Morgunblaðið - 28.06.1998, Síða 21

Morgunblaðið - 28.06.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 21 Bergljót Jónsdóttir framkvæmdastjóri Listahátíðar í Björgvin Ihugar að hætta í haust „MÉR Iíkar illa að reka menningarstofnun með halla,“ segir Bergljót Jónsdóttir framkvæmdastjóri Björgvinjarhátíðarinnar. NORSK dagblöð hafa sagt frá því undanfarna daga að Bergljót Jóns- dóttir framkvæmdastjóri Listahá- tíðarinnar í Björgvin hafí á fundi með stjóm hátíðarinnar tekið sér frest til haustsins áður en hún svarar endanlega hvort hún vilji halda starfi sínu áfram. Upphafleg- ur samningur Bergljótar rennur út í í haust og stjóm hátíðarinnar hef- ur mikinn áhuga á að ráða Bergljótu áfram til starfans. Þrátt fyrir óánægju almennings í Björgvin með ákvörðun Bergljótar í vor um að fella niður hefðbundinn hátíðarsöng við opnun hátíðarinnar eru stjórn hátíðarinnar og norskir fjölmiðlar á einu máli um að Bergljót hafi unnið gott starf við Björgvinjarhátíðina og tekist að blása nýju lífi í hana og gera hana að einni fjölbreyttustu og fram- sæknustu listahátíðinni á Norður- löndum. Fyrir fáeinum vikum slógu norskir fjölmiðlar því upp að Bergljót ætti bara að fara aftur heim til íslands en nú kveður við annan tón og flestir á einu máli um að mikill missir væri að þessari kjamakonu frá íslandi. „Eg hef fengið tilboð um að fram- lengja samninginn og ég hef ekki svarað því ennþá. Eg er í viðræð- um við stjórn hátíðarinnar,“ sagði Bergljót í samtali við Morgunblað- ið. Það eru nokkrir hlutir sem þarf að skoða sérstaklega vel, t.d. fjár- veitingar frá opinbemm aðilum, sem þurfa að verða hærri, en nú nema þær 38 prósentum af heildar- kostnaði við hátíðina. Hin 62 prósentin eru peningar sem við finnum sjálf, annað hvort með miðasölu eða stuðningi einka- aðila. Eg vil mjög gjarnan að hátíð- in njóti stuðnings frá atvinnulífinu en hlutfallið milli hins opinbera og einkageirans þarf að vera helming- ur á móti helming. Það er lágmark- ið.“ Bergljót segir starfið mjö spenn- andi á margan hátt. „ Þetta er líka mjög erfitt starf og það reynir vemlega á að þurfa að sækja rúm- lega 12 milljónir út í atvinnulífið og gegnum miðasöluna en 20 milljónir er sú fjárhæð sem hátíðin þarf. Mér líkar illa að reka menningar- stofnun með halla, ég hef aldrei gert það og þetta er í fyrsta sinn sem ég stend frammi fyrir því, þó svo að ákvörðan um hallarekstur sé ekki tekin af mér heldur stjóm hátíðarinnar.. Bergljót segir að Björgvinjarhá- tíðin njóti mun lægri styrks frá hinu opinbera en flestar aðrar norskar menningarstofnanir en skýringuna á mismuninum segist hún ekki hafa á reiðum höndum. „Kannski það sé eitthvað til í því sem Ase Kleveland fyrrverandi menntamálaráðherra sagði fyrir þremur áram: „Björgvinjarhátíðin klárar sig alltaf.“ En nú segi ég að það sé ekki hægt að ganga útfrá því sem vísu að sex manneskjur klári sig af því að reka stærstu listahátíð á Norðurlöndunum án þess að fá almennilegan stuðning frá opinberam aðilum.“ Bergijót segir að afstaða hennar nú til áframhaldandi ráðningar sé á engan hátt tengd viðbrögðunum við ákvörðun hennar um að fella niður hátíðarsönginn við setningu Listahátíðarinnar í vor. „Þetta hef- ur ekkert með það að gera enda lá tilboð stjórnarinnar fyrir áður en hátíðin í vor hófst en hún gekk af- skaplega vel,“ segir Bergljót Jóns- dóttir framkvæmdastjóri Listahá- tíðarinnar í Björgvin í Noregi. BALEt BALENO Sjálfskipting kostar 100.000 aukalega ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ: • vökvastýri • 2 loftpúða • aflmiklar vélar • samlæsingar rafmagn í rúðum og speglum • styrktarbita i hurðum • • samlitaða stuðara • SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sfmi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf, Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elfasson, Grænukinn 20, slmi S5S15 SO. Isafjörður: Bilagarður ehf,Grænagarði, simi 4S6 30 95. Keflavik: BG bllakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, slmi 482 37 00. Hvammstanga: Blla- og buvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 26 17. SWIFT BALENO VITARA GRAND VITARA TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: GLS 3d 980.000 KR. 1,3GL 3d 1.140.000 KR. JLX SE 3d 1.580.000 KR. GR, VITARA 2,0 L 2.179.000 KR. GLX 5d 1.020.000 KR. l,3GL4d 1.265.000 KR. l,6GLX4d 1.340.000 KR. 1,6 GLX 4x4 4d 1.495.000 KR. l,6GLXWAGON 1.445.000 KR. WAGON 4x4 1.595.000 KR. JLX SE 5d 1.830.000 KR. DIESEL 5d 2.180.000 KR. Sjálfskipting kostar 150.000 aukalega GR.VITARA2,5 LV6 2.589.000 KR. Sjálfskipting kostar 150.000 aukalega í j, tj wmm /SíbJ, a

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.