Morgunblaðið - 28.06.1998, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 28.06.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 35 + Gísli Ingólfsson fæddist í Merki- garði í Skagafirði 12. september 1918. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Sauðár- króki 5. júní síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Reykjakirkju í Skagafirði 20. júní. Gamall vinur minn og félagi, Gísli Ingólfs- son, bílstjóri og fyrr- verandi bóndi á Lauga- bóli, er látinn tæpra áttatíu ára að aldri. Laugaból var heiti á nýbýli, sem var reist í landi Steinsstaða í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði. Þar er nú risinn skóli og skemmtigarður Lýtinga. Hafði Gísli gert þar túnasléttu á mel- bungu við nýbýlið, sem síðar var lögð undir hin nýju mannvirki; skólann og skemmtigarðinn. Má segja að sú breyting hafi verið tím- anna tákn, þegar þróunin er í þá átt að vilja gera eitthvað annað í sveitum en að búa. Gísli horfði á þessar breytingar og var þeim um margt hlynntur. Hann taldi þvi ekki eftir sér að víkja þegar þörf sveitarfélagsins kallaði og hélt suður eins og við margir og gerðist kaupmaður um skeið. Hann var alla tíð sinnaður fyrir kaupskap og kom það meðal annars fram í margskonar við- skiptum sem hann átti í á meðan hann bjó á Laugabóli (Steinsstöð- um). Bílar voru honum ekld fastir í hendi sæi hann fram á góða sölu eða að gera mætti bílaskipti eins og alvanalegt var um miðja öldina. Seinna kom hann sér upp góðu hestakyni og þessi þrautreyndi bíl- stjóri, sem vissi allt um vélar, þekkti ekki síður vel til hesta; var tamningamaður góður og gat séð svo sjaldan brást, hvort efni var í ótömdum fola. Gísli var vel ættaður, kominn í fóðurlegg af Daníel Sigurðssyni, pósti. Ingólfur, faðir Gísla, og Jónína Einarsdóttir, móðir hans, bjuggu fyrstu ár sín í Merkigarði, sem var næsti bær sunnan við Steinsstaði, en á Steinsstöðum hafði Daníel póstur búið. Seinna fluttist Ingólfur og fjölskylda að Bakkaseli í Öxnadal, þar sem hann rak greiðasölu í fjölda ára. Bakka- sel var á þeim árum kunnur veit- ingastaður við þjóðveginn, en um staðinn orti Davíð þjóðskáld þess- ar kunnu ljóðlínur: Það er annað að kveðja á Kotum enkomastíBakkasel. Þetta urðu stundum orð að sönnu fyrir okkur sem áttum leið um í misjöfnum veðrum og færð í fym daga. Ingólfur ekki síður en Gísli var fær hestamaður og urðu þess mörg dæmi þann tíma sem ég var samvistum við þá feðga á Lauga- bóli (Steinsstöðum) skömmu fyrir 1950. Steinsstaðir voru síðasti bærinn sem ég bjó á með foreldr- um mínum áður en við fluttumst til Akureyrar vorið 1939, svo mér voru allir staðhættir kunnugir. Það var nokkur sáluhjálp í því að vera kominn á kunnar slóðir og ekki skaðaði það góða atlæti sem ég naut hjá Skagfirðingum þá og síðar. Laugabólsmenn eru áreiðan- lega einhvers staðar í því sem ég hef skrifað, svo kærkomnir voru þeir mér. Mig langar aðeins að víkja að þeim hestum, sem þeir Gísli og Ingólfur faðir hana voru að fást við og venja undir aga á meðan ég dvaldi á Laugabóli (Steinsstöðum). Fyrstan skal telja jarpskjóttan fola, lipurlega vaxinn, sem fremur orðhvöt kona í sveitinni átti og vantaði nú að yrði taminn. Ingólfur varð við bón konunnar um tamn- ingu, en hann gætti fjár á eyðibýl- inu Steinsstöðum og reið þangað á tryppun- um sem hann var að temja kvölds og morgna. Fljótlega huldu hólar reiðmann- inn sýnum þegar hann hélt á beitarhúsin, en fremur auðvelt var að fylgjast með tamning- unni eftii’ því hvað hann var fljótur að hverfa úr augsýn. Honum gekk vel með þann skjótta og brátt hvarf hann eins og eldibrandur með Ingólf milli hól- anna. Svo sagði Ingólfur fulltamið og konan kom að sækja Skjóna og skellti nokkrum köpui-yrðum á Ingólf í leiðinni og kvaðst treysta því að skepnan kæmist úr sporum. Ingólfur hefði væntanlega ekki skemmt hann. Það krimti eitthvað í Ingólfi og konan steig á bak hin