Morgunblaðið - 28.06.1998, Side 18

Morgunblaðið - 28.06.1998, Side 18
18 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ 100 ár frá fæðingu Sigfúsar Jónssonar HINN 29. júní 1898 fæddist að Hofstöðum í Miklaholtshreppi piltur er síðar átti eftir að setja mark sitt á sögu Morgunblaðs- ins í tímans rás. Hann fæddist þeim hjón- um Jóni Þórðarsyni og Kristínu Hannes- dóttur er þá voru þar í vinnumennsku hjá Hjörleifi bónda Björnssyni. Fyrir áttu þau hjón fjögur börn, Þorstein, Elínu, Þorberg og Áma, en þrem árum síðar fæddist Jón. Rétt fyrir jólin árið 1900 fór Jón Þórðar- son til Stykkishólms að sækja nauðsynjar fyrir jólahátíðina. Hann ætlaði að verða samferða öðrum manni á heimleiðinni, en sá tafðist svo Jón þrammaði einn af stað upp Kerlingarskarðið með allþunga byrði. Veður fór þá versnandi, hlóð niður snjó og færðin þyngdist. Fjölskylda og heimilisfólk á Hofstöðum beið ferðamannsins, en ár- angurslaust. Samferðamaðurinn sem átti að verða sneri aftur og komst kalinn til byggða í Helgafellssveit. Er það fréttist suðuraf var ljóst að slys hafði orðið. Gerð var tilraun til leitar en ótíðin var svo mikil að ekki var fært um fjallið svo vikum skipti. Undir lok janúar gerði loks þíðu og fóru menn enn til leitar. Fannst lík Jóns hátt í skarðinu. Hann var jarðaður að Miklaholti 3. febrúar 1901. Nú urðu mikil umskipti hjá Kristínu og bömum hennar. Börnunum var komið fyrir á bæjum í sveitinni, Þorsteinn ólst upp á Hofstöðum, Elín á Miðhrauni, Þorbergur á Borg, Ami á Ytra-Lágafelli og Jón ólst upp á Syðra-Lágafelli. Sigfús fylgdi hins vegar móður sinni, fyrst að Amartungu í Staðar- sveit, en þegar Sigfús var 11 ára fluttust þau í Stykkishólm. Sigfús vann öll venjuleg störf í Stykkis- hólmi og þegar hann þroskaðist vann hann í nokkur ár við verslunarstörf. Hugur hans stefndi til frekari menntunar og komst hann til verslunamáms í Kaupmannahöfn en aðeins í einn vetur. Þá lá leiðin til Reykjavíkur og komst hann fljótlega til starfa hjá endurskoðunar- skrifstofu, Centralanstalten. Það fyrirtæki sá um endurskoðun á reikningum Arvak- urs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins. Það var gæfuspor sem stigið var árið 1923 er stjóm Arvakurs hf. réð Sigfús Jónsson til starfa á skrifstofu Morgun- blaðsins. Hann starfaði í fyrstu sem gjald- keri fyrirtækisins en varð brátt í raun auk fytrgreinds starfs bæði skrifstofustjóri þess og framkvæmdastjóri, enda þótt hann bæri ekki þann titil fyrr en 1942. Morgunblaðið var á tímamótum er Sig- fus Jónsson réðst í þjónustu þess. Að baki vom mikil erfiðleikaár. En nú fór að verða bjartara framundan. Ári síðar réðust tveir ungir og dugmiklir menn sem ritstjórar, þeir Valtýr Stefánsson og Jón Kjartansson, og má segja að þá hefjist framfaratímabil í sögu blaðsins. Valtýr varð brátt einn af að- alhluthöfum Árvakurs og meðlimur stjóm- ar félagsins. Með þeim Sigfúsi tókst mildð og gott samstarf og vinátta, sem hélst með- an báðir lifðu. Þótt nú kæmu mörg hagstæð ár lyr- ir rekstur blaðsins skipti um til hins verra í kreppunni 1931 til 1939 og kom það ekki síst niður á þjónustufyrirtækjum eins og dagblöðum. Sigfús og samstarfsmenn hans hjá Árvakri þurftu því á öllum kröftum að halda til að tryggja reksturinn. Kom þá til liðs við fyr- irtækið faðir þess sem þetta skrifar, Sveinn M. Sveinsson í Völundi. Hann lagði fram allmikið fé á þeirra tíma mælikvarða og settist í stjóm félagsins ásamt þeim Guð- mundi Ásbjömssyni, Hallgrími Benedikts- syni og Valtý Stefánssyni. Með Sveini og Sigfúsi tókst hið ágætasta samstarf og hitt- ust þeir mjög oft, jafnvel daglega til þess að fara yfir málin. Þegar kom fram á stríðsárin fór mjög að vænkast hagur blaðanna. Fór þá Árvakur að huga að vélakaupum fyrir prentsmiðju, en þangað til hafði öll prentun farið fram hjá Isafoldarprentsmiðju hf. Einnig leigði það fyrirtæki blaðinu húsnæði fyrir skrif- Ekki verður hjá því komist að samtvinna sögu Sigfúsar Jónssonar og Morgunblaðsins eins og störfin við blaðið voru honum eitt og allt. stofu, ritstjóm og afgreiðslu. Fyrst var keypt dagblaðapressa og síðan setjaravélar og tók Arvakur alfarið við rekstri alls prentverks 1. júh' 1948. Varð þá Sigfús