Morgunblaðið - 28.06.1998, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 28.06.1998, Qupperneq 17
MORGUNB LAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 17 ÍÞRÓTTIR ur vakið mikla athygli og víst er að engum kæmi á óvai-t þótt sæist til Owens í kyrtli og með kerti í frí- stundum sínum frá boltanum, svo ró- lyndislegt er fas hans utan vallar. Innan vallar tekur hins vegar við miskunnarlaus og yfírvegaður mark- varðahrellir, sem gefst aldrei upp og sækir fram af leiftrandi sjálfstrausti, sem jafnvel félagar hans hjá Liver- pool segja að sé ógnvekjandi. Sjálfstraust leikmannsins þarf hins vegar ekki að koma á óvart. Ovenju glæsilegur ferill hefur nefnilega verið sem dans á rósum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur verið fylgst vel með markaskorun Owens á undanfömum árum. Hæstu einkunnir í akademíu enska knattspyrnusambandsins og markakóngstitlar alh-a unglinga- flokka eru tæpast tilviljunin ein og eitthvað hlaut að rætast úr stráknum sem tíu ára gamall sló markamet Ians Rush í flokki skólapilta. „Owen var alltaf bestur í sínum ár- gangi,“ segir Bryn Jones, kennari hans í Hawarden drengjaskólanum. „Hann beið ekki eftir að hlutirnir kæmu af sjálfu sér, heldur fram- kvæmdi og var alltaf á ferðinni, með eða án boltans. Hann var afar bráð- þroska.“ Velgengnin hefur ekki stigið strák til höfuðs, ekki enn að minnsta kosti. Þannig segist hann vera fullsáttur við 10.000 punda vikulaunin sín (1,2 milljónir ísl. króna) og sjö ára samn- inginn við Liverpool, sem hann skrif- aði undir fyrir fáum mánuðum. Auk- inheldur segist hann ekki hafa í hyggju að flytja úr foreldrahúsum á næstunni, en viðurkennir þó að á dögunum hafí hann byrjað að borga heim! Hann ætti líklega að hafa efni á því. Þótt tíu þúsund pund séu aðeins tæpur fjórðungur af því sem t.d. Bri- an Laudrup mun fá hjá Chelsea á viku, er það samt dágóð summa og ekki spillir íyrir risasamningur við Umbro íþróttavörufyrirtækið, sem færir honum hálfa milijón sterl- ingspunda árlega næstu fimmtán árin. Pantaður í byrjunarliðið Alkunna er hversu íhaldssamur Glenn Hoddle, landsliðsþjálfari Bng- lendinga, hefur verið á leikmanna- hóp sinn. Leikmenn, sem átt hafa undir högg að sækja hjá félagsliðum sínum, hafa nánast „átt“ sæti vís í landsliðinu meðan sterkir menn í feiknaformi hafa verið úti í kuldan- um löngum stundum. Því kom það kannski ekki svo mjög á óvart þegar í ijós kom að þjálfarinn kaus fremur að láta Teddy Sheringham, leikmann Manchester United, leika í framlinu liðsins á HM ásamt fyrirliðanum Al- an Shearer. Þeh- félagar eru gamal- reyndir í fremstu stöðum enska liðs- ins og hafa oft náð vel saman. Marg- ir vildu sjá Owen ásamt Shearer í framlínunni, en Hoddle bað menn að sýna biðlund; hans tími myndi koma. Lineker helsta hetjan EITT helsta goð Michaels Owens er enski framherjiun Gary Lineker, sem lengi gerði garðinn frægan með landslið- inu og stórliðum, eins og Barcelona og Tottenham. Hann segist hafa grátið sáran þegar Lineker misnotaði víta- spyrnu á HM ‘90 og enska liðið féll út. „Ég hef alltaf viljað lfkjast Gai*y Lineker," segir Owen. „Hami var ótrúlegur í HM ‘90 á ftalíu og markheppni hans og útsjónarsemi var með ólík- indum.“ Ekki spillti fyrir, að Lineker lék eitt timabil með Everton, en Owen var stuðn- ingsmaður í æsku, enda lék faðir hans með liðinu. „Ég hélt alltaf með Everton og Gary var hetjan mín í liðinu. Ég reyni að taka mér hann til fyr- irmyndar, enda er hann einn besti leikmaður allra tíma.“ Biðlund enskra knattspyrnuá- hugamanna varði þó ekki lengi. Eftir dapra frammistöðu Sheringhams og glæsilegt mark varamannsins Owens í tapleiknum gegn Rúmeníu var morgunljóst hvert stefndi og bylgja skilaboða skall á herbúðum enska landsliðsins. „Gefðu Owen tækifær- ið!“, „Hættu þessari þrjósku!“ eða jafnvel „Hann er okkar eina von“ voru dæmi um uefni bréfanna sem send voru og Hoddle gat ekki annað en valið snillinginn unga í byrjunar- liðið gegn Kólumbíu. Mark gerði hann ekki í fyrrakvöld, en hraði hans, áræði og útsjónarsemi skaut varnarmönnum Kólumbíu ítrekað skelk í bringu og nær öruggt má telja, að ofangreindir eiginleikar hans verði eitt helsta vopn Englend- inga gegn geysisterku liði Argent- ínumanna í sextán liða úrslitunum á þriðjudag. Reuters PRINSARNIR Charles og Harry voru mættir til Lens til að hvetja sína menn í leiknum gegn Kólumbíu. Ótrúlega snöggur! GEYSILEGUR hraði hefur jafnan verið talinn einn helsti styrkur Michaels Owens sem knattspymu- manns og ítrekað hefur hann komið vamarmönn- um í vandræði með því að sækja hratt beint á þá. Mætti helst líkja Owen við Hollendinginn Marc Overmars í þessu sam- bandi, en Owen hefur mælst hlaupa hundrað metrana á 10,9 sek. Eittafmeistaraverkum vöíkswagen erCaddy. Verð er frá kr. 991.967.- án vsk. Volkswagen Transporter er mest seldi sendibill á Islandi ánð 1996. Verð er frá kr. 1.305.220.- án vsk. Nýi LT sendibfllinn er sá stærstl ístórri fjölskyldu atvinnutækja frá Volkswagen, Verð á lágþekju er frá kr. 2.273.092.- án vsk. NýkynslóðVWGolf, eins vinsælasta fólksbils allra tlma, nú glæsilegri en nokkru siiinlfyrr. Verð er trá kr. 1.104.000,- án, vsk 'Þæreru margar góðarstundirnar sem fólk hefur átt i Caravelle hópferðabílnum. Verð er frá kr. 2.420.000.- með vsk. Transporter Double Cab eru ódrepandi vinnuþjarkar sem aldrei gefast upp. Verð er frá kr. 1.518.072.- án vsk. Allar gerðir Transporter fást fjórhjóladrífnar. Verð er frá kr. 1.702.811.- án vsk. Volkswagen Polo er snöggur og lipur bíll sem kemur sífellt á óvart. Verð er frá kr. 793.574.- án vsk. Volkswagen Oruggur á alla vegu! Transporter háþekjanhéntar þeim sem þurfa meira rými fyrir vörur. Verð er frá kr. 1.638.554.- án vsk. HEKLA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.