hressasta. Svartá rennur í boga undan grænum bakka fyrir neðan Laugaból og lá vegur að vaðrofi mjög greinilegu. Skjóni tók á sprett eflaust fyrir ótímabæra hvatningu frá konunni og greip stökkið þegar kom niður á bakk- ann langt utan vegar. Ingólfur fórnaði höndum þegar hann sá að- farirnar í því Skjóni snarstansaði á blábakkanum og hvolfdi konunni af sér út í ána. Hún sneri renn- blaut til baka með hestinn í taumi, hellti sér yfir Ingólf og sagði hon- um að skila hestinum fulltömdum. Það gerði hann skammlaust. Ég sá þegar konan reið á Skjóna burt úr tamningunni. Hann tiplaði rúm- lega fetið og ýtti hún við honum steig hann valhopp stutt og rólega, en hraðar fór hann ekki. Þar fór gæðingur fyrii- lítið. Gísli hafði augun hjá sér þegar hestar voru annars vegar. Eitt haustið var hrossum smalað saman á hrossamarkað, en síðan átti að reka þau á sláturmarkað á Akur- eyri. Réttað var í Mælifellsrétt og valin úr sláturhrossin, m.a. tveir átta vetra hestar frá Litla-Dal sem aldrei hafði verið lagt við. Var ann- ar rauðgrár en hinn silfurgrár. Báða þessa hesta keypti Gísli und- an hnífnum. Sá rauðgrái stóð ekki unir væntingum en sá silfurgrái fríkkaði eftir því sem tíminn leið og varð upplagt gæðingsefni. Gísli lagði alúð við tamninguna og brátt leið að vori. En þá meiddist sá grái illa á öðrum afturfæti svo hann varð líka að fara undir hnífinn. Þannig er þetta nú. Gleðigjöfunum er ekki sjálfgefið líf. Þótt töluverð saga sé af hesta- mennsku Gísla var bflaútgerð um langan tíma aðalatvinna hans fyrir utan búskapinn. Þó við værum að- eins málkunnugir á fyrstu árunum eftir stríð áttum við saman nokkur viðskipti og ég man svo langt að ég lánaði honum fólksbfl sem ég átti kæmi hann til Akureyrar til að sinna erindum. Seinna þegar ég var farinn að aka vörubflum kom hann á hertrukki til Akureyrar sem hann hafði keypt hjá Sölu- nefnd setuliðseigna. Við höfðum bílaskipti og ég byrjaði að aka vör- um á þessum hertrukki milli Reykjavíkur og Akureyrar. Vegir voru þá lítt lýsanlegir fyrir þeim sem aka um í dag, en breytingin er hluti af framförunum, sem komu ekki nema að litlu leyti kynslóð Gísla til góða. Ótrúlegum fjármun- um var sóað á ónýtum vegum, en við héldum jafnvel í barnaskap okkar að þetta ætti að vera svona. Gísli stundaði ekki atvinnurekstur með bfla að neinu ráði eftir 1950, en hann átti bílinn frá mér, sem hann fékk í skiptum fyrir her- trukkinn árin fyrir 1950 þegar ég var í Skagafirði. Hann þurfti á bfl að halda heima við á Laugabóli til að geta ekið með aðdrætti yfir Svartá og flutt þaðan afurðir. Síðan kom brú og upp úr því þurfti hvorki að aka fólki né bera yfir ána. Það var oft skemmtilegt á Laugabóli (Steinsstöðum) tímann sem ég var þar. Margir voru til heimilis og oft margt spjallað. Gísli átti fjóra bræður og minnir mig að einn þeirra, sem nú er látinn, hafi haft fasta viðveru á heimilinu og hinir komið þegar vel lá á þeim. Gísli var fráskilinn þegar þetta var og Jónína stóð fyrir heimilinu af miklum myndarskap með Ingólf sér við hlið. Gísli var líka skráður bóndi og hefur þá haft hálfgerðan ráðskonusamning við móður sína. Hann átti tvo syni, Ingólf Dan og Axel Hólm. Ég man eftir Ingólfi Dan ungum, ljóshærðum og glað- legum eins og allt þetta fólk var yf- irleitt. Axel kynntist ég síðar. Hann var líkur Gísla í útliti og hreyfingum og hafði ég gaman af að kynnast honum. Hann bjó þá á nýbýli frá Fremra-Svartárdal, gömlu ættaróðali afkomenda Guð- mundar á Vindheimum, Arna og bræðra hans, en hans son var Ind- riði á Irafelli. Axel var giftur yngstu dóttur Moniku á Merkigili og fannst mér mikið jafnræði með þeim hjónum. Þegar ég komst til vits og ára fannst mér Gísli og bræður hans vera ungir menn. A þeim tíma var órafjarri sanni að fólk eltist hvað þá að nokkrum dytti í hug af þessu aldurslausa og unga fólki, að ein- hver ætti eftir að deyja kominn um áttrætt. Ungt fólk er eflaust svona þenkjandi enn í dag og má heyra það og sjá á ýmsu. Þegar til aldur- dómsins kemur þá léttir hann mik- ið að hafa verið innan um skemmtilegt fólk og hafa haft nokkra ánægju af að gefa því gæt- ur. Jafnvel fimmtíu ára afmælis- veisla er minnisstæð af því engar veislur síðan hafa verið með líkum blæ. Ég man ekki hvað Ingólfur Daníelsson var gamall, en hann átti rnerkisafmæli og upp á það skyldi haldið. Veisluföng voru nóg og sveif á gesti og gangandi, en mikið var sungið, bæði hjartnæm ættjarðarlög og svo hinar áleitn- ustu gangnavísur. Bændur voru þá enn mikið fyrir smalamennskur. Um nóttina fóru síðan gestir að tínast í burtu í niðamyrkri. Morg- uninn eftir var hringt og hafði þá einn gestanna ekki skilað sér heim. Tóku menn því ekki ólíklega, enda hafði hann verið við skál. Leið svo morgunninn að ekkert fréttist, en þeir sem voru smámsaman að vakna á Laugabóli töluðu um mikla veislu og við hæfi, þar sem um höfðingja eins og Ingólf var að ræða. Nyrst á hlaðinu á Laugabóli og sneri stafni til árinnar hafði verið hrófað upp skemmu til bráða- birgða, en hún var síðar rifín. Sá fyrsti sem gekk um hlaðið um miðjan morgun sá ekki betur en einhver gestanna hefði skilið eftir skó sína við skemmudyrnar. Hugði hann ekki að því frekar en gekk inn aftur og sagði að auðsjánlega hefði einhverjum verið brátt að komast heim, því hann hefði hlaup- ið upp úr skónum norður á hlað- inu. Þegar betur var að gáð lá týndi maðurinn á grúfu innan við dyrnar; hafði auðsjáanlega fallið um þrepskjöldinn, sem var nokkuð breið fjöl, og sofnað. Gamlir menn deyja með eftirsjá í huga. Við vitum það sem vorum meðreiðarsveinar skammt eða stutt af ævinni að margs var að minnast. Þeir verða líka hvfldinni fegnir ef þá hrjá harðir sjúkdómar. Minn gamli félagi, Gísli Ingólfsson, þjáðist af astma seinni hluta æv- innar. Gott er ef eitthvað hefur verið til sem létti honum þá erfið- leika. En nú er þetta búið. Hann var jarðsunginn að Reykjum í Tungusveit, næsta bæ norðan Laugabóls, og á stutt að fara um þau grænu lönd og rismiklu kletta- borgir, sem í einn tíma voni í senn lífsvettvagnur hans og athafnasvið. Far vel. Indriði G. Þorsteinsson. GÍSLI INGÓLFSSON + Okkar ástkaera KRISTBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Grenigrund 28, Akranesi, er látin. Sigurður Vilii Guðmundsson, Dagbjört Friðriksdóttir, Guðmundur Þórir Sígurðsson, Jóhanna S. Sæmundsdóttir, Pálína Sigurðardóttir, Sigurður Páll og Vilhjálmur Sveinn. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, og langamma, ÞÓRDÍS JÓHANNESDÓTTIR, Glaðheimum 16, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 30. júní kl. 13.30. Helga Bergþórsdóttir, Haraldur Bergþórsson, Guðlaug Bergþórsdóttir, Magnús Jónsson, Hjördís Bergþórsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Helgi J. Bergþórsson, Sjöfn Þórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, KRISTJÁN HANNESSON, Suðurgötu 73, Hafnarfirði, áður Lambeyri, Tálknafirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 30. júní nk. kl. 13.30. Börn hins látna. + Elskuleg móðir okkar, SVAVA ÓLAFSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. júní nk. kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ingólfur Jökulsson, Garðar Jökulsson, Stefán Jökulsson. + Móðir mín, tengdamóðir og amma, ÁSGERÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR, Flúðaseli 80, Reykjavík, lést þriðjudaginn 16. júní sl. Útförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 29. júníkl. 13.30. Kristjana Kjartansdóttir, Rúnar Grímsson Kjartan Rúnarsson, Ásgeir Rúnarsson, Óskar Rúnarsson, Atli Rúnarsson, Daði Rúnarsson. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, GUNNARS S. MALMBERGS gullsmiðs, Helga Ragnarsdóttir, Baldur Malmberg, Tómas Ó. Malmberg, Arndís B. Bjargmundsdóttir, Alexander Arndísarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.