Morgunblaðið - 28.06.1998, Page 10

Morgunblaðið - 28.06.1998, Page 10
10 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ísland er lifandi land. Hvergi er þetta sann- ara en þar sem jarð- hiti kraumar undir stærstu jökulhettu Evrópu, Vatnajökli, með nýlegum nátt- úruhamförum. Þar er því alveg sérstakt tækifæri til margvís- legra rannsókna, sem aldrei eru umfangs- meiri en nú í kjölfar gossins í Gjálp. Elfn Pálmadóttir fylgdist með þessum einstöku rannsóknum í vorleið- angri Jöklarann- sóknafélagsins og rannsóknastofnana í Grímsvötn, sem nú stóð í tvær vikur með þáttöku 35 leiðang- ursmanna. UPP ÚR miðri jökulhettu Vatnajökuls, á syðri barmi hinna merkilegu Grímsvatna, stendur hnjúkur með jarðhita í upp úr ísnum og dugar til að þama á Grímsfjalli hefur Jökla- rannsóknafélagið með árunum get- að komið upp þremur húsum til af- nota í rannsóknaferðum, sem er undirstaða þess að á þessum við- sjárverða jökli er komin brúkleg rannsóknastöð. Þegar ekkert fé var að hafa í jöklarannsóknir, fundu Jón Eyþórsson veðurfræð- ingur og dr. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur upp á því snjallræði að stofna 1950 Jöklarannsóknafé- lag íslands með áhugafólki í bland við vísindamenn, enda sögðu þeir að ekki væri síður mikilvægt að koma farartækjum með rann- sóknamönnum á þennan ómögu- lega stað og hafa hjálp sjálfboða- liðanna við að leysa nauðsynleg vísindaverk. Eftir að vað fannst á farartálmanum Tungnaá var 1955 ráðist í að byggja skála í Jökul- heimum við sporð Tungnaárjökuls- ins, sem lengst af hefur verið væn- legust leið til að komast á farar- tækjum upp jökulinn. 1957 var svo í vorleiðangri byggður á Gríms- fjalli gamli skálinn svonefndur, 1987 var þangað fluttur stærri skáli og fyrir 4 árum þriðja húsið, sem er snyrtilegur kamar með los- unarmöguleikum, gufubaði og handpumpaðri sturtu og geymslu, sem nú var lögð undir rannsókna- miðstöð með tölvum og sjálfvirk- Vísindi á Vatnajökli RANNSÓKNIR í Grímsvötnum á Vatnajökli veita einstakt tæki- færi, sem varla fæst annars staðar. Þarna er eitt öflugasta jarðhitakerfí jarðar. Hvergi í veröldinni er jarðhiti og slík eldvirkni undir jökli svo nokkru nemi. Til viðbótar hafa menn nú í fyrsta skipti tækifæri til að sjá hvernig jökullinn bregst við eld- gosi eins og varð 1996 í Gjálp. I Surtsey gátu vísindamenn séð hvernig móbergsfjall myndast undir sjó og nú er í fyrsta skipti hægt að fylgjast með hvernig móbergsljall myndast undir jökli. Rannsóknaferðir á Vatna- jökul að vori hafa heldur aldrei verið umfangsmeiri en í fyrra og nú í júní, þar sem fara fram margvíslegar merkilegar mæl- ingar og verið er að koma fyrir sjálfritandi mælingum til fram- búðar - enda skiptir okkur ís- lendinga óhemju máli hvað kraumar þarna undir Vatna- jökli. Sú ályktun að e.t.v. sé að hefjast nýtt óróatímabil í Vatna- jökli byggir á tvennu, að því er Magnúsi Tumi Guðmundsson út- skýrir. Annars vegar að gossag- an sýnir að eldvirkni í Vatna- jökli virðist lotubundin, með tíð- uimeldgosum í 60-80 ár og álíka löngu rólegu tímabili á milli, og því;megi vera að 60 ára löngu róíegu tímabili sé lokið með þéssu gosi. Hins vegar hefur jarðskjálftavirkni farið vaxandi siðustu 20 árin, sem bendir til að óróatímabil geti verið í nánd. í vorferð JÖRVA, Raunvís- indastofnunar Háskólans, Landsvirkjunar og Veðurstofu eru markmiðin að kortleggja mekanismann kringum eld- stöðvarnar og væntanleg kviku- hólf undir jöklinum við Gjálp og líka í Skaftárhlaupum, fínna hvað veldur því að vatnið hleyp- ur úr Grímsvötnum við þessa stöðu en ekki einhveija aðra og yfirleitt að reyna að búa til lík- an af því sem er að gerast þarna undir. fssjármælingar á gosstöðvun- um eru því mikilvægar til að fá nokkuð nákvæma lögun á fjall- ið sem myndaðist og með þyngdarmælingum til að fínna hvers konar berg þar er, bólstraberg eða bara ösku- hrúga, jafnfram sem gerðar eru segulmælingar. Einnig voru nú settar út stikur til að skoða hvernig ísinn skríður inn í gostöðina og breiðir yfír öll ummerki. f annan stað fóru fram heita- vatnsboranir í Grímsvötnum, sem er alveg nýr þáttur, og mun hugsanlega varpa nýju ljósi á hvernig Grímsvatna- hlaup byija. Eftir stóra hlaupið fyrir tæpum tveimur árum eru miklar breytingar á þröskuldin- um sem hefur hemil á vatns- hlaupinu, þar sem ísstiflan úr vötnunum laskaðist töluvert og þynntist, svo að hlaup verða við lægri vatnsstöðu en áður. Varð lítið hlaup í vetur og einnig lek- ur úr vötnunum. Grímsvötnin hafa því staðið lágt, ís flætt inn í þau og íshellan þykknað, hvort sem það hefur áhrif til frambúðar eða ekki. Tókst að bora í útfallinu holu niður á botn og setja sjálfritandi þrýsti- skynjara á botninn. Og í bor- holu í sjálfum Grímsvötnum verður samskonar þrýstiskynj- ari, sem nú var komið fyrir, og mun radíósendir í framhaldi senda upplýsingar um botn- þrýstinginn, þ.e. þungann á vatnssúlunni, á Grímsfjall og þau gögn flutt áfram í bæinn. Eftir það er gamall draumur að verða að veruleika, að verði komin sjálfvirk skráning á vatnshæð Grímsvatna, sagði Magnús Tumi. Svo er reyndar að sjá en á eftir að staðfesta, að ýmsir sig- katlar á sjálfu Grímsvatnasvæð- inu séu núna að dýpka, sem bendir þá til þess að jarðhiti sé að aukast. Það gætu verið áhrif gliðnunar á svæðinu í kjölfar gossins. Við það verður bergið vatnsgengara og grunnvatn leitar lengra niður í bergið að rótum heitrar Grímsvatnaeld- stöðvar og vinnur þar meiri varma. Þriðja stóra verkefnið í þess- um vorleiðangri eru jarð- skjálftamælingar á Vatnajök- ulssvæðinu til að kortleggja kvikuhólfín í jarðskorpunni. Það verkefni er á vegum Bryn- dísar Brandsdóttur á Raunvís- indastofnun í samvinnu við vís- indamenn í Cambridge, og með fullkomnum tækjum fengnum að láni frá bandarískum tækja- bönkum. Búið var að koma fyr- ir 25 skjálftamælum út um jökulinn og seinni vikuna var komið fyrir 16 mælum á Bárð- arbungu. Þá eru komnir á jökulinn yfír 40 skjálftamælar sem hlusta á alla skjálfta sem þar verða. Er hver þeirra knú- inn af sólarsellum og útbúinn með harðan disk, sem safnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.