prentsmiðjustjóri fyrirtækisins ásamt framkvæmdastjórastörfum. Hann var fljót- lega kosinn í stjóm Félags prentsmiðjueig- enda og bættust þá kjarasamningar við prentara ofan á fyrra annríki. Ekki verður hjá því komist að samtvinna sögu Sigfúsar Jónssonar og Morgunblaðs- ins eins og störfin við blaðið vora honum eitt og allt. Verður því haldið áfram og skýrt frá gangi mála. Nú var svo komið að Morgunblaðið hafði sprengt af sér húsnæðið, prentvélin orðin allt of afkastahtil og tók átta klukkustundir að prenta upplagið. Nú varð að fara að byggja. Lóðin að Aðalstræti 6 fékkst keypt, en þá hófst baráttan við að fá fjárfestingar- leyfi og byggingarleyfi. Samstarf komst á við eigendur Vélsmiðjunnar Héðins um að sameina lóðimar Aðalstræti 6A og Aðal- stræti 6B og byggja húsið sameiginlega og gera margbrotna sameignarsamninga. Um þetta leyti féll faðir undirritaðs frá, og varð að samkomulagi í fjölskyldu okkar, að undirritaður tæki sæti hans í stjórn Ár- vakurs hf. hinn 15. desember 1951. Tókst strax góð og farsæl samvinna okkar Sigfús- ar. Nú fékk undirritaður að reyna hve traustan og heilsteyptan mann Sigfús hafði að geyma. Hann lét sér mjög annt um starfsfólk fyrirtækisins, enda vinsæll vinnuveitandi og lá öllum starfsmönnum gott orð til hans, enda reyndist hann því hollráður jafnt við störf þess sem og í einkalífi. Hann fann vel til þeirrar ábyrgðar sem honum var falin af stjóm og starfsmönnum blaðsins. Undirrituðum er alltaf minnisstætt þegar hann var að ræða við stjómarmenn, þegar fór að nálgast áramót, hverjir möguleikar væra á því að greiða starfsfólkinu nokkra jólauppbót á umsamin laun. Sigfús lagði metnað sinn í að hafa safnað í gildan sjóð af þessu tilefni og var aldrei ánægðarí en þeg- ar hægt var að gera vel við fólkið. Sá sem þetta ritar vill htillega minn- ast á upphaf byggingarinnar við Aðalstræti, enda var okkur Sigfúsi fahð að sitja í byggingamefnd hússins ásamt Valtý Stefánssyni og Sveini Guðmundssyni í Héðni. Það barst í tal hvemig félag okkar væri í stakk búið að standa undir svo miklum framkvæmdum og byggingarkostnaði. Þá sagði Sigfús: Völundur hf. leggur til timbrið, glugga og hurðir, H. Benediktsson leggur til steypu- styrktarjám, sement og þakjárn, Sveinn í Héðni greiðir vinnulaunin og ég skal vera gjaldkerinn og ef til vill get ég komið með smágreiðslur þegar mikið liggur við. Þetta sagði Sigfús með bros á vör og varð mér þetta minnisstætt. En allt fór þetta vel að lokum og stóð félagið við allar skuldbind- ingar sínar þegar upp var staðið. En allt reyndi þetta á Sigfús og ráða þurfti fram úr mörgum erfiðleikum, en honum tókst það farsællega. Hann hafði til að bera bæði áræðni og framsýni, sem þó var blönduð þeirri varfærni sem stýrði lausn vandamál- anna farsællega í höfn. Eins og áður sagði varð eigi sundur greind ævi og saga Sig- fúsar annars vegar og svo Morgunblaðs- ins, eins um allar framfarir og velgengni um áratuga skeið. Sigfús starfaði sam- fleytt hjá Árvakri hf. og Morgunblaðinu í 45 ár; hann kom tæpra 25 ára og lét af störfum sjötugur. Sigfús var mikill bókamaður, átti mikinn og góðan bókakost og las mikið, hafði gam- an af ljóðum og var mikill aðdáandi Einars Benediktssonar. Hann var áhugasamur og glúrinn laxveiðimaður og vel virtur og dáð- ur af félögum sínum við þá íþrótt. Oft veiddu þeir saman Sigfús og Viggó Jónsson í Isafoldarprentsmiðju. Sigfús var heilsuhraustur lengst af ævi sinnar. Þó fór að bera á veikindum hin síð- ustu starfsárin og eftir að hann lét af störf- um 1. júlí 1968 var hann oft heilsuveill. Sigfús Jónsson kvæntist Krístínu Guð- jónsdóttur 17. september 1925, en hún lést 1. desember 1957. Þeim varð ekki barna auðið. Sigfús hafði alla tíð gott samband við systur sína Elínu sem gift var Ólafi Ey- vindssyni, og hennar fjölskyldu. Eftir að Sigfús lét af störfum fylgdist hann vel með því sem var að gerast niður á blaði. Hann bauð mér og ritstjóranum oft í kaffi og þótti gaman að spjalla um hvað væri helst títt neðan af blaði og lét sér í alla staði umhugað um allar framfarir og vel- gengni íyrirtækisins. Sigfús Jónsson lést 27. júlí 1975, þá orðinn 77 ára. Haraldur Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.