskólasjúkrahúsið í
Uppsölum í Svíþjóð frá 1986-
1993. Hann Iauk doktorsprófi
frá sama háskóla árið 1993.
Sveinn hefur starfað hjá Blóð-
bankanum frá 1993 og verið for-
stöðulæknir hans frá 1995.
Eiginkona hans er Kolbrún
Friðriksdóttir íslenskufræðing-
ur og á hann fjögur börn á aldr-
inum 3 mánaða til 16 ára.
þjónustunnar með tilliti til hús-
næðis, fjölda blóðgjafa og starfs-
liðs, jafnvel í ítmstu neyð.
- Hversu margir íslendingar
gefa reglulega blóð?
„Virkir blóðgjafar em um
10.000 sem eru um 4% lands-
manna. Þeir em ómetanlegir og
án þeirra væri ekki hægt að
veita nútíma krabbameinsmeð-
ferð, gjörgæslu nýbura né held-
ur bregðast við í ýmiskonar
neyðartilvikum.
Við viljum því auka vitund al-
mennings um mikilvægi blóð-
gjafar. Auk þess viljum við hlúa
að okkar blóðgjöfum með ýms-
um hætti, bæta aðstöðuna íýrir
þá og sinna útbreiðslustarfsemi
með fræðslu- og kynningu fyrir
blóðgjafa."
- Hverjir mega gefa blóð?
„ Allir sem era frískir, taka
ekki lyf og era lausir við sjúk-
dóma á aldrinum 18-
60 ára og þeir sem
þegar era blóðgjafar
geta gefið blóð til 65
ára aldurs. Karlar
mega gefa fjóram sinnum á ári
og konur þrisvar.“
- Hvernig er kynjaskipting
blóðgjafa?
„Konur em innan við 10%
blóðgjafa sem er lægra hlutfall
en víða annars staðar. Við höf-
um ekki sinnt því sérstaklega að
ýta undir blóðgjafir meðal
kvenna en fylgjumst vel með
járnbirgðum þeirra."
- Hver er algengasti blóð-
flokkurinn?
,Á>að er O flokkurinn sem við
auglýstum eftir um daginn. í
blóðflokki A em síðan um 30%
landsmanna og í blóðflokki B um
10%. Blóðflokkur AB er sjald-
gæfastur."
Blóðgjafar eru
ómetanlegir