Morgunblaðið - 28.06.1998, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 41
I
I
(
I
I
(
(
(
(
(
(
(
(
I
(
I
I
(
I
I
I
FRETTIR
Ný þjónustustöð Olíufélagsins
Bflavörur o g
veitingasala
NÝ þjónustustöð Olíu-
félagsins á Ártúnshöfða
í Reykjavík verður opn-
uð með formlegum
hætti í dag. Hefur þar
risið 600 fermetra bygg-
ing í stað þeirra 120 fer-
metra sem áður voru
þar undir þaki. Auk
eldsneytis og bílavöru
eru þar í boði matvörur
og sælgæti og þar er
einnig veitingastaður.
Geir Magnússon, for-
stjóri Olíufélagsins,
sagði orðið löngu brýnt
að endurnýja stöðina á
Ártúnshöfða, sem tekin
var í notkun árið 1971.
Sagði hann æskilega
meðalendingu bensín-
stöðvar kringum 20 ár
því ýmis tækni og aðbúnaður úrelt-
ust hreinlega á svo löngum tíma.
Hann sagði söluna á þessari sölu-
hæstu bensínstöð fyrirtækisins til
margra ára hafa dalað síðustu miss-
erin en með samræmdri þjónustu á
nýrri stöð og bættum aðbúnaði væri
nú vöm snúið í sókn.
Framkvæmdir við stöðina hófust í
janúar eftir nokkuð langan undir-
búning og tóku þær því fimm og
hálfan mánuð. Arkitektar eru Arki-
tektar sf. en verkfræðingar Olíufé-
lagsins, þeir Stefán Guðbergsson og
Guðmundur Tryggvi Sigurðsson,
önnuðust byggingarstjórn og sam-
ræmingu framkvæmda. Húsið er
stálgrindahús og fóru um 100 tonn
af stáli í grindina sem er án annarra
burðarveggja. Framhlið þess er um
100 fermetra veggur úr 19 mm
hertu gleri. Segja þeir þetta stærsta
einstaka glervegg landsins úr ein-
földu gleri. Hita- og neysluvatns-
lagnir eru úr plasti og er notað svo-
kallað „rör í rör“ kerfí. Er stöðin
fyrsta húsið í Reykjavík sem sam-
þykkt er með þessu kerfi. Saman-
lögð lengd raflagna hússins er 50
km og snjóbræðslukerfi lóðarinnar,
sem er 8 þúsund fermetrar, er 6 km.
Glerið í veitingasalnum er þrefalt og
hljóðeinangrað.
Fjárfestingin tvöfold á við
venjulega stöð
Geir Magnússon segir að kostnað-
ur við byggingu stöðvarinnar og
búnað sé ekki langt frá 160 milljón-
um, nokkurn veginn tvöfaldur
kostnaður stöðvar af venjulegri
stærð sem sé á bilinu 70 til 90 millj-
ónir króna.
Eldsneytisdælur stöðvarinnar eru
14 á þremur eyjum og er bæði um
að ræða möguleika á sjálfsafgreiðslu
og þjónustu. Þá eru á lóðinni 60
Morgunblaðið/Jim Smart
HÁTT í 40 manns starfa á vöktum í nýju þjón-
ustustöðinni á Ártúnshöfða sem er opin frá 7
að morgni til miðnættis. Stöðvarstjóri er Kol-
brún Héðinsdóttir og með henni er Pálmar
Viggósson, rekstrarstjóri bensínstöðva.
fólksbílastæði og fjögur fyrir stóra
bfla. Innan dyra er rekin Hraðbúð
Esso, sú fjórtánda í röðinni; Nesti
sem selur veitingar út um bflalúgur
sem og í veitingasal, og Subway-
staður, annar slíkra sem Olíufélagið
opnar. Stöðvarstjóri er Kolbrún
Héðinsdóttir.
Opnunarhátíð verður á stöðinni í
dag, laugardag, og verður þá giillað
og boðið upp á tónlist á milli klukk-
an 13 og 15. Fram koma m.a. Lög-
reglukórinn, Casino og Páll Óskar.
Fram til 1. júlí verður í gildi fjög-
urra króna opnunarafsláttur á
sjálfsafgreiðsludælunum og kostar
lítrinn af 95 oktana bensíni þar 71,40
kr.
SPECTRORIIC
TS-400
Handsími
Bílasími
Festing í bíl
með 12V
hleðslutæki,
handfrjálsri
notkun,
tengingu f.
loftnet og
loftnetskapli.
Hleðslutæki f.
230V, 120 klst.
NiMH rafhlaða,
ktfA
37 ■ 108 Reykjavik
688-2800 - Fax. 568-7447
SPARISJOÐUR HAFNARFJARÐAR
Nafnveró útgáfu:
Útgefandi:
Lýsing á flokki:
Skráningardagur á VÞÍ:
Viðskiptavakt á VÞÍ:
Sölutímabil:
Ávöxtunarkrafa á söludegi:
Skilmálar:
Umsjón með skráningu:
n
SPARISJÓÐUR
HAFNARFJARÐAR
Skráning skuldabréfa á Verðbréfaþingi íslands
Um opinn flokk er að ræða. Nafnverö er allt að 3.000.000.000 kr. Nú þegar
hafa verið gefin út skuldabréf að verðmæti 300.000.000 kr. og verður
viöbótarútgáfa tilkynnt til Verðbréfaþings fslands og skráö á þinginu eftir
því sem við á.
Sparisjóður Hafnarfjaróar, kt. 610269-5599, Strandgötu 8-10,
220 Hafnarfirði.
Heiti flokksins er 2. flokkur 1998. Bréfin em til 15 ára og bera 4,75% vexti.
Bréfin eru vaxtagreiðslubréf og eru vextirgreiddir þann 25. maí ár hvert, i
fyrsta sinn 25. maí 1999 og í síöasta sinn 25. mai 2013, af uppfærðum
höfuðstól skuldarinnar. Höfuðstóll og verðbætur eru greidd út með einni
greiðslu þann 25. maí 2013.
Verðbréfaþing (slands hefur samþykkt að skrá þegar útgefin skuldabréf og
munu þau verða skráð 3. júli 1998.
Sparisjóður Hafnarfjarðar, kt. 610269-5599, Strandgötu 8-10,
220 Hafnarfirði og Kaupþing hf, kt. 560882-0419, Ármúla 13A,
108 Reykjavík, verða með viðskiptavakt á flokknum á VÞÍ.
25. mai 1998 - 30. desember 2001.
5,00%
Bréfm era seld gegn staðgreiöslu. Lágmarksupphæð er 5.000.000 kr.
Sparisjóöur Hafnarfjarðar, kt. 610269-5599, Strandgötu 8-10,
220 Hafnarfirði.
Skráningarlýsing og önnur gögn varðandi ofangreind skuldabréf
liggja frammi hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Strandgötu 8-10,220 Hafnarfirði
slmi: 550-2000, myndsendir: 550-2001.
GARÐHUSGOGN
r
I
I
Eyjaslóð 7 Reykjavík S. 51 1 